Morgunblaðið - 09.05.1971, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971
17
BE A kemur til Islands
Eftir Roy Watts, svæðisstjóra
„Stefna okkar er að ná nýj-
um mörkuðum og jafnframt
trygg'ja hlutdeild BEA í þeim,
sem við höfum nú þegar.“
BEA hefur fjögur landfrœði-
leg markaðssvæði, sem eiga að
tryggja hagnað á öllum leiðum.
Þrjú af þessum svæðum eru á
meginlandi Evrópu, en eitt er á
Stóra-Bretlandi.
Á NA-Evrópusvæðinu er flug
milii Bretlands og 35 borga í
18 löndum. Á því svæði hefur
BEA samstarf við 16 erlend flug
félög á viðskiptalegum grund-
velli, og tekjurnar á þessum leið
um munu á þessu ári fara fram
úr heildartekjum BEA árið 1962.
Farþegar þess eru til að mynda
Norðurlandabúar, Austurrikis-
menn, Þjóðverjar, Svisslending
ar, Belgíumenn, Hollendingar,
Rússar, Búlgarar, Rúmenar, Ung
verjar, Júgóslavar, Bandaríkja-
menn, Kanadamenn, Japanir, og
nú íslendingar, og að sjálfsögðu
Bretar.
Þetta svæði hefur sérstöðu hjá
BEA vegna þess fjölda kaup-
sýslumanna, sem félagið flytur
þar: rúmlega 60% af heildarfar
þegafjölda, vegna farmiða, sem
seldir eru utan Bretlands: rúm-
lega 50% vegna vöruflutninga á
millilandaflugleiðum; 53% af
heildarflutningi BEA, og loks
vegna töluverðs farþegaflutn-
ings yfir vetrarmánuði hjá fyr-
irtæki, sem verður að horfast i
augu við mikla eftirspurn yf-
ir sumarið og þar af leiðandi of
litla nýtingu á farkostum sínum
yfir þá mánuði. En fyrst og
fremst er þetta svæði, sem sýn
ir taisverðan hagnað og hag-
stæða þróun.
Þessi fjögur svæði hafa með
að gera mismunandi markaði, og
vegna þess og vegna mismun-
andi einkenna þjóðanna hafa
þau þróað ólíkar starfsaðferðir.
Þetta á einmitt við N. og A.
Evrópusvæðið. Aðalstefnan er
að leggja áherzlu á hagnað yfir
langt tímabil með þvi að laða til
sin og þóknast núverandi og
væntanlegum viðskiptavinum
innan skipulegs og áframhald-
andi vaxtar. Stefna þess er að
ná nýjum mörkuðum og jafn
framt tryggja hlutdeild BEA i
þeim, sem við höfum nú þegar.
Vöxtur er grundvallarskilyrði
fyrir hagnaði, bæði vegna kostn-
aðar og samkeppni. Breytilegir
kostnaðarliðir (til dæmis elds-
neyti, sem sparast ef flug fellur
niður) eru oft u.þ.b. 35% af
heildarkostnaði, og viðbót við
aðra kostnaðarliði byrjar
snemma, til dæmis þegar um
nýja flugleið er að ræða, og hef
ur gildi svo lengi sem langtíma
heildarhagnaður er tryggður.
Frá því 1968—69 hafa tekj-
ur á svæðinu vaxið um 62%, og
á þessu ári munu ísland, Lenin-
grad og Zagreb bætast við þær
flugleiðir, sem komið hefur ver-
ið á fót siðan svæðið var skipu-
D
lagt árið 1967 — Bremen, Stutt-
gart, Búkarest, Beigrad og
Sofia. Jafnframt hafa tíðari ferð
ir og stærri flugvélar á núver-
andi leiðum leitt tii vaxandi
starfsemi á þessum mörkuðum.
Árið 1971, til dæmis, mun flug-
ferðum til Helsinki verða fjölg
að úr fjórum i viku í daglegar
ferðir, og Trident Three-vélar
munu verða teknar í notkun á
leiðunum ti) Oslóar, Amsterdam
og Briissel.
Mikilvægasti viðskiptavinur á
svæðinu er kaupsýslumaðurinn.
Hann ferðast bæði á fyrsta óg
á almennu farrými, og hann
gerir háar kröfur, og til þess að
ná árangri verður að gera hann
ánægðan. Hann væntir margra
hluta, meðal annars áreiðan-
leika í orðsins fyllstu merkingu.
Hann krefst stundvísi og ná-
kvæmni, góðs þjónustuliðs og
upplýsingakerfis, fyrsta flokks
matar, og hann vill komast
fljótt og hindrunarlaust um
borð og úr vélinni. Hann vænt-
ir nýrra og öruggra flugvéla,
kurteisi og lipurðar af hendi
flugliðanna. Hann vill fá auka-
þjónustu, til dæmis í sambandi
við hótelpantanir og aðstoð við
að útvega bíl á leigu. Hann er
fulltrúi fyrirtækis síns. Tíminn
er honum mikilvægur.
Farmiðasölur utan Bretlands
eru nú rúmlega 50% af heildar
sölu á flugleiðum svæðisins,
einkum í Bandaríkjunum. Að
dragá úr efnahagsáhrifum frá
einu landi eða að vera ekki of
háður einum aðila (t.d. einum
viðskiptavini) er markmið, sem
allir kaupsýslumenn munu við
urkenna.
í þeim löndum, sem heyra und
ir svæðið, er stefnt að sem
beztri samvinnu við önnur flug
félög, ferðamannayfirvöld, verzl
unarráð og ferðaskrifstofur.
Sameiginlega reynum við að ná
til þeirra, sem venjulega ferðast
í bil, með skipi eða lest, eða sem
fará með hópferðum í leiguflug
vélum fremur en með áætlunar-
vélum, og til þeirra, sem ferð-
ast innanlands í staðinn fyrir að
fljúga til annarra landa. Við
reynum að skapa nýja markaði,
til dæmis að auka sölur til Aust
ur-Evrópu eða selja hvíldar-
daga i Finnlandi. Aukinn far-
þegafjöldi á flugleið okkar i sam
bandi við kaupstefnuna i Leip-
zig og aukinn fjöldi ferða-
manna, sem nú fara hinn gullna
veg til Samárkand, sýnir ágæti
þessarar stefnu. BEA leitast við
á þessu svæði að auka enn
meira ferðir fyrir utan háanna-
tímann með því að leggja
áherzlu á hin auknu þægindi,
og með þvi að hvetja til ráð-
stefnuhalda og annarra funda,
sérstakra hópferða o.s.frv. á öðr
um árstímum. Á þeim timum þeg
ar lítil sætanýting er, hvetur
BEA starfslið sitt til að nota
fargjaldafríðindi sin og ferð-
ast 'til Austur-Evrópu, meðal
annars til að kanna þjónustu-
kerfið með það fyrir augum að
við heimkomú sé það hæfara að
auka sölu ferða til Austur-Ev-
rópu. Og eins og öll önnur fyrir
tæki, stefnir BEA að því að
halda kostnaði í lágmarki.
Á þessu ári 'er það okkur
gleðiefni að taka ísland inn í
NV-Evi'ópusvæði BEA, og það
er von okkar að flytja til Is-
lands marga ferðamenn, ekki að
eins frá Bretlandi og hinum 96
borgum, sem BEA flý'gur til i
Evrópu, heldur einnig frá öðr-
um heimshlutum. Við vonum
einnig, að margir íslendingar
muni heimsækja Bretland, ann-
að hvort til stuttrar dvalar eða
að halda áfram til annarra
landa. En umfrram allt erum við
vissir um, að reglulegar sam-
göngur, sem BEA býður í gegn
um London til svo margra staða
í Evrópu, muni færa öllum auk
in viðskipti og ferðamanna-
straum.
tJt eru komnir 4. og 5. veggskildirnir í Flókamyndaflokkniun,
„Hamskipti mánagyðjunnar", en alls verða þeir 6 talsins.
Veggskildirnir eru gefnir út í 200 tölusettum eintökum hver
mynd og seldust númerin upp í upphafi útgáfunnar eftir ára-
mótin. Myndaflokkurinn „Hamskipti mánagyðjunnar“ er
gerður í postulín af fyrirtækinu Gleri og postulíni h.f. Alfrt'ð
Flóki er fyrsti íslenzki listarn aðurinn, sem vinnur verk sín
fyrir postulín á þennan hátt.
CO
cvi
}
1
5
|
Nýuppgötvuö
feröamannaparadís
Mörg góð hótel. Dásamlegt landslag.
Hollt og hressandi úthafsloftslag.
Matur, sem hæfir yður vel (og þér skiljið
matseðilinn). Engar gjaldeyrishömlur.
Þér getið haft mpð yður allt yðar fé,
ef þér óskið. Engin tollsköðun. Ekkert
vegabréfsstúss. Nóg af friðsælum
stöðum. Þér getið hvílzt í fríinu.
Og íbúarnir tala yðar tungu. Við kynnum
yður paradís ferðamanna: island.
Við veitum innlendum ferðamönnum
hvers konar þjónustu í ferðalögum
innanlands. Gefum út farseðla, skipu-
leggjum hópferðir, tryggjum gistingu,
útvegum veiðileyfi, ferðatryggingu og bíl
frá bilaleigu, veitum upplýsingar og
leiðbeiningar um ferðir.
Öll þessi þjónusta stendur yður til boða
án sérstaks endurgjalds.
Notfærið yður það.
þér fáiö
yðarferó
hjá okkur
hringiö í
síma 25544
FERÐASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5