Morgunblaðið - 05.06.1971, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 5. JÚNl 1971
Alifugla-
búið
Fjöregg
heimsótt
það
Tvær alifuglategundir eru i búinu, annars vegar hvítar ítalskar og hins vegar Hv. Pl, R.-
hænur.
er peninga lykt af hænum
— segir bóndinn í Sveinbjarnargerði við Eyja-
fjörð. Ársframleiðsla búsins af eggjum
um 1 y2 milljón og 200 þúsund kjúklingar
— Hænsnarækt er ekki róm-
antískur búskapur, en hins
vegar er peningalykt af hæn-
um og þvl ákvað ég að leggja
þá búskapargrein fyrir mig,
sagði Jónas Halldórsson í
Sveinbjarnargerði á Svalbarðs
strönd, en Jónas rekur þar
eitt af stærstu hænsabúum
landsins, „Alifuglabúið Fjör-
egg“.
Fjöregg hefur verið starf-
rækt síðan árið 1961 og hefur
framleiðsla búsins aukizt mik-
ið frá ári til árs. Á þessu ári
mun búið ala milli 150—200
þúsund kjúklinga, en í fyrra
voru kjúklingarnir 120 þús-
und talsins og sýna tölur þess-
ar glöggt vöxt búsins. í bú-
inu eru 6 þúsund varphænur,
sem skila 4 þúsund eggjum á
dag, þ.e.a.s. hvorki meira né
minna en 1 milljón 460 þúsund
eggjum yfir árið.
Sveinbjarnargerði á Sval-
barðsströnd er myndarlegt bú
og snyrtilegt. Jónas og bróðir
hans, Haukur, tóku fyrir all-
mörgum árum við búinu með
föður þeirra, Halldóri Jó-
hannssyni. Skiptu þeir búinu
þannig á milli sín að Haukur
rekur kúabúa á staðnum
ásamt föður sínum, en Jónas
valdi alifuglarækt, eins og áð-
ur segir.
— Ég fór til Noregs í bænda
skóla. Þar komst ég í kynni
við alifuglarækt og sá að þarna
var arðvænleg búskapargrein.
Ég sótti þvi um skólavist á
norskum alifuglaræktarskóla
og var þar í 6 mánuði og
kynnti mér rekstur alifugla-
búa. Ég komst mjög fljótt að
raun um að alifuglaræktunin
var ekki aðeins arðvænleg
grein heldur einnig skemmti-
leg.
Þó að hænsni séu ekki vel-
lyktandi dýr né þannig gerð
að skapist tengsl milli manns
og þeirra eins og milli manns
og ýmissa annarra dýra, þá
er engu að síður gaman að
fást við þau.
Jónas hefur látið reisa 3 hús
fyrir alifuglana og er mjög
vel búið að fuglunum á allan
hátt. í búinu eru 4 útungunar
vélar og það tekur 21 dag
að unga eggjunum út í vélun-
um. Misjafnt er hve mörgum
eggjum er ungað út í éinu, en
í sl. viku voru ungarnir
Heildarframleiðslan yfir árið af eggjum er um 114 milljón.
3.646 talsins og er það nýtt
met í sögu búsins. í byrjun
fór öll slátrun fram á búinu
sjálfu, en nú hefur Jónas feng-
ið aðstöðu í sláturhúsi Kaup-
félags Svalbarðseyrar, þar
sem hann slátrar kjúklingun-
um og pakkar. Framleiðsla bús
ins kemur síðan fyrir almenn-
ingssjónir í ýmiss konar mynd
um. Kjúklingar eru seldir lif-
andi, þá eru seldir svokallaðir
kjötkjúklingar, grillkjúklingar,
Jónas Halldórsson
alihænsn, hótelkjúklingar,
kjúklingabringur, kjúklinga-
læri og síðast en ekki sízt egg.
Kaupfélag Eyfirðinga á Akur-
eyri og Kjötver i Reykjavík
eru aðaldreifingaraðilar Fjör-
eggs og eru vörurnar á mark-
aðnum í verzlunum um allt
land. Frá Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd er um 20 mín.
akstur til Akureyrar, og sagði
Jónas að oft lægju samgöngur
milli þessara staða alveg niðri
timunum saman, sérstaklega á
vorin og yfir veturinn.
— Tefur það eðlilega dreif-
ingu vörunnar, en hins vegar
kemur þetta ekki eins mikið
að sök og ætla mætti, þar sem
ég hef mjög góða frystiaðstöðu
Vörurnar hafa aldrei skemmzt
vegna tafa á samgöngum, en
hins vegar er þetta auðvitað
bagalegt fyrir búreksturinn,
þvi eftirspurn eftir vörunum
og þá sérstaklega kjúklingum,
er mjög mikil.
Alifuglar eru viðkvæm dýr
og má litið fyrir þau koma til
þess að tjón hljótist af. Ekki
er langt síðan þess var getið
í fréttum að um 500 kjúkling-
ar í Fjöreggi drukknuðu
vegna þess að vatnsleiðsla
sprakk eina nóttina í einni
stíunni. Einnig kom það fyrir
á sl. ári að 2000 ungar, sem
voru í útungunarvélunum
drápust er hitastillir bilaði.
Sagði Jónas blaðamanni Morg-
unblaðsins að slys af þessu
tagi væru orðin sjaldgæf nú
síðari árin en hefðu hins veg-
ar verið nokkuð tíð, þegar
hann var að byrja búrekstur-
inn og var ekki búinn að átta
sig á því hve mikillar ná-
kvæmni er þörf við starfið. Þó
sagði Jónas að aldrei væri
hægt að fyrirbyggja smáslys
með öllu, hversu vandlega,
sem farið væri.
Jónas Halldórsson í Svein-
bjarnargerði hefur stofnað inn
kaupahring ásamt nokkrum
bændum í Eyjafirði. Nefna
þeir fyrirtækið Bústólpa og
er tilgangur þess að annast
innkaup á kúa-, svína- og
hænsnafóðri. Eru umsvif fyrir-
tækisins orðin mikil. Keypti
fyrirtækið inn fyrir 18 millj-
ónir kr. á sl. ári. Notar Jónas
danskt fóður handa alifuglun-
um sínum og sagðist hann
þurfa að gefa fuglunum allt
að 3.5 tonnum á dag.
Þegar gengið er um búið
vekur það eftirtekt manns að
þar er eingöngu hvitir alifugl-
ar. Aðspurður sagði Jónas að
það væri ekki af tómri sér-
vizku, sem hann veldi ein-
göngu hvíta fugla. — Ég er
með tvær tegundir, sem báðar
eru hvítar, og er það annars
vegar hvítar ítalskar hænur,
en hins vegar Hv. Pl. R hæn-
ur. Hvítu ítölsku hænurnar
eru mjög góðar varphænur og
af Hv. Pl. R-hænunum fæst
bezt kjöt, sagði Jónas Hall-
dórsson í Sveinbjarnargerði að
lokum.