Morgunblaðið - 05.06.1971, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1971
Skrifstofumaður - Innhoimtumaður
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða nú þegar:
1. Reglusaman mann til bókhaldsstarfa með Verzlunarskóla-
próf eða Samvinnuskólapróf.
2. Reglusaman mann með góða framkomu til innheimtustarfa.
Umsækjandi þarf að hafa kynnzt vinnu við rafmagn og geta
lagt til bíl.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist til
Rafveitu Hafnarfjarðar, Hverfisgötu 29.
Verzlunin Glifbrá
Stuttbuxur komnar í stærðunum 2—14.
Einnig sokkabuxur á börn.
GLITBRA,
Laugavegi 48
Frímerki
Gott frimerkjasafn er til sölu, ef viðunandi verð fæst.
Safnið er komplett frá 1902—1944 óstimplað.
Vantar 20 númer i aura og I gildi merkin. í þjónustumerkin
vantar 4 númer.
Nánari uppl. eftir kl. 19 næstu daga og í síma 96-12157.
Rafvirkjar
Fyrirtæki okkar óskar að ráða mann á aldrinum 23—30 ára með
rafvirkjamenntun til lagerstarfa sem fyrst.
Þeir, sem áhuga hafa á starfi þessu, sendi eiginhandarumsókn-
með upplýsingum um aldur og fyrri störf fyrir 20 þessa mán-
aðar í pósthó.f 519.
SMITH & NORLAND HF.
Verkfræðingar — Innflytjendur.
Pósthólf 519 — Reykjavík.
Til sölu
Þrjár 5 herbergja íbúðir (11(1 fm) í Æsufeli 6.
Verð 1480 þúsund krónur.
r
I Mikill hugur í sjálf-
stæðismönnum —
segir sr. Gunnar Gíslason
nm kosningabaráttuna í
Norðurlandskjördæmi vestra
MORGUNBLAÐIÐ hafði í
gær tal af séra Gunnari Gísla
syni, en hann skipar efsta sæti
lista Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra.
Gunnar var staddur á Blöndu
ósi vegna fundarhalda þar í
gærkvöldi.
— Hver er gangur mála í
kosningabaráttunni fyrir norð
an?
— Kosningabaráttan geng-
ur bara vel, haldnir hafa ver
ið tveir sameiginlegir fram-
boðsfundir, á Hvammstanga
og Skagaströnd, og verður
þriðji fundurinn haldinn hér
á Blönduósi í kvöld. Fundirn
ir hafa verið mjög sæmilega
sóttir og mjög líflegir.
— Hver eru helztu máiin,
sem rædd eru á fundum þess-
um?
— Það sem vakið hefur
hvað mesta athygli mína, er
þao. að Alþýðubandálags-
menn hafa ekki minnzt á
brottrekstur hersins eða úr
sögn úr Atlantshafsbandalag-
inu og virðast þeir með því
ætla að halda öllum mögu-
leikum opnum varðandi
stjórnarsamstarf. Framsóknar
menn hafa ekki minnzt einu
orði á landbúnaðarmál.
Landhelgismálið hefur bor
ið mjög á góma og hefur aðal
ræðumaður í því máli af
hálfu stjórnarandstæðinga
verið Olafur Jóhannesson pró
fessor. Rkðir hann nær ein-
göngu um það mál á fundum
þessum, en mér finnst mál-
flutningur hans og hlutskipti
næsta ömurlegt.
— Hver er ykkar afstaða í
þessu máli?
— Afstaða okkar er, að við
viljum bíða átekta og sjá
hverju fram vindur á undir
búningsfundum undir hafrétt
L—
S.r Gunnar Gíslason
arráðstefnuna 1973. Við höf-
um sagt að það gæti hugsazt,
að grípa þyrfti til útfærslu
fyrr en 1. september 1972, og
því engan veginn ráðlegt að
binda sig við einhvern fyrir-
fram ákveðinn dag í þessu
sambandi.
— Hvað um innanhéraðs-
mál?
— Stjórnarandstaðan held-
ur því fram, að lítið hafi ver
ið gert fyrir atvinnulífið hér
i kjördæminu á undanförnum
árum. Við höfum hins vegar
bent á það, að úr Atvinnu-
jöfnunarsjóði og frá Norður-
landsáætlun hafa, á undan-
förnum þremur árum, verið
veittar hart nær 50 millj. kr.,
sem gengið hafa til margvis-
legrar uppbyggingar atvinnu
lífsins. Þar að auki hafa ver-
ið veittar nær 95 millj. kr.
af því fé, sem atvinnumála-
nefndin hefur yfir að ráða.
Enn er ótalið að hingað í kjör
dæmið hafa runnið ríflegar
upphæðir úr iðnlánasjóði og
fiskveiðasjóði, enda hafa ris
ið upp mikilvæg iðnfyrirtæki
á ýmsum stöðum í kjördæm
inu og skip hafa verið keypt
á síðustu misserum til allra
helztu útgerðarstaða hér.
Um atvinnuleysi er ekki að
ræða neins staðar í kjördæm-
inu svo ég viti til, heldur
mun hitt fremur vera, að
vinnuafl skorti.
— Hvað er að segja um
landbúnaðinn
— Bændur hér líta von-
björtum augum til framtíðar
innar, enda eru veður nú
þessa dagana eins góð og þau
bezt geta orðið í heiminum,
og gróðri fleygir fram. -—
Lambahöld eru óvenju góð,
en þó mun hafa orðið nokkur
skaði í norðanhvelli sem
gerði nú fyrir skömmu, en
sem betur fer held ég að fá-
ir hafi orðið fyrir verulegum
skakkaföllum af hans völd-
um.
— Hver telur þú brýnustu
verkefnin í kjördæminu á
næstu árum?
— Ég hef haldið því fram
í máli mínu í kosningaslagn-
um, að brýnustu verkefni
næstu ára, bæði hér í kjör-
dæminu og um land allt,
væru að viðhalda þeim góðu
lífskjörum sem fólkið nú býr
við, og bæta þau. Á ég þá
ékki einungis við hin efna-
hagslegu lífskjör, heldur einn
ig hin félagslegu og menning
arlegu.
— Hvað heldur þú um úr-
slit kosninganna i Norður-
landskjördæmi vestra?
— Um úrslit vil ég ekki
spá í kjördæminu, okkar
staða er sterk og við fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins erum gunnreifir og gerum
skyldu okkar. Meira verður
ekki krafizt af okkur, en mik
ill hugur er í mönnum að
gera sigur Sjálfstæðisflokks-
ins sem mestan.
Breiðholt hf.
Lágmúla 9.
Sími 81550.
w ww
HiLiinifir.
4 WAY STREET CROSBY. STILLS, NASH & YOUMG.
WOODSTOCK 1 og 2.
JESUS CHRIST SUPERSTAR.
PEARL — JANIS JOPLIN
BRIDGE OVER TROUBLED WATER OG FL —
SIMON & GARFUNKEL.
JOHNNY WINTER — AND LIVE.
PENDULUM OG Fl — GREEDENCE CLEARWATER
REVIVAL.
RORY GAI.LAGHER - STEPHEN STILLS.
FÁLKINN
Hljómplötudeild
Laugavegi 24, Suðurlandsbraut 8
Mánudaginn 7. júní og miðvikudaginn 9. júní kl. 20.30
efna ungir Sjálfstæðismenn til skemmtikvölda að Hótel Sögu
Dagskrá:
% 8x4 leysir vandann.
Skemmtiþáttur Ómars Ragnarssonar.
# Einleikur á harmoniku.
Grettir Björnsson.
# Mannsævin á hálfri klukkustund.
Trúbrot flytur tilbrigði úr . . . lifun.
# Nokkrir „5 aura“ brandarar.
Ragnar Bjarnason og Hrafn Pálsson.
# Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar.
leikur fyrir dansi til kl. 01.00.