Morgunblaðið - 05.06.1971, Síða 15
MCmGUNBI.AÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JONÍ 1«71
15
í KVIKMYNDA
:.\?í:j.VaK7.íJ
***★ Frábær, ★★★ mjög góð,
*★ RÓð, ★ sæmileg;,
Sig. Sverrir
Pálsson
Erlendur
Sveinsson
iélee.
Saebjörn
V aldimarsson
Gamla bíó
Fótspor
fiskimannsins
Einum æðsta manni rússnesku
kirkjunnar er skyndilega veitt
frelsi, eftir tuttugu ára hegningar
vinnu norður í Síberíu. Forsætis-
ráðherra Ráðstjórnarríkjanna til-
kynnir honum að ástæðan fyrir
frelsisgjöfinni sé sú að bæta álrt
þeirra út á við, en blikur eru i
lofti í samskiptum þeirra við Kín
verja, Heldur síðan þessi hrjáði
guðsmaður til Rómar á fund páfa
sem er aldraður og fellur fljót-
lega frá, en hinn rússneski er val
inn eftirmaður hans. Stuttu eftir
að hann hefur tekið völd í páfa
garði er hann beðinn af forsætis
ráðherra Rússa, að koma á sætt
um milli þeirra og Kínverja sem
hóta kjarnorkustríði vegna hung
ursneyðar ef ekkert verði að
gert. Aðalhlutverk Antony Quinn,
Si-r Laurenee Oliver, Oscar Wern
er. Leikstj. Michael Anderson.
★ ★ Hvernig getur kirkjan
safnað auði og prédikað gjaf-
mildi, samtimis því að helm-
ingur jarðarbúa sveltur?
Myndin vekur margar spurn-
ingar, svarar engri en sting-
ur upp á aldagamalli lausn:
Samvinnu og fórnfýsi. Helm-
ingi oj löng fyrir svo stuttan
boðskap.
★ ★ Sviðsetningin og kvik-
myndagerðin öll er svo raun-
sæ, að áhorfandinn skynjar
óhjákvæmilega mikilleik
spurningarinnar: Hversu
miklu fengi hin kaþólska
kirkja áorkað, ef hún fylgdi
orðum meistarans Clef eigur
þínar fátækum.
★ ★ Mjög Iöng og mjög
vönduð „stórmynd". Þó að
ytri búnaður hennar sé ef til
vill ekki sem heilsteyptastur,
þá ætti hún að geta vakið
fóik til umhugsunar um
vandamál, sem þegar eru í
sjónmáli.
Tónabíó
Einn var
góður ....
Á meðan borgarastyrjöldin geis-
ar í Bandaríkjunum, komast þrír
ævintýramenn á snoðir um stol-
inn fjársjóð, 200.000 doliara virði.
Þessir náungar eru Joe (Clint East
wood), Tuco (Eli Wallaeh) og
Sentenza (Lee Van Cleef). Eru
þeir allir lítt vandir að virðingu
sinni. í»eir Joe og Tuco lifa á því
að framselja þann síðarnefnda,
sem er allstaðar eftirlýstur fyrir
hvers kyns giæpamennsku. Hirðir
Joe verðlaunin, en bjargar síðan
Tuco úr snörunni. heir leika
þetta nokkrum sinnum, en fljót
lega slettist upp á vinskapinn, og
er Tuco rétt búinn að ganga frá
Joe dauðuim, er þeir komast af
tilviljun á snoðir um fjársjóð-
inn En á meðan þetta skeður, er
Sentenza kominn á slóðina líka.
★★★ Efnið er nauða ómerki-
legt, en -útfærsla þess oft frá-
bær og leikur og leikstjórn
með ágætum. Ofbeldið, sem
nóg er af, miixnir oft á atvik
okkur nær (t.d. minnir atvik-
ið, er Tuco drepur vörðinn
með því að lemja höfði hans
við stein hvað eftir annað á
laxveiðimann, með nýland-
aða bráð). Raunsærri en
gians-vestri.
★ ★ Er „spaghetti" vestri
Bergio Leone að nokkru frá-
arugðinn bandarískum fyrir-
rnyndum einum? Hvað um
kimnina, pyntingarnar eða
kirkjugarðsatriðið? Sígild a.t-
riði vestrans eru fyrir hendi,
en sé þar með alit upp talið,
vaknar sú spuming, hvort
það sé siðferðilega rétt af
höfundi að leika sér svona
með snilld sína.
★ ★ Löng, blóðidrifin og
full af ofbeldi, eins og fyrri
myndir Leones. Mjög góð
skemmtun fyrir þá, sem un
un hafa af barsmíð, pynting-
um og skepnuskap, og allgóð
fyrir aðra, þar sem myndin
er vel gerð, músík góð og Eli
Wallach stórkostlegur.
Háskólabíó
Geggjun
Kathryn West, ung og fögur
ekkja riks öldungs, sezt að í vilLu
sinni á Ítalíu — til að hvílast
og gleyma Aöstoðarmáður hins
látna eiginmanns er henni hjálp-
legur, en brátt fara að gerast
voveiflegir atburðir innanhúss. —
Peter nokkur rekst þarna inn og
gerist elskhugi Kathy og nær á
henni tökum. Skömmu síðar bæt-
ist stúlka í hópinn, Eva. í sam-
einingu tekst þeim að vekja
dryk'kjulöngun Katby með lyfjum,
einnig tekst þeim að ná ljós-
myndum af henni sem eiga að
sanna að hún sé kynvillt, svo hún
fremji loks sjálfsmorð. AðalhLut-
venk leikur Carroll Ðaker. Leik-
stjóri Umberto Lenzi.
Aðstandendur þessarar
myndar ná ekki einu sinni
þvi EINA markmiði, sem
myndinni er ætlað að skapa,
hroll og spennu. Útþvælt efni,
útþvæld efnismeðferð, út-
þvæld leikstjórn. Útþvælt, út-
þvætt, útþvælt.
Höfundi myndarinnar er
Ijóst að hægt er að gera sitt-
hvað með kvikmyndavél og
leikurum, en þar með er líka
allt upptalið. Efniviðurinn er
nánnst að vera ógeðslegur og
meðferð hans einnig.
í>að v«ri óskandi að allir
aðstandendur þessarar mynd
ar sneru sér að öðrum störf-
um í framtíðinni, áhorfend-
anna vegna.
Laugarásbíó:
Harðjaxlar
Ben Harris, atvinnuljósmyndari,
kemur til smábæjar í S-Ameríku,
til að undirbúa auglýsingaher-
ferð fyrir varalitaframleiðanda
Er hann, ásamt fyrirsætunni,
grunaður um njósnir, sem tekst
þó ekki að sanna á þau. En við
þennan málarekstur tefjast þau
í nokkra daga, og drífur þá margt
á daga þeirra. Lenda þau í félags-
skap við ævintýramann, sem er
að leita að týndri demantanámu,
og haga aðstæð.urnar því þannig
til að þau eru nauðbeygð til að
leggja uipip í leitina rneð honum.
Með aðalhlutverk fara James
Garner og George Kennedy. Leik
stjóri Delbert Mann
★ í>ó að ofrúsþráður þessarar
myndar sé hvorki beinlínis
frumlegur né sannfærandi,
má þó hafa af henni nokkurt
gaman.
Nýja bíó
Bandolero
Ræningjaflokki Dee Bishop mis-
tekst að ræna banka í Texas, og
lenda meðlimir hans í fangelsi.
Eru þeir allir dæmdir til henging-
ar, þar sem þeir eru eftirlýstir
glæpamenn, og myrtu þar að auki
einn helzta borgara bæjarins,
Stoner. Mace, hróðir Dee, fréttir
af hrakförum hans, og tekst að
bjarga flokknum úr snörunni á
frumlegan hátt. Á flóttanum
reynir hann að fá bróður sinm tii
að snúa af vilLu síns vegar og
gerast iæiðarlegur maður á ný.
Kona Stoners, sem tekin var sem
gísl, og Ðee, fella hugi saman,
og verður það m.a. til þess að
hann samþykkir ráðagerðir bróð-
ur síns — e.n þá er allt um sein-
an. Leikstjóri: Andrew V. Mc-
Laglen.
★ Hér reyna Kanar að fara
nýjar leiðir í vestraformi
Þetta tetest þó ekki sem
skyldi, aðallega vegna lélegs
handrHs og vandræðalegra
tilburða Raquel Welch til að
reyna að sýna eitthvað meira
en kroppinn. En þeir gömlu
reiðgarpar, Dean og James
starrda íyrir sínu.
Austurbæjarbíó:
Nótt lúnna löngru hnifa
JÞýzkaland 1933. Jóakim von
Essenbeok er eigandi Essenbeck-
stálsmiðjanna Martin, veikgeðja
20 ára sonarsonur gamla -manns-
ins, er eini erfingi *eignanna.
Móðir Martins, Sophie, heldur við
framkvæmdastjóra fyrirtækisins,
Bruckmann, og vonast i)au til,
að Bruckmann geti orðið höfuð
ættarinnar með því að kvænast
Sophie. En fleiri eru um krásina.
Thallmann, kvæntur frænku
gamla mannsins, er svarinn and-
stæðingur HHiers. Konstantin,
bráöursonur, er heirttrúaöur naz-
izti. Aschenbaok er sá þriðji, með
limur í SS-sveitum Himmlers.
Þegar Hitler hrifsar völdin er
.Jóakim drepinn og sökinni skellt
á Thallmann. Martin skipar Bruck
mann aðalframkvæmdastjóra. En
Konstantín er ágengur og honum
er rutt úr vegi. Aschenbaek van
treystir nú Bruckmann og snýr
sér til Martins.
★★★ Efnið er sannarlega
ógeðfellt, en þó er hverjum
hugsandi manni nauðsyn á að
þekkja urkynjun og geta
þannig varizt henni. Viaconti
fer mjög stilfærum höndum
um efnið, en ofnotkun „zoom“
í myndatöku de Santis er til
lýta. Kópíu-eintakið er hvergi
boðlegt.
★ ★★ Still myndarinnar, sem
mótast af tíðri „pan og
zoom“-notkun tökuvélar, beit
ingu lýsingar og lita (rauð
teppi, blóm, lampax) svið-
settu fasi tiðarandane grefur
afhjúpandi undir yfirborð
nazismans og veldur nýjum
skilningi á þeim hörmungum,
er stafa af úrkynjun tilfinn-
ingalífsine.
★ ★ Mynd um valdabaráttu
og spillingu í víti á jörðu
Á köflum er myndin svo
magnþrungin og óhugnanleg
að maður situr sem lemstrað-
ur, en þess á milli er hún
nokkuð langdregin.
Stjörnubíó
:
Óheppinn
fjármálamaður
Ettir þriggja ára hjónaband og
sífelld ferðalög ákveður Pamela
(Jaqueline Pearee), eiginkona
fjármálamannsins George Lester
(Jerry Lewis) að þau slíti sam-
iVistum,: og ; fer burt. Þegar Lester
kemur í tómt húsið, einsetur
hann sér að sýna Pamelu fram á,
að hann peti búið henni fastan
samastað. Hann breytir heimilinu
i kínverskt diskótek, og telur
fjárhaginn tryggðan. Seinna, þeg-
ar Pamela kemur aftur, krefst
hún þess, að húsinu sé breytt í
fyrra horf Lester skortir fé til
þess, en fjármálamaður með auð-
ugt hugmyndaflug deyr ekki ráða
laus: Hann þarf bara að komast
yfir leynilegar teikningar af
elektrónískum olíubor, hafa sam-
band við Araba í Lissabon .
★ Handritið skapar Jerry
Lewifl nokkra ágæta brand-
ar.a, en þetta er langt frá því
að vera ein af hahs beztu
myndum, eins og hún er
„talin vera“, skv. auglý9ing-
um dagblaðanna. Terry
Thomas og Bernard Cribbins
eru Jerry ekki síðri.
★ Getur varla talizt gaman-
mjnd, þrátt fyrir Jerry Lew-
Hafnarbíó:
Konungs-
draumur
J>egar Grikkinn Matsoukas, sem
ibýr með fjölskyldu sinni í Chi-
cago, heyrir úrskurð læknis um
að sonur hans eigi í mesta lagi
éitt ár eftir ólifað, segir hann:
,,8onur miinn mun ekki deyja.“
•Matsoukas trúir á hinn gríska
ættarstofn, og að sól og mold
Grikklands geti læknað son hans,
en hann vantar peninga fyrir far—
inu. Eftir skírnarveizlu aokkra
með freyðandi víuum og. grísk-
um dansi býðst Cicero vinur
Matsoukas til að lána honum fyr-
ir farinu, því að eiga slíkan vin,
geri lífið þees virði að ltfa því.
En það reynist of gott til að
geta verið satrt Matsoukas grípur
þá til örþrifaráða, sem varpa um
leið ljósi á mannkosti hans. Leik-
stjóri TJaniel Mann. Með aðalhLut-
verk fara Anthrony Quinn og
Irene Papas.
★ ★★ Zorba hefur aldrei stig
ið mörg skref frá Anthony
Quinn og hér fylgir hann hon
um I hverju fótmáli. Lífs-
þrótturinn er allsráðandi,
uppgjöf er óhugsandi, jafnvel
fyrir dauðanum. Andleg
heilsubót í gráum hversdags-
leikanum. Látlaus mynd í
íillri gerð, en Áherzlan lögð á
hið mannlega.
★ ★★★ Þetta er kvikmynd
urn mannlrfið.