Morgunblaðið - 09.06.1971, Síða 8
r
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKLTDAGUR 9. JÚNÍ 1971
Axel Jónssoii alþingismaður:
Sjálfstæðisflokkur hef-
ur haft farsæla forystu
— í Landhclgismálinu
í UPPHAFI kosningabaráttunn
ar reyndu stjórnaraindstæðing-
ar að gera landhelgismálið að
aðalkosningamálinu í þessum
kosningum. Þeir hafa hins veg
ar fundið að kjósendur hafa
skömm á þeim fyrir að vera
að gera tilraunir til að skapa
suindrung í máli, sem öll þjóðin
atendur saman um, þ.e. stærri
fiskveiðilögsögu; það vilja allir,
en jafnframt gera allir, sem til
málavaxta þekkja sér grein fyr
ir að á öllu veltur um árangur,
að með öryggi og festu sé að
málinu staðið eins og gert hef
ur verið í tíð núverandi ríkis-
stjórnar. Kjósendur sjá að all-
ur hamagangur stjómarandstöð
unnar í málinu nú rétt fyrir
kosningarnar ber vott um mál
efnafátækt þeirra.
Saga landhelgismálsins sann-
ar, að þegar Sjálfstæðisflokkur
inn hefur verið í ríkisstjóm
hafa þýðingarmestu áfangar í
friðunarmálum okkar unnizt.
Það var Ólafur Thors, þáver-
andi forsætis- og utanríkisráð-
herra, sem 1946 réð Hans G.
Andersen þjóðréttarfræðing til
að ranmsaka landhelgismálið í
heild og skyldi hamn síðan gera
tdlögur um þær ráðstafanir,
sem æskilegt þætti að fram-
kvæma til vermdar gegn of-
veiði. Hans G. Andersen vann
mikið og gott starf að málinu
og skilaði ítarlegri greinargerð
og tillögum um aðgerðir. í
framhaldi af því lagði Jóhainn
Þ. Jósefsson þáv. sjávarútvegs-
málaráðherra fnam frv. um vís
indalega vemdun fiskimiða land
grunnsins og var það samþykkt
sem lög 5. aprtl 1948. Á grund
velli þeirra byggjast allar að-
gerðir okkar síðar í málinu.
Bjarni Benediktsson þáv. ut
anríkisráðherra sagði lamdhelgis
samningnum, sem Danir gerðu
við Breta 1901 upp 3. okt. 1949.
Ólafur Thors þáverandi sjávar
útvegsmálaráðherra gaf út 22.
apríl 1950 reglugerð um 4ra
mílna landhelgi fyrir Norður-
landi, og síðan gaf hann út
reglugerð sem tók gildi 15. mai
1952 um útfærslu landhelginnar
umhverfis allt landið úr 3 mil
um í 4 og lokun fjarða og
flóa. Þá nær tvöfaldaðist frið-
unarsvæði okkar eða úr 24.530
ferkm í 42.905 ferkm og helgi
hininar brezku biblíu um gildi
3ja imálna landhelgi var brotin
á bak aftur.
Vinstri-stjórnin færði land-
helgina út í 12 málur í orði
1958, en hljóp síðain frá því
máli sem öðrum óleystum. Það
féll í hlut Sjálfstæðisflokksins
Axel Jónsson.
að friða landhelgina á borði og
var það gert með samkomulag
inu við Breta 1961. Þá unnu ís-
lendingar eiinm sinn mesta stjórn
málasigur.
Andstæðingar okkar halda
þvi fram, að sjálfsitiæðismenn
hafi verið á móti útfærslu í 12
mílur 1958. Þeir vita að þetta
er rangt. Sjálfstæðisflokkurinn
tilkynnti forsætisráðherra 21.
maí 1958, að flokkurinn legði
áherzlu á, að grunmlínum yrði
breytt og landhelgin færð út í
12 mílur en nokkrum vikum
væif varið til að skýra fyrir
bandalagsþjóðum íslendinga þá
hagsmuni, sem tilvera þjóðar-
innar byggðist á, i fullu trausti
þess, að á þann veg fengist
meiri skilniingur og samúð ann
arra og ákvörðunin gæti því
komið fyrr til framkvæmda en
ella.
í ágúst lögðu sjálfstæðis-
menn til, að fslendingar kærðu
Breta fyrir Atlantshafsbandalag
inu, ef þeir gerðu alvöru úr þVí
að beita vopnavaldi ininan ísl.
fiskvaiðilögsögu. Kommúnistar
réðu því að það var ekki gert.
Lúðvík sagði í blaðaviðtali í
Kaupmannahöfn, um það leyti,
en hann vair þá á hei/mleið frá
Moskvu: „Atlaintshafsbamdalagið
kemur hér alls ekki við 3ögu.“
Lúðvík reyndi síðan að nota
málið til að spilla milli fslemd-
inga og bandalagsin3. í Þjóð-
viljanum 24. des. það ár sagði
hann: „Afskiptaleysi Atlants-
hafsbandalagsiins af hernaðarof
beidi Breta gerir bandalagið
fullkomlega samsekt Breitum í
augum allra fslendinga."
Öll þjóðim eir sammála um
markmiðitð í lafndheltgismálimi
nú, þ.e. stærri landhelgi. Hvað
ber á milli um leiðir að þvi
marki?
Stj órnarandstæðingar segj a3t
vilja færa út í 50 mílur 1. sept.
1972. Stjórnarflokkamiir telja
óvarlegt að tilkynna með avo
löngum fyrirvara um fyrirætl-
anir okkar og benda á, að nauð
synlegt kunni að reynasrt vegna
aukinnar ásóknar erlendra fiski
skipa að grípa til útfærslu fyr
iirvaralaust. Við teljum nauðsyn
legt að friða allt landgrunnið
en skilja ekki eftir stór svæði
m.a. fyrir Vesturlandi utan 50
mílna markamna.
Stjórnarandstæðingar ®egja,
að nauðsynlegt sé að útfærslan
eigi sér stað fyrir hafréttarráð
stefnuna sem halda á m.a. eftir
ósk íslendinga 1973. Vinstri-
stjórnin ætlaði að færa landhelg
ina út í 12 mílur í árslok 1956
eða í ársbyrjun 1957. Hvers
vegna gerði hún það ekki? Á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð
anina 1956 var samþykkt að
kalla saman hafréttarráðstefnu
um vorið 1958. fslendingar ein-
ir greiddu atkvæði gegn því,
að ráðstefnan væri kölluð sam
am. Þrátt fyrir það taldi vinstri
ÚTBOÐ
Kópavogskaupstaður óskar tílboða í frágang á leikvallasvæði
við Fögrubrekku.
Útboðsgögn verða afbent á skrifstofu minni Melgerði 10 gegn
2000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 15. júlí kt. 11 árdegis.
Kópavogi 7. júní 1971
BÆJARVERKFRÆÐINGUR.
Höfum til sölu
Raðhús
Gott og vandað raðhús til sölu á Langholtsvegi.
Stór borð- og dagstofa, garðstofa, með beinum aðgangi að
ræktaðri lóð, 4 svefnherbergi, 2 snyrtiherbergi, innbyggður
bílskúr, góðar geymslur.
Einbýlishús
T'rl sölu í Mosgerði.
A 1. hæð eru 3 herbergi, eldhús, snyrting og forstofa.
I risi 3 svefnherbergi og snyrting.
I kjallara herbergi og eldhús.
3/o herbergja íbúð
Höfum til sölu 3ja herbergja íbúð ásamt herbergi í risi með
geymslum í kjaflara og rtsi á Hagame! við sundlaug Vestur-
bæjar.
Sumarbústaður
við Þingjvallavatn
Til sölu vandaður sumarbústaður á skemmtilegum stað við
Þingvallavatn. Bústaðurinn er 2 stofur, 3 svefnherbergi, eld-
hús, snyrting og geymslur. Ræktuð lóð. Veiðiréttur.
Upplýsingar gefa
LÖGMENN
Tryggvagötu 8
Símar 11164
og 22801
Eyjóffur Konráð Jónssoo, hrl,
Jón Magnússon, hrl.
Hjörtur Torfason, hrt.,
Sigurður Sigurðsson, hrl.,
Sigurður Hafsfein, hdl.,
atjórnin vænlegast að bíSa með
útfærsluina fram yfir ráðstefn-
una. Berum þetta saman við
málflultiniiing atjórnararidstæð-
iinga nú.
Þá er það samkomulagið við
Breta frá 1961. Með því viður-
kenmdu Bretar 12 mílumar og
breyttar grunnlintir, sem v-
stjórnin sveikst um að koma í
framkvæmd. Rétt er að hafa
í huga, að framsóknairmenm
lögðu til 1960, að þáverandi
gruninlínur yrðu lögfestar. Við
grunniínubreytingarnaT 1961
stækkaði friðunarsvæði okkar
um 5065 ferkm. Með samkomu-
laginu lýstum við því yfir, að
við mundum halda áfram. að
vinna að framkvæmd ályktunar
Alþingis frá 5. maí 1959 varð-
andi útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar við ísland og var þessu
ekki mótmælt af Bretum. Stjórn
arandstæðingar vilja segja
þessu samkomulagi upp. Þeir
segja, að ákvæðið um, að hvor
aðilinn fyrir sig geti skotið á-
greiniingi út af frekari útfærslu
til Alþjóðadómstólsins sé hættu
legt, Alþjóðadómstóinum sé
ekki að treysta.
1951 héldu kommúnistar þessu
sama fram um Alþjóðadómstól
inn. Þá deildu þeir á íslenzk
Stjórnvöld fyrir að bíða með
útfærsluna í 4 mílur eftir dómi
Alþjóðadómstolsins í deilu Norð
mamma og Breta sem spannst
út af útfærslu Norðmanna í 4
mílur og grunnlínubreytingum.
Málstaður Norðmanna sigraði
og Alþjóðadómstóllinin sarmaði
gildi sitt fyrir smáþjóðir, sem
eiga í deilum við sér stærri og
öflugri þjóðiir.
1953 bauð rikisstjórn Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks að
skjóta deilunni við Breta út af
útfærslumn 1952 til dómsins,
en Bretar héldu þá uppi löndun
arbanni á islenzkum fiski í Bret
landi. Bretar höfnuðu þá að
láta Alþjóðadómstólinn skera
úr í málinu, þeir gátu það þá
en nú geta þeir ekki neitað,
ef hliðstæðir atburðir endur-
taka sig. Samningurinn tryggir
okkur fyrir því.
Á hafréfctarráðstefmmum 1953
og 1960 voru allir flokkar sam
mála um að bjóða upp á gerðar
dóm í landhelgismálinu, þar
með aðalforustumenn Frjáls-
lyndra og vinstri manna nú.
Þá eru ummæli Ólafs Jóhann
essonar, formanns Framsóknar-
flokksiins. Har.n sagði á Al-
þingi 14. nóv. 1960 m.a. „Og
vissulega er það svo, að smá-
þjóð verður að varast það að
ganga svo langt, að hún geti
ekki alltaf verið við því búm
að leggja sín mál undir úr-
lausn alþjóðadómstóls því sann
leikurinn er, að smáþjóð á ekki
airnars staðar frekar skjóls að
vænta heldur en hjá alþjóða-
samtökum og alþjóðastofnunum,
ef hún hefur ekki valdið til að
framfylgja ákvörðunum sín-
um eins og stórveldin.
Af því sem hér hefur verið
rakið sést, að stjómarandstæð-
ingar hafa litið allt öðrum aug
um á alþjóðlega dómstóla i land
helgismálinu, þegar kosningar
eru ekki á næsta leiti. Þetta
ber að hafa í huga þegar litið
er á allan hamagang þeirra nú.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
uindir traustri forustu Ólafs
Thors og Bjarna Benediktsscm-
ar leitt landhelgismálið farsæl
lega á liðnum áratugum. Stefna
Sjálfstæðisflokksins er skýr, að
tryggja rétt íslendimga til hag
nýtingar auðæfa landgrunns-
svæðisims alls þ.e. miðað við
sem næst 400 m jafndýpislínu,
möguleg hagnýtingarmörk eða
50 milur frá grunnlínum um-
hverfis landið, eftiir því sem
frekari ranmsóknir segja til um
að hagkvæmast þyki. Að þessu
markmiði mun Sjálfstæðiaflokk
urinn vinna undir öruggri for-
ustu Jóhanns Hafsteims, og láta
einskis ófreistað til að afla við
urkennlingar anmarra þjóða á
nauðsyn okkar og rétti til þessa
þar sem um er að ræða stærsta
hagsmunamái íslenzku þjóðar-
innar.
- 26613 -
FASTEIGNASALAN
GRETTISGÖTU 19A
HÖFUM KAUPENOUR
að ölkim tegundum íbúða, oft
með háar útborganir.
HÖFUM NOKKRAR
2ja, 3ja, og 4ra herb. íb. til söhi.
GUNNAR JÖNSSON
fögfræðingur, dómtúlkur
og skjalaþýðandi í frönsku.
SÍMAR 21150-21370
Til sölu
E'tnbýfishús við Auðbrekku
með 6—7 herb. Ibúð á hæð.
um 115 fm, kjallari 110 fm með
2ja herb. íbúð, inobyggður bíl-
skúr og vinnupláss. Ræktuð
lóð. Verð aðeins 2,8 millj.
Skipti eru möguleg á 4ra herb.
íbúð með bilskúr í borginni.
Einbýlishús
á einni hæð um 110 fm i Smá-
íbúðahverfi. Innréttingar að
mestu nýjar.
Verð um 2,2 milljónir.
Sérhœð
ný og glæstteg sérhæð, 140
fm, í tvíbýlishúsi í Austur-
bænum í Kópav. með fallegu
útsýni. Næstum fullgerð Bíl-
skúr.
Urvais timburhús
um 550 rúmmetrar með 6—7
herb. íbúð á tveim hæðum,
eignarlóð rúmir 800 fm. Húsið
stendur á mjög eftirsáttum
stað í Austurborginni.
Urvals parhús
99x2 fm auk rishæðar. Húsið
er skamnrrt frá Hrafnistu á
mjög eftirsóttum stað.
Ódýrar íbúðir
2ja herbergja íbúð í tvíbýlisbúsi
í Sundunum um 50 fm, með
sérinngangi. Verð 600 þús. kr,
útborgun 250—300 þ. kr.
3ja herbergja á hæð í timbur-
húsi, um 65 fm, i gamta Aust-
urbænum, góð íbúð. Verð 800
þ. kr„ útborgun 450 þ. kr.
Lítið eimbýlishús, skammt frá
Geitháisi, með 3ja herb. íbúð.
Húsið er um 50 fm auk 20 fm
bilskúrs. Verð 400 þ. kr„
útborgun 150—200 þ.
Sérhœð
óskast til kaups, mjög mikil
útborgun.
Einbýlishús
\ nágrenni borgarinnar óskast
til kaups, mikil útborgun.
Smáíbúðahverfi
Höfum kaupendur að einbýlis-
húsum í Smáíbúðahverfi.
Skipti
Höfum á söluskrá fjölmargar
eignir, sem hægt er að fá í
skiptum, t. d. 4ra—5 herb.
mjög góða ibúð á 3. hæð á
Högunum með fallegu útsýni,
í skiptum fyrir stóra húseign
í borginni.
Höfum kaupendui
að 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb.
ibúðum.
Komið oa skoðið
ftlMENNA
FASTEIGHASAt A H
.i?!DAR6ATA 9 SÍMftR 21150-21570