Morgunblaðið - 09.06.1971, Side 11
MORGUNBLA£)IÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNl 1971
11
Jón ísberg, sýslumaður;
Sk j ónuþáttur
Sigurðar Ólasonar
SKJÓNA er brúnskjótt hryssa
norður í Húnaþingi, nýlega
dæmd Birni á Löngumýri til
eignar af hæstarétti á hefð, þ.e.
hann hefur haft hryssuna í sín-
um vörzlum í sl. 10 ár.
Sigurður Ólason hrl. er einn
bezti lögfræðingur þessa lands
og snjall rithöfundur og hug-
myndaríkur og setur þá gjarn-
an fram skoðanir, sem almennt
hafa ekki hlotið viðurkenningu,
eða m.ö.o. fer ekki troðnar
slóðir, heldur lætur gamminn
geysa og tínir allt til að styrkja
sitt mál, en gagnrökin gleym-
ast, eins og lögmanna er oft
siður.
Bjöm á Löngumýri þarf ekki
að kynna. Allir þekkja hann.
Ég kynni Björn svona með
vilja, því að honum þykir vænt
um það.
Þetta er ekki heilög þrenn-
ing og nálgast guðlast að nefna
hér heilaga þrenningu. En
ókunnugum gæti virzt sem
Skjóna væri eins konar geisla-
baugur um höfuð Bjöms, gerð-
ur af Sigurði, eftir lestur langr-
ar greinar eftir Sigurð í Tim-
anum sl. sunnudag. Á fram-
boðsfundi á Blönduósi kallaði
meðframbjóðandi Björns hann
i ógáti séra Björn á Löngu-
mýri. Ef til vill geta þetta orðið
eins konar áhrínsorð. Bjöm er
greindur, a.m.k. segir hann það
sjálfur. Því skyldi honum ekki
detta í hug að læra til prests?
Hann getur ekki gengið í
klaustur hér á landi, en I gamla
daga fóru menn stundum í
klaustur til þess að bæta fyrir
sitt veraldarvafstur.
Þetta mál er margþætt og
grein Sigurðar Ólasonar skýrir
það ekki, heldur reynir hann
að dylja kjarna málsins og
gripur til þess að taka tilvitn-
anir úr samhengi og auk þess
að fara ekki rétt með þær til
þess að afsanna þjófnaðar-
áburð á Björn á Löngumýri.
Ég held, að engum láti sér til
hugar koma, að Björn hafi tek-
ið hryssuna ófrjálsri hendi,
fyrr en lögmaðurinn nú er að
gefa það í skyn, að það sé al-
menn skoðun.
Það er almælt heima í hér-
aði, að Björn sé ekki sérlega
glöggur á hross, og ósiður, sem
þar, og vafalaust viðar, tiðkast,
að markskoða ekki hross nema
í hófi, heldur ganga hrossin
úr, hefur verið frumorsök þess
sem gerðist. Ef Bjönn hefði
markskoðað hryssuna og talið
sig eiga hana, hefði hann
betrumbætt markið, en ekki
látið hana ganga á heiðum
uppi með glöggu marki ann-
ars manns.
Staðreyndir þessa máls eru
fáar og einfaldar. Skjóna er
Jón ísberg.
með rnarki Jóns í Öxl, en
Björn hefur haft hana í sínum
vörzlum lengur en í 10 ár, og
engin ásökun, hvað þá sönnun
kom fram um að hann hefði
vitað annað en hann ætti
Skjónu. Þess vegna telur hæsti-
réttur rétt að dæma honum
eignarrétt yfir hryssunni vegna
hefðar. Þetta er kjarni máls-
ins.
Mörgum bændum af öllum
flokkum, þvi auðvitað er þetta
mál ekki pólitískt, þykir hart
að sæta þvi, að markið gildi
ékki lengur. Ef einhverjir
trassar hugsa ekki betur um
hr'ossin sín en það, að það geti
leynzt hross með mörkum óvið-
komandi manna, þá eignast
þeir hrossin eftir 10 ár, ef ekki
er hægt að sanna það á þá, að
þeir hafi í raun og veru vitað
um ókunnu hrossin og reynt
að leyna þeim.
Sigurður byrjar grein sina
með tilvitnun úr bréfi frá mér
til landbúnaðarnefndar Alþing-
is. í þessu bréfi bendi ég þeim
á Skjónudóminn og vek athygli
á niðurstöðum hæstaréttar, sem
auðvitað eru réttar eftir bók-
staf laganna. Jafnframt beindi
ég því til nefndanna, að þær
beittu sér fyrir breytingu á
hefðarlögunum, þar sem greint
yrði, að hefð gæti ekki unnizt
á markaðri skepnu. Þetta gerði
ég m.a. vegna nýs Skjónumáls,
ef svo mætti orða það, sem I
uppsiglingu var um tíma, en
væntanlega er úr sögunni nú.
En fyrst Sigurður hefur svona
góðan aðgang að skjölum Al-
þingis, þvi birtir hann þá ekki
bréfið allt, en ekki aðeins til-
vitnun, sem ekki er alveg rétt
eða fógetaréttarúrskurð minn,
þar sem ég synja Birni um að
taka Skjónu úr vörzlu Jóns í
Öxl? Eða því fær hann ekki
birta dómana, bæði undirréttar
og hæstaréttar?
Þetta mál hefur verið leið-
indamál frá upphafi. Ég reyndi
að koma i veg fyrir það, en það
mistókst. Ég held, að öllum sé
hollast að hætta að skrifa um
það og lofa Birni að vera í hug-
um samferðamannanna og
þeirra, sem eftir koma, sem
stórbóndanum á Löngumýri,
sem Birni rika á Löngumýri,
en verða ekki kallaður Skjónu-
Björn í sögunni.
varðar mig það litlu þar sem ég
hef ekki kosninigarétt hérlliendi'S.
— Hvernig likar þér að búa
hér?
— Stórvel, ég held að Island
sé bezta land i heimi.
Næstan hittum við að máli
Aðalstoin Guimarsson, en hann
starfar sem fuiHtrúi í Iðnað-
arbankanum.
— Hver er ástæðan fyrir
þdnni veru hér í kvöld?
— Aðallega sú, að mig lang-
aði til að skemmta mér, auk
þess sem mig fýsti að sjá
og heyra í frambjóðendium.
— Hvað finnst þér um sam-
komu sem þessa?
— Þær skapa meiri samstöðu
meðal unga fólksins, auk þess
sem þær gefa fólki tækifæri til
að kynnast frambjóðendlum.
Þá tókum við tal af Sveini
Gi iðmi mdssyni, nemanda i
stærðfræðideild Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Við spurðum hann fyrst hvað
hann hefði hugsað sér að gera
að loknu námi i menntaskóla?
— Um það er ekki gott að
segja ennþá, þar sem ég á tvo
vetur eftir í menntaskóla. ©g
lief mikinn áhuga á öllu sem
viðví'kur sjávarútveginum og
hef hug á að mennta mig eilt-
hvað á því sviði, t.d. að læra
fiskifræði.
— Hvað vildirðu segja um
þessa sfcemmtun?
— Mér finnst hún fara mjög
vel fram, og hún er hæfilega
lítið blönduð pólitlk.
— Hverju spáir þú um úr-
slit kosniraganna?
— Um þau þori ég engu að
spá. En mér er forvitni á að vita
hvort O-iistinn nær einhverju
fýlgú og geti þannig haift ein-
hver áhrif á stöðu flokkanna.
Seinastan hittum við að máld
Magniis B. Magnússon sölu-
rnann hjá Kr. Kristjánssyni, en
þar hefur hann stanfað frá ára-
mótum. Áður starfaði hann í
Danmðrku.
— Ætlarðu að kjósa nú á
sunnudaginn?
— Já, svo framarlega sem
ég er á kjörskrá, en það ætla
ég að athuga á morgun.
— Hefur þú kynnt þér
stéfinu ungra Sjálfstæðis-
manna?
— Já, raunar og ég er henni
fylgjandi í stórum drátttum.
Ragnar Tómasson, hdl.:
Hvernig „kosninga-
bomburu verða til
ÁRIÐ 1964 gerðu ríkisstjórnin og
verkalýðssamtökin hið svonefnda
„júnísamkomulag“, en einn þátt-
ur þess var breyting á lánakjör-
um Húsnæðismálastjónnar.
Nú, 7 árum síðar, hafa þessi
lán verið gerð að „kosninga-
bombu“, sem ætlað er að fylkja
kjósendum undir merki B-, F-
eða G-listans. „Upphaf“ þessa
máls, dagsett 29. rnarz, er viða-
mikið erindi Þóris Bergssonar
tryggingastærðfræðings, sem
harm sendi Alþingi. Erindi Þóris
Bergssonar hófst þannig:
„Fyrir rúmum h&lfum mánuði
fékk ég af bendingu ástæðu til
að athuga hin svokölluðu Hús-
n æðisst j órna rlán.“
Hver var nú „ástæðan"?
N ey ðarvarnaáætlanir
Rauða krossins
ROBERT M. Pierpont, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri neyðar-
varna Rauða krosss Bandaríkj-
anna heimsækir íslaind um þess
ar mundir á vegum RKÍ. Pier-
pont hefur starfað að bandarísk
um og alþjóðlegum neyðarvörn
Afmælisstimpill
á Sauðárkróki
DAGANA 2.—4. júlí n.k. mun
þess minnzt á Sauðárkróki að
100 ár eru liðin frá því fyrsti
íbúinn settist þar að. f tilefni
þessa afmælis hefur póstmála-
stjómin ákveðið að hafa sér-
stakan póststimpil þessa daga i
pósthúsinu á Sauðárkróki, að
því er segir í frétt frá afmælis
nefind bæjarins.
Sauðárkróksbær eignast nýtt
skjaldarmerki, sem farið verð-
ur að nota á þessum tímamót-
um og hefur verið ákveðið að
gefa út sérstök umslög með
skj aldarmerkinu á, sem seld
verða þessa daga. Umslögin
með póststimplinum ex hægt að
panlta á bæj arskrifstofunni.
um í 30 ár og unnið að hjálpar
starfi Rauða krossins víða um
heim. Nú síðast var hann yfir-
maður hjálparstarfsins í Jórdan
íu. Robert Pierpont hefur nú tek
ið við framkvæmdastjórn þeirr
ar skrifstofu Alþjóðasambands
Rauða kross félaga í Genf, sem
undirbýr neyðarvarnaráætlanir
aðildarfélaganna.
Maður óskast tit starfa við
IBM skýrsluvélar
Umsóknir sendist afgreiðslu blaðsins merkt: „Opinber
stofnun — 7805" fyrir 12. júní n.k.
2 notuð kœliborð
til sölu, annað með djúpfrysti, bæði i 1. flokks lagi.
Tilboð óskast.
STEBBABÚÐ, Hafnarfirði.
Bílar til sölu
'71 Citroen Speciail
71 Simoa
'71 Cortina
70 Moskvitch
70 Skoda
70 Hitlman Hunter
70 Sunbeam Albina
70 Dodge Dart
'68 Citroen DS 20
'68 Saab
'67 Votvo Amazon.
Alls konar bílar fyrir skutda
bréf.
ftíllLiUiHiltiil^
Sigtúni 3.
Símar 85840 - 85841.
RÖNDÓTT PEYSUVESTI
DENIM STUTTBUXUR
DENIM SPORTJAKKAR
Hinm 13. marz sl. hringdi ég í
Þóri Bergason og ræddi við hann
um vísitöluákvæðí Húsnæðis-
stjórnarlánarma, nefndi honum
dæmi um verkanir þeirra og bað
hann um ýmisa útreikninga á eðli
vísitöluákvæðanna.
Hiran 24. marz gerði ég for-
sætisráðherra grein fyrir nýjum
viðhorfum, sem væru að mynd-
ast í afstöðu manna til vísitölu-
ákvæðanina og að aðgerða væri
þörf. Var þessari málaleitan
mrnni vel tekið. Eins og konnugt
er hefur forsætisráðhenra falið
Efnahagsstofnuninwi og síðár
Seðlabankantim athugun máls-
ins.
Hinn raunverulegi aðdragandi
þesea máls sem ,,kosn ingabombu"
er nú hreint ekki merkilegri en
þetta. Það esr því óneitanlega
nokkuð broslegt að fylgjast með
deilum B-, F og G-listans um
það, hverjum þeírra sé bezt
treystandi til að leysa þessi
mál á farsælan hátt.
rv/VnnYi'sr***
<>■••««• iViiiiVmiVimiVúVM iiVimViViiVmiViYi i i » i «^
Lækjargötu - Skeifunni 15.
HEdöliTE
Stimplar- Slífar
og stimpilhringír
Austin, flestar gerðír
Chevrotet 4, 6, 8 strokka
Dodge frá '55—70
Ford 6—8 strokka
Cortina '60—'70
Taunus, aHar gerðir
Zephyr A—6 strokka, '56—'70
Transit V-4 '65—'70
Fiat, a11ar gerðir
Thames Trader 4—6 strokka
Ford D800 '65
Ford K300 '65
Benz, flestar gerðir, bensín-
og dísifhreyffar
Rover
Singer
Hiflm an
Skoda
Moskvrtch
Perkins 3—4 strokka
Vauxhall Viva og Victor
Bedford 300, 330. 466 cc.
Vofvo, ftestar gerftir, bensírv-
og d!si#ireyf1ar
Votkswagen
Simca
Peugeot
Wiflys.
þ. rnm & co.
Skeifan 17.
Slmar 84515-16.