Morgunblaðið - 09.06.1971, Síða 14
I—
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1971
Á Sauðárkróki hefur fjölgað
úr einum i 1600 á 100 árum
Nýtt 30 íbúða hverfi í byggingu
NÚ er hátíðaár á Sauðár-
króki. í sumar verður haldið
hátíðlegt aldarafmæli byggð-
ar á staðnum. Þess mátti sjá
naerki, þegar fréttamaður
Mbl. kom þar í sl. viku, að
íbúarnir á Króknum eru farn-
ir að búa sig undir hátíða-
höldin. Sumir voru þegar
famir að mála húsin sín og
aðrir að aka mold í nýja
garða á malarkambinum.
Og nýja bókhlöðubyggingin
virtist standa þar tilbúin og
bíða vígslu.
Sauðárkrókur hefur vissu-
lega stækkað og tekið breyt-
ingum síðan Árni Árnason,
klénsmiður, sem síðar var
kallaður Ámi vert, settist þar
að árið 1871. Nú eru íbúar á
Sauðárkróki 1600 og hefur
fjölgað geysilega, einkum á
sí. ári, þegar fjölgunin var
6%. Og hvarvetna má sjá
mikla uppbyggingu, t.d. eru
30 hús í smíðum í einu nýju
hverfi á staðnum, sem heima-
menn kalla í gamni Golan-
hæðir. Og ný iðnfyrirtæki,
minkabú, skuttogari o.fl.
skjóta upp kollinum.
— Þessi öra fjölgun á s.l. ári
stafar að nokkru leyti af því a3
tvær verksmiðjur tóku hér til
starfa á árinu, Sútunarverksmiðj
an og Sokkaverksmiðjan, sem
taka í vininiu um 60 mamns,,
sagði Halldór Þ. Jónsson, forseti
bæjarstjórnar, er fréttamaður
spurði hanm hverju þetta sætti.
Annars hafur fólki alltaf verið
að fjölga hér, bætti hamn við.
— Kringum þessa fjölgun þró
ast svo byggingariðnaður, Fyrir
utan byggingar annars staðar,
var skipulagt nýtt Ibúðahverfi,
sem byrjað var að byggja á s.L
vorL Þar eru mú 30 húa í bygg-
ingu, mislangt komin. Og fleiri
íbúðartiús eru í byggingu hér
niðri í bænum. Að auki æitlum
við í sumar að byggja tvö sam-
býlishús. í öðru verða 8 íbúðir
og er það síðari hlutinn af 16
íbúða sambýlLshúsi, sem Bygg-
ingafyrirtækið Hlynur reisir.
Hitt er 12 ibúða verkamannabú-
staður.
— Þessi byggingarvinna skap
ar augviibað mikla atvinmu —
Hvermig er atvimmuáistamd á
ataðnuíih?
— Ýfir vetrarmánuðina hefur
hér verið stopul atyinria. Á staðn
um eru tvö frystihús sem ekki
haifa haft nægilegt hráefnl,
Drangey, sem keypt var 1968,
lagði þar upp, en svo var 1 vet-
ur keyptur skuttogari, Hegra
nes. Hann hefur aflað mjög vel,
svo við gerum okkur vonir um
að mieiri aitvimna verði í frysti-
húsunum hér eftir.
— Annars hefur staðurinn allt
af byggt mikið á þjónustustörf-
um. Hér er mjólkurstöð fyrir allt
héraðið og aUs konar verkstæð-
Isþ j ónus ta, t résmíða ver ks tæði,
bílaverkstæði o.s. frv.
NVTT SKÖLAHÚS
— Svona ör fjölgun krefst
auðvitað mikilla framkvæmda
hjá bæjarfélaginu. Hafið þið und
an við að byggja skóla, sjúkra-
hús og þess háttar?
— Já, slík fjölgun hefur auð-
vitað erfiðleika í för með sér og
kallar á þjónustu og byggingar
af hálfu bæjarins. Við erum með
í byggingu gagnfræðaskóla.
Einn áfangi er búinn og var tek
inn í notkun fyrir tveimur árum,
Þar er iðnskólinn til húsa. Svo
er byrjað á öðrum áfanga, sem
er fyrir verknámsdeild. Þannig
hefur þetta blessazt með skóla-
húsnæði. En hér höfum við allt
sikyidunám, gagnifræðaslkóla og
ilandisbráf er tekið hér. ÆMunin
er að reistur verði iðnakóli fyrir
Norðurtand vestra. Við höfum
líka áhiuiga á að geta komið hér
upp heimavisit við skólana.
NÝK ÍÞRÓTTAVÖLLUR
I NOTKUN
— Þið eruð sýnilega að koma
ykkur upp góðri íþróttaaðstöðu?
Við sáum fallegan iþróttavöll
með nýgrónum upphækkunum
Nýja Bókiilaðan býður tilbúin eftir vígsluhátiðinni á aldaraf-
inæli Sauðárkróks í snmar.
'WíM
Séð yfir hluta af Sauðárkróki. Fremst sést skólabyggingim meðviðbyggingunni, sem er í smíðum.
fyrir áhorfendur, þegar við ók-
um inn í bæinn.
— Jú, við höfum verið að
koma upp íþróttamannvirkjum.
Erum að Ijúka gerð fullkomins
íþróttavallar. Hann verður tek-
inn í notkun á landsmóti Ung-
mennafélags Islands í sumar. Og
það er einmitt verið að ljúka
honum núna. Einnig er verið að
fullgera sundlaugina. Sjálf laug
in var að vísu komin áður, en
nú er verið að bæta búnings-
klefa og aðra aðstöðu. Sundlaug
in byg.gist á því að hægt er að
fá nægt heitt vatn. Hér er góð
hitaveita. í suraar er ætlunin að
bora eftir heitu vatni, eina holu
í viðbót. Ný hús kalla á meira
vatnsmagn og við viljum vera
heldur á undan með að ná því.
Halldór Þ. Jónsson
En hitaveitan er orðin rúmlega
20 ára og nú ætlum við að fara
að endurnýja eldri iagnir.
— Og hvernig er heílbrigðís-
málum skipað?
— Við höfum hér gott sjúkra-
hús. Það er bara að verða of
lítið, Fólk þartf að geta búið við
sama örygigi á þessu sviði seirn í
höfuðstaðnum. Læknarnir eru
tveir, og við þyrftum að fá þarm
þriðja. Við höfum náð samstoðu
við hreppana um að koma hér
upp læknamiðstöð. Er nýlega bú
ið að gera samning milii 7 hreppa
og Sauðárkroks um læknamíð-
stöð og það mál komið í gaing.
En eins og ég sagði áðan, þ4
þarf að skapa sveitarfélögunum
sömu aðstöðu varðandi skóla-
og heilbrigðismál, og er á sfærrl
stöðunum. Það er nauðsynlegt,
því annars hélzt ekki á fólki.
BÓKHLAÐA VÍGB
' — Og nú ætlið þið að halda
upp á 100 ára afmæli kaupstað-
arins í sumar. Hvenær er það?
— Hátíðahöldin verða 2.—4.
júlí. Ýmislegt' verður tíl hátíða-
brigða. Tekið verður í notkun
nýtt safnáhús, en Bókhlaðan höf
ur verið í byggingu nokkuð
lengi, Þar á að verða héraðs-
bókasafn, héraðsskjalasafn og
ætlunin að koma þar upp lista-
safni: Ekki er að vísu mikið tíl
af l'istaverkum ennþá, en keypt
hefur verið málverk eftir Jón
Stefánsson, sem var héðan. Á af-
mælinu verður komið upp sým-
ingu á. verkum brottfluttra skag
firzkra málara. Dagskráin er ann
ars ekki fulLmótuð ermþá, en
væntanlega verður saga kaup-
staðarins rakin, leiksýningar o.
ffl. Um það verðuir sjálfsagt mlk-
ið tateð á sfaum tíma og ekkí
ástæða till að faira út í það rnú.
Sumarstarf fyrir eldri borgara
Ferðir um Reykjavík og’ nágreimi
og „opið hús“ út júnímánuð
FÉLAGSSTARFI fyrir eldri
borgara, sem hefur verið í Tóna
bæ verður haldið áfram þar á
miðvikudögum út júnímánuð. —
Hina vegar fellur fiokkastarfið á
mánudögum og þriðjudögum nið
ur í sumar, en hefst að nýju
með haustinu. f þess stað verða
farnar skoðunarferðir um Rvík
og nágrenni og smáferðalög út
fyrir bæinn. Slíkar ferðir voru
farnar í fyrrasumar og urðu á-
kaflega vinsælar.
Helen Halldórsdóttir, sem veit
ir forstöðu starfinu í Tónabæ
sagði blaðamönnum, að mik-
id aðsókn hefði verið í vet-
ur og fólkið yndi sér prýðiiega
í ,,opnu húsi“ og eins hefði
verið óskiptur áhugi á flokka-
starfinu, þó einna mestur á
hver3 konar föndri og handa-
vinnu. Helenu tii aðstoðar í
Tónabæ eru jafnan 12—24 kon
ur úr kvenféíögum safnaðanna,
svo og úr Kvennadeild Rauða-
krossins og er það allt sjálf-
boðavinna. Skemmtikraftar
koma jafnan annan hvern mið
vikudag og skemmta gestum og
gefa þeir einnig vinnu sína.
Þess má og geta í sambandi
við félagsstarf eldri borgara í
Reykjavík, að 60 íbúðir fyrir
aidraða v(ð Norðurbrún komast
að llkindum í gagnið í haust, Á
neðstu hæð hússins verður mið
stöð félagslífs eldri borgara í
því hverfi. Sams konar miðstöð
verður einnig við Stóragerði, en
þar verða reistar 60—70 íbúðir,
sérstaklega ætlaðar eldri bot'g-
urum.
Danir ljósmynda
leynivopn
Kaupmannahöfn, 3. júní. AP.
SOVÉZKT herskip af nýrri gerð,
svokallað „leynivopn Rús«a á
Eystrarseilti“, Bigldi um Eyrax-
sund í dag áleffðis til Norðursjáv
air, og ljósmytidir nf því birtust
f Kaupinannabafnarlilaðinu
„B,T.“. Skipið er búið jafnt
venjuleigum vopnum s«m eld-
flaugavopnuin, og talið er að
það hafl um tíma verið á aust-
anveorðu Eystrasalti, en það hef-
ur aJdrei áður hætt sér út á
heimshöfin.
Hefskip og flugvélar frá Dan-
Rússa
mörku og fleiri löndum hafa
fylgzit náilð með ferðum sovézika
herskipsins, og af þvff hefur ver-
ið tekinn fjöldi ljóismynda.
Smiði skipsins virðist staðfesta,
að sovézki fflotinn sé að hverfa
frá því að smíða eimigÖOTgu her-
skip búin eldflaugum og leggi í
þess stað áherzlu á smærri her-
skip, sem eru jafnvel böin til
kjannorkuhernaðar og venjulegs
hernaðar. „Þessi tegumd her-
skipa er mjög öruggit vopn í
hvers komar striði,“ sagði ó-
nefndur heim itda nmaðu r
Frá „opnu húsi* I Tónabæ
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)