Morgunblaðið - 09.06.1971, Síða 17

Morgunblaðið - 09.06.1971, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1971 17 Mikill hug-nr er í mönmim austur í Vík í Mýrdal lun að koma á fót nýjum fyrirtækj um til að veita uppvaxaindi kynslóð atvinnu. Unga fólk- ið hefur löngum orðið að flytjast á brott, þar sem það hefur ekki fengið störf við sitt hæfi. Um langan tima má segja að svo til eiiniu atvinnu- veitendomir í þorpinu hafi verið kaupfélagið og Verzlun arfélagið. Horft til Víkur af sjó — Reynisdraingar fremst. Þ>urfum að fullvinna vörurnar heima í héraði Rætt við Sigurð Nikulásson sparisjóðsstjóra í Vík í Mýrdal Morg'unblaðið hefur hitt að máli Sigurð Nikulásson, sparisjófSsstjóra Sparisjóðs Vestur-Skaftafelissýslu i Vik, og spurt hann um hagi fölks og héraðs. Sigurður sagði: — 1 Hvamimshreppi búa lið lega 500 manns, þar af eru um 380 í Vík. Ibúafjöldinn hefur staðið í stað um árabil og má skýringar m.a. leita í helzta vandamáli okkar, sem er að útvega vaxandi kyn- slóð atvinnu og gera henni kleift að búa hér. Menntun araðstaða er ekki góð, að- eins skyldunámsskól'i, svo að unglingarnir verSa að sækja alla frekari menntun út úr sýsiiunni. —■ Húsnæðisskorturinn há- ir okkur mest í skólamálun- um, en öll kennsla fer nú fram i félagsheimilinu Leik- skálum. Hreppurinn er nú með í athugun byggingu skólahúss og ef af fram- kvæmdum verður ætti að rofa til með menntun ungl- inganna heima fyrir. GÓÐ AFKOMA — Afkoma fólks hér í Vík er almennt góð og atvinnu- leysi er ekki til staðar, þótt aukning atvinnu fyrir ungl ingana sé mikið vandamál, eins og áður er minnzt á. —- Af verklegum fram- kvæmdum hér í sumar má nefna, að hreppurinn mun láta steypa aðalgötuna I þorp inu. Kostnaðaráætliun er 2.6 milljónir króna og er frágang ur gangstétta talinn með. Þeg ar heíur verið lokið við und irbúningsvinnu að mestu, t.d. holræsagerð. — Öíl holræsi og gangstétt arhiellur eru steyptar i þorp- inu í steypustöð hneppsins, sem keypt var fyrir einu og hálfu ári. Við hana störfuðu allt að 5 manns þegar bezt lét. Má geta þess, að rör og helliur hafa verið seldar til annarra staða innan sýslunn- ar og utan. VELTAN /i MILUIAROUR — Af framikvæmdum má nefna að Sparisjóður Vestur- Skaftafellssýslu hefur ný- lega byggt yfir starfsemi sina og hefur starfsaðstaða gjör- breytzt til hins betra og um- svif sparisjóðsins aukizt. — VeLta spariisjóðsins var tæpur hálfur milljarður króna á sl. ári og er það ekki svo lítið í ekki mannfleiri sýslu. Umsetningin fyrstu 4 mánuði þessa árs er um 150 milljónir kr. eða 30% meiri en á sama tíma 1970. Það er því auðsýnt, að vöxtur spari sjóðsins heldur áfram, þar sem fyrsti ársfjórðunguri.nn er lang veltulægsti timi árs- ins. — 1 nýbyggingu sparisjóðs ins eru sýsluskrifstofurnar á efri hæðinni, svo og sýslu- bókasafnið og lessalur þess. Ölil starfsaðstaða bókasafns- ins hefur gjörbreytzt, þvl áð ur voru bækurnar geymdar í kössum sökum húsnæðis- skorts. — Árið 1970 var mjög hag stætt fyrir sparisjóðinn. Inn- lánsaukning var 14 miHjónir kr. eða um 25%. Bein innláns auknirug hefur ekki fyrr orð ið svo mikil. Um síðastliðin áramót voru heildarinnlán rúmar 70 milljónir króna. Út- lánsaukning á sl. ári var 1.5 milljónir kr. eða 3%. Veru- legur hagnaður varð af rekstri sparisjóðsins eða 875 þúsund kr. án afskrifta. '__, ! Nýbygging spairisjóðains í Vík. Sigurður Nlkulásson. NÝ ATVINNUFYRIRTÆKI -— Verzl'unarféLag Vestur- Skafitfellinga hyggst fullgera hið nýja verzlunarhús sitt á næstunni og mun öll starfsað staða þess baitna verulega við það. Verzlunarfélagið og Kaupfélag Vestur-Skaftfeli- inga eru stærstu vinnuveit- endur sýslunnar. — Vegna vandkvæða á að útvega unga fóLkinu atvinnu ákváðu nokkrir einstaklingar hér í Vík að kanna mögu- leika á að vinma vörrur úr því hráefni, sem fellur til í land- búnaðarhéraði. Var ákveðið að koma á fót prjónastofu og hefur hún nýlega hafið til- raunaframleiðslu. Almenn- ingshlutafélag vax stofnað um prjönastofuna og var þátt taka sýslubúa mikil. Áætlað hlutafé er 2 millj. kr. Sem stendur fer bráðabirgða- stjórn með rekstur prjóna- stofunnar. Formaður henn- ar er Einar Oddsson, sýsLu- maður, en sparisjóðurinn hef ur tekið að sér daglegan rekstur og bókhald fyrst um sinn að tiLmæLum stjórnarinn ar. — PrjónavéLar voru keypt- ar frá Þýzíkalandi og hefur húsnæði fengizt í gömlum verZlunarhúsum Verzlunarfé lagsins. 1 prjónastofunni starfa nú 6 manns, en áætlað er að starfslíðið teljl 14 manns, þegar framleiðslan er komin í fullan gang. Það er ekki svo lítil aukning á vinnumarkaðimum hér. Þetta samsvarar því, að 2.800 manns hefðu íengið atvinnu í Reykjavík. — Nökkrir einstaklingar hér hafa og í undirbúningi stofnun saumastofu sem á að veita 5—7 manns atvinnu. Mikill áhugi er hjá heima- mönnium um að kanna frek- ari möguleika á atvinniubót- um. BJÖRT FRAMTÍÐ — Margir hér binda mikl- ar vonir við aukna ferða- mannaþjónustu, sérstaklega I sambandi við opnun hringveg ar um Landið, þ.e. þegar lok ið er vegagerð til Hornaf jarð- ar. Sú hugmynd hefur kom- ið fram, að hér í Vik verði byggð „mótel", en stofnkostn aiður við þau er miiklu minni en við hótel. — Ég hef mikla trú á fram- tið héraðsins. Hér verður þjónustumiðstöð eftir til- komu hringvegarins, svo og á Kirkjubæjarklaustri. Aðal atvinnuvegur i sýslunni er landbúnaður og verður svo um langa framtíð, enda er hér víða búsældarlegt. — 1 framtiðinni verður sú stefna vafalaust ofan á að fullvinna landbúnaðarvör- umar þar sem þær eru fram- leiddar, en flytja ekki hráefn ið til vinnslu í Reykjavík eins og nú er gert. Við þurfum að fullvinna vörurnar heima í héraði. Ég tel, að heimamenn eigi að reka vinnslufyrirtæk in sjálfir, en nauðsyniegt er að þeir fái til þess tæknilega og fjárhagslega aðstoð. — Fjarlægur draumur okk ar er bygging fiskihafnar við Dyrhólaey. Einhver auð- ugustu fiskimið landsins eru hér við ströndina, en engin höfn er á svæðinu frá Horna firði til Vestmannaeyja. Hér er því ekki aðeins um at- vinnumái að ræða, heldur einnig öryggismál. Bygging fiskihafnar hér kostar ekki meira en andvirði 1—2 sæmi legra stórra skuttogara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.