Morgunblaðið - 26.06.1971, Side 20

Morgunblaðið - 26.06.1971, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNl 1971 gera ekki bob á undan sér. „Öryggisbeltin björg- uðu lífi okkaru sögðu Vestmannacyingarnir sem lentu í bílveltu í Öxnadal Öryggisbelti lalin hafa bjargað frá stórslysi — Vi3 lentum í lausamöl og það skipti engum togum, að bíllinn valt þarna a' veginum. Þetta varð svo snöggt, aö við áttuðum okkur ekki á því, sem gerðist, fyrr en við vor- um í þann veginn að steypast nið- ur á brotin úr framrúðunni, þar sem bíllinn stóð upp á framendann utan í vegarbrúninni. Við hefðum alveg eins getað kastazt út og lent undir bílnum, því framrúðan mun hafa far- ið úr að mestu, áður en bíllinn fór út af. Þá hefði ekki verið að sökum að spyrja. — En allt í einu rykktu öryggis- beltin í, og við héngum í þeim í lausu lofti. Þau björguðu okkur áreiðanlega frá bráðum bana eða að minnsta kosti frá stórslysi. Mbl. 21/8 70. Hjónin sátu með spennt öryggis- belti yfir um sig, og töldu þeir, sem að komu á slysstaðinn að það hefði tvímælalaust bjargað þeim frá al- varlegri meiðslum. Vísir. 5/9 70. • Með notkun öryggisbelta má koma í veg fyrir 8 af hverjum 10 meiriháttar meiðslum og 4 af hverjum 10 minniháttar meiðslum, er umferðarslys verður. • Könnun,er fór fram í Danmörku, leiddi í Ijós, að af 53,er létuzt í umferðarslysum hefðu 38 lifað, ef þeir hefðu notað öryggisbelti. • Öryggisbelti þola 3ja tonna átak, en það samsvarar því átaki, sem verður þegar ekið er með 60 km. hraða á steinvegg. • Það tekur aðeins 5—10 sekúndur að spenna beltið, og nieð einu handtaki losið þér það aftur. SPENNIÐ BELTIÐ STRAX í DAG, Á MORGUN GETUR ÞAÐ VERIÐ 0F SEINT. UMFERDARRÁD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.