Morgunblaðið - 11.08.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1971
5
Fegrum borgina með
sameiginlegu átaki
Rætt við Gunnar Helgason,
formann fegrunarnefndar
Reykjavíkur
Fegrunarnefnd Reykjavik-
ur hefur ákveðið, eins og til
kynnt hefur verið að efna til
fegrunarviku í borginni dag-
ana 9. til 15. ágúst. Er vikan
sérstaklega ákveðin með til-
liti til 185 ára afmælis Reykja
víkurborgar, sem er 18. ágúst
n.k.
1 tilefni þessa sneri Morg-
u.nblaðið sér til Gunnars
Helgasonar, form. fegrunar-
nefndar, og spurði hann um
titgang og tilhögun fegrunar-
vikunnar.
— Tilgangur fegrunarvik
unnar er fyrst og fremst sá
að vekja athygli borgarbúa á
þýðingu fegrunarmálanna frá
menningar-, heilbrigðis- og fé-
lagslegu sjónarmiði og fá sem
flesta borgarbúa til sameigin
legs átaks til að fegra og
bæta umhverfi sitt. Ég álit að
stórt átak hafi verið gert á
þessu sviði á síðari árum,
bæði af einstaklingum, fyrir
tækjum og opinberum stofn-
unum, en óneitanlega maetti
víða gera enn betur og sums
staðar er verulegra úrbóta
þörf. Og þar sem svo er, von-
umst við til í fegrunarnefnd,
að þar verði tekið til hendi,
svo að borgin okkar megi
skarta sínu fegursta á 185. af
mælisdaginn.
— Nefndin efndi til fegrun
arviku fyrir tveimur árum.
Hvernig voru undirtektir
fóLks þá?
— Sérstaklega góðar. Það
má fullyrða, að þúsmidir
Reykvíkinga hafi þá lagt
hönd á pióginn með því að
snyrta hús sín og garða og
mörg félagasamtök tóku virk
an þátt í starfinu á ýmsan
hátt m.a. með þvi að snyrta
og hreinsa ákveð'n svæði í
eða við borgina. Það var
margra manna mál, að borgin
hefði þá tekið 'veruiegum
stakkaskiptum og eins vonum
við að verða muni nú.
— Hvaða undirbúning hef-
ur nefndin aðallega haft í
sambandi við fegrunarvik-
una?
Við höfum í fyrsta lagi
haft samband við tugi félaga
og samtök, sem likleg eru til
að sýna þessum málum skiln-
ing og velvilja. Hafa undir-
tektir þeirra undantekningar
laust verið góðar og þau á
ýmsan hátt veitt málinu
stuðning beint eða óbeint
bæði með bréfaskriftum og
viðtölum við félaga sina og
nú í vikunni vonumst við til
þess að hljóta ennþá méiri
stuðning frá ýmsum félögum
líkt og var 1969, er fegrunar
vika vaj- haldin. Mun fegrun-
arnefndin hafa samband við
þessi félög og samtök með
það fyrir augum að skipu-
leggja starfið og athuga á
hvern hátt helzt er hægt að
ná árangri.
Þá hefur nefndin haft sam-
band bréfiega eða munnlega
við mjög marga einstaklinga,
fyrirtæki og stofnanir og
bent á ýmis atriði, sem hún
hefur talið að betur mættu
fara og óskað eftir að ráðin
yrði bót á. Hafa flestir þess-
ara aðila brugðizt vel við og
lagfært það sem á var bent.
Fegrunarnefndin hefur átt
góða samvinnu við fræðslu-
stjórann í Reykjavík og skrif
stofu hans með það fyrir aug
um að auka skilning barna og
unglinga á þessum málum.
Var m.a. efnt til ritgerðasam-
keppni í barnaskólum borgar
innar á sl. vori um fegrunar-
málin. Ráðgert er að veita
einhverja viðurkenningu fyr
ir beztu ritgerðirnar nú í lok
fegrunarvikunnar.
Þá mun hreinsunardeild
gatnamálastjóra aðstoða borg
arbúa í fegrunarvikunni við
að fjarlægja rusl af lóðum, ef
þess er óskað.
— Fegrunarnefndin hefur
undanfarin ár valið falleg-
ustu götu borgarinnar og
veitt nokkrum fyrirtaíkjum
og stofnunum sérstaka viður-
kenningu fyrir góða um-
gengni og snyrtilegt útllt
mannvirkja og athafnasvæði.
Verður slikt ekki gert nú?
— Jú, nefndin hefur siðan
hún hóf starfsemi sína 1967
á hverju sumri bent á, að
hennar dómi, fallegustu
götu eða götur borgarinn
ar og eins veitt nokkrum fyr
irtækjum viðurkenningu fyr-
ir gott útlit húsa og annarra
athafnasvæða. Eins mun
verða gert nú og mun sér-
stök nefnd, sem er á vegum
fegrunarnefndar, gera til-
lögu um þessa viðurkenningu
að fegrunarviku lokinni. Þá
fór stjórn Arkitektafélags ís-
lands þess á leit við fjóra fé-
laga sina, að þeir bentu á
nokkur mannvirki og lóðir
umhverfis þau, sem að þeirra
dómi væru verð viðurkenn-
ingar fyrir snyrtimennsku og
gott útlit. Verður þeim aðil
um einnig veitt viðurkenning
að fegrunarvikunni lokinni.
Ég vil taka fram að skrif-
stöfa fegrunarnefndar í
Skúlatúni 2 verður opin alla
daga meðan fegrunarvikan
stendur yfir og eru þeir borg
arbúar, sem vilja koma með
ábendingar og tillögur i sam-
bamdi við fegrunarvikuna og
fegrunarmálin almennt beðn
ir um að hafa samband við
skrifstofuna, sem mun gefa
upplýsingar og veita aðstoð
eftir föngum. Umsjónarmaður
fegrunarvikunnar er Árni
Árnason, en einnig geta borg-
arbúar haft samband við
framkvæmdastjóra nefndar-
innar, Hafliða Jónsson, garð
yrkjustjóra og Pétur Hannes-
son, fulltrúa í hreinsunar-
deild gatnamálastjóra.
Ég vil svo segja það að
lokum, að við í fegrunar
nefndinni höfum frá upphafi
gert okkur grein fyrir því, að
við fáum litlu áorkað í fegr-
unarmálunum nema með að-
stoð og ríkum skilningi Reyk
vikinga fyrir þessum málum.
Vil viljum með starfi okk-
ar leitast við að sameina sem
flesta aðila til átaka fyrir
þessi mál með það að tak-
marki, að gera Reykjavik að
fyrirmyndar borg í þessu
efni, okkur Reykvíikingum öil
um til gagns og ánægju.