Morgunblaðið - 11.08.1971, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.08.1971, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1971 ótryggiLegt að drepa niOur fæti. Berl marm úr inn er tíu ára uan þessar mundir, en 13. ágúst 1961 lokaði hann leiðum mllli Aiustur- og Vestur-Berlínar. Bygging múrsins var lokastig langrar þróunar, er átt hafði sér stað allt frá styrjaldarlok- um. Skal nú gerð grein fyrir nokkrum helztiu atriðum, sem stuðluðu að þéssari þróun. Þegar leið að iokum síðustu heimsstyrjaldar, komu þjóðar- ieiðtogar Breta, Bandaríkja- manna og Rússa nokkrum sinn um saman til að skipa málum Þýzkalands að unnum sigri. Á fyrsta fundinum, í Teheran 28. nóvember til 1. desember 1943, var að vísu ekki fjallað um Þýzkaland eða Berlín að sigri loknum, en megináherzla lögð á að gamga milli bols og höf- uðs á Þjóðverjum. 1 september næsta ár gerðu stjórnir Bret- iands, Bandaríkjanna og Rúss- lands hins vegar frumdrætti að samkomulagi um skiptingu Þýzkaiands í hernámssvæði og yfirstjóm Beriínar. Er þar lagt til að Þýzkalandi verði skipt í þrjú hernámssvæði, er þessi þrjú stórveldi ráði yfir, og mið að við landamæri Þýzkalands eins og þau voru 1937. Og í þess um drögum er einnig gert ráð fyrir sérstöku Berlínarsvæði, sem einnig verði undir yfirráð- um stórveldanna þriggja. í nóvember 1944 var nánar kveð ið á um þetta samkomulag og í maí 1945 var því breytt á þann veg að bráðabirgðastjórn Frakklands varð aðili að því og gert ráð fyrir að Frakkar ættu hlut að hernámi Þýzka- lands og Berlinar, er til kæmi. Á Jaltaráðstefnunni í febrú- ar sama ár höfðu Churchiil, Roosevelt og Stalin nánar kveðið á um skiptingu Þýzka- lands og Berlínar. Þar var ákveðið, að yfirstjórn hernáms svæðanna i Þýzkalandi skyldi hafa aðsetur í Berlín. Á Pots- damráðstefnunni i júlí og ágúst sumarið 1945 var þessi skipt- ing Þýzkalands og Berlínar í fjögur hemámssvæði svo end anlega staðfest. Eftirlitsnefnd, sem skipuð var yfirforingjum setuliðs hernámsveldanna, var falin yfirstjóm svæðisins, en samhljóða atkvæði þurfti til að ákvarðanir hennar öðluðust gildi. Á Potsdamráðstefnunni var einnig samþyikkt að afnema þýzkan stóriðnað. Gengu Rúss ar lengst í þeim efnum og fluttu þýzk íyrirtæki og sér- fræðínga til Ráðstjórnarríkj- anna, en tóku önnur und- ir rússneska ríkið. Að öðru leyti stefndu Ráðstjómarrík Hér sjást glöggt járnkrossarnir austan megin múrsins. Myndin er tekin úr Vestur-Berlín. Nýjar íbúðarblokkir í Norðvestur-Berlín. in að sósíalisma og þjóðnýt- ingu á sínum hernámssvæðum. Vesturveldin beittu sér hins vegar fyrir efnahagslegri end- urreisn Þýzkalands á kapítal- iskum grundvelli og af þessum sökum varð fyrst verulegt djúp staðfest milli hernáms- svæða Rússa annars vegar og hernámssvæða vesturveld- anna hins vegar. Og brábt dró til fre'kari tíðinda. í marz 1948 sagði rússneski fulltrúinn sig úr stjómar- nefndinni og i júni sama ár sagði rússneski fulltrúinn sig úr yfirstjóm bandamanna yfir Beriinarborg. Þar með höfðu báðar þessar nefndir glatað hagnýtu gildi og kalda stríðið var í algleymingi. Rúss- ar lokuðu leiðum til Vestur- Beriinar og loftbrúnni var kom ið á. Árið 1949 voru svo stofn- uð Vesturþýzka sambandslýð- Frá Evrópuniiðstöðinnl. A myndinni sést Þakkarkirkjan end- urbyggð. Gamla kirkjan iirundi í loftárásum og stóð turninn einn eftir. Hann stendur enn, en nýja kirkjan öðrum megin og nýi turninn hinutn nu-gin. veldið og Þýzka alþýðulýð- veldið. Árið 1958 gerði Krús- jeff kröfu til að vesturvéldin kölluðu heri sína frá Vestur- Berlín, sem Rússar vildu að yrði gerð að „hlutlausu, varn- arlausu fríríki“. Þessa kröfu hafa Rússar síðan ítrekað öðru hvoru sem kunnugt er. Beriínarmúrinn var svo næsta aðgerð, reistiur til að stöðva ofboðslegan flótta- mannastraum frá Austur- Beriín til Vestur-Berlínar. Er Beriínarbúum nú meinuð för milli borgarhlutanna, en ferða mönnum og íbúum Vestur- Þýzkalands er frjálst að fara til Austur-Berlinar. En eins og áður gat, er stöðugt verið að fjaila um þessi mál og ein slík ráðstefna var haldin einn dag inn, sem ég stóð við í Beriín. Það var 22. ráðstefnan um Beriínarvandamálið. Stjóm Beriínar er nú þann- ig háttað, að borgarstjóri 1 Vestur-Berlin er kjörinn af 127 fulltrúum. Sjötíu og þrjú sæti í borgarstjóm Vestur- Berlínar eru auð, ætluð full- trúum austurhlutans. Austur- Berlín er hins vegar stjórnað af yfirborgarstjóra og 180 manna borgarstjórn. Þess má geta að borgarstjórnir beggja hluta gera kröfu til að teljast borgarstjórnir Berlínar allirar. Þessar og aðrar staðreyndir úr sögu Berlínar siðaista aldar- fjórðunginn rifjast upp þar sem ferðast er um Vestur- Berlín. Og allt í einu er kom- ið að Þinghúsinu, einhverju allra frægasta þinghúsi verald- ar. Hér var það sem nazistar kveiktu í 27. febrúar 1933 og kenndu um samsæri kommún ista. Fjöldahamdtökur voru framkvæmdar og áróðursher- ferð hafin og i kosningunum, sem fram fóru nokkrum dðig- um siðar, fengu nazistar 44% atkvæða og þar með hafði Hitler tryggt sér völdin sem kunnugt er. Þinghúsið í Beriín gegnir nú ekki lengur sínu hlutverki. Það stendur autt og yfirgefið rétt við Berlínarmúrinn og vitnar um liðna sögu og sam- tímaástand. Þegar Vestur- þýzka sambandslýðveldið var nýstofnað, voru gerðar nokkr- ar tilraunir til að halda þing sambandslýðveldisins í Þing- húsinu í Berlin. Ef sú tilraun hefði tekizt, hefði komið upp ný staða í átökunum um Ber- lin, því sem kunmugt er, hef- ur viðleitni Vestur-Þjóðverja beinzt að því að tengja Vest- ur-Þýzkaland og Vestur- Beriín sem nánustum böndum, en gegn þessu hafa Rússar og Austur-Þjóðverjar staðið mjög fast. Því var harðri mótspymu beitt, er vestur-þýzkir þing- menn héldu til Bertínar. Loft- brúin var þá eina leiðin til borgarinnar, en þegar flugvél- ar voru á leiðinni með þing- liðið, sveimuðu austur-evrópsk ar herflugvélar allt umhverfis Og ýmist undir vélunum eða yf- ir. Þóttu þessar ferðir svo lífs- hættulegar, að þeim var hætt. Nýbyggingar eru mjög ríkj- andi í Vestur-Beriin og stöð- ugt er verið að byggja. í loft- árásum síðustu heimsstyrjald- ar var þriðja hvert hús I borg- inni eyðilagt og miklu fleiri stórskemmd. Eftir styrjöldina dróst að hafizt væri hánda um uppbyggingu, sem því meirl skriður hefur hins vegar kom- izt á hin síðari ár. Er mikið kapp lagt á alhliða fram- kvæmdir og í þvi skyni að hraða þeim, hafa Vestur-Þjóð- verjar sett í lög, að vestur- þýzkt fjármagn, sem varið er til uppbyggingar í Beriin, skuli undanþegið skatti. Bygg- ingarframkvæmda sér því stað víðast hvar í borginni, himin- háir kranar gnæfa yfif og í gangstéttarskurðum eru verka- menn önnum kafnir að korna fyrir leiðslum og rörum. 1 Norðvestur-Berlín, á her- námssvæði Frakka, hafa ný- lega verið byggðar íbúðar- blokkir í stórum stíl. Athyiglis- vert við þá framkvæmd er hve fallegar þær byggingar eru, bæðí úr fjarlægð og eins þeg- ar nær er komið. Nú virðist svipaðs hagkvæmnissjónar- miðs hafa verið gætt þarna og tiðkast við íbúðarblokkir, en litaval og form á þökum gefa þessum byggingum sérstæðan, faigurfræðilegan svip. Annað einkenni á Vestur- Berlín er hve alþjóðleg ferða- mannaborg hún er orðin. Er bersýnilega lagt mikið kapp á að laða ferðamenn til borgar- innar og þeim gerð dvölin þar í alla staði þægileg. Á aðalgðt- um borgarinnar ægir saman fólki af öllum þjóðernum og lit arháttium, ungmenni frá Evrópu, Afriku og Suður- Ameríku sitja eftir endilöngum Kurfúrstendamm og falbjóða glingur, á tröppum Þakkar- kirkjunnar sitja hippar, sem sofa þar í sólinni á daginn og á næsta horni er haldin kristi- leg samkoma með ræðum og hljóðfæraslætti. Þjónar hlaupa um með freyðandi bjórkollur og virðast aldrei hafa við að svala þorsta viðskiptavinanna. í næstu grein verður sagt frá ferð til Austur-Berlínar. Brandenborgarliliðið, sem Brúnstakkar Hitlers geystust gegnum á sinum tíma. Þingluisið í Vestur-Berlín. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.