Morgunblaðið - 28.08.1971, Síða 1
28 SIÐUR
%
192. tbl. 58. árg.
LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
- Dollarinn hækkaði í Evrópu
Xókíó, Washing-ton, London og
Bonn, 27. ágúst. AP-NTB.
JAPANIR hafa látið undan og
láta gengi yensins fljóta frá og
með morgundeginum. Mun geng-
ið þá ákvarðast af framboði og
eftirspurn. Fjármálasérfræðingar
gizka á að gengið muni hækka
um 5—10%, áður en Japans-
stjórn tekur í taumana. Þetta er
talinn mikill sigur fyrir Nixon
Bandaríkjaforseta, því að 10%
aukatollurinn í efnahagsráðstöf-
unum hans var einkum hugsaður
til að minnka útflutning Japana
tii Bandaríkjanna. Nixon Banda-
ríkjaforseti lét í dag ljós ánægju
sína með ákvörðun Japansstjórn-
ar.
Ákvörðunin um að láta gengi .
yensins fljóta kann þó að draga
dilk á eftir sér, því að er tilkyrin-
ing Japansstjórnar barst til Evr-
ópu styrktist staða dollarans
gagnvart evrópskum gjaldmlði.
Framh. á bls. 3
Danir kjósa
21. september
Þessar ungu og fallegu stúlkur eru meðal þess sein prýðir alþjóðlegu vörusýninguna í Laugar-
dalsliöllinni um þessar mundir. Þær liafa þann starfa að greiða götu gesta. Þær lieita f.v. Bergný
Guðmundsdóttir, Elín Gestsdóttir og Ásta Denise Scopie. — Ljósmyndari Morgunbl., Kr. Ben.
Izvestia segir ísland
aðaláhyggjuefni NATO
Gagnrýnir flotaæfingar sem
NATO hefur ekki sagt frá
Moskvu, 27. ágúst. — (NTB)
„YFIRSTJÓRN NATO telur
lífsnauðsynlegt að styrkja
norðurvæng bandalagsins
vegna ákvörðunar íslands um
Deilur á
skákmóti
Vancouver, 27. ágúst. AP.
TEKIZT hefur að leysa deilu,
scm um tíma virtist ætla að binda
enda á kanadíska skákmótið í
Vancouver. Alþjóðlegum meist-
»rnm á Vancouver-mótinu hafði
verið boðið til skákmóts í Tor-
onto í tilefni þjóðsýningar, sem
þar verður haldin. Það mót hefst
4. s*-pt., en Vancouver-mótinu
Framh. á bls. 3
að krefjast brottflutnings
Bandaríkjamanna frá stöð-
inni í Keflavík,“ segir Izvestia,
málgagn sovézku stjórnarinn-
ar, í dag. „Þessi áform hafa
vakið greinilega andúð NA
TO og fyrst og fremst banda-
rískra herforingja. Þeir telja
bandarísku stöðina á íslandi
hernaðarlega mikilvægasta
staðinn á öllum norðurvængn
um,“ segir Izvestia.
Izvestia veitist að NATO í
sambandi við fyrirhugaðar flota-
æfingar NATO á Norður-Atlants
hafi. Blaðið kallar þær nýjan lið
í hernaðarundirbúningi NATO
og segir að tekin hafi verið upp
sú stefna að styrkja bæði norð-
ur- og suðurvæng bandalagsins.
Talsmaður norðurherstjórnar
NATO í Kolsás í Noregi, stað-
festir í viðtali við NTB að flota-
æfingar séu fyrirhugaðar í Noið-
ur-Atlantshafi innan skamms.
Frá þeim hefur ekkert verið
sagt opinberlega af hálfu NATO,
þrátt fyrir athugasemdirnar í
Framh. á bls. 3
Kauipmannahöfn, 27. ágúst.
NTB.
ALMENNT er talið í Kaup-
mannahöfn að haustkosningam-
ar fari fram 21. september. Sjö
flokkar eiga fiilltrúa á þingi og
álíka margir í viðbót munu rcyna
að koma mönnum að. Endanleg
tilkynning um kosningadaginn
verður gefin út í byrjun næstu
viku þegar þingið kenviir saman
til aukafundar.
Kos.nmgarnar að þess.u sinni
eru taldar sérlega mikilvægar
vegina þesis að kj'ósemdum gefst
koistur á að vie.lja miJli núveramdi
boirga ra:fiHokka.Sitjórn ar og ríkis-
stjórnar sösiLaldletm'ólkrata, sem
að öllum Ikinid'um miunidi ekki
styðjiasit við þinigmieirihiiuita.
íhaidsiflbkkiurijnin,, Vinsitri fWkk
urinn og Róttæki vinstri flokk-
urinn seigjöst miumu halda áfram
stjórna'rsamstanfi haldi þeir þing
meirihluita sínuim, ag er þetta á
íynsta sinn í danskri sögu sem
samvinmu hiefiur vierið komiið á
milli þessara fldkka. Seinast
höfðu Danir borgaralega stjórn
á árumium 1950—53 þegar Erik
Eriksiein var i fbrsæiti rífcisisitjióm
ar Ihaldstflbkksims og Vinstri
ffokkisiinis.
Ríkisstjórn Hilrnar Bauns-
g&rds hefur verið við völö síðöin
í janúar 1968. E fn ahagsmiáilim
hafá valdið stjbrnámni mestum
enfiðleiikuim, og fögmuður rikti í
henbúðuim stjórnarimnar í dag
þegar efinahagsráðunautar stjöm
arinmar birtu skýrslu þar sem
segir að rofa muni til í efnahags
máliu.nuim á nœsta ári. Bent er
Framh. á bls. 3
Maður
bítur
snák
Mountain View, Kaliforniu,
27. ágúst AP.
MAÐUR að nafni Ronalð
Fleury varð svo reiður þcgar
hcimilissnákurinn beit liann
að hann bcit hann líka og
drap hann. Flenry liggur
þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Fleury famn snákinn fyrir
einni viku á golfvelli og
Framh. á bls. 3
Brezkir togarasjómenn:
Vilja landsfund til að mótmæla
útfærslu íslenzku landhelginnar
Glasgow, 27. ágúst.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
FORMAÐUR Togarasjó-
mannafélags Aberdeen lýsti
því yfir í dag að félag hans
myndi vinna að því öllum ár-
um að efnt yrði til landsfund-
ar allra aðila innan brezka
fiskiðnaðarins, til að mótmæla
fyrirhugaðri útfærslu ís-
lenzku landhelginnar. Sagði
formaðurinn, William B.
Cowie, skipstjóri, að hann
hefði haft samband við ýmsa
aðila í Hull og Grimsby, sem
væru eindregið hlynntir slík-
um fundi.
Cowie sagði að togarasjómenn
í Bretlandi krefðust þess að
brezka stjórnin tæki harðari af-
stöðu gegn útfærslu landhelg-
innar og kvartaði einnig yfir þvi
að þingmenn frá fiskveiðibæjum
hefðu lítið látið að sér kveða i
málinu. Hann sagði að skozkir
fiskimenn teldu útfærslu ís-
lenzku landhelginnar mundu
hafa alvarlegar afleiðingar í för
með sér fyrir brezkan fiskiðnað,
þar eð langmestur hluti afla út-
hafsflotans kæmi frá Islands-
miðum.
Cowie sagði að fiskimenn
vildu fá að vita hvað brezka
stjórnin hyggðist gera í málinu.
1 lok skeytisins segir að brezkir
fiskimenn búist við að nýtt
þorskastríð verði óhjákvæmilegt
ef íslendingar færi landhelgina
Yenið lát-
ið fljóta
Töpum 5,4 milljörðum dollara, segir
japanska viðskiptamálaráðuneytið
i
4T
<
X