Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971
1
í dagblaðimi Tíminn birtist
hinn 19. þ.m. greinin „Er stór-
styrjöld fflugfélaganna að helj-
ast?“ þar sem birtar voru tölur
um áætlað sætaframboð íslenzku
flugfélaganma á flugleiðfi'.nni
Skandinavía—fsland á vetri kom
anda. Þar var um það spurt, hvort
ekki væri þjóðhagslega hagkvæm
ara að Loftleiðir leigðu aðra þotu
Flugfélags íslands til Skandinav
iuferðanna „í stað þess að leigja
útlenda og stærri og þar með ó-
hentugri þotu tii notkunar á þess
ari flugleið."
í ritstjómargrein Tímans 24.
þ.m. er þessi hugmynd einnig á-
réttuð, og sú ósk borin fram að
Þotuflug milli Skandin-
avíu og USA
Greinargerð frá Loftleiðum
samstarf takist með islenzku
flugfélögunum á þessum grund-
velli.
Sé einungis miðað við flugferð
ir milli íslands og annarra Norð
urlanda er röksemdafærsla
gieinahöfundar mjög sannfær-
andi, en þar sem forsendur henn
ar eru aðrar verður ályktunin
röng.
Sannleikurinn er sá, að allt frá
því er Loftleiðir hófu flug milli
Skandinavíu og Bandaríkja N-
Ameríku hefir meginstefna fé-
lagsins verið sú að vinna markað
á þeirri flugleið. Félagið hefir
raunar einnig á þessu árabili eign
azt marga trausta viðskiptavini,
sem eingöngu hafa flogið milli
íslands og hinna Norðurlandanna,
en á þeirri flugleið hafa alltaf
verið í gildi fluggjöld IATA-sam
steypunnar, og hefir aldrei verið
ágreiningur vegna þeirra við er
lend stjórnvöld, og hefir Flugfé-
lag íslands sízt þurft undan
þeirri samkeppni áf hálfu Loft-
leiða að kvarta eftir að það félag
hóf Viscount- og síðar þotuflug
á þessari leið, sem Loftleiðir fóru
með hæggengari flugvélum.
FARGJALDASTRÍÐIÐ
VI» SKANDINAVIU
Allt frá því að Loftleiðir hófu
að bjóða lág fargjöld milli Skand
inavíu og Bandaríkjanna hafa
skandinavisk flugmálayfirvöld
haldið uppi harðri baráttu fyrir
því, að Loftleiðir tækju þar upp
gjöld IATA-flugsamsteypunnar.
í vörn beittu Loftleiðir m.a.
þeiiri röksemd, að með lágum
fargjöldum næði félagið til far-
þega, sem ella myndu ekki ferð-
ast flugleiðis, og vegna þess væru
hin hóflegu gjöld til eflingar
ferðamálastarfsemi Skandinava.
Það vakti einnig á því athygli,
að félagið hefði varið stóré til
kynningarstarfsemi á flugleið-
inni, og ætti af þeim sökum sið-
ferðilegan rétt til þess að njóta
þeirra markaða, sem það sjálft
hefði varið fé til að finna.
Að því var einnig vikið, að
verzlunarjöfnuðvjrinn við SAS-
löndin væri íslandi óhagstæður,
og vegna viðkomu á íslandi hlytu
íslenzkar flugvélar að vera leng
ur í förum á þessari flugleið en
skandinaviskar. Þessar röksemd-
ir voru virtar að vettugi, og öll-
um samningafundum lauk jafn-
an með því að fargjaldabilið var
minnkað og afleiðing þess varð
fækkun farþega Loftleiða á flug-
leiðinni.
í aprílmánuði árið 1968 áttu
Loftleiðir um það eitt að velja,
að samþykkja úrslitakosti um
10% mismun á vissum fargjöld-
um, og var það gert í þeirri von,
að það myndi nægja til þess að
skapa Loftleiðum aðstöðu til
samkeppni. í reyndinni náðu
þessi gjöld ekki nema til tak-
markaðs hóps þeirra farþega,
sem flugu miili Skandinaviu og
Bandaríkjanna, og þar sem Loft-
leiðir notuðu flugvélar til ferð-
anna, sem voru hægfleygari en
þotur keppinautanna var auð-
sætt, að um tvo kosti myndi að
velja, er næst yrði setzt að samn
ingaborði við Skandinava, annan
þann, að leggja niður flug millli
Skandinavíu og Bandaríkjanna,
hinn, að samþykkja þá úrslita-
kosti að bjóða IATA-gjöld með
þotum, og freista þess, að keppa
með þeim, enda þótt um jafn-
ræðisgrundvöll væri naumast að
ræða, þar sem þotur Loftleiða
yrðu að koma við á íslandi.
NÝ FARGJÖLD
— NÝR FLUGKOSTUR
Stjórn Loftleiða ákvað að velja
síðari kostinn, í trausti þess að
vinsældir félagsins myndu
jafna metin, og með vaxandi
fjölda viðdvalarfarþega á ís-
landi yrði smám saman unnt að
gera flugleiðina arðbæra. Það
var auðsætt, að til þess að
tryggja farþega yrði að auka
tíðni ferðanna og gera ráð fyrir
að með því að beina viðdvalar-
farþegum Luxemborgarflugleið-
arinnar til Skandinavíuferðanna
milli New York og íslands, —
auk annarra farþega á þeirrd
flugleið — gæti heildarsætanýt-
ingin orðið góð, enda þótt hún
yrði ekki nægjanleg í fyrstu á
flugleiðinni milli íslands og
Skandinavíu einni saman.
Vitanlega hefir félagið einnig
uppi ráðagerðir um að bjóða í
ríkum mæli hinnar svokölluðu
IT-ferðir milli íslands og hinna
Norðurlandanna, en í þeim lækk-
ar hundraðshluti fargjaldsins af
heildarkostnaði allrar ferðarinin-
ar, og verður þetta vonandi til
verulegrar farþegaaukningar á
þessum hluta flugleiðarinnar.
Næsta verkefni félagsstjórn-
arinnar nlaut því að verða það,
að reyna að tryggja með leigu
eða kaupum flugvélartegund,
sem farið gæti í tveim áföngum
milli Skandinavíu og Bandaríkj-
anna. Þar þurfti einnig að því að
hyggja, að sú flugvél gæti haldið
uppi ferðum til Chicago eftir að
félagið fær full flugréttindi þang
ag, svo sem um er samið.
Eftir vandlega yfirvegun var
talið, að flugvél af tegundinni
DC-8-55 myndi henda bezt til
þessara ferða. Ef ekki væri gert
ráð fyrir sérstöku vörurými í
flugvélinni myndi hún geta borið
161 farþega, en væri horfið til
þess að ætla vörum rúm, myndi
farþegatalan lækka, sem því svar
aði. Auðsætt var, að í engan
aukakostnað þyrfti að leggja
vegna þjálfunar áhafna á þessari
flugvélartegund, og að unnt yrði
að hagnýta að nokkru leyti sams
konar varahluti og þá, sem nauð
synlégir eru nú vegna DC-8-63
flugvéla Loftleiða.
Að öðrum kostum ótöldum
þykir þessi flugvélartegund hent
ugust, en fyrir því er nú verið
að kanna leiðir til að festa hana
Loftleiðum fyrir 1, nóv. n.k.
Tapar
fyrirtæki yðar
peningum á
hverjum morgni ?
er hlutlaus aðili, sem segir yður og starfsfólki
yðar nákvæmlega til um vinnutíma.
Taflan sýnir tjón fyrirtækisins í eitt ár,
ef 10 MÍNÚTUR tapast daglega af tíma
hvers starfsmanns
Vikukaup 10 menn 20 menn 30 menn 40 menn
Kr. 3.900,— 42.250,— 84.500,— 63.375,— 169.000,—
Kr. 4.700,— 50.700,— 101.400,— 152.100,— 202.800,—
Kr. 5.500,— 59.150,— 118.300,— 177.450,— 236.600,—
TÍMINN ER PENINGAR. Leitið upplýsinga um
» Simplex stimpilklukkur
hjá okkur.
%
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33
Sími 20560 - Pósthólf 377
URSKURÐUD ÓNOTHÆF
TIL AMERÍKUFLUGS* LOFT-
LKIÐA
Að því er varðar flugvél af
tegundmni Boeing 727, þá var
Ijóst, að hún gæti ekki komið til
mála í þessu sambandi, m.a.
vegna þess að hún hefir ekki flug
þol til þess að fara í einum
áfanga milli íslands og Banda-
ríkjanna, en það er auðsætt, að
ein millilending á flugleiðinni
Skandinavía/Bandarikin (New
York eða Chicago) er ærinn
þröskuldur, þótt ekki sé að því
stefnt að leggja þar annan í
götu. Má í þessu sambandi á það
minna, að sölumenn Boeing-verk
smiðjanna höfðu á sínum tíma
reynt að selja Loftleiðum flug-
vél af þessari tegund, en eftir að
kannaðir höfðu verið möguleik-
ar á notagildi hennar, komust
þeir sjálfir að þeirri óvefengjan-
legu og yfirlýstu niðurstöðu, að
hún hentaði Loftleiðum ekki á
flugleiðum félagsins.
Þegar Flugfélag íslands ákvað
á sinum. ti)na kaup á annarri þotu
af gerðinr.i Boeing 727 var eðli-
legast að álykta, að sú ákvörðun
hefði verið tekin til þess að full
nægja væntanlegri þörf Fiugíé-
lagsins fyrir nýja þotu. Ef það
kemnr nú i ljós, að notagildi flug
vélarmnar hefir reynzt minna en
ætlað var þá verður naumast
unnt að reisa Loftleiðum fyrir
Framhald á bls. 15.
FÆST UM
LAND ALLT
Snyrti-
vörur
fyrir
ungu
stúlkurna
\\OR\Y
♦MORNY
Snyrtivörusamstœða, vandlega
valin af Morny, og uppfyllir
aUar óskir yðar um
yMf baðsnyrtivörur.
Sápa, baðolía, lotionT--^
deodorant og eau de cologne.
Vandlega valið af Morny til að
verndó húð yðar. Notið Morny
og gerið yður þannig dagamun
daglega.
O. JOHNSON
&KAABERP