Morgunblaðið - 29.09.1971, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.09.1971, Qupperneq 19
MORGUlNBLAÐIÐ, MIÐVIKTJDAGUR 29. SEPTEMBER 1971 19 1 DAGANA 24.—26. september sl. hélt Samband ungra sjálfstæðis- manna 21. þing sitt á Akureyri. Þingið sóttu rúmleg-a 130 þing- fulitrúar hvaðanæva af landinu. Hér fara á eftir ályktanir, sem samþykktar voru á þinginu í eftirtöldum málaflokkum: Al- menn stjómmálaályktun, vam- armái, landhelgismál, skólamál og ferðamannaþjónusta. STJÓRNMÁLAÁLYKTUN Sj álfstæðisstefnian grundvall- ast á lýðræði og hug’sjóniruni um andlegt og efnalegt frelsi fólks- inis. Það ligguæ í eðli sjálfstæðis- stefnunnar, að hún aðlagast ekki einungis þjóðfélagsþróun- inni, heldur er hún einnig hvati nýrra viðhorfa á hverjum tíima. Baráttain fyrir hagsæld og vel- ferð nútímaþj óðf élagsiins er efkiki hluti af reyraslu yngri kyn- slóðarinmar. Það er niú diregið í efa, hvort þjóðfélagsþróunin stefniir í rétta átt, hvort lífsþæg indakapphlaup samtímans er æslkilegt keppikefli. Hagsældin ....— 1 - ' ■ Fulltrúar á S.U.S.-þingi, Ályktun S.U.S. þings: Vinna ber gegn eflingu ríkisvaldsins — segir í stjórnmálaályktun hefur oirsakað og ennfremur leitt í ljós ný vandamál og við- fangsefni. Hætt er við, að gildi einistalklingsins verði fyrir borð borið í vélvæddu þjóðfélagi nú- tímamis. Það er því eðlilegt, að athygl- in beinist nú meir að manniin- um sjálfum, þörfum hans og óskum. Sökum smæðair þjóðar- inniar, hafa íslendingar ekki orð ið fyrir barðinu á þessari þróun í sama mæli og margir aðrir. Grundvöllur sjálfstæðisstefn- unmar er frjálsræði fólksins í skipulögðu samfélagi. Velferð einiStaMinganinia er þar sett ofar öðru. Þesa vegna hijóta sjálf- stæðismieinn nú að taka föstum töfcum á nýjum viðfangsefnum og emdurtmieta afstöðu sína í Ijósi mýrra viðhorfa og leggja aubna áherziu á hin samfélags- legu úrlausnarefná og réttlætis- mál, sem víða blasa við. Það er ljóst, að aukin hag- sæld getur slævt sjálfsbjargar- hvöt einistaklingsins. Þetta leið- ir til þess, að aufcnar kröfur eru gerðar á herudur þjóðfélaginu Viið lausn hvers kyns viðfangs- efna. Vdnistri öflin hafa hagnýtt sér þessa þróun til þess að tanýja á um aufcið miðstjórmar- og ríkisvald. Vaxandi miðstjóm arvald í þjóðfélaginu er hamla á andlegt og efnalegt frelsi ein- staklingamna og dregur um leið úr framföruim. Sjálfstæðiisstefnan gerir ráð fyrir, að fólkið hafi hæfilegt rúm til þess að raarka sér lífs- atefnu upp á eigin spýtur. Á hinin bóginm er það eitt höfuð- atriði sjálfstæðíisstefmunmar að Skapa þjóðfélagslegt jafnrétti, svo að aðstöðumumur hamli engum að njóta eimstaklings- frelsisins. Ungir sjálfstæðismenn líta svo á, að vinna eigi gegn þeinri stefnu núveramdi stjórnvaidia, sem miðar að eflingu ríkisvalds- inis, og leggja um leið áherzlu á aukna valddreifimgu í þjóðfé- laginu. Með því móti telja þeir, að fálkimiu verði búin betri skil- yrði tii þess að móta þjóðfélags þróunina og breyta á hverjum tíma rikjandi lífsgæðamiati og aðlaga það nýjum viðhorfum og þörfum. ÁLYKTUN UM VARNARMÁL XXI. Sambandsþing ungra sjálfistæðismanma vekur athygli á himnti jákvæðu þróun í alþjóða málum undanfama mánuði. Þróun, sem glætt hefur vonir mannia um heim allan um frið- samlega sambúð, byggða á af- vopnun og auknum skilníingi og samskiptum þj óða í milli. Eimfcum er bent á hinar ný- gerðu samkomulagstillögur full trúa fjórveldanma um Beriin, sem vekja vonir um friðsam- lega lausn á vandamálum Evt- ópu. Hið jákvæða starf Atlants- hafsbandalagsdnis í þá átt, að draga úr spennu í Evrópu, virð- iist nú vera farið að bera ár-ang- ur. Kjarninn í þessari viðleitni er áherzlan á gagnllívæma af- vopnun og minnkun herafla. Einhliða aðgerðir rasfca ríkjandi jafnvægi og spilla þeiim árangri, sem þegar hefur náðst og vinn-a þannig þvert gegn yfirlýstum tilgangi sínum. Aðild ísiands að Atlantshafs- bandal-aginu er hornsteinn ör- yggisstefnu í-slands og hefur svo verið allt frá stofnun ban-da lagsinis. Virk þátttaka íslend- inga í bandalaginu hefur verið skerfur þjóðarimnar til hinnar jákvæðu þróunar í málefnum Evrópu. Þessi stefna, sem lýðræðls- flökkarnir mörkuðu, hefur not- ið stuðnings mikils meirihluta þjóðarinn-ar, sem gerir sér grein fyrir þeirri þýðingu, sem sam- eiginlegan- vamir Atlantshafs- ríkjanna hafa haft. Sú aðstaða sem Atlantshafs- bandalaginu hefur verið veitt hér á landi er þáttur íslands í þessum sa-meiginlegu vömum. Þýðing landsins í vaima- og eftirlitskerfinu hefur aukizt um leið og hún hefur breytzt. Hlut- verfc varnarliðsins nú er efcki fyrst og fremst að gæta öryggis íslands sérstaklega, heldur efcki síður að vetna útvörður banda- lagsþjóðanna í Norður-Atlamís- hafi og fylgjast með síaukmum umsvifum Sovétríkjanna á þessu svæði. Þörfin fyrir vam-arliðið og hlutverk þess, hljóta að vera sí- felldiri en-dunskoðun háð, en sú endurskoðun verður að byggj- ast á hlutlægu mati, en ekki fyrirfram ákveðnum niður- stöðum. Því fordæma ungir sjálfstæðismenn stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjámarinmar um vam armál og þann tvisfcinnung, sem þair gætiir og fram hefur komið síðar í umimælum ráðherra um þessi mál. íslemdingar óska eftir friði í heimiinum. Þjóðin vill tryggja og viðhalda sjálfstæði sínu og fullveldi. Þetta takrmark breyt- ist efcki. Ein helzta Skylda sjálf- stæðs ríkis er að veita þegnum símum öryggi. Utamríkisstefma íslands hefur haft slikt tak- mark. Að þesisu vilja ungir sjálfstæðismenn vinna og telja að aðildin að Atlantshafsbanda- laginu og þátttakan í vömum þess, stuðli frekar en nokfcuð ann-að að því, að maTfcmiði þessu verði náð. ÁLYKTUN UM LANDHELGISMÁL XXI. Þing Sambands ungra Sjálfstæðismanna leggur áherzlu á, að þjóðareining verði um þær aðgerðir, sem framundan eru í landhelgismál inu. Forsenda þess, að það tak- ist er sú, að ríkisstjórnin hafi ávallt samráð og samvinnu við stjórnarandstöðuflokkana um stefnumótun og kynningu á málstað okkar erlendis, en rasi ekki um ráð fram. Þingið minnir sérstaklega á, að með ályktun Alþingis sl. vor var áréttuð sú stefna, sem mörkuð var með landgrunns- lögunum frá 1948, að íslend- ingar teldu sig eiga rétt til alls landgrunnsins og ynnu að því að fá það viðurkennt. Sterkustu rök Islendinga í landhelgismálunum eru þau, að Andið og landgrunnið, eru ein órofa neúd ems og viðurkennt er með því að aðrar þjóðir helga sér yfirráðarétt á auð- lindum þeim, sem finnast kunna á hafsbotni landgrunns viðkomandi ríkja. Við fyrirhugaða útfærslu fisk veiðilögsögunnar ber því að miða við landgrunnið allt, en þó hvergi minna en 50 mílur, þar sem stór og mikilvæg svæði innan landgrunnsins fyr- ir Vesturlandi og Vestfjörðum eru utan 50 mílnanna. Þar sem ásókn á fiskimið- in umhverfis landið er slík, að fiskistofnarnir eru í hættu, ber að leggja áherzlu á, að lýsa yfir ákveðnum friðunarsvæð- um á uppeldisstöðvum fiski- stofna, þar sem þess er mest íþörf. Slíkar friðunaraðgerðir skuli ganga jafnt yfir Islend- inga sem aðra. Nauðsynlegt er, að áður en Alþingi tekur afstöðu til upp- sagnar landhelgissamningsins frá 1961, fari fram þær við- ræður við Breta og Þjóðverja, sem utanríkisráðherra hefur boðað, til þess að þrautreynt sé, hvort þessar þjóðir fáist til þess að viðurkenna einstæð- an rétt Islands sem strandrík- is til alls landgrunnsins. Það verður að vera ljóst öðrum þjóð um, að Islendingar falla ekki frá útfærslu fiskveiðilög- sögunnar, enda er það lífshags munamál þeirra, og jafnframt hagsmunamál annarra þjóða, að fiskistofnarnir séu ekki eyði lagðir. ÁLYKTUN UM FERÐAMANNAÞJÓNUSTU XXI. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna, haldið á Ak- ureyri í september 1971, vekur sérstaka athygli handhafa-, lög gjafa- og framkvæmdavalds á stórvaxandi hlut ferðamanna- þjónustu í tekju- og gjaldeyris- öflun þjóðarinnar og þeim stór kostlegu möguleikum, sem unnt væri að hagnýta sér á þessu sviði. Þingið telur knýjandi nauð- syn bera til þess, að ferða- málum verði gerð sérstök skil í stjórnkerfi ríkisins, og að ferðamannaþjónustan hljóti við urkenningu í samræmi við at- vinnu- og tekjuöflunargildi sitt, sem vex hraðar en í nokkurri annarri atvinnugrein. Rann- sóknir og gerð áætlunar um þróun ferðamannaþjónustunn- ar eru verkefni, sem hafa grundvallarþýðingu um þessar mundir. Ungir sjálfstæðismenn benda á þann árangur, sem einstakl- ingar hafa nú þegar náð hér á landi, á sviði ferðamála. Það hefur sýnt sig, að Islendingar eiga marga mjög hæfa menn í þessari atvinnugrein, og þing- ið telur það grundvallaratriði, að lagt verði kapp á eflingu einkaframtaksins í ferðamanna þjónustunni, sem og öðrum at- vinnugreinum. Jafnframt þvi skal menntun og þjálfun fólks sem starfar að þessari atvinnu- grein, stóraukin. Þá telur þingið eðlilegt, að löggjafinn kanni nánar viðhorf, sem fram hafa komið í ályktun um ferðamálaráðstefnu Ferða- málaráðs ríkisins um endur- skoðun á núverandi áfengislög- gjöf og reglum um lokunar- tíma veitingahúsa. ÁLYKTUN UM SKÓLAMÁL Menntakerfið og kennsluhætt ir þarfnast stöðugrar endurskoð unar í þjóðfélagi eins og okkar þar sem breytingar eru örár. Hafa þarf ríkt í huga að skól- arnir eru fyrir nemendurna og því ber að haga störfum þeirra þannig, að þörfum nemenda sé sinnt á sem beztan hátt. Kennsla á ekki eingöngu að miðast við að veita yfirgrips- mikla þekkingu heldur einnig að nemandinn læri að beita þekkingu sinni við lausn á nýj- um vandamálum og búa þá und ir að mæta örari þjóðfélagsþró- un. Próf og einkunnir verða að þjóna markmiðum kennslunn- ar, þau eiga ekki að vera sjálf- stætt markmið, heldur hvatn- >ng og leiðbeining fyrir kenn- ara og nemendur. Stefna þarf að því að hæfi- leikar hvers einstaklings fái notið sín, og þeim ekki gert erfitt eða jafnvel ókleift að stunda framhaldsnám vegna fjárhagsörðugleika. Taka verð- ur sérstakt tillit til aðstæðna í strjálbýlinu og forðast að slíta börn á unga aldri frá foreldr- um sínum meirihluta árs, með- an á skólaskyldu stendur. At- huga verður hvort ekki er mögulegt að veita þeim börn- um, sem þurfa að dvelja fjarr! Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.