Morgunblaðið - 29.09.1971, Qupperneq 25
MORGLFNBLAÐrÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971
25
fflk í ra
fréttum
mL l i
NIXON TEKUR A
Richard Nixon kom um dag-
inn í heimsókn til bygginga-
manna, sem vinna að gerð
Libby-stíflunnar, sem er reist í
sameiningu af Bandaríkjamönn
um og Kanadamönnum. Þarna
verða slegnar tvær flugur i
einu höggi, þvi að stiflan verð-
ur notuð sem hluti af stórvirkj-
un, en uppistöðulónið verður
hið ákjósanlegasta stöðuvatn
fyrir siglingar. Nixon var strax
drifinn í vinnu, þegar hann
kom á staðinn ásamt föruneyti,
og á þessari mynd sést hann,
fremstur í flokki, ásamt Dick
*
TVEIR ÍSLENDINGAR
A LISTANUM
í norðvesturhluta Vestur-
Ástraiíu, þar sem landslag lík-
ist helzt eyðimörk, er litið
námuþorp, sem heitir Newman.
Þorp þetta er aðeins þriggja
ára og stendur það í skjóli
svartrar hæðar, sem ber nafn-
ið Hvalbaksfjall. 1 þessu þorpi
búa 1049 verkamenn frá 45
löndum í öllum heimsálfum.
Fer hér á eftir listi yfir fjölda
manna frá hinum ýmsu lönd-
um, en þessi listi segir töluvert
um það þjóðfélag, sem allmarg-
ir Islendingar hafa gengið inn
Shoup, fulltrúadeildarþing-
manni, og Mike Mansfield (aft-
astur á spottanum), öldunga-
deildarþingmanni, en þeir eru
þarna að kippa í spotta til að
sturta einhverju magni af
steypu i mótin. Og eftir svipn-
um á þeim að dæma virðist sem
þeir hafi nú loksins fengið eitt-
hvað skemmtilegt að glíma við,
a.m.k. er þetta hvild frá styrj-
öldum og verðbólgu.
bókabAturinn kemur
Nú er bókabáturinn Gurli aft
ur kominn af stað eftir sumar-
leyfin, en hann siglir á milli
eyjanna i skerjagarðinum við
Stokkhólm og lánar íbúum
þeirra út bækur, eins og bóka-
bíllinn þjónar ibúum úthverf-
anna hér. Og þar sem báturinn
er starfræktur sem deild af
miklu stærra bókasafni í landi,
geta viðskiptavinir hans pant-
að að láni bækur frá aðalsafn-
inu, ef þær eru ekki til um
borð i bókabátnum.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir
í:
DÓTTIR SVETLÖNU SKÍRÐ
Myndin af móður og barni
minnir helzt á verk gömlu
meistaranna. Móðirin er Svetl-
ana Alliluyeva Peters og barn-
ið er fjögurra mánaða gömul
dóttir hennar, Olga. Myndin var
tekin er Olga var skirð í nýrri
kirkju í Milwaukee í Banda-
*
rikjunum. Kirkju þessa teikn-
aði hinn heimsþekkti arkitekt,
Frank Lloyd Wright, sem nú er
látinn, og kirkjusmíðin var und-
ir eftirhti aðalarkitekts Wright-
stofnunarinnar, WiUiam Wesley
Peters, sem einnig er faðir
Olgu og eiginmaður Svetlönu,
dóttur Stalíns.
*
MALRAUX VILL BERJAST
Franski rithöfundurinn og
fyrrverandi ráðherra, André
Malraux, sagði á dögunum, að
hann væri reiðubúinn að fara
til Austur-Pakistans og berjast
„undir stjórn Bengala“, að því
er franska fréttastofan AFP
skýrði frá.
Malraux, sem er 69 ára,
var menningarmálaráðherra í
stjórn de Gaulles og einn af
trúnaðarmönnum hans. Hann
sagði, að hann myndi gefa út
yfirlýsingu innan tíðar um það,
hvenær hann færi tU Bangla
Desh og hvað hann myndi gera
þar.
Þessi hermaður, rithöfundur
og stjórnmálamaður hefur allt
sitt líf tengt listræn störf
sin hernaðarlegum aðgerðum.
Hann fylgdist bæði með kin-
versku og spænsku borgara-
styrjöldinni og skrifaði bæk-
ur um þær báðar. Síðan tók
hann þátt í störfum frönsku
neðanjarðarhreyfingarinnar og
varð upplýsingamálaráðherra i
útlagastjórn de GauUes.
Eftir dauða de Gaulle hefur
hann helgað sig ritstörfum og
er nýjasta verk hans „Fallnar
eikur“, byggt á síðustu viðræð-
um hans við de Gaulle. Hann
hefur ekki tekið neinn þátt I
störfum rikisstjórnar Pompi-'
dous eða haft náin kynni af
stjórnarmálefnum.
Malraux greindi ekkert frek-
ar frá hvenær væntanleg yfir-
lýsing hans um Bangla Desh-
málið yrði gefin út. Ýmsir
telja, að hann vilji sennilega
reyna að draga athygli manna
að Bangla Desh í framhaldi af
styrjöldinni þar á sl. vori og
þeim fregnum, sem síðan hafa
borizt um þjóðarmorð.
Yfirlýsing Malraux mun lík-
lega koma frönsku stjórninni
i bobba, en hún hefur enn ekki
að fullu náð sér á strik aftur
vegna stefnu de Gaulles um að
styðja Bíafra í borgarastyrjöld-
inni í Nígeríu.
John Saunders og Alden McWilíiams
Ástralía 350, England 277,
Nýja Sjáland 61, Irska lýðveld-
ið 52, Júgóslavía 50, Skotland
48, Þýzkaland 26, Norður-Irland
20, Wales 19, Holland 17, ItaUa
10, Danmörk 10, Frakkland 9,
Tékkóslóvakía 9, Indland 9,
Kanada 8, Bandaríkin 7, Sviss
7, Ungverjaland 7, Svíþjóð 6,
Kenýa 4, Burma 4, Austurríki
3, Pólland 3 og Malta 3.
Suður-Afrika, ísland, Egypta-
land, Grikkland, Portúgal, Tyrk
land, Lettland, Noregur, Israel
og Ohile eiga hvert um sig tvo
íulltrúa.
Singapore, Ermarsundseyjar,
Irak, Rhódesía, Spánn, Brazilía,
Fiji, Líbanon, Pakistan og
Jórdanáa eiga hvert um sig einn
fulltrúa.
Hitinn hekkar með sólinni, ('anton. við
skulum liúka bessu á morgun. Eins og
þeir segja hérna: Komiö hvenær sein þið
viljið. Hvar ætlið þið að sofa? (2. mynd).
Troy á ættingja sem á búgarð fyrir utan
þorpið, ég býst við að einhver komi til
að taka. ... (2. mynd). Þeir sögðu mér
að tveir menn hefðu komið með rútunnl.
Hvor ykkar er Theodor Randolph Oscar
Voung?