Morgunblaðið - 19.10.1971, Page 11
MORGUN’BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1971
11
Æimmzrm
Frá umræðum á Alþingi um stefnuskrá ríkisstjórnarinnar:
/
/
fremstu röð
dr eftir dr.
Gœðakaffi frd
O.JOHHSON
&KAABER HF
Vil enga frekar en Bandaríkj amenn
Vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar í varnarmálum
ekki traustvekjandi
— segir Benedikt Gröndal í um
ræðum um stefnuskrá
ríkisst j órnarinnar
ef nauðsynlegt er að hafa her
— segir Ólafur Jóhannesson, for sætisráðherra
Á ALÞINGI í gær gerði forsæt-
Isráðherra, Ólafnr Jóliannesson,
gTein fyrir stefnu rikisstjórnar-
innar. Hér á eftir eru birtir kafl-
ar úr ræðu hans.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra gerði í ræðu sinni grein
fyrir málefnasamningi ríkis-
stjórnarinnar, sem skiptist i
fimm höfuðþætti: landhelgismál,
kjaramál, atvinnumál, félags- og
menningarmál og utanríkismál.
Um fyrsta þáttinn fórust Ólafi
Jóhannessyni m.a. svo orð; eft-
ir að hann hafði rakið gang land
helgismálsins og meðferð þess
hjá ríkisstjóminni: „Nú á næst-
unni mun verða lögð fyrir Al-
Ölafur Jóhannesson, forsætisráðherra.
þingi tillaga til þingsályktunar,
þar sem leitað verður eftir stað-
festingu á stefnu stjómarinnar í
landhelgismálinu. Verður þá gerð
nánari grein fyrir málinu, og
skal ég því ekki fjölyrða frekar
um það í þessu sambandi. >ó vii
ég segja það, að ákveðnar hafa
verið frekari viðræður við Breta
og Vestur-Þjóðverja, sem mót-
mælt hafa fyrirhuguðum aðgerð-
um. En gert er ráð fyrir, að þær
viðræður hefjist í byrjun nóvem
ber. Þó að ekki verði hvikað frá
þeirri grundvallarstefnu í land-
helgismálinu, sem mörkuð hefur
verið, er vitaskuld sjálfsagt að
ræða við þessar þjóðir, sem um
langan aldur hafa verið góðar
viðskiptaþjóðir Islendinga, og
leita að lausn i þessu máli, sem
þær líta á öðrum augum en við.
Verðúm við að vona, að slikt
geti tekizt með gagnkvæmum
skilningi og sanngimi."
Um kjaramálin fórust forsæt-
isráðherra m.a. svo orð: „Nokk-
ur af þeim fyrirheitum, sem gef
in eru í þessum kafla, eru þegar
komin til framkvæmda. Þannig
var verðstöðvunin framlengd til
áramóta með bráðabirgðalögum.
Það verður svo Alþingis að á-
kveða það, hvort það vill fram-
lengja verðstöðvun lengur í
sömu eða svipaðri mynd. En
hvað, sem ofan á verður í því
efni, þá leggur rikisstjórnin á-
herzlu á, að ströngu verðlagseft-
irliti verði haldið uppi. Eins og
fram er tekið í þeim kafla mál-
efnasamningsins, sem lesinn var,
leggur rikisstjórnin áherzlu á,
að hafður sé hemill á hinni háska
legu verðlagsþróun, sem átt hef-
ur sér stað hér á landi undan-
farin ár, og mun því leitast við
að tryggja, að hækkun verðlags
verði ekki meiri en í helztu ná-
granna- og viðskiptalöndum.
Hins vegar er ver.t að undir-
strika það, að rikipstjómin gefur
ekkert fyrirheit um það að
stöðva algerlega verðbólgu, svo
sem viðreisnaxstjómin gerði á
sínum tíma. Ég heid að slíkt fyr-
irheit væri óraunsætt, eins og
þróunin er í kringum okkur.
Ég held einnig, að horfast
verði í augu við það, að naum-
ast verður hjá þvi komizt, að
fyrirhugaðra kjarabóta gæti eitt
hvað í verðlagi, þó að allrar var
úðar verði gætt í þvi efni.
Að því er varðar þær sérstöku
ráðstafanir í efnahagsmálum,
sem nefndar eru síðast í þeim
kafla málefnasamningsins, sem
hér er um að ræða, þá er þess
að geta, að söluskattur hefur
þegar verið felMur niður af
nokkrum nauðsynjavörum. Að
öðru leyti eru þessar ráðstafan-
ir, svo sem vaxtalækkun þar-
greindra lána, lækkun ýmissa
gjalda, sem nú hvíla á fram-
leiðsluatvinnuvegunum, aukin
rekstrarlán o.s.frv. í athugun og
undirbúningi."
Um atvinnumái fórust forsæt-
isráðherra m.a. svo orð: „1 þess-
um atvinnumálakafla kemur m.
a. fram sú stefna rikisstjómar-
innar, að beita skuli skipulegum
áætlunarvinnubrögðum við upp-
byggingu atvinnuveganna og efl
ingu atvinnulífsins. Er hinni fyr
irhuguðu Framkvæmdastofnun
ríkisins ætlað að hafa þar for-
ystu og firumkvæði. Hefur verið
samið frumvarp um þá stofnun
og verður það lagt fyrir þingið
á næstunni. Ég vil einnig vekja
athygii á, að það er lögð rik á-
herzla á byggðaþróunarstefnu.
Kemur sú stefna — jafnvægis-
og jafnréttisstefna raunar auk
þess fram í ýmsum ákvæðum
málefnasamningsins á víð og
dreif."
Um félags- og menningarmál
fórust forsætisráðherra m.a. svo
orð: „Ríkisstjómin hefur sett
sér það mark að tryggja svo
sem framast er kostur jafnrétti
Iandsmanna, getur ekki horft á
það aðgerðarlaus, að sá hluti
þjóðarinnar, sem elst upp í
strjáibýli, búi við lakari hlut í
að afla sér menntunar en upp-
vaxandi kynslóð í þéttbýli. Fyrir
eftirgangsmimi núverandi stjóm
Framh. á bls. 16
HÉR á eftir fer stuttur útdráttur
úr ræðum Benedikts Gröndals,
Ragnars Arnalds og Hannibals
Valdimarssonar við umræður um
stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
innar í gær, en sagt er frá ræð-
um Jóhanns Hafsteins og Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra
annars staðar í blaðinu.
Benedikt Gröndal hóf ræðu
sína með því að benda á, að nú-
verandi flokkaskipan væri fjög-
urra áratuga gömul, og aldrei
á þessu tímabili hefði neinin einn
flokkur haft hreinan meirihluta
á þingi Þingræðið hefði því á
þessum tíma orðið að vera því
háð, að fleiri flokfoar næðu sam-
komulagi um myndun ríkisstjóm-
ar. Þetta hefði það í för með sér,
að gera þyrfti málamiðlanir að
tjaldabaki, og kæmu því stefnur
einistakra stjómarflokka ekki
frtarn, fyrr etn búið væri að slá
svo og svo mikið af. Alþýðuflokk-
urinn væri nú búinn að vera í rík
isstjórn frá 1956, eða um 15 ára
skeið. Hann hefði á þessuim tima
reynt að halda stefnu sinni fram
eftir beztu getu, en oft orðið að
hvika frá hentni vegnia aðstæðna
hvei-ju stnni, svo sem í efnahags-
málum o. fl. Nú væru viðhorfin
breytt, þar sem flokkurinn væri
kominn í stjómanandstöðu, og
myndi hanin nú boða stefnu sína
óháður öllum öðrum flokkum.
Hann ítrekaði skoðun Alþýðu-
flokfcsinis á því, að eðlilegt væri,
að núverandi stjómaTflokkar
fengju tækifæri til að reyna
stefnu sína nú. Ýmislegt væri að
finma í þessum stjómiansamimnigi,
sem væri í samræmi við hugsjóna
Benedikt Gröndal
stefnu Alþýðuflokksins, en eitt
væri að lofa og annað að sitanda
við. Hann kvað Alþýðuflokkinn
myndu styöja framgang þeirra
stefnumála ríkisstj ómarinmr,
sem samrýmdust stefniu hans, en
Framh. á bls. 16