Morgunblaðið - 19.10.1971, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1971
Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavík.
Fremkvsemdaetjóri Haraldur Sveinsaon.
Ritstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Aöstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson.
Ritstjómarfulitrúi Þorbjðrn Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsia Aðalstraati 6, sími 10-100
Augfýsingar Aðalstrasti 6, sími 22-4-80.
Aakriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands.
f lausasölu 12,00 kr. eintakið.
STEFNAN JAFNÓLJÓS OG ÁÐUR
/\Iafuí Jóharmesson forsæt-
^ isráðherra flutti í gær
yfirlitsræðu um stefnu ríkis-
stjómarinnar á fundi sam-
einaðs þings. Um þá ræðu
verður í heild sagt, að í henni
kom ekkert nýtt fram um-
fram það, sem í málefnasamn
ingi ríkisstjórnarinnar stend-
ur. Af því verður ekki dregin
önnur ályktun en sú, að enn
Hefur enginn skriður komizt
á framkvæmd stefnumála
ríkisstjómarinnar, þótt þrír
mánuðir séu nú liðnir, síðan
ríkisstjómin settist að völd-
um.
Mest áberandi er, að enn
sieim komið er hefur engin til-
raiun verið gerð til þess að
skýra stefnuna í efnahags-
mlálum í heild. Þannig segir
forsætisráðherra, að það bíði
Alþingis að ákveða, „hvort
það vill framlengja verð-
stöðvunina lengur í sömu eða
svipaðri mynd“ en til ára-
móta. Boðuð var löggjöf um
skattamál, tekjustofna sveitar
félaga, vaxtalækkun o. fl.
Af h'enni er sömu sögu að
segja. Hún verður ýmist lögð
fyrir Alþingi síðar í vetur
eða er „í athugun og undir-
búningi“.
Þá varpaði ræða forsætis-
ráðherra ekki skýrara ljósi á
það, sem framundan er í
öryggismálum þjóðarinnar.
Þannig hafði hann fyrirvara
á því, hvort unnt reyndist að
láta varnarliðið hverfa úr
landi á kjörtímabilinu, en
slík væri þó stefna ríkisstjórn
arinnar. Hann lét þess þó
getið sem sinmar persónulegu
skoðunar, að svo lengi sem
hér á landi þætti nauðsynlegt
að hafa varnarlið, vildi hann
enga fremur en Bandaríkja-
menn. Af ummælum forsæt-
isráðherra, séu þau öll skoð-
uð í hei'ld, verður naumast
dregin önnur ályktun en sú,
að nokkur afturkippur sé
kominn í fyrri fyrirætlanir
ríkisstjórnarinnar um að
vinda bráðan bug að brott-
för vamarliðsins. Ugglaust
er, að almenningsá 1 itið á sinn
mikla þátt í þessu hiki ríkis-
stjórnarinnar og sú stað-
reynd, að ákvæðið um brott-
för vamarliðsins á fjómm ár-
um var sett inn í málefna-
samninginn að óathuguðu
máli. En því miður virðist það
svo um fleiri ákvarðanir ríkis
stjórnarinnar, að þeim er
slegið föstum, áður en nokk-
ur athugun hefur farið fram.
Ábyrg og hörð stjórnarandstaða
¥ mjög athyglisverðri og ýt-
arlegri ræðu við umræð-
ur á Alþingi í gær gerði Jó-
Hann Hafstein grein fyrir
afstöðu Sjálfstæðisflokksins
tiil ríkisstjómarinnar og
sÉefnuyfirlýsingar hennar.
Kom þar fram mjög djúp-
stæður málefnaágreiningur í
mörgum höfuðdráttum stjóm
anstefnunnar, en hins vegar
tjáði Jóhann Hafstein sig og
Sjálfstæðisflokkinn reiðu-
búna til „samstarfs og sam-
ráðs í landhelgismálinu“.
Inn á við er ágreiningur
Sjálfstæðisflokks og ríkis-
sífjómar fyrst og fremst fólg-
iinn í mismunandi afstöðu til
eJnstaklingsins og réttar hans
til umsvifa innan þjóðfélags-
ínis. Þannig hefur gmndvall-
arstefna Sjálfstæðisflokksins
frá öndverðu markazt af því,
„að vinna í innanlandsmálum
að víðsýnni og þjóðlegri um-
bátasfcefnu á gmndvelli ein-
sfcalclingsfrelsis og atvinnu-
frelsiis með hagsmuni allra
stétta fyrir augum“, en í kjöl-
far vinstri stjóma hafa siglt
fjárfestingarkerfi með öllu
því, sem slíku fylgir.
Út á við er djúpstæður
ágreiningur milli stjórnar og
stjómarandstöðu um öryggis-
mál þjóðarinnar. í ræðu sinni
áfcaldi Jóhann Hafstein tví-
skinnung ráðherranna varð-
andi ákvæði málefnasamn-
ingsins um brottför varnar-
liðsins, en sagði síðan: „Nú
er eftir sá þátturinn, sem ég
tel lang-alvarlegastan í yfir-
lýsingu stjómarsáttmálans
varðandi utanríkis- og örygg-
ismál landsins. Hann er sá,
að við völdum taki ríkisstjóm
á íslandi, sem lýsir því yfir,
að það sé ekkert samkomu-
lag innan þessarar ríkisstjórn
ar um það að bindast samtök-
um með öðrum vestrænum
lýðræðisþjóðum til varnar of-
beldinu,“ en með þessum
orðum átti Jóhanm Hafstein
við aðild íslands að Atlants-
hafsbandalaginu og ágreining
stjómarflokkanna um hana.
Með ræðu sinni, sem birt
er í heild í Mbl. í dag og á
morgun, hefur Jóhann Haf-
stein á glöggan og skilmerki-
legan hátt markað stefnu
Sjálfstæðisflokksins í stjórn-
arandstöðu, en lokaorð hans
voru þessi: „Við Sjálfstæðis-
feréaríspa
Náttúrufegurðin á Austurlandi leiðir
hugann að óbirtum bréfum sem Jón
bóndi í Fjalli Guðmundsson hefur leyft
mér að sjá og vitna í. Þau eru frá
Einari Jónssyni í Galtafelli og Helga
Pjeturss (sem hóf feril sinn með þvi að
vera Pjetursson), tveimur stórmennum
andans, til Páls hreppstjóra Lýðssonar
í Hlíð í Hreppum, föðurbróður Jóns
Guðmundssonar. Hlíð var mikið menn-
ingarheimili eins og fram kemur af
bréfunum. Þar hafa verið menntaðir
húsbændur, þótt ekki væru þeir lang-
skólagengnir eins og Jónas frá Hriflu
mundi sagt hafa. Bréfin lýsa harla ólík-
um mönnum, þó að báðir væru stórir I
sniðurn. Báðir eru miklir náttúrudýrk-
endur og unnu Islandi. Þeir eru likar
andstæður. Þótt ólíklegt sé er Helgi
meira í ætt við klettinn, Einar minn-
ir aftur á móti meira á Jónas Hall-
grímsson og þröstinn hans góða. En
Helgi var lika jarðfræðingur og vis-
indamaður, Einar skáld. Þótt steinninn
væri hans efni, var skáldlegt upplag
driff jöður listar hans.
Þeir Hlíðar-bræður voru miklir vin-
ir Einars frá Galtafelli og Helga
Pjeturss. Sá síðarnefndi var sendur
drengur að Hæli, en vandi komur sinar
að Hlíð. Hann var náskyldur Steinunni
á Hæli, móður Gests. Sigurður slembir
getur um þetrta í Lögréttu, en óþarft er
að rif ja það upp hér. Helgi kom alltaf I
Hlið á sumrin þegar færi gafst og stóð
þá við slátt, enda ágætur sláttumaður.
1 einu bréfanna segir hann eins og hálf
áhyggjufullur: „Hvernig fer með ljái í
sumar? Nú fást þeir norsku ekki.“ Sið-
ustu árin sem Helgi lifði, segir Jón í
Fjalli mér, voru brekkur í túninu á
Hlíð þar sem var ekki hægit að nota
sláttuvél og sló Helgi þær allar með
orfi og ljá. Þetta gerði hann til
að halda sér við, trúði þvi statt og stöð-
ugt með Grikkjum að andinn væri
styrkari í hraustum líkama. „Hann var
gegnsýrður af hetjudýrkun fomaldar,"
segir Jón í Fjalli, „en hann lagði ekki
eins mikið upp úr likamlegri vinnu."
Jón bætti því við að Helgi hefði lagt
mikið upp úr vináttu. Hann var mjög
tryggur. Einar Jónsson var líkur hon-
um að þessu leyti. Bréf hans lýsa sér-
lega trygglyndum og þakklátum manni,
viðkvæmum í lund. Hann var einnig
líkur Helga að því leyti að hann dýrk-
aði fornöldina, en ekki minnist hann á
það, hve nauðsynlegt sé að stunda
íþróttir eins og Helgi. Aftur á móti seg-
ir hann að Grímur Thomsen hafi alltaf
verið sitt „uppáhald — okkar
norrænuandi og vikingskarl, bæði i
ljóðum og lífi.“ Og í bréfi dags. í
Reykjavík 1. janúar 1943 segir hann
að Gylfaginning minni sig „— ásamt
öðrum fornaldarfræðum —• á Ásgarð
æsku minnar: Hlíð; þegar fjúkið fenti
og bylur rauk — er jeg hafði náð
mínu margþráða marki að sjá tjörguðu
þilin með hvítu vindskeiðunum í gegn-
um bylgusumar er jeg kom upp i gegn-
um malarhliðið — þá þótti mjer jeg
vera nð koma heim að Ásgarði — þar
sem fólk alt úngt og eldra kunni skil
á fornum fræðum og fögrum goðasög-
um norrænna sem suðrænna — flutt og
vel framsett af ást tll fornrar menn-
• ingar. Og þegar kvöld var komið —
stilla og heiðrikur alstimdur' himin —
þá virtist mjer Ásgarður þessi og eldri
og ýngri úngdómur hans —■ og öll
þeirra fornaldar fegurð vera í svo vin-
samlegu sálarfjelagi við þær blikandi
stjömur og bláu fjarlægð. Ojá,“ Og
Helgi, einnig alltaf með hugann við
fornöldina: „Rauinar er jeg nú ekki
ennþá búinn að lesa allar sögur og
söguþætti nógu vandlega. En enn sem
komið er hefi jeg hvergi nema hjá
Snorra fundið t.d. orðtækið „greiddist
för þeirra vel“, eða „greiddist þeim
vel“. 1 Heiðarvíga sögu er „ráðhoUur"
látið þýða sama sem „ráðþeginn". 1
hverri sögu koma fyrir einhver sjer-
stök orð og sérstakir talshættir. Þótt
skritið sje, þá er svo að sjá sem mál-
fræðingarnir hafi litt tekið eftir þessu,
og að rainnsóknir á því sjeu varla meira
en byrjaðar ... 1 gær sá jeg í Heiðar-
víga sögu, kap. 40: „honum greiddist
vel ferðin" o.s.frv."
Jón í FjaUi segir að faðir sinn hafi
aldrei farið til Reykjavíkur án þess að
heimsækja Einar Jónsson og er honum
minnisstætt að hafa farið með honum í
slíka heimsókn: þeir töluðu ekki um
annað en æskustöðvarnar og nátrtúru-
fegurðina í Hreppum og Þjórsárdal,
enda kemur fram í einu bréfanna að
þeir vUja gera dalinn að þjóðgarði.
Galtafell sést ekki frá Hlíð, en Einar
var þar oft vetrarpart sér til ánægju.
Aldrei fymtist yfir vináttu hans og
Hlíðarfólksins. Hann ávarpar Pál
ávallt: „Gamli kæri æskuvinur", „Minn
góði gamli tryggðavin" eða eitthvað í
þeim dúr, en Helgi segir aUtaf: „Kæri
vin“. Á einum stað talar Einar um
„æskufjöUin" sín og segist líta „tU
æskustöðvanna sem barn til sinna for-
eldra," bætir því svo við að sér firni-
ist oft eins og sér sé hvergi heimilis
auðið, hann sé útUegumaður. Merkilegt
að rekast á þetta orð þarna í þessu
sambandi. Þá finni hann ekki „neina
fyllingu í því sem heimurinn hefur að
bjóða.“ Frá því ég las þetta hef ég litið
Útiiegumanninn, eða Útlagann hams hér
við Hringbraut, öðrum og samúðar-
fyllri augum. Vona að fleiri eigi einn-
ig eftir að gera það.
1 bréfi frá 11. marz 1938 segir Einar
Jónsson t.a.m. „Jeg held jeg ekki muni
til fegurri landslagssýnar en frá stein-
búngunum austan við Minnanúp og
horfa þaðan inn Þjórsárdalsmynnið —
innað Búrfelli — með Landsveit inni á
millum —- litla bæinn Skarðssel, þessa
mynd hef jeg oft sjéð — því jeg hef
gert það að vana minum að jeg hef far-
ið austur að Stóranúpi — beint austur
að Þjórsá og endumært mig á þessari
fegurð — þar sem Minnanúpshólmi —
eða „Viðey" sem hann vist líka kaUast
— blasir einnig við. Þessa dásamlegu
sýn sem mjer er svo kær allareiðu síð-
an á bernskuárum verð jeg altaf að sjá
aftur og aftur, þar til jeg ekki get
lengur. Ojá, það er nú fleira eins og
þú veizt þarna austur frá — og heima
— sem jeg má segja hið sama um, alt
draumland þetta sem jeg elska. Jeg veit
jeg ekki líkist þeim gömlu forfeðrum
vorum, þar eð jeg læt svo uppskátt mín
ar tilfinningar í ljósi." M.
menn vitum, að áhrif okkar
verða ekki útilokuð, enda
þótt tilgangurinn sé að setja
okkur utangarðs. Við eigum
sterkari ítök í hugum fólks-
ins en svo. Á því byggjum
við okkar stjórnarandstöðu í
þeim mæli, sem ég hefi lýst
henni: Hún á að vera ábyrg,
en hörð, hún á að vera mál-
efnaleg og hún á að vera
sanngjöm.“
Erlendum fréttamönn-
um boðið til íslands?
RÍKISSTJÓRNIN hefur í hyggju
að bjóða tti fslands í vor 20 til
30 erlendum blaðamönnum og
kynna þeim landhelgismálið og
íslenzkt atvinnulíf. Hannes Jóns-
son, blaðafuiltrúi ríkisstjórnar-
innar sagði Mbl. í gær að málið
væri enn á algjöru umræðusSgt
og engin ákvörðun verið urn þa&
tekin enn.
Hannes sagði, að ef til kæmi,
yrði um að ræða blaðamenn frá
helztu stórblöðum erlendis og
fréttastofnunum.