Morgunblaðið - 19.10.1971, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1971
17
Ólafía Helgadóttir
Minning
Hún fæddist að Hánastöðum
við Seyðisfjörð 17. júlí 1917 og
var dóttir hjónanna Jónu Guð-
rúnar Jónsdóttur og Helga B.
Ingimundarsonar er þar bjuggu
um þær mundir. Hún fluttist
kormung með foreldrum sínum
til Vestmannaeyja og þar átti
hún sín æsku- og unglingsár. Síð
an fluttist hún svo til Reykja-
víkur.
.Mig langar með örfáum iínum
að minnast hennar, vegna
traustrar vináttu, gestrisni og
margra ánægjustunda er ég átti
á hennar heimili, öll þau ár er
við vorum kunnug.
Þau kynni hófust, fyrir rösk-
um þrjátiu árum norður á
Djúpuvík, en þar unnum við
bæði yfir sumarmánuðina á ár-
unum milli ’35 og ’40. Þá var
Olla eins og hún var jafnan
kölluð ung að árum, og glæsi-
leg stúíka. Þar kynntist hún
einnig eftirlifandi manni sínum
Gunnari Sigurðssyni, sem hún
giftist 1942. Atvikin höguðu því
svo að þau stofnuðu heimild sitt
í Hafnarfirði, í næsta nágrenni
við mig, og má þvi vera, að
af þeim sökum slitnuðu aidrei
okkar fyrstu kvnni.
Þau h.iónin áttu fjóra syni, all
ir eru þeir drengir uppkomnir
og efnilegir ungir menn.
Ekki mun hægt að segja að
andlát Ollu kæmi á óvart þeim
er til þekktu, hún hafði átt við
vanheilsu að striða og um nokk
urt skeið dvalizt á sjúkrahúsi,
þar sem hún lézt 3. október og
fór útför hennar fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði 13.
þessa mánaðar.
Þegar sá sem manni er vel við
hverfur á braut, og eftir
standa minningarnar einar, er
sú innistæða mikils virði, og
einkum þó þeim, er um sárast
eiga að binda.
Sjálfsagt væri það ekki að
skapi Ollu, að skriifað væri langt
mál um hana, og verður það
ekki heldur gjört hér. Hún var
ekki ein þeirra, sem berst á í
þeim skilningi,. en á hinn bóg-
inn var margt í fari hennar, sem
allir er hana þekktu hlutu að
veita athygli.
Hún hafði næmt fegurðar-
skyn, var einstaklega snyrtileg,
ekki aðeins í útliti he’.dur í allri
umgengni og framkomu við ann
að fólk, og bar yfirleitt virð-
ingu fyrir öllu þvi, sem gott var
og faffiegt.
Hún bjó sér, manni sínum
og börnum, svo fallegt heimili,
að til fyrirmyndar verður að
teljast og bar það henni vitni
meira en mörg orð fá lýst. Hún
lagði einnig mikla rækt við garð
inn umhverfis heimili sitt á með
an heilsan leyfði.
Hér skal ekki fjölyrt um fleira
í hennar fari, þótt fleira mætti
minnast á, og betur, en hér hef-
ur verið gert. Einu vil ég þó
bæta við, hún átti traustan og
góðan mann, sem hefur nú um
sinn, söknuðinn að förunaut, en
einnig hugljúfar min.ningar, um
horfinn vin. Þær minningar
græða sárin er árin liða.
Allir þeir sem kyinntust Oliu
munu ávallt minnast hennar
með virðingu.
A.Þ.
Jón Klemens
Sigurðsson - Minning
Alltaf ógn að ger.a,
alls staðar að vera,
hugur flaug þó hraðar
hvergi nema staðar.
Margt og mikið gera,
maður skyldi stór,
byrðar margar bera.
Brostu land og sjór.
Augun opin fögur,
yngdu hverja sál,
sögðu heitar sögur,
saklaust himneskt mál.
Þau hörmuiegu tíðindi spurð-
ust seinni hluta sunnudagsins
10. október sl., að tveir litlir
drengir hefðu látizt af slysför-
um í kofa, sem þeir höfðu byggt
sér ásamt fleiri drengjum í ná-
grenninu.
Annar þessara drengja, sem
svo skjótt eru burtu kvaddir,
var elskulegur heimilisvinur
okkar, Jón Klemens Sigurðsson.
Hann var fæddur 19. júní 1962,
sonur hjónanna Sigurrósu
Grimsdóttur og Sigurðar Klem-
enssonar, Búðarflöt.
Þegar við fluttumst á Álfta-
nesið fyrir fjórum árum, vorum
við svo heppin að eignast heimil
isfólkið á Búðarflöt að nágrönn-
um og vinum og þar sem Jón
Klemens var á sama aldri og
yngri dren.gurinn í fjölskyidu
okkar, tókst með þeim mikil og
einlæg vinátta. — Svo til dag-
lega kom hann í heimsókn ásamt
sínum trygga vini, hundinum
Gosa, sem vakti yfir hverju fót
máli hans og okkur fannst hann
tilheyra okkur. Við eigum svo
ótrúiega margar fallegar og
skemmtilegar minningar um
hann, og við eigum svo bágt með
að trúa því að kveðjustundin sé
komin. En við neyðumst tii að
trúa því, og vitum að allir sem
kynntust þessum elskulega
dreng, harma hans ótímabæra
fráfail og bera harm í hljóði
með dýrmætar minningar um
hann.
Við vottum foreldrum, systkin
um og öllum ættingjum litlu
drengjanna innilega samúð ok’k-
ar og biðjum guð að styrkja þau
i þessari miklu sorg.
Fjölskyldan Strönd.
Greipur Sveinsson
— Minningarorð
Fæddur 16. ágúst 1911.
Dáinn 8. októlier 1971.
Greipur Sveinsson, starfsmað-
ur við Austurbæjarskólann í
Reykjavík, lézt á sjúkrahúsi hér
i borg 8. þ.m. Hann hafði gegnt
störfom fyrir skólann rúmlega
11 ár og um árabil ekki heill
heilsu. Samt var það mjög fátítt
að hann vantaði á sinn stað.
Ekki var þó starf hans af létt-
ara tagi. Það fylgir mikill erili
gangavörzlu í skóla, þar sem
mörg hundruð ganga um oft á
dag til og frá námi sínu, og það
gustar oft kalt í anddyri, þar
sem umgangur er svo mikill, sé
eitthvað að veðri. En þrek
Greips og úthald var ótrúlegt.
Þó grunar mig, að fleira hafi
komið til, og á ég þar við við-
horf hans til barna og mat hans
á þeim. Það þarf mikið til að
meta börn réttilega við þær
ástæður, sem ég hér hefi iýst og
ærin raun fullfriskum manni,
hvað þá sjúkum. En kannsi eru
allar útskýringar óþarfar.
Greipur sagðist standa á meðan
stætt væri, og við það stóð
hann. Sjálfsagt væri okkur, sem
lifum, holit að íhuga það dálítið
nánar.
Að endingu flyt ég hér síð-
ustu kveðju og þakkir fyrir sam
veruna.
Konu hans og vandafólki
votta ég innilega samúð við frá
fal'l hans.
Friðbjörn Benónísson.
\Ú HAPPDRÆTTI U\M KRIISSINS
Dregið var sl. laugardag og kom vinningur-
inn, Jeep Wagoneer bifreið, á miða nr. 32931.
ÖRYGGI - ÞÆGINDI,
tvö orö sem eiga viö SAAB99
Kalt að setjasf inn
í kaldan bílinn? —
Framsætið í SAAB er
rafmagnshitað
um leið og þér
gangset|ið.
Árekstur? —
SAAB 99 er búinn
sérstökum höggvara,
sem „fjaðrar"
og varnar þannig
tjóni í ríkum mæli.
BDORNSSONACo.
SKEIFAN 11 SÍMI 81530
Lítið á línurnar í bílnum, takið
eftir breiddinni og hve mikill
hluti af yfirbyggingunni er öku-
manns- og farþegarými. Ekkert
pjáturskraut að óþörfu. Breitt bil
á milli hjóla. Lítið á sterkiega,
hvelfda framrúðuna. Athugið
gjarnan vélina, viðbragðsflýtinn
og hemlana. Akið í SAAB 99
og finnið sjálf, hve vel hann
liggur á veginum, hve hljóðlát
vélin er og hversu vandað
hitakerfið er. Þér komið til með
að meta frábæra aksturseigin-
leika hans á alls konar vegum.
Erflður í gang á köldum
vetrarmorgnum? —- EKKI SAAB.
Mikill farangur? — Baksætin er
hægt að leggja fram, og þá
fáið þér pláss fyrir æði mikið.
Hólka? — SAAB 99 er með
framhjóladrifi, er á diagonal-
dekkjum og liggur einstaklega
vel á vegi.
Slæmt skyggni
í aurbleytu, snjó? —
Nýju Ijósaþurrkurnar
gera þær áhyggjur
óþarfar.
ÖRYGGI — ÞÆGINDI — OG HAGKVÆMNI.
SAAB STENZT FYLISTU KRÖFUR