Morgunblaðið - 19.10.1971, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1971
19
Sigurður Sverrisson,
læknanemi - Minning
Fæddur 30. maí 1944.
Dáinn 9. október lWl.
Sig'urður Sverrisson, lækna-
nemi , lézt í Landspítalamim að-
fararnótt niunda dags október-
mánaðar 1971, aðeins 27 ára að
aidri.
í byrjun septembermánaðar
veiktist hann hastarlega eftir
Skurðaðgerð við þrálétum sjúk-
dómi, sem bagað hafði hann i
nokkur ár. Þrátt fyrir frekari
aðgerðir lækna í tæpar fimm vik
ur, hjálp eiginkonu hans og
hjúkrunarfólks í fádæma erfiðri
sjúkralegu, sigraði dauðinn um
síðir þrek og viðnámsþrótt þessa
unga manns.
Við félagar Sigurðar í læknis-
námi á Landspítalanum stóðum
hjá og fylgdumst kviðnir með
áföllunum, sem yfir hann dundu
þennan langa septembermánuð,
þó lengst af með von í huga. Nú
stöndum við agndofa eftir. Horf
inn er úr fámennum hópi ís-
lenzkra læknanema á síðasta
námsári einn okkar beztu
drengja.
Sigurður Sverrisson fæddist
30. maí 1944 í Reykjavik. For-
eldrar hans voru hjónin Emelia
Sigurðardóttir og Sverrir Sig-
urðsson, lyfjafræðingur. Föður
sinn missti Sigurður tíu ára gam
all.
Sigurður lauk stúdentsprófi
frá stærðfræðideild Menntaskól
ans 1 Reykjavik vorið 1964.
Hann stundaði nám i lifeðlis-
fræði i Southampton I Englandi
veturinn 1964—’65, en innritað
ist síðan í læknadeild Háskóla
Islands haustið 1965. Mundi
hann hafa lokið þaðan prófi á
þessum vetri, hefði honum enzt
aldur tll. Síðustu misserin
gegndi hann í nokkra mánuði
störfum læknakandidats á fimm
sjúkradeildum í Reykjavík.
Einnig gegndi hann stöðu aðstoð
arlæknis á Vifilsstöðum í júní-
mánuði 1970. Hann var ráðn-
ingastjóri Félags læknanema
1970—’71.
Sigurður byrjaði ungur nám í
hljóðfæraleik og tónfræði, fyrst
hjá Karli O. Runólfssyni og síð-
ar í Tónlistarskólanum í Reykja-
vik. Hann lék á básúnu í drengja
lúðrasveitum Reykjavíkur, síð-
an um margra ára skeið í lúðra-
sveitinni Svaninum. Á árunum
1966 og 1967 lék hann í Sinfóníu
hljómsveit Isiands. Sigurður
vann lengi á námsárunum fyrir
Raforkumálaskrifstofuna á sumr
in, en einnig nokkuð á fyrstu
vetrum læknisnámsins. Hann var
veðurathugunarmaður á Hvera-
völlum sumarið 1964 og félagi í
Jöklarannsóknaféiagi Islands.
Sigurður var kvæntur Matt
hildi Steinsdóttur, stúdent og
kennara. Þau giftust i desember
1964 og eignuðust einn son,
Stein að nafni, sem nú er á sjö-
unda ári. Þau Sigurður og Matt-
hildur kynntust strax á ungl-
ingsárum, og var samband þeirra
óvenju innilegt. Þa-u voru sam-
stilltir förunautar. Það stafaði
frá þeim hlýju og alúð, og var
gott að sækja þau heim.
Matthildur veitti Sigurði mik-
inn styrk í veikindum hans, og
síðasta mánuðinn sat hún við
sjúkrabeð hans, hughreysti hann
og annaðist. Hún hefur sýnt mik
ið hugrekki og stillingu í þess-
um þungbæru raunum. Missir
hennar er mikill og óvæntur, en
efnilegur sonur þeirra Sigurðar
verður henni styrkur i djúpri
sorg.
Sigurður Sverrisson var dugn
aðar- og mannkostamaður. Hann
var meðalmaður á hæð og frem-
ur þéttvaxinn, rauðbirkinn og
hafði jafnan hýrt yfirbragð.
Hann var gæddur heilbrigðri
skynsemi í rikum mæli og var
næmur vel. Hann gat tileinkað
sér mikið námsefni á skömmum
tima, og kom það sér vel, þar
sem aðstæður knúðu hann til að
vinna aukaiega með námi í
læknadeild, einkum framan af.
Sum okkar þekktu Sigurð frá
bernsku og unglingsárum. Við,
sem vorum honum samtíða í
námsdvöl 1. hluta í Skotlandi
sumarið 1967, nutum þar góðrar
söngraddar hans, kímni og ljúf-
mennsku. 1 þessum ferðum kynn
ast læknanemar í hverjum ár-
gangi hver öðrum oft fyrst að
einhverju ráði. Síðan kynnumst
við betur er árin líða, sennilega
betur en í öðrum háskóladeild-
um. Við vinnum saman á nám-
skeiðum og í störfum á sjúkra-
deildum, skiptumst á vöktum og
eðstoðum hvert annað. Þeim, sem
með Sigurði Sverrissyni unnu,
ber saman um, að hann hafi
gengið að vinnu af dugnaði og
ósérhlífni. Hann var ýmsum
þeim kostum búinn, sem bezt
hæfa í læknisstarfi. Hann hafði
góða dómgreind, var Ijúfur í
viðmóti og yfirlætislaus, en vand
ur að virðingu sinni. Hann hafði
góð áhrif á sjúklinga og ávann
sér traust þeirra. Slíkir eigin-
leikar eru mikilsverðir í um-
gengni við sjúkt fólk og verða
tæplega lærðir af bókum. Starf
það, sem Sdgurður hafði á hendi
fyrir Féiag læknanema, þ.e. að
skipa okkur niður á námskeið
og í störf, er vandasamt og eril-
samt, einkum þegar eins ástatt
er í heilbrigðisþjónustunmi og nú,
að hæfan mannafla skortir viða.
Þetta starf leysti Sigurður af
hendi af einstakri iagni og sam-
vizkusemi.
Sigurður var ánægður með þá
braut, sem hann hafði valið sér
og hugði gott til framtíðarstarfs
ins. En hann lézt áður en lang-
þráðu takmarki yrði náð, eftir
langan og fyrirhafnarsaman
námstíma, aðeins örfáum mánuð
um fyrir lokapróf. Fráfall hans
er mikið tjón fámennu íslenzku
samfélagi og islenzkri lækna-
stétt. Það brýnir okkur, sem eft-
ir stöndum, tfl að vinna ötulleg-
ar en áður að hlutverki okkar
sem verðandi lœknar.
Við vottum eiginkonu Sigurð-
ar heitins, syni hans, móður, syst
ur og öðrum nákomnum dýpstu
samúð okkar.
Félagar í læknadeUd.
Sigurður Sverrisson lækna-
nemi andaðist aðfanarnótt 9. okt.
síðasttliðinn eftir erfiða sjúk-
dómsiegu.
Traustur félagi og vinur var
horfinn úr hópnum langt fyrir
aldur fram.
Sigurður fæddist í Reykjavík,
hinn 30. maí 1944, sonur hjón-
anna Emilíu Sigurðardóttur og
Sverris Sigurðssonar lyfjafræð-
ings. Hann var þvi aðeins 27 ára
er hann lézt.
Það var f jölskrúðugur og glað
vær hópur, sem hittist í fyrsta
sinn haustið 1961 í 4. bekk Z í
Menntaskólanum í Reykjavík. 1
hópnum var rólyndur og prúð-
ur piltur, sem yfirleitt var kall
aður Siggi Sverris.
Siggi var ætið hiédrægur og
var litið gefinn fyrir að trana
sér fram. Hann reyndist skemmti
legur i viðkynningu, ræðinn og
orðheppinn í góðum hópi, vel
lesinn og víða heima. Hann var
þvi vinsæli í hópi bekkjar-
bræðra.
Ekki var hann allra, en traust
ur vinum sinum. Hann var sér-
lega músíkalskur og hafði yndi
af söng og spili. Var þátttak-
andi i lúðrasveiit frá unga aldri
m.a. félagi í Lúðrasveitinni Svan
í nokkur ár. Þá var hann einnig
í StJúdentakórnum um tima, enda
með ágæta bassasöngrödd.
Fleiri í bekknum léku á hljöð
færi og tók Siggi þátt í fáeinum
kostulegum tónieikum ásamt
nokkrum bekkjarbræðrum. Kom
þá hvað skýrast í ijós glöggt
auga hans fyrir hinu skoplega
við þær tiltektir.
Nú hafa leiðir skilið um sinn
og rödd Sigga mun vanta i kór-
inn næst þegar bekkjarbræður
úr 6-Z 1964 hittust.
Kvæntur var hann Matthildi
Steinsdóttur og áttu þau son
ungan, Stein. Við bekkjarbræð-
umir vottum frú Matthildi og
Steini, móður, tengdaföður og
ættingjum Sigurðar Sverrisson-
ar okkar dýpstu samúð.
1 minningunni lifir ljúfmenn-
ið, húmoristinn, tónlistarmaður-
inn og vinurinn Sigurður Sverr-
isson.
f.h. bekkjarbrœðra 6-Z ’64.
Júlíus S. Ólafsson.
Hann Diddi er dáinn. Hvilík
harmafregn. Við, allt hans fjöl-
menna skyldulið, höfðum vonazt
eftir betrti fréttum af líðan hans
Framh. á bls. 28
FRAMTÍÐIN ER FORD-CORTÍNA.
Cortínan frá Ford sló f gegn um leið og hún birtlst
á bílamarkaði heimsins. Nú birtist ný Cortina, bíll
áttunda áratugsins — endurnýjuð frá grunni.
Hjá Ford vinna 3600 sérfræðingar að slíkri endur-
sköpun, en það bezta er þó, að eftir allt saman
verða menn að endurskoða hugmyndir sínar um
hvað hægt sé að fá fyrir peningana.
Fjölskyldan fær sinn óskabíl og sannir sportmenn
vagn sem sameinar lipurð, fegurð og kraft.
CORTINA
....... KR. KRI5TJANSSDN H.F.
U M B 0 -D I -D SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00