Morgunblaðið - 27.10.1971, Page 5

Morgunblaðið - 27.10.1971, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1971 5 Skjöldur Stefánsson; Búðardalur læknamiðstöð? Heilsugæzla við norðanverðan Breiðaf jörð í upphafi greinar minnar um þetta viðkvæma mál, vil ég biðja menn að minnast þess, að sem leikmaður er ég ekki nógu kunnugur öllu um máiefni þetta, »ins og margir, sem um þennan málaflokk hafa fjallað undanfarin ár. Þó hiýt ég að hafa mínar skoðanir á málefni þessu, sem ®g aðrir, sem vilja að hag ur héraðanna dafni og sætta sig ekki lengur við fólks- flutninga til hins svokallaða Reykjavíikursvæðis, m.a. Skjöldur Stefánsson. vegna læknisleysis eða ótryggrar heilsugæzlu heima í héraði. Nú þegar þetta er ritað er enginn starfandi læknir við Vesturlandsveg á svæðinu frá Borgarnesi til Patreks- fjarðar, en héraðslæknir í Búð ardal hætti störfum um s.l. mánaðamót og læknir að Reykhölum með réttindi hef- ur ekki fengizt s.l. 6 ár, ef frá eru taldir 6 mánuðir á þessu ári. Á báðum þessum stöðum eru búsettar hjúkrun arkonur, með góða starfs- reynslu og veita þær þá að- stoð, sem þeim er fært. í Dalasýslu eru starfandi fullsetinn Húsmæðrasköli, barna- og unglingaskóli að Laugum og barnaskóli í Búð- ardal. Að Fellsenda hefur verið reist elliheimili, sem njóta þarf reglulegrar læknis þjónustu af eðlilegum ástæð um. í héraðinu eru starfandi 2 sláturhús með hátt á annað hundrað starfsfólk yfir slát urtíðina. Oft verða meiri og minni háttar slys hjá fyrir- tækjum þessum, svo leita þarf aðstoðar lækna í óra- fjarlægð með ærnum tilkostn aði. Hygg ég, að öld heilbrigð isþjónusta við starfsfólk slát urhúsanna, þar á ég við al- menna skoðun þess fólks, sem vinnur við slík hreinlætis- störf, sé ekki eins og vera ætti. I Dalahéraði hafa starf- að sumarbúðir Þjóðkirkjunn- ar og á vegum Orlofsnefndar húsmæðra hafa konur notið hvíldar og hressingar úr Reykjavík og víðar af Suður landi. 1 tillögum nefndar heil- brigðismálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að heilsu- gæzlustöð fyrir Búðardals- og Reykhólalæknishérað verði í Sfykkishólmi. Þó er gert ráð fyrir þvi að læknasetur verði í Búðardal og á Reykhólum á meðan læknar fást. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að erfitt verði að fá lækna til að gegna þessum hérðuðum, þegar aukin áherzla er lögð á hópstarf lækna og að raunin verði sú að lœknisþjónustan verði frá Stykkishólmi, — ef tállögum nefndariimair verð- iu- fylgt. Ef athugaðar eru fjarlægð- ir frá Stykkishólmi til sveit- anna við norðanverðan Breiðafjörð sést að nær úti- lokað er að þjóna svæðinu þaðan. Til Búðardals eru um 90 km og til Reykhóla um 180 km. Samgöngur á sjó og i lofti eru einatt ótryggar vegna veðurskilyrða. Eina leiðin til að þjóna svæði þessu frá Stykkishólmi virð- ist því vera með þyrlu, en slíkt tæki kostar óhemju fé í innkaupi og í rekstri. — Sam skipti miili Stykkishólms og Búðardals eru afar iítil og engar fastar ferðir eru á milli staðanna. Aftur á móti eiga íbúar Búð ardalshéraðs og Reykhólahér- aðs sameiginlegra hagsmuna að gæta, því að talsverð við- skipti eru á milli héraðanna, t.d. er vegum haidið opnum vegna mjólkurflutninga og annarra flutninga, sem fara mikið um Dalasýslu. Læknis- þjónusta í Reykhólahéraði hefur undanfarin ár verið að talsverðu leyd sótt til Búð ardals, en sú þjónusta hefur gert erfiðara að fá lækni til Búðardais. Ibúar þessara héraða eru um 1600, eða svipað og í vænt anlegum Vopnaf jarðar- og Hvammstangalæknishéruðum. Finnst mér þvií öli rök hníga að því, að skynsamlegasta lausn á máli þessu sé sú, að heilbrigðisþjónusta Dala- manna og Austur-Barð- strendinga sé leyst með tveggja Iækna heilsugæzlu- stöð í Búðardal, sem yrði samtengd hjúkrun- arheimili og sjúkraskýli. Læknar þessir mundu þjóna Reykhólahéraði 2—3 datga í viku og dvelja þar jafnvel í lengri tíma eftir aðstæðum. Mér er óhætt að fullyrða, að fáir staðir úti á lands- byggðinni eru betur búnir að tækjum og allri vinnuað- stöðu en læknisbústaðurinn í Búðardal. Hef ég þar orð margra lækna, sem dvalizt hafa hér eða kynnt sér það atriði. Sýnir það, að íbúar Dalasýslu hafa ætíð staðið á verði og sýnt málefni þess* mikinn skiLning og nú fyrir skömmu hefur Sparisjóður Daiasýsiu afhent kr. 500.000, sem verja á til bættrar heil- brigðisþjónustu í héraðinu. Þá hefur Lionsklúbbur Búð- ardals staðið fyrir kaupum á nýjum lækningatækjum. Það var sannkölluð gleði- frétt þegar allir starfandi læknar í Vesturlandskjör- dæmi sem sóttu fund í Læknafélagi Vesturlands 10. okt. s.l. til að ræða heilbrig£> ismál í kjördæminu, gerðu eft irfarandi ályktun, sem sam- þykkt var samhljóða: Til viðbötar þeim 4 heilsu- gæzlustöðviun, stan ráðgert er að koma á fót í Vestur- landsunidæmi, samkv. gr. 17.2 í „Tillögrum og greinargi'i ð um lieUbrigðismál“ verði heilsu- gæziustiið með 2 læknum í Búðardai. Starfssvæði Iienn- ar verði: Hörðadalslireppur, Miðdalalireppur, Haukadals- Franihald á bls. 20 einkenni þeirra sem klœðast KORÓNAfötum *c KBISTINAR 7.14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.