Morgunblaðið - 24.03.1972, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐJÐ, FÖSTUDAGUR 24. MARZ 1972
7
DAGBÓK
BARMNM..
BANGSIMON
og vinir hans
Kaninka horfði á hann
og hnyklaði brúnir. „Mér
finnst ekki mikil hjálp í
þér,“ sagði hún.
„Nei,“ sagði Bangsímon,
„en ég er að reyna að
hjálpa.“
Kaninka þakkaði honum
fyrir að hafa reynt og sagð
ist ætla að fara og tala við
Asnann. Bangsímon gæti
komið með, ef hann vildi.
En Bangsímon fann, að nú
var að koma ný .vísa til
hans og sagðist því ætla að
bíða eftir Grisiingnum.
Hann kvaddi því Kaninku
og Kaninka fór leiðar sinn-
ar.
Það varð þó úr, að Kan-
inka varð fyrri til að sjá
Grislinginn.
Grislingurinn hafði far-
ið snemma á fætur um
morguninn til að tína sér
fjóluvönd og þegar hann
hafði tínt fjólurnar og sett
þær í skál inni hjá sér, þá
datt honum í hug, að aldrei
tíndi neinn fjóluvönd
handa Asnanum. Því meira
sem hann hugsaði um það,
því sorglegra fannst hon-
um það hljóta að vera að
fá aldrei fjóluvönd gefins.
Hann flýtti sér því út aftur
og vegna þess að honum
var mjög gjarnt að gleyma,
endurtók hann í sífellu fyr-
ir sjálfum sér: „Asni, fjól-
ur,“ og svo aftur: „Asni,
fjólur,“ til þess að hann
gleymdi því ekki. Svo tíndi
hann stóran vönd og hélt
loks af stað. Við og við
rak hann nefið í vöndinn
og dró að sér ilminn og
hann var mjög ánægður,
þangað til hann kom þang-
að, sem Asninn bjó.
„Kæri Asni,“ sagði Grisl-
ingurinn. Hann var dálítið
hræddur, því honum sýnd-
ist Asninn vera önnum kaf
inn.
Asninn rétti út annan
fótinn og benti honum að
fara burt. „Á morgun,“
sagði Asninn, „eða hinn
daginn.“
Grislingurinn kom dáiít-
ið nær til þess að sjá við
hvað Asninn væri svona
önnum kafinn. Á jörðinni
fyrir framan Asnann lágu
þrjár spýtur og Asninn
einblíndi á þær. Tvær af
spýtunum snertu næstum
hvor aðra í öðrum endan-
um en ekki hinum og sú
þriðja lá þversum yfir hin-
ar tvær. Grislingurinn
velti því fyrir sér, hvort
þetta væri einhvers kon-
ar gildra. „Kæri Asni,“
sagði hann aftur. „Ég kom
bara til að . . .“
„Er þetta Grislingurinn
litli ?“ sagði Asninn og
hafði ekki augun af spýt-
unum.
„Já, Asni, og ég . . .“
„Veiztu, hvað þetta er?“
„Nei,“ sagði Grislingur-
inn.
„Þetta er A.“
„Oooo,“ sagði Grislingur-
inn.
„Ekki O heldur A,“ sagðr
Asninn byrstur. „Heyrirðu
ekki, eða heldurðu að þú
vitir meira en Jakob?“
„Jú,“ sagði Grislingur-
inn. „Nei,“ flýtti hann sér
að bæta við og kom svo-
lítið nær.
„Jakob sagði að þetta
væri A, og A verður það,
þangað til einhver stígur
ofan á það,“ sagði Asninn
og var enn byrstur.
FRflMHHLBS
SflErfl
BflRNflNNfl
FERDINAND
Finnboga saga ramma — Teikningar eftir Ragnar Lár.
63. Finnbogi kvaddi konung og sagði til sín og ætt-
ar sinnar. „Þú ert stórmannlegur maður,“ segir
konungur, „eða á hvern trúir þú?“ Finnbogi segir:
„Ég trúi á sjálfan mig.“ „Hversu gamall maður
ertu?“ segir konungur. „Ég er nú átján vetra gam-
all,“ segir Finnbogi. Konungur svarar: „Svo lízt
mér, sem margur treysti á minna.“
64. Finnbogi segir: „Mig sendi jarl sá, er Hákon
heitir og ræður fyrir Noregi,“ og segir konungi
allan útveg þann, er á var. Konungur mælti:
„Heyrt hef ég getið Hákonar jarls og jafnan að
illu. En nú skuluð þér hér í vetur vera, og eigið
frjálsleg kaup við vora menn.“ Er Finnbogi þar
um veturinn með sína menn vel haldinn.
NÝKOMiÐ FRÁ KÍNA
Útsaumaöir borðdúkar, stó'l-
setur og bök, púðaborð og
klukkustrengir. Vandaðar vör-
ur — mjög lágt verð.
Rammagerðin Hafnanstræti 17
Rammagerðin. Austurstræti 3
MÖTUWEYTI - HÚTE-L - SKÓLAR
Regtu&amiur maður á bezla
áldri ósikar eftir viinou. Hef
góða reynslu (og menntiuin)
í matreiðsliu, bakatri og t»m-
sjón. Tilb. sendist Mbl. fyrir
8. apmíl merkt 1117.
ONG STÚLKA
með eiitt b-arn óskar eftir riáö*s
koraustöðu, mé vera í sveiit.
Uppil, í siíma 82964 milti M.
5 og 7.
HESTAMENN
Nokkiuir ung 'hrois® til söJu ó
aldriinuim 3ja og 4ra vetre.
Etnniig 6 vetra hiryssa, tamim.
Uppl. á símstöð'mnii, Eymar-
koti, Kjós.
TVE!R TVlTUGIR PtLTAR
sem taka stúdentspróf í vw
ósika eftir vel lauraaðri v'mmiu,
eftir 17. jórai, úti á landi,
ásamt kærustu aranans. TiÉ>.
sendist Mbl. fyriir 5. aprtl n.k.
merkt 1116.
HÚSDÝRAABURBUR
á lóðiir. Ekið heiim. Paratið
í sfma 82153.
HASETA vantar
á góðan 66 lesta raetabét. —
Uppl. í síma 92-7130.
HÚSEIGENDUR
Gerum tilboð i þétting&r á
steinsteyptum þökum —
sprungur í veggjum og fleira,
5 ára ábyrgð.
Verktakafélagið Aðstoð,
simi 40258.
8—22 SÆTA
hópferðabifreiðir til leigu
Einnig 5 manna „Citroen
G. S." leigður út en án bíl-
stjóra. Ferðabílar Mf., simi
81260.
VélapakknEngor
Dodge '46—'58, 6 strokka
Dodge Dart '60—'68
Fiat, flestar gerðir
Bedford 4-6 str., dísil, '57, '64
Buick V 6 cyl.
Chevrolet 6—8 str. '64—‘68
Ford Cortina '63—'68
Ford D-80C '65—'67.
Ford 6-—8 str. '52—'68
G.M.C
Gaz '69
Hiiman Imp. '64—408
Opel '55—'66
Rambler ’56—'68
Renault, flestar gerðir
Rover, bensín, dísil
Skoda 1000MB og 1200
Simca '57—'64
Smger Commer ‘64—'68
Taunus 12 M, 17 M. '63—'68
Trader 4—6 strokka, '57—'65
Volga
Vauxhal' 4—6 str., '63—‘66
Willvs '46—'68.
t>. .líinsson & Co.
Skeifan 17.
Sima> 84515 og 84516.