Morgunblaðið - 30.03.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.03.1972, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972 Oitgefandi hf Árvakuc Reykj'avík Fria'm'kvæmdas-tjóri Haraldw Svemsson. Rittsitjófar M.attihfas Johannessen, Eýjólifur Konráö Jónsson. Aðstoðarritstjóri Sftyrmir Gunmarsson. RiftS’tjórnarfwlIrtnúi Þíorbjjönn Guðrrvundsson Fréttastjóri Björn Jólhanns.son A'Uglýsingastjðri Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn og aígreiðsla Aðaistraeti 6, s?mi 10-100. Augíýsingar Aðalistræti 6, sfmi 22-4-80 Ás'kriftargjald 225,00 kr á 'méniuði innanland® I teiusasöilu 15,00 Ikr einta'kið anna bendi til þess, að ágrein ingur verði um málið innan ríkisstjórnarinnar. Það kem- ur í ljós eftir páska. Það hefur lengi legið ljóst fyrir, að nauðsynlegt væri að ráðast í þessar framkvæmd- ir á Keflavíkurflugvelli og samkomulag hafði að mestu tekizt við Bandaríkjastjórn um, að hún stæði undir kostn aði við þær, þar sem þær væru nauðsynlegar vegna starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þegar stjórnarskiptin urðu í sumar FLUGBRAUTIN Á KEFL A VÍ KURFLU GVELLI IJandaríkjastjórn hefur fyr- ** ir sitt leyti lýst sig reiðu- búna til þess að standa straum af kostnaði við leng- ingu flugbrautar á Keflavík- urflugvelli og aðrar endur- bætur. í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðið birti í gær segir m.a.: „Ákvörðunin um að fallast á ofangreindar framkvæmdir byggist á þeirri skoðun ríkisstjórnar Bandaríkjanna að lenging þvefbrautarinnar og bætt að- staða fyrir flugvélar varnar- liðsins sé hagsmunamál bæði hvað snertir flugöryggi og varnarmátt Atlantshafsbanda lagsins.“ í fréttatilkynningu Banda- ríkjastjórnar kemur fram, að framkvæmdir þessar geti haf- izt innan tíðar, ef samþykki íslenzku ríkisstjórnarinnar liggi fyrir. í viðtali við Morg- unblaðið í gær lýsti utanrík- isráðherra því yfir, að ríkis- stjórnin mundi taka þessa ákvörðun fljótlega eftir páska. Hennar verður beðið með eftirvæntingu.' Annað helzta málgagn ríkisstjórnar- innar, Þjóðviljinn, lýsti því yfir í gær, að tilboð Banda- ríkjastjórnar væri „ógeð- fellt“. Hins vegar birti mál- gagn utanríkisráðherra frétt- ina undir fyrirsögninni: „Bandaríkin samþykkja braut brautina“, en fellir niður meginefni fréttatilkynningar- innar. Engum getum skal að því leitt, hvort þessi mismun- andi viðbrögð stjórnarblað- og vinstri stjórnin lýsti yfir þeim ásetningi sínum að láta varnarliðið hverfa úr landi á kjörtímabilinu, dró Banda- ríkjastjórn að sér hendur í málinu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Utan- ríkisráðherra hefur gefið hin- ar fjölbreytilegustu yfirlýs- ingar um fyrirætlanir ríkis- stjórnarinnar í varnarmál- unum og samgönguráðherra hefur farið í ferðalag vestur um haf, sem vakti mikla at- hygli. Þegar þessi forsaga máls- ins er höfð í huga er eðli- legt, að Geir Hallgrímsson, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins hafi eftirfarandi að segja um þessa ákvörðun Bandaríkjastjórnar: „Þetta tilboð Bandaríkjastjórnar hlýtur að verða túlkað á þann hátt, að Bandaríkin álíti, eftir viðræður við íslenzk stjórn- völd, að ætla megi, að þau telji ástæðu til að hafa varn- arviðbúnað áfram á íslandi. Þetta ætti að vera ljóst, þar sem fjárveitingai ald í Banda ríkjunum veitir ekki milljón- um dollara af peningum bandarískra skattborgara til framkvæmda nema að gagni komi einnig fyrir Bandaríkin og öryggi í þessum heims- hluta. Jákvætt svar íslenzku ríkisstjórnarinnar mundi einnig staðfesta þá skoðun, að hér væri um nauðsynlega framkvæmd að ræða vegna íslenzkra öryggishagsmuna og reksturs Keflavíkurflug- vallar í framtíðinni, svo að hann geti verið hlutverki sínu vaxinn sem flugstöð á Atlantshafsleiðinni.“ NÝ HAFTASTEFNA BOÐUÐ jVfikla athygli hefur vakið sú yfirlýsing Steingríms Hermannssonar, ritara Fram- sóknarflokksins, í sjónvarps- viðtali á dögunum, er hann lét í ljós þá skoðun, að nauð- synlegt væri að draga úr neyzlu innanlands, byggingu „stórra og fínna húsa“ og bifreiðakaupum landsmanna. Þessi ummæli eins helzta ráðamanns í Framsóknar- flokknum og aðrar yfirlýsing- ar, sem komið hafa fram að undanförnu í stjórnarblöðun- um og hjá talsmönnum ríkis- stjórnarinnar, benda eindreg- ið til þess að nýjar efnahags- ráðstafanir séu í undirbún- ingi. Nú er öllum ljóst, að nauðsynlegt er að stemma stigu við þeirri gífurlegu verð bólguþróun sem er að ríða yfir. En hitt er svo annað mál, að öllu skiptir, hvernig á vandanum er tekið, þeim heimatilbúna vanda, sem vinstri stjórnin hefur kallað yfir sig og þjóðina með stjórn leysi í efnahagsmálum und- anfarna mánuði. Ef marka má ummsfeli Steingríms Her- mannssonar eru úrræði vinstri stjórnarinnar höft og bönn. Það á að banna fólki að byggja íbúðarhús, eftir því sem efni og hugur standa til. Og ekki er örgrannt um, að almenningi finnist sumir þeir, sem þannig tala, sízt til þess fallnir. Það á að gera almenn- ingi ókleyft að endurnýja bifreiðaeign sína með eðlileg um hætti og það á að draga úr neyzlu, sem með öðrum orðum þýðir kjaraskerðingu. Þessara ráðstafana vinstri stjórnarinnar verður áreiðan- lega beðið með eftirvæntingu. íslendingar þekkja höft og bönn frá tíð fyrri vinstri stjórnar og eru ekki ginn- keyptir fyrir þess konar 1 stjórnarháttum á ný. Jóhann Hafstein í yiðtali yið Morgunblaðið 0 Öryggis- og varnar- málin verða að komast á traustan grundvöll. 0 Raunverulegar kjara- bætur eyðast í vaxandi verðbólgu. 0 Það stefnir að sívax- andi ríkisafskiptum sam- fara rýrnandi verðgildi krónunnar. 0 Þenslan stefnir at- vinnulífinu í voða og dreg- ur úr hagkvæmum umsvif- um einstaklinganna. 0 Sveitarfélögin þurfa aukið frjálsræði og skýr- ari verkaskiptingu við ríkið. Peg:ar núverandi ríkis- stjórn hefur setið um átta mánaða skeið rúmlega er eðli legt, að menn velti því fyrir sér, hvert stefnir og í hverju breytingarnar á stjórnarhátt um virðast einkum fólgnar. Uang-t er komið fyrsta þing- haldi ríkisstjórnarinnar, og segir það sína sögu. Mbl. hef ir átt viðtai við formann Sjálfstæðisflokksins dóhann Hafstein, um þessi viðhorf, og fer það hér á eftir. VAXANDI ERFIDLEIKAR Það er eins og stjórnar- siranar nú vilji kenraa ýms- um vaxandi erfiðleik- um syndum fyrri stjórnar. Hvert er viðhorf þitt til þessa ? Það er annar tónn en í sumar, þegar stjórnin tók við. Þá var efnahagsaðstað- an metin svo af henni sjálfri, að fært þótti að lofa 20% kjarabótum til launþega á næstu tveim árum og ýms- um fleiri hlunnindum, svo sem styttingu vinnutíma, leragra orlofi o.fl. Mér finnst einn véigamesti og eftirminnilegasti þátt- ur stjórnarsamstarfs við- reisnartímabilsins, að það tókst að mæta hinum gífur- legu áföllum áranna 1967 og 1968 með einurð og fiestu og þeim árangri að við komumst aftur fljótt upp úr öldudaln um. Erfiðleikarnir voru svo miklir að þáverandi stjórnar andstaða var kvödd til ráðu neytis og hugsanlegs sam starfs haustið 1968. Þeir lögðu þá ekki á borð með sér nein ráð, en viðreisnarstjórn in og þáverandi stjórnar flokkar báru einir þungann og ábyngðina. BATINN RANN EKKI ÚT I SANDINN En árferðið, aflabrögð og verðlag erlendis batn- aði. Jú, vissulega, en ábyrgar stjórnarráðstafanir höfðu ekki siður sín áhrif og án þeirra hefði batinn runn- ið út í sandinn. Það byrjar að rofa til 1969 og síðan held ur áfram vaxandi þjóð- arframleiðsla og þjóðartekj- ur á mann hafa aldrei orðið meiri en á sfiðasHiðnu ári. Við slíku búi er gott að taka þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum. Aldan reis hærra en 1966, eftir hið geysihag- stæða skeið fyrstu viðreisn- aráranna frá 1960. Lítum bara á iðnaðinn, þar hefir fram- leiðslan aukizt um 13% á ári tvö ár í röð. Mun það vera mesti vöxtur, sem verið hef- ir í iðnaði nokkurn tíma. NÝR SKIPASTÓIX VAR BYGGÐUR En þið eruð ásakaðir fyr ir að hafa gleymt sjávar- útveginum á viðreisnar- timabilinu, sérstaklega endurnýjun togaraflotaras? Gott, að þú minntist á þetta. Sjaldan fyrr hefir meiri endurnýjun og umsköp un átt sér stað I sjávarút- vegi. Islendingar eignuð- ust spánýjan fiskiskipafiota, betur búinn að tækjum og af kastagetu en áður. Það er svo rétt, að hann var byggð- ur upp eiras og einstakling- arnir þá vildu hafa hann, út- gerðarmenn, sjómenn og lika sveitarfélög. Þetta voru öðru fremur ný og stærri síldveiðiskip, miðuð við veiðiskip okkar þá. Eft- irspurnin eftir togskipunum var ekki fyriir hendi. Togara útgerð erfið og rí'kisstyrkt, enda togurum meinaður að- gangur að landhelginni. Á áratugunum 1960—1970 óx fiskiskipastóllinn á stærð inni frá 100—500 brúttórúm- lestir, hvorki meira né minna Almenningur ót

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.