Morgunblaðið - 07.06.1972, Page 16

Morgunblaðið - 07.06.1972, Page 16
 átÖftdö^feL'ÁÖÍÖ,^IÖVIK®GMMJBa^.»HTNÍ»Íðii® Otgefandi hf. Árvakur, Rfcykijavík Fram'kvaem da stjóri Haraldur Sveinsson. Rrtstjórar Mattihías Johannessen, Eyjólifur Konráð Jónsson Aðstoðarritstjó'i Styrmir Gunnarsson. Rrtstjórnarfulltirúi horbljönn Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jóhannsson Augliýsingastjóri Árni Garðar Kristlnsso-n Ritstjórn og afgreiðsla Aaaistræti 6, sími 1Ö-100. Aug'ýsingar Aðaistraeti 6, sfrni 22-4-80 Áskriftargja'd 225,00 kr á 'mánuði irvnanlan-ds I íausasöífu 15,00 Ikr eintakið nýrri listsköpun. Á íslandi á að vera griðland lista- og menningarlífs. Listahátíð á borð við þá, sem nú stendur yfir, er bezt til þess fallin að undirstrika þá viðleitni þjóð- arinnar að auðga menningar- lífið um leið og efnisleg lífs- gæði eru aukin. Forvígismenn listahátíðar- innar eiga sérstakar þakkir skildar fyrir mikilsvert fram- lag til íslenzkrar menningar; LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK jyú stendur yfir listahátíð í Reykjavík; hér er á döf- inni merkur viðburður í menningarlífi þjóðarinnar, þar sem stórir hópar inn- lendra og erlendra listamanna bjóða fram fjölþætta list. Þetta er í annað skiptið, sem efnt er til alþjóðlegrar hátíð- ar af þessu tagi hér á landi. Til þessarar hátíðar kemur mikill fjöldi erlendra lista- manna. Það er mikið ánægju- efni fyrir íslendinga, þegar þessir valinkunnu listamenn leggja leið sína út hingað og færa okkur brot af heims- menningunni. Þeir brúa mik- ið djúp, sem staðfest er milli lítils eylands og háborga menningarlífs í fjarlægum löndum. Hitt er þó ekki minna virði, að íslenzkir lista menn leggja sjálfir af mörk- um á þessari hátíð mjög merkt framlag, svo að úr verður ein heild innlendrar og erlendrar listsköpunar. Menning þjóðarinnar stend ur á gömlum merg og okkur er nauðsynlegt að viðhalda fornri menningararfleifð um leið og menningarlífið í land- inu er auðgað með frjórri og þar hafa margir lagt hönd á plóginn og unnið merkum málstað lið. leiðir til þess að stemma stigu við ört vaxandi meng- un í heiminum. Ef til vill er það mikilvægast, að ráðstefna þessi veki fólk um heim all- an til vitundar um þau geig- vænlegu vandamál, sem mengunin hefur í för með sér. Það er ugglaust fyrst og fremst sterkt almenningsálit, sem snúið getur þessari þró- un við, og veitt ráðamönn- um þjóða nauðsynlegt að- hald. Á hinn bóginn er það full- Ijóst, að mengunarhættunni verður ekki bægt frá nema með fjölþjóðlegu samstarfi og náinni samvinnu. Ráðstefnan í Stokkhólmi ætti að geta orðið mikilsverður áfangi í átt til frekari samvinnu þjóð- anna í þessum efnum. Hún getur átt drjúgan þátt i því UMHVERFIS- RÁÐSTEFNAN í STOKKHÓLMI Dáðstefna Sameinuðu þjóð- ** anna um umhverfi mannsins er nú hafin í Stokk- hólmi. Þar koma saman full- trúar rúmlega eitt hundrað þjóða og freista þess að finna að samhæfa krafta margra þjóða, og þannig verður e.t.v. unnt að varðveita umhverfi mannsins. Það dregur þó óneitanlega úr gildi ráðstefn- unnar að Sovétríkin og sum fylgiríkja þeirra taka ekki þátt í störfum hennar. Úrlausnarefnin eru óþrjót- andi og ný og ný vandamál skjóta sífellt upp kolli. Iðn- væðingin hefur fært fólkinu aukin lífsgæði og jafnað efna- lega aðstöðu manna, en í kjölfarið sigla nú alvarleg vandamál, sem þarfnast við- náms og skjótrar úrlausnar. Hér stangast á mismunandi hagsmunir; vandinn liggur svo vitaskuld í því að velja og hafna. Þróunarþjóðirnar standa m.a. frammi fyrir þeim vanda að bæta lífskjör fólksins með aukinni fram- leiðslu, en jafnhliða verða þær að hindra að mengun- in sigli í kjölfarið. íslendingar hafa ekki orð- ið fyrir barðinu á alvarlegri mengun enn sem komið er, a.m.k. ekki í nokkurri lík- ingu við það sem gerzt hefur í iðnaðarríkjunum. Engu að síður höfum við sýnt vakandi áhuga á þessu viðfangsefni. Fjölmenn sendinefnd frá Is- landi situr umhverfisráð- stefnuna í Stokkhólmi, auk þess sitja fulltrúar náttúru- fræðinema í Háskólanum ráð- stefnu ungs fólks um um- hverfisvandamálin. Hvort tveggja ber vott um þann almenna vilja, er hér ríkir á því að takast á við þessi við- fangsefni og girða fyrir hin- ar alvarlegu afleiðingar mengunarinnar. Helgi Hálfdanarson; HVINVERJADALIR NÝLEGA flutti sjónvarpið ágætan þátt um Kjalveg, og bar þar á góma örriefnið Hvin verjadali. Var nafn þetta kall að torskilið og líkast til afbök un úr Hvinhveradöium, enda drægi staðurinn þá nafn af hverum þeim, sem þar gjósa og hátt hvína. Ástaeðan til þess, að nafnið er kallað torskilið, mun vera sú, að frásögn Landnámu af Þorgeiri hinum hvlnverska þykir bera helzt. til drjúgan keim af glannalegu hugmynda flugi. Gagnger breyting á nafninu hlýtur þó að teijast örþrifa- ráð til skýringar. Og naumast ern miklar líkur til að Hvin- hveradalir hefðu breyfzt í Hvinverjadali; nafnið auk þess varla svo snoturlega sam an sett, sem vænta mætti af vorum smekkvisu foreldrum. Miklu sennilegri breyting væri t.d. stafavíxl úr Hver- vinjadölum, sem vissulega væru réttnefni, dalirnir kennd ir við vinjar kringum hveri. En hér skal vatnið ekki sótt yfir lækinn. Orðliðurinn verja þarf ekki að vera annað en eignarfall fleirtölu af hvoru- kynsorðinu ver, sem að réttu lagi beygist eins og t.d. sker eða ber. Orðabók Blöndais sýnir ekki beygingu þessa orðs 1 fleirtölu, en Fritzners- orðabók segir, að eign. flt. af ver sé verja, enda kemur það heim við forn dæmi. í Lax- dæln segir: „Mikit þótti spök um mönnum undir því, at menn ætti gott saman i út- verjum" (ísl. fornrit V, 29). Oft heyrist talað ura varplönd in í Þjórsárverum, sem ætti að vera í Þjórsárverjum. Merking orðsins ver er m.a. gróðrarvin á öræfum, eða sem segir í Blöndals-orðabók: „græsbevokset, sumpet Plads, Eng, Oase, is(ær) i ubaboede Egne“. Þorvaldur Thoroddsen segir um Skaftárfjallgarðinn: „tvö ver eru austan undir honum, mikið loðin, mec sökkvandi bleytu“. (Ferðab. III, 139). Fleiri staðir á þess- um slóðum eru nefndir ver. Auk Eyvindarkofavers nefnir Þorv. Th. Illugaver og Þúfu- ver, hvort tveggja sem hag- lendi eða áningarstaði. (Lýs. ísl. III, 193). Og víðar eru al- kunn verja-heiti, sem óþarft er upp að telja. Um Myrkár- ver segir Sveinn Páisson (í þýð. Jóns Eyþórss.): „Ver þýðir hér sama og flói eða mýri.“ (Ferðab. 652). Um fyrsta lið nafnsins mun hvort tvegigja koma til álita, Hvin- og Hvinn,- sem á undan samhljóði væri borið iíkt fram og gæti því ef til vil'l skolazt Það virðist vel sennilegt, að vinjar þessar hafi verið kennd ar við þot hveranna og kall- aðar Hvinver en dalirnir eftir þeim Hvinverjadalir. Nafnið hefur ýmist verið haft í em- tölu eða fleirtötu, og þó, að því er virðist, fremur í einrölu að fornu, Hvinverjadalur. Nú ber handritum Land- námu ekki saman um þetta nafn, hafa það ýmist Hvin- verja- eða Vinverjadai. Mynd- in Vinverjadalur kemur fyrir í fleiri handritum íornum. — (Sjá ísl. fornrit I, 232, nm.) Ef ekki er aðeins að ræða um rithátt að fella niður H-ið, mætti þar kannski hugsa sér upphaflegt heiti staðarins, þó heldur væri Vinver stagiyrðis legt nafn. Það gæti svo sem þýtt haglendi í vinjum. En þá yrði að líkindum torráðln gáta, hjverndg H-ið í Hvin- væri til komið. Trúlegast kynni nú að þykja, að staðurinn hafi heitið Hvinnver, þ.e. þjófaver, úr því vitað er, að útilegumenn hafa frá öndverðu sótt á þessar slóðir. Hvinnverjadaiir (þ.e. þjófabæladalir) minntu þá heldur betur á annað frægt ör nefni þar í grennd, Þjótadali, sem einnig hafa verið nefndir ýmist í eintölu eða fleirtölu. Geta má þess, að Sveir.n Pálsson segir, að nafnið Hvin- verjadalur sé „nú að jafnaði afbakað ýmist í Vínberja-, Hvinnverja- eða Þjói’adal“ (Ferðab. 515). Vínberjadalur er að vísu lítt senniieg afbók un úr Hvinverjadal, en kynni aftur á móti að styðja Vin- verjadal handritanna sem nafn fremur en rithái't. Hins vegar gæti Þjófadalur, sem raunar er fornt nafn, verið eins konar samheifi á Hvinn- verjadal. Myndina Hvin- tek- ur Sveinn eftir Landnámiu. Ekki er þess að dyljast, að liðurinn Hvinn- er þrátt fyrir allt þó nokkuð toriryggiiegur. Þess má geta, að orðið hvinn mun jafnan hafa merkt lítil- fjörlegan fingralang, vesalan smáhnuplara, naumast, sak- bæran, en væri síður haft um meiri háttar illvirkja og alira sízt útilegumenn. Til þess kynnu þó að liggja sérsiök rök. Um hitt er meira vert, að fornar heimildir virðast benda fremur á Hvin- en Hvinn-. Aftur á móti gat vitneskja um útileguþjófa og nafnið Þjófa- dalur valdið þar nokkru um afbökun síðar. Þó er það kannski þyngst á metunum, að sá sem ritar frásögn Landnámu, hefði að öllum líkindum mátt kunna full skil á örnefni, sem dregið var af hvinn; en svo var ekki. Nafnið Hvinverjadal bendlar hann ekki við þjófa, þótt hann hafi vafalítið vitað um dvöl þeirra á Kili og þekkt þar örnefnið Þjófadal. Má vera, að þar segi til sín forn framburðar- munur á Hvinv- og Hvinnv-. En sé það rétt, að Hvin- verjadainr hafi í öndverðu verið kenndur til gróður verja kringum hveri þá, sem svo hátt hvinu, að gnýrinn heyrðist um langan veg þá hef ur höfund'ur Þorgeirs-klauv unnar í LandnámiU ekki áttað sig á þeim uppruna nafnsins. Honum kemiur hitt .í hug, að verjar eru algengúr liður í nöfnum ætta og byggða; og hafi menn vitað til ferða þessa manns úr Hvini í Nor- egi, mátti gera því skóna, að hann hefði þarna vetursetu, hvað sem hann vildi nú vera að bauka í skammdeginu upp.i á Kili fremur en annars stað- ar. Niðurstaðan af þessum vangaveltum er þá sú, að Hvin verjadalir kunni einna helzt að vera kenndir við gróður- vinjar, sem nefndar hafi verið Hvinver eftir þeim hveragný, sem öðru fremur gerir stað- inn sérkennilegan. Þó skal þess minnzt, að elzta skýring in á nafni þessu, frásögn Landnám'U af Kjalarvist Þor- geirs úr Hvini, verður víst seint hrakin, þó að um haria megi sýnast sitt hverjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.