Morgunblaðið - 07.06.1972, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1972 >
17
Fjögur fjöltónatilbrigði
ÝMSAR sýningar
standa nú yfir í Rvík
vegna Listahátíðar. —
Meðal þeirra eru sýn-
ing SÚM á verkum 58
listamanna frá 16 lönd-
um, útimyndlistarsýn-
ing á Skólavörðuholti, í
Bogasalnum er að finm
verk fjögurra íslenzkra
málara og afrísk list
leikur lausum hala í
kjallara Casa Nova.
Sýning SÚM er til
húsa í Galerie SÚM við
Vatnsstíg og í Ásmund-
arsal, uppi. Framlag
SÚM til Listahátíðar
telur samtals um 200
atriði og kennir þar
ýmissa grasa, eins og
getið er um í frétt ann-
ars staðar í Mbl. í dag.
Útimyndasýning á
Skólavörðuholti er kom
in á fast í lífi höfuð-
Ljóð heitir þetta verk Kristjáns Guðmundssonar og það er að
finna á sýningu SÚM i Ássnundarsal, uppi.
Útimyndlistarsýning-in á Skólavörðuhoiti. Næst er „205 dagar
til jóla“ eftir Sigurð Guðmundsson, t. v. „Slagsmái" Þorbjargar
Pálsdóttur og t. h. „Afkoma“ eftir Jón Benediktsson.
Meðal útimyndanna á Skólavörðuholti er þesisi smiður eftir
Jón B. Jónasson.
LISTAHÁTÍÐ
í REYKJAVÍK
borgarbúa. Þarna sýna
nú 22 menn 32 úti-
myndir og gefur á að
líta fjölbreytileika úr
ýmsum efnum; allt frá
grasi sumarsins til grá-
grýtis landsins, að ó-
gleymdu ástefni okkar
íslendinga, steinsteyp-
unni.
Þeir fjórir, sem verk
eiga á sýningunni í
Bogasal Þjóðminja-
safnsins, eru: Gunn-
laugur Scheving, Jó-
hann Briem, Kristján
Davíðsson og Valtýr
Pétursson. Þeir Gunn-
laugur og Kristján eiga
þarna 4 myndir hvor
og hinir báðir einni
betur.
Til framandi og for-
vitnilegs blæs á Lista-
hátíðinni verður sýn-
ingin á afrískri list 1
Casa Nova. Þarna er
um að ræða farandsýn-
ingu á vegum Unesco
— Menningarmála-
stofnunar Sameinuðu
þjóðanna, sem í mun-
um og myndum bendir
okkur norðurhveís-
mönnum til lífs, starfs
og listar margra Afríku
þjóða.
LISTAHÁTÍÐ
í REYKJAVÍK
Islenzkar nngmeyjar hugleiða afríska list.
(Myndirnar tók Kr. Ben.).
íslenzkt og erlent á sýningunni í Gaierie SÚM við Vatnsstíg.
Magnús Pálsson er höfundur gibsverkanna á gólfinu og mynd-
irnar á veggnum eru eftir Ferdinand Kriwet.
Frá sýningu fjögurra íslenzkra málara í Bogasalnum.
I