Morgunblaðið - 20.06.1972, Qupperneq 4
>
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1972
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
14444 S25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
BÍLALEIGAN
AKBEA UT
8-23-47
sendum
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodr
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SIMI 42600.
FERÐABlLAR HF.
Bílaleiga — sími 81260.
Tveggja marvna Citroen Mehary.
Fimm manna Crtnoen G. S.
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
Hópierðir
“il leigu i lengri og skemmri
ferðir 8—20 farþega bílar.
Kjarían ingimarsson
sími 32716.
STAKSTEINAR
Kommúnistar
„í prívatvið-
ræðum4<
„Stéttabaráttan, málgag-n
kommúnistahreyfingarinnar
Marxistanna — Leninistanna“,
er eins konar annexía I»jóð-
viljans. Meðan það þykir
henta að breiða yfir nafn og
númer á höfuðbýlinu, er henni
ætlað að vera kommúnista-
hreyfingiuini íslenzku andleg
næring, — einhvers konar
pólitiskt hass, sem þó er ekki
gengizt við opinberlega: „Rit-
nefndarmenn SR (Sósíalista-
félags Reykjavikur) höfnuðu
í upphafi tillögum KHLM um
að kalla blaðið 1. mai blað
kommúnista og báru þvi við,
að þeir væru ekki opinberlega
kommúnistar, en í prívat
viðræðum myndu flestir
þeirra gangast við, að þeir
væru kommúnistar," enda
„fara þeir yfirleitt eins og
köttur í kringum heitan graut
og nefna byltinguna sjaldan
á nafn.“
Margt athyglisvert um eðli
kommúnistahreyfingarinnar
er að finna í blaðinu, svo sem
um „óhjákvæmileika styrj-
alda á skeiði heimsvaldastefn-
unnar“, þ. e. meðan kommún-
istum hefur ekki tekizt að
flæða yfir öll lönd og álfur.
Trúarbrögðin eru talin „tæki
i höndum ríkjandi stéttar í
tilraun hennar tU að halda
fjöldanum niðri“, en dýrling-
urinn er enn á meðal vor, öðl-
ingurinn Jósef Stalín: „Þessi
mikli leiðtogi skýtur borgur-
um heimsins enn þann dag í
dag slíkan voðaskelk í
bringu . . .“ Þess vegna á
herópið „Lifi félagi Jósef
Stalín!“ ehn við, undirstrik-
að með hamri og sigð.
Landhelgin:
„Einokunar-
svæði“ borgara-
stéttarinnar
Kinkaur athyglisveirt er viðhorf
Marxistanna — Leninistanna
tU útfærslu landhelginnar:
„Takmark tiennar (þ. e. borg-
arastéttarinnar) með út-
færslu landhelginnar er því
að auka arðrán sitt á verka-
lýðsstéttinni. Með þetta tak-
mark í huga og KKKERT
ANNAÐ beitir hún öllu valdl
sínu til að færa út landhelg-
ina og nýtur dyggrar aðstoð-
ar skósveina sinna í ríkis-
stjórn og í verkalýðsforyst-
unnl.“
Knn fremur: „Þá vaknar
spurningin, hvers vegna berst
auðvaldsstéttin svo hatramm-
lega fyrir útfærslunni. Það
gerir hún til að auka gróða
sinn og arðrán sitt á íslenzk-
um verkalýð. Á þessum grund
velH er siðan rekinn áróður
fyrir þjóðareiningu til að
vernda fiskimiðin, þ.e.a.s. svo
íslenzka borgarastéttin geti
sjálf fengið að veiða allan
fisk við fsland.“
Síðan er þeirri spumingu
varpað fram, hvort útfærsla
landhelginnar „sé skref í átt
til sósíalískrar byltingar" og
komizt að þeirri niðurstöðu,
að svo sé ekki: „Útfærsla
landhelginnar er aðeins út-
færsla einokunaraðstöðu ís-
lenzkrar borgarastéttar.“
Söknuðu aðeins F.I.
og Loftleiða
„VIÐ höfum einskis saknað hér
i dag, nema Flugfélags íslands
og Loftleiða,“ sagði starfsmaður
flugturnsins á Keflavíkiirflug-
velli við Mbl. í gær, en sem
kunnugt er gilti þá sólarhrings-
vinnustöðvun Alþjóðafélags at-
vinnuflugmanna. Áætlunarflug
um völlinn var ekkert, en leigu-
flugvélar áttu þar viðdvöl.
Allt fluig hjá FlugféLagi ís-
lands og Loftleiðum féll niður
meðan vinnustöðvun atvinnu-
flugmanna stóð, frá klukkan sex
í gærmorgun til klukkan sex
í morgun. Flugfélag íslands
bréytti áætlun þotu sinnar til
Glasgow og Kaupmannahafnar
þannig, að hún fór utan á mið-
nætti i fyrrinótt 1 stað gærmorg-
Presta-
stefna
sett í dag
PRESTASTEFNA hefst í Reykja
vík í dag, 20. júní. Hefst hún
með messu i Dómkirkjunni kl.
10.30. Johannes Aagaard, dós-
ent frá Árósum, prédikar, sr.
Þórir Stephensen og sr. Björn
Jónsson þjóna fyrir altari. Prest-
ar mæta í hempum.
Kl. 14.00 verður Prestastefnan
sett i Norræna húsinu og verða
síðan flutt framsaguiorindi um
aðalmál Prestastefnunnar, -sem
er „Kirkjan og heimilið“. Um
kvöldið kl. 20.30 sitja allar prest-
konur boð á heimili biskups.
uns. Þá voru farnar aukaferðir í
innanlamidsflugi í fyrradag og
fleiri voru fyrirhugaðar í dag. Að
sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa F.Í., var í gær
reiknað með um 2ja tímia töf á
utanlandsfluigi félagsins í dag.
Ein fluigvél Loftleiða kom frá
Bandaríkjunum í gærmorgun og
stöðvaðist á Keflavíkurflugvelli
á leið til Skandinaviu. Hinar flug
vélar Loftleiða stöðvuðust í Lux-
emburg.
Hjá íslenzku fliugstjórninni á
Reykjavíkurfluigvelli fékk Mbl.
þær upplýsingar, að almennt
flug á fiugstjórnarsvæðinu hefði
aðeins verið um % þesis sem
venjulegt er, en hirts vegar hefði
annað fiug, m.a. herflug, ferju-
flug og leiguflug verið óbreytt
að mestu.
— Hólabiskup
Framh. af bls. 32
lands og var þj mandi prestur
við Kr'stsk'rkju í Landakoti þar
til 1942, er hann var útnefndur
biskup af Piusi XII.
Herra Jóhannes var vigður
biskup 7. júlí 1943 i St. Patrieks
kirkju í Washington D.C. og var
Amleto Cicognani kardiináli
vígsöufaðir hans. Þau 23 ár, er
herra Jöhann.es sat á biskups-
stóli framkvæmdi hann marg-
ar vi’gslur. Árið 1966 fékk hann
lausn frá embætti og dvaldist
síðustu ár ævi sinnar vestur i
Bandaríkjunum. Hann hafði átt
við mikla vanheilsu að stríða
hin síðustu ár. -- Útför herra
Jóhannesar biskups fer fram í
Sioux Falls.
ÍBA
vann Val
ÍBA vann Val í æfingaleik lið-
anna á Akureyri í gærkvöldi
með einu marki gegn en.gu. Þor-
móðiur Einarsson skoraði mark
Akureyringanna snemma í fyrri
hálfleik.
Hugleiðsla
og yoga
í KVÖLD kl.: 20.30 efnir Rann-
sóknarstofnun vitundarinnar til
fun-dar um hugleiðsilu og yoga i
Norræna húsinu. Verða sýndar
tvær hálftíma litkvikmyndir,
sem samanburðartrúfræðingur-
inn próf. Huston Smith hefur lát-
iö gera, önnur um Súfisma, dul-
spekífræði temgd Múhameðstrú,
hin urn tibezkan Búddhisma og
tíbezkar yogaaðferðir. Á eftir
verða svo umræður.
(Úr fréttatilkynnin/gu).
— Landhelgis-
viöræður
Framh. af bls. 32
Dougilais-Home hittaist árdegis á
einkafundi, en eftir hádegi verð-
ur formlegur fundur viðræðu-
raefndanna að nýju. Ráðgert var,
að íslenzku ráðherrarnir myndu
efna til blaðamannaCundar í dag,
en líklega getur ekki orðið af
því, þar sem viðræðufundurinn
mun standa fram eftir degi.
Morgnnblaðið gerði ítrekaðar
tilraunir í gærkvöldi til að ná
tali af íslenzku ráðherrunum, en
það tókst ekki.
Hins vegar náði blaðið tali af
Niels P. Sigurðssyni, sendiherra.
Hann sagði, að nokkuð hefði þok
azt i samiko'mulag'sátt á f-undim-
um í gær, báðir aðilar hefðu
ræðzt við af hreinskilni, ýmsar
tillögur hefðu komið fram og
deilumálin hefðu verið rædd vítt
og breitt.
Það er ljóst eftir fyrri við-
ræðufundinn í Loradon síðari-
hluta maímánaðar, að viðræðum-
ar snúast einkum um að finna
bráðbirgðalausn á landhelgisdeil-
unmi á þeim grundvelli, að Bret-
ar takmarki veiðar sínar á ís-
landsmiðum.
íslendingar eru til viðræðu um,
að brezkir togarar fái að veiða
inman 50 mílna markaniraa í 2—3
ár, en að stærð ag gerð togar-
anna verði takmörkuð. Hafa ís-
lendingar þá helzt í huga, að að-
eins gömlu síðutogurumum, 600
til 700 tonna háimarksistærð,
verði leyfðar veiðar inman 50
mílna markanma, en ekki skut-
og verksmiðjutogurum. Hvort
Bretar geta fallizt á þetta mun
koma fram í viðræðunuim í Lon-
don nú.
Hags-
munir ís-
lendinga?
„G/FfTUM liagsniuna okkar
íslendingfar", var fyrirsögn á
auglýsingn, setm birtist í Vísi
í gær. Þar sagði ennfremur:
„Komum í veg fyrir ætt-
leiðingu fleiri lcynblendings-
barna, með stofnun samtaka.
Reghdegir álmgameain leggi
nöfn sín og síma inn á augld.
Vísis í lokuðu umslagi merkt:
„Hagsmunir“.