Morgunblaðið - 20.06.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.06.1972, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1972 Hrun í jarðgöngunum hindrar björgunarstarf eftir járn- brautarslysið 1 Frakklandi Soissonis, 19. júní. NTB—AP. f GÆR kom sá ótti upp, að jarð- göngin kynnu að hrynja saman yfir björg-unarfólkið, sem kapp- samlega vinnur að því að reyna að bjarga þeim, sem enn kunna að vera Iifandi í illa förnum leif- um lestanna tveggja er rákust á á föstudagskvöld við Soissons, um 100 km norðaustur af París, en þá rnisstu um 100 manns líf- ið. Talsnuaður fyrir björgu.nar- starfinu hefur skýrt svo frá að stöðva verði björgunarstarfið í norðurhluta jarðganganna sök- um ótta við, að veggir þeirra get.i hruinið saman yfir björgunarfólk ið. Mörg hundruð manns leita enn í suðurhliuta ganganna, en litlar likur eru nú taldar á því að fleira fólk finnist á lífi. Kona, sem n/áðist úr járnbraut- arbrakinu í gær, lézt síðar á sjúkrahúsi, en 22 ára gama'll karlmaður, sem einnig fannst í gær, virðist úr lífshættu. Frakkar sprengja þrátt fyrir mótmæli WeMngton, Nýja Sjálandi, 19. júni. AP—NTB. FRANSKIR visindamenn ætluðu i nótt kl. 1 að íslenzkum tima að hefja á ný tilraunir með kjarn- orkuvopn á suðurhluta Kyrra- hafs, þrátt fyrir mikil mótmæli víða um heim. í dag sendi William McMahon, forsætisráðherra ÁstraMu, mót- mælaorðsendingu til Pompidous Frakklandsforseta, végna tilraun anna og krafðist þess þar að Frakkar haettu öltum tilraunum með kjarnorkuvopn á þessum elóðum. Miklar mótmælaaðgerðir fóru einnig fram á Nýja Sjálandi í da.g vegna fyrirhuigaðara til- rauna, en skv. áætlun munu til- raunirnar standa fram í septem- ber. Nokkur fyrirtæki í Ástra- Wallace: Vel heppnaður uppskurður SilVer Spring, Maryland 19. júní — AP. GEORGE Wallace, ríkisstjóri Alabama, var skorinn upp í gær og kúlan, sem lá við mænngöng hans fjarlægð. Uppskurðnrinn heppnaðist vel að sögn lækna og þeir teija að hann geti farið á flokksþingið i Mianii 10. júií n.k. er demókratar velja forsetaefni sitt. Kúla þessi lamaði Wallace fyr- ir neðan mitti. Læknar telja lík- urnar á því að rikisstjórinn geti gengið á ný, minni en 50%. Hins vegar segja þeir að Wallace geti hugsanlega farið að hreyfa sig á hækjum eftir 6—7 mánuði. Danmörk: íslendingi vísað úr landi Kaupmannahöfn, 19. júní. Einkaskeyti til Mbl. ÍSLENDINGURINN, sem hand- tekinn var í Helsingjaeyri 18. maí sl. fyrir að reyna að ræna fyrrverandi eiginkonu sinni og flytja hana á brott með valdi, var í dag vísað úr lanili eftir að hann hafði verið dæmdur í 4 mánaða fangelsi, sem þykir mjög mildur dómur. Dómarlnn dró 28 daga varð- hald frá og gerði þá þrjá mán- uði, sem eftir voru skilorðs- bundna gegn þvi að manninum yrði þegar vísað úr landi og að hann kæmi aldrei framar til Danimerkur. — Rytgaard. Hu og Nýja Sjálandi hafa hætt viðskiptum við frönsk fyrirtæki í mótmælaskyni. Björgunarmenn að störfum í göngunum skammt frá París, þar sem um 100 nianns Iétu lífið, er 2 járnbrautarlestir rákust á. Okkar sérgrein í áratugi. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR Nýjar sendingar af girðingarefni með hverju skipi. Túngirðingarnet, 5 og 6 strengja, vafhnýtt og slönguhnýtt. Gaddavír „MOTTO“. Járnstaurar. ^ Tréstaurar. Girðingar- ^ Stagvír. lykkjur. Hænsnanet. ★ Minkanet. Refanet. Lóðagirðingarnet, galvaniseruð, ýmsar hæðir og gerðir. Verksmðij ugirðingarnet. Plasthúðuð skrúðgarðanet, margar gerðir og hæðir. Skrúðgarðafræ og annað grasfræ fáið þér einnig hjá okkur. Símar: 11125 11130

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.