Morgunblaðið - 13.07.1972, Blaðsíða 15
MORGUNBL.AÐ1Ð, FIMMTUDAGUR 13. JTÍL.Í 1972
15
Medvedev r æðst
á vísindamann
— fyrir að hafa hindrað sig í að
taka þátt í vísindaráðstefnu
Maskvu, 11. júlí — AP
ERFÐAFRÆÐINGURINN Zher-
ee Medvedev, sem kunnur er fyr-
ár skrif sín um erfiðleika sov-
ézkra vísindamanna, hefur sakað
knnnan sovézkan vísindamann
«m að hafa átt þátt í því að
hann var neyddur til þess að
hætta við þátttöku á alþjóðlegri
vísindaráðstefnu í Kiev í síðustu
viku.
Ásakanir Medvedevs koma
fram í bréfi til bandarisks vís-
indamanns, dr. Leonards Hay-
fliek, sem setið hefur ráðstefn-
una og raett við Medvedev eftir
að hantn fékk bréfið frá honum.
Medvedev segist hafa verið hand-
tekinn af fimm eða sex óein-
Tunitlækningastofa mín
ver&ur lokuð vegna sumarleyfa frá 13. júlí
til 8. ágúst.
Öm Bjartmars Pétursson,
tannla'knir.
Kennslnhúsnæði ósknst
Verzlunarskóli íslands óskar að taka á leigu
1—2 kennslustofur, auk kennaraherbergis,
næsta vetur a.m.k. Húsnæðið þarf að vera
laust í byrjun september.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins eigi síðar
en 17. þ.m. merkt: „Kennsluhúsnæði —
9992“.
Fyrirtæki — Skuldnbréf
Hef til sölu mjög góða tóbaks- og sælgætis-
verzlun í Austurborginni.
Til sölu er lítil nýlenduvöruverzlun í Hoilta-
og Vogahverfi.
Hef fasteignatryggð skuldabréf til söHumeð-
meðferðar. Einnig skuldabréf með ríkis-
ábyrgð.
Upplýsingar ekki í síma.
RAGNAR TÓMASSON HDL.,
Austurstræti 17 — 3. hæð.
kennisklæddum lögreglumönin-
um, þegar hanin ætiaði að mfeta
við setningu ráðistefnunnar 2.
júM. Hann segist hafa komizt að
raun um í viðræðum við lög-
reglumennina, að einn af forvíg-
ismönnum ráðstefnunnar, próf-
esson D. F. Chebotarev, hafi
vitað að til stæði að það ætti
að handtaka hann og sagt þeim
frá einkaviðræðum sínum við
hann og aðra forvígismenn ráð-
stefnunnar.
Þrír lögreglumenn færðu síðan
Medvedev í lest, sem fór til
Moskvu, að loknum yfirheyrsl-
um, þar sem honum var hótað
fangeisun fyrir að ,,trufla lög og
reglu“, en því næst fór Medve-
dev til heimilis síns í Obnisk suð-
ur af Moskvu.
Hayflick segir, að Chebotarev
hafi tjáð sér eftir hvarf Medve-
devs frá Kiev að hann „hefði
ekki hugmynd um hvernig og
hvers vegna“ Medvedev hefði
verið handtekinn. Chebotarev
kvaðst harma það, sem gerzt
hefði og sagðist ekki geta feng-
ið við það ráðið. En Hayflick
hefur eftir Medvedev að Chebo-
tarev hafi átt aðalsökina á því,
að honum var meinað að sitja
þingið, þó að Hayflick telji, að
hann hafi aðeins fylgt skipunum
yfirboðara sinna.
Vínskal til
vinardrekka
’WfatVw&' 3
Bókin, sem talað er um
á kvöldin,
er Vín skal til vinar drekka. Bók
fyrir skemmtilegt og hófsamt
fólk. f henni er að finna ýmsan
fróðleik um vín, vínnotkun og
vínframleiðslu ásamt uppskrift-
um að kokkteilum og vínblönd-
um. — Handbók þessari er
ætlað að verða fólki til aðstoðar
í meðferð áfengra drykkja og
stuðla að siðsamri notkun þeirra.
Frjálst framtak hf.
Hvað skal gera
N AUÐS YNLEGAR
UPPLÝSINGAR FYRIR
ÖKUMENN.
Bílahandbók Reykjavíkur
ISOLA
Plast yPANELl
Höfum tekið upp nýja sendingu af Isola
plast-panel til klæðningar utanhúss í tveim-
ur litum, hvítum og ljós-gráum
Hentugur jafnt á íbúðarhús og sumarbú-
staði. — Mjög auðveldur í uppsetningu.
Þarfnast ekki viðhalds. — Þarf a'drei aÚ
mála — þolir alla veðráttu.
Sérlega hagstætt verð.
Ólafur Gíslason & Co hf.
Ingólfsstræti la - Sími 18370
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA
GESTAMÓT
í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU í kvöld kl. 8. — Allir Vestur-lslendingar hér á ferð hvattir til að
mæta. Ennfremur er ölium heimill aðgangur meðan búsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar við innganginn.
LANDSMÁLAFÉLAGID VÖRDUR
Sumarferð VARÐAR
ÞÓRISVATN — ÞJÓRS ÁRDALUR
SUNNUDAGINN 76. JÚLÍ 7972
Farseðlar verða seldir að Laufásvegi 46 (neðri hæð) s. 15411 og kosta kr. 850.00. Innifalið í verðinu er hádegisverður
og kvöldverður. Lagt verður af stað frá Austurvelli klukkan 8.00 árdegis, stundvíslega.
Formiðar seldir til kl. 10 í kvöld
Stjórn Varðar.