Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
156. tbl. 59. árg.
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1972
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Brezktir hermaður tekur sér stöðu skammt frá Lenadoon-svæ ðinu í morgun.
Óvissa í Líbýu:
Gaddafi vikið
frá völdum?
Rabat, 14. júlí. NTB. AP.
ÞRÁBÁTUR orðrómur var á
kreiki um það í dag; í Rabat, höf-
uðborg- Marokko, að þjóðarleið-
togi Líbýu, Muammar Gaddafi
ofursti, hefði verið sviptur völd-
um og- sæti í varðhaldi í herbúð-
um í úthverfi liöfuðborgarinnar
Tripoli. Diplómatar segja að
þótt fréttirnar fáist ekki stað-
festar fari ekki á milli mála að
ágreining-ur ríki í stjórninni.
Ferðamerm sem komu í dag
frá Tripoli til Beirút og Rórnar
sögðu að allt virtist vera með
kyrrum kjörum og að ekfeert
benti til þess að nokkuð óvenju-
legt væri á seyði. Verzlanir eru
opnar, hermenn eru ekki á ferli
og útvarpað er venjulegum dag-
skrárliðum. Einn ferðamannanna
sagði að hann hefði ekkert vitað
að eitthvað væri á seyði í Lábýu
fyrr en hann hefði komið til
Beirút. Talsmaður Líbýustjóm-
ar vill elckert segja um fréttim-
ar.
Sarnt magnast stöðugt orð-
rómurinn um að Gaddafi ofurstL
hafi verið handtekinn af and-
stæðingum sínum í Tripoli og
að yfir standi samningaviðræður
til að út'kljá ágreiningsefni. Þögn
yfirvalda þykir renna stoðum
IRA hótar hefndum:
Ofbeldismenn beita
eldflaugum í Belfast
Belfast, 14. júli — NTB-AP
IRSKI lýðveldisherinn (IRA)
hótaði í dag hefndaraðgerðum
eftir mikið mannfall, sem hann
beið í nótt í umfangsmestu
bardögum, sem geisað hafa á
Norður-írlandi í þrjú ár. Hótun-
in kom fram um leið og WiHiam
Whitelaw, írlandsmálaráðherra,
hélt því fram í neðri málstof-
unni, að lýðveldisherinn hefði í
fyrsta skipti beitt eldflaugum í
Belfast.
Örþrifaráð til
bjargar dollar
Spákaupmenn spá gengisfellingu
London, 14. júlí. AP. NTB.
SEÐJLABANKAR í Vestur-
Eiröpu neyddust til þess í dag
að kaupa einn og hálfan milljarð
doliara til þess að halda honum
á réttum kili og er það mesta
dollaramagn sem seðlabankarnir
hafa keypt á þessu ári. Dollar-
inn er nú í lægra verði en
Sýndu
eldflaug
Þjóðhátíðardagur Frakka
var í gær og af því tilefni var
mikil hersýning, þar sem með
al anmns var sýnd nýj-
asta kjarnorkueldflaug lands
ins. Ekki tókst þó betur til
en svo að vagninn sem dró
hana bilaði fyrir framan
stúiku Pompidous, forseta.
Eftir mikið handapat tókst
að koma honum I gamg aftur
og ók hann ósandi niður
eftir götunni, en stoppaði þá
afttur og varð að draga hann
á brott.
nokkru sinni síðan svipaður
þrýstingur i fyrrahaust leiddi
til gengisfellingar.
Kauphallir voru lokaðar í
Frakklandi í dag vegna Bastillu
dagsins og Bretar keyptu ekki
dollara, en samt hafa seðlabank
ar aldrei keypt eins mikið af
dollurum. Vestur-þýzki seðla-
bankinn keypti um 800 milljón
dollara, og sá svissneski 400
milljón dollara og jafnvel norski
seðlabankinn og sá hollenzki
keyptu dollara.
Spákaupmenn virðast vantrú-
aðir á að gengi dollarans verði
haldið óbreyttu og virðast telja
að gengi hans verði látið fljóta.
Sumir telja að tilnefning George
McGovems sem forsetaefnis
hafi valdið óvissu í fjármála-
heiminum, þar sem óttazt sé að
Bandaríkin hverfi til einangrun
arhyggju og áhrif þeirra dvíni
í heiminum. Þeir svartsýnustu
segja að Evrópa geti orðið „ann-
að Finnland."
Spumingin er hvort seðlabank
arnir hafi ráð á því að kaupa
sitöðugt dollara, og þess vegna
er talið sennilegt að evrópskir
gjaldmiðlar verði látnir fijóta
eins og doiiarinn. Pundið virðist
Framhahi á bls. 12.
Landvarnaráðherrann, Carring-
ton lávarður, hélt því fram, að
ógnaröldin á Norður-írlandi
mundi magnast um allan helm-
ing, vegna þess að gripið hefði
verið til eldflaugavopna. Sam-
kvæmt heimildum í Belfast
beittu skæruliðar eldflaugum i
árás á lögreglustöð í borginni í
fyrra, en þær sprungu ekki og
gert var ráð fyrir að lýðveld-
isherinn hefði ákveðið að hætta
við að beita eldflaugum. I fyrra-
dag var hins vegar beitt eldflaug
i árás á varðstöð í Lenadoon-
hverfi, að því er heimildir
herma. Sú eldflaug olli nokkru
tjóni, en eldflaug, sem skotið var
á lögreglustöð í Andersonstown,
sprakk ekki.
1 kvöld herti lýðveldisherinn á
aðgerðum síhum, og í einum
fyrsta skotbardaganum biðu einn
brezkur hermaður og einn
óbreyttur borgari bana, en sex
óbreyttir borgarar særðust.
Átökin urðu í hverfi, þar sem
þæði kaþólsldr og mótmælendur
búa, og leyniskyttur hleyptu af,
þegar brezkir hermenn fóru inn
í hverfið eftir sprengjutilræði,
sem olli tjóni I mörgum verzl-
unum.
Um 700 brezkir hermenn voru
í dag á verði í Lenadoon-hverfi
og höfðu fullkomin tök á ástand-
inu eftir tólf tíma skotbardaga
við hermenn lýðveldishersins.
Sagt er, að brezkir hermenn hafi
hæft 18 skæruliða og skotið var
5.000 skotum. Brezkir hermenn
beittu að þessu sinni sóknarað-
ferðum og reyndu að flæma
leyniskyttur úr grenjum sinum.
Um hádegi höfðu bardagamir
fjarað út að mestu, en hermenn
mættu enn mótspyrnu einstaka
skæruliða, sem héldu áfram
skothríð.
Whitelaw Irlandsmálaráðherra
sagði, að vegna þess að lýðveld-
Framhald á bls. 12.
Gaildafi.
undir þann grun að eitthvað sé
á seyði, og einnig sú ákvörðun
Ábdel Salam Jalloud forsætisráð
herra að aflýsa á siðustu stumdu
fyrirhugaðri heimsókn til Paris
ar. Aðeins nokkrir dagar eru
síðan Jalioud var skipaður for-
sætisráðherra, og getiur það hafa
átt þátt í þeirri valdastreitu sem
virðist standa yfir.
Hvað svo sem er á seyði þvfeir
flest benda til þess að Gaddafi
haldi völdum sínum. En þar sem
fréttirnar berast frá Marokkó, er
þeim tekið með varúð, þvi að
Líþýumenn studdu tilraunána
sem var gerð í fyrra til að steypa
Hassan konumgi af stóli. Gadd-
afi hefur verið við völd siðan
Idris konungi var steypt af stóli
haustið 1969.
Stefna McGoverns í utanríkismálum:
Heim frá Vietnam eftir
90 daga frá valdatöku
— Stórfelldur niðurskurður á herstyrk
— Laird biður um hvíta fána
n------------------------n
Sjá grein um Thomas Eagle-
ton varaforsetaefni á bls. 16
n------------------------n
Washington, 14. júlí. AP.
MEST umræddi liðurinn á stefnu
skrá Georges McGoverns, forseta
efnis demókrata, verður án efa
stefna hans í utanríkismálum.
Hann hefnr lofað að ef hann
verði forseti muni hann binda
enda á þátttöku Bandaríkjanna
í stríðinu í Indó-Kina á 90 dög-
um. Hann muni fyrirskipa algera
stöðvnn loftárása daginn sem
hann komi til valda, byrja þegar
í stað heimflutning allra her-
manna og flugmanna frá Suður-
Vietnam og hann muni hætta
allri hernaðaraðstoð við Suður-
Vietnam. Eina skilyrðið sé að
bandarískum stríðsföngnm í
Norður-Vietnam verði sleppt.
McGovern hyggur einnig á
miklar breytingar á öðrum liðum
hermála. Meðal þess sem hann
ætlar að gera er: 1) Fækka í her-
alanum, úr 2.4 miljómum mönn-
um niður í 1.7 milljón, m.a. með
því að fækka bandarístoum her-
mönnum í Vestuir-Evrópu um
170 þúsiund. 2) Fækka flugmóðuí
skipum úr 15 í 6. 3) Hætta við
gagneldflaiugakerfið. 4) Hætta
Framhald á bls. 12.