Morgunblaðið - 15.07.1972, Side 17

Morgunblaðið - 15.07.1972, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1972 17 Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæöisflokksins: Grundvöllur var lagður að almennri iðnþróun á íslandi Iðnaður á íslandi hetur jafnt og: þétt verið að hasla sér völi með aðalatvinnuvegum lands- manna. Eins oíí ætið og alls stað- ar er byrjunin erfið, og: veikur iðnaður í uppliafi þurfti að byg'g'jast upp í skjóli mikilla hafta off verndar, og: þar var auðvitað tollverndin veig:amest. Þegar liða tók á, kom hins veg- ar í ljós, að verndin var í raun og veru ekki það skjól, sem menn héldu, að húr. væri iðnað- inum. I>að sem iðnaðinn ef til vill skorti öllu öðru fremur var uppörvun og: heilbrig-ð sam- keppni við erlendan iðnvarning, að takast á við erfiðleikana og sigra. En var þetta með nokkru móti unnt? IÐNAÐURINN STÓBST VAXANDI SAMKEPPNI Menn voru margir kviðnir, þegar Viðreisnarstjórn i n tók við völdum að líðandi ári 1959, vegna þess að hún stefndi að auknu viðskiptafrelsi, innflutn- ingsfrelsi, eins og kunnugt er, og töldu þetta geta orðið iðnað- inium áfail eða að miinnsta kosti bagalegt. Ekki varð þó sú raun- in á, nema siður væri. Þvert á móti stæltist iðnaðurinn i auk- inni, samkeppni, og ég tel, að ár ið 1966, þegar hin mikla iðnsýn- ing var í Laugairdalshöllmni, hafi iðnaðurinn sýnt, að hann væri þess megnugur að sigra í frjálsri samkeppni og hafi í raun og látið iðnaðinn bera skarðan hlut að sér völl sem einn af aðal- atvirunuvegum landsmanna. Hitt er svo rétt, að stjónnvöld, bæði ríkisstjórn og Alþingi, hafa oft látið iðnaðinn bera sikarðann hlut frá borði miðað við aðrar at- vinnugreinar, bæði varðandi fjárlög og fjármögnun á almenn um pemingamarkaði, en þetta horfir allt til bóta. Sem betur fer hefur dregið úr ágreiningi milli fyrirsvarsmanna iðnaðar- ins annars vegar og fyrirsvars- manna annarra atvinn'Ugreina, landbúnaðar og verzlunar. A"S vissu leyti hefur þetta komið af sjálfu sér, þar sem verndarskjó'l in, sem iðnaðurinn naut og var einmitt oft gagnrýndur fyrir af hálfu forystumanna annarra at- vinnugreina, hafa að miklu leyti verið niður lögð og iftnaðurinn verður að standa sig af eigin ramimleik. Ég nefndi áðan Iðnsýinimguna 1966, en eftir það hélt svo stór- iðjan innreið sina á Islamdi í temgslum við stórvirkjanir i landinu, en slíkt hafði verið draumsýn framtaksmanna og framfarasinna um áratugi á Is- landi. STEFNUMÖRKUN NAUÐSYNLEG Hitt verður að viðurkennast, að það voru réttmætar kröfur, sem fram voru settar af fyrirsvarsmönnum iðnaðarins á Islandi á sjöunda áratu'gnum, að þeim væiri þörf á þvi, að skýr og ákveðin iðnþróumarstefna væri mörkuð, sem þeir gæfcu byggt á og þannig vitað, að hverju stefndi. Þetta varð mér æ betur ljóst, því lengur sem ég fór með iðnaðarmál á þeim tíma, sem ég átti sæti i rík- isstjóm. Ég hafði þvi þann hátt á, og í ríkara mæli eftir því sem á leið, að gera fyrirsvarsmönn- um iðnaðarins fullkomna grein fyrir stöðu og horfum og áform- um rikisstjórnarinnar, bæði á að alfundum íslenzkira iðnrekenda og iftnþingum iðnaðarmanna. Ég hlutaðist einnig til um það, að Sjálfstæðdsflokkurinn héldi iðn- þróunarráðstefnu vorið 1968, og henni la-uk ekki endanlega fyrr eri með álitsgerð um haustið, til þess að fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í höpi iðnrekenda og iðnaðarmanna gætu á þann hátt markað og mótað stefnu, sem bæði þingfiokkur og mið- stjóm Sjálfstæðis'flokksins mundu taka mið af og reyndar landsfundur einnig við stefnu- mörkun flokksins í heild. Þessi iðnþróunarráðstefna sjálfstæðismanna var hin merk- asta, og var mér mikill styrkur að henni sem þáverandi iðnaðar- ráðherra vegna þeirrar stefnu- mótunar, sem i álitsgerð hennar | fólst. Ég skal nú nefna sjö liði, sem þessi iðnþróunarráðstefna lagði áherzlu á: „1. Arðsemi og framleiðni verði ráðandi sjónarmið við fjár festimgu í a'tvinnuvegum og lagasefcningu þeirra vegna, hvort heldur um eflingu eldri eða stofnun nýrra fyrirtækja eða at- vinnugreiina er að ræða. (Þetta er það, sem núverandi stjórnar- sinnar kalla gróðahyggju og telja óalandi og óferjandi, að leggja nokkra áherzlu á arðsemi fyrirtækjanna). 2. Auka þarf skilning opin- berra aðila og allrar þjóðarinn- ar á því, að vel rekin og fjár- ha.gslega sterk fyrirtæki eru forsenda bætfcra lífskjara og ffaimfara. 3. Stefnt verði að stækkun rekstrarein-inga i hvers konar •atvi'nnurekstri, þegar sýnt þyk ir, að slikt stuðli að aukinni reks'trarhagkvæmni og sam- keppnishæfni. 4. Aukin áherzla verður lögð á rannsóknir á orkulindum og náttúruauðæfum landsins, svo og hagnýtar rannsóknir í þágu iðnaðar og fjárframlög til rann- sóknarstarfsemi tryggð. 5. Skipulega verði unnið að því að hagnýta erlent fjármagn og sérþekkin-gu til uppbygging- ar nýrra og eidri iðn- greina, enda verði gengið tryggi lega frá samningum hverju sinni, svo að isienzkum hags- mu'mum verði aldrei teflt í tvi- sýnu. 6. Rutt verði úr vegi hindr- unum og fundnar leiðir til að örva þátttöku almennimgs i arð- bærum atvinnurekstri. 7. Þess verði gætt, að ísland einangrist ekki frá mikilvægum mörkuðum og lagt kapp á að efla leit að mörkuðum erlend is fyrir íslenzka iðnaðarfram- leiðslu." Þessi stefnumörkun er ein- föld en augljós, og við hana var vissulega miðað. STEFNUMÓTUN VIÐREISN ARST J ÓRN AR Stefmumótun fyrrverandi rik- isstjórnar varðandi iðnþróuin i landinu kom allskýrt fram í ræðu, sem ég hélt á fundi is- lenzkra iðnrekenda 5. febrúar 1966, og ég skal tæpa hér á nokkrum atriðum úr þeirri stefnumótun: „1 fyrsta lagi: Stefnt er að þvi að ríkja megi jafnrétti milli að- alatvimnuvega lamdsmanna —. í öðru lagi: Sfcefnt er að því að létta tollum af vélum og hrá- efmum iðnaðarins samfara því, að tollum sé almenmt aflétt, til þess að veita almenningi ódýr- ara og betra vöruval og draga með því úr dýrtíð í landin u —. 1 þriðja lagi: Haldið ve-rði ájfram að efla Iðnlánasjóð, svo að iðnaðinum skapist viðunandi stofnláinaaðstaða —■. 1 fjórða lagi: Ríkisstjórnin stuðli að þvi, að hefjast megi i landinu nýjar atvinnugreinar á sviði iðnaðarins, þar sem horf- ur eru á, að verð og gæði stand- ist erlenda samkeppni og þjóð- hagslega mikilvægt, að slíkar atvinnugreinar eflist, svo sem innlend stálskipasmíði samfara endurbyggingu gamalla og úr- eltra dráttarbrauta og efl- ing fiskiðnaða-r, meðal annars með niðursuðu og niðurlagningu síldar til útflutnings. I fimmta lagi: Sett lög um rannsóknir í þágu atvinnuveg- anna og þar með stór- Jóhann Hafstein efldar ran-nsóknir á sviði iðn- aðarins á vegum tveggja stofn- ana. 1 fyrsta lagi Rannsókna- stofnunar iðnaðarins, sem vi-nn- ur að rannsóknum til eflinigar og hagsbóta fyrir iðnaðinn i landinu og rannsóknum vegna nýjunga á sviði iðnaðar og ann- arrar fraunleiðslu, auk rann- sókna á nýtingu náttúruauðæfa landsins í þágu iðnaðarins, er stofnunin skal veita nauðsyn- lega þjónustu og kynna niður- stöður rannsókna í vísinda- og fræðsluritum. I öðru lagi á veg- um Rannsóknastofnunar bygg- in.gariðnaðarins, sem vinnur að endurbótum í byggingariðn- aði og lækkun á kostnaði i mannvirkjagerð, hagnýtum jarð- fræðirannsóknum og vatnsvirkj unarframkvæmdum, kynningu á nifturstöðum ra-nnsökina og þvi að veita upplýsingar um bygg- ingarfræðileg efni og að- stoða við eftirlit með byggingar- efni og byggingarframkvæmd um. í sjötta lagi: Stefnt er að virkjun stórfljóta landsins, byggingu stórra orkuvera, sem verði grundvöllur og orkugjafi fjölþættrar iftnvæðingar í land- inu. Orkuver landsins séu eign íslendinga, en til þess að virkja megi í stórum stíl og undir lán- tökum verði risið á sem hag- kvæmástan hátt, er tryggi ódýr- ari raforku, og til þess að styrk- ari stoðum sé rennt undir at- vinnulif lamdsmanna, verði er- lendu áhættufjármagni veitt að- ild að stóriðju, ef hagkvaamt þykir samkvæmt mati hverju sinni og landsmenn brestur fjár hagslegt bolmagn eða aðstöftu til framkvæmdanna. I sjöunda lagi: Rikisstjórnin hefur leitað og mun leita sam- ráðs og samvinnu við samtök iðnrekenda og iðnaðarmanna, Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna, um hagsmunamál iðnaðarins og stefnir að því að efla samstarf • þessara aðila við iðnaðarráðu- neytið og þær stofnanir iðnaðar ins, sem undir það heyra, svo sem rannsóknastofnariir iðnað- arins og Iftnaðarmálastofnun Is- lands.“ ÁFANGARí IÐNÞRÓUN Ég vil nú þessu næst minna á nokkra áfanga i iðnþróun hér á landi á liðnum áratug, þótt sú upptalning verði á engan hátt tæmandi í svo stuttri blaða- grein: 1. Islendingar gerðust aðilar að Fríverzlunarsamtökum Evrópu, EFTA. 2. Norræni iðnþróunarsjóður- inn var stofnsettur. Stofn- féð var á annað þúsund milljón- ir króna, og hefur þessi sjóður þegar komið iðnaðinum að miklu gagni og alveg sérstaklega stuðl- að að nýjungum með öflugum lánveitingum. 3. Iðnlánasjóðurinn var um- skapaður með nýrri löggjöf 1963 og ýmsum síðari breytingum, sem stuðla skyldu að hagrann- sóknum og þjóðhagslega hag- kvæmri iðnþróun. Iðnlánasjóð- urinn er nú orðinn öflug- ur stofnlánasjóður og ráðstöfun arfé hans hefur á síðustu árum numið á milli 100—200 milljón- um króna, en þetta var mjög veikur kvistur í upphafi síðasta áratugar. 4. Skotið var stoðum undir veiðarfæraiðnaðinn i landinu sem átt hafði mjög erfitt upp- dráttar, svo erfitt, að allar veið- arfæragerðir höfðu gefizt upp, nema Hampiðjan. Þær ráðstafan ir, sem gerðar voru, hafa hins vegar orðið til þess að efla þennan iðnað, og tel ég, að nú sé fyrir því séð, að hann muni halda áfram að eflast lands- mönnum til hagsbóta. 5. Innlend stálskipasmiði hófst í landinu á síðasta áratug. Rík- isstjórnin gerði mótaðar áætlan- ir um eflingu stálskipasmíðinn- ar og tók jafnan inn í fram- kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinn ar árlega fjárveitingar til stál- skipasmiðanna í lánsformi og hafði einnig forgöngu um það að veita fé til þess að umskapa dráttarbrautirnar i samræmi við breytta tima og eflingu skipa- stólsins. 6. Settur var á stofn Tækni- skóli íslands. 7. Úr þröngri fjárhagsaðstöðu til rekstrarlána var bætt með að- stoð Seðlabankans og lögum um breytingu á lausaskuldum iðnað arins í föst lán til lengri tíma. Síðan var rekstrarlánaþörfinni sérstaklega sinnt, eftir gengis- fellinguna 1968. Gengisfellingin var að sjálfsögðu iðnaðinum stórkostlegur styrkur, því að segja má, að hefði gengið þá verið rangt skráð, með því að hverfa að uppbótum og styrkj- um til útflutningsframleiðslunn- ar, þá hefði í raun og veru ver- ið kippt stoðunum undan áfram- haldandi þróun iðnaðarins í landinu. Rekstrarlánaþörfin fyr ir iðnaðinn jókst að vísu og séð var til þess að hlaupa þar und- ir bagga. 8. Iðnaðarmálastofnun Islands var efld og sett um hana ný log- gjöf og samkvæmt henni er hún nú Iðnþróunarstofnun Islands með mikilvægu hlutverki. 9. Sett voru lög um útflutn- ingslánasjóð og samkeppnislán iðnaðinum til handa. Slik lána- starfsemi hafði reyndar hafizt i tíð Framkvæmdabankans, en var nú komið í fast form. 10. Sett voru lög um Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins. 11. Rannsóknastofnun iðnað- arins eignaðist eigin húsakynni i Keldnaholti, og síðar Rann- sóknastofnun byggingariðnað- arins einnig. 12. Sérfræðileg úttekt var gerð á iðnaðinum fyrir inngöngu fslands í EFTA. Iðn- aðarráðuneytið hafði forgöngu um þessa úttekt, en að henni vann Guðmundur Magnússon, prófessor, í náinni samvinnu vift fyrirsvarsmenn iðnrekstrar og iðnaðarins. 13. í framhaldi af hinni merku úttekt varðandi iðnaðinn, sem að framan greinir var svo unnið að því að semja iðnþró- unaráform fyrir áttunda áratug- inn. Dr. Guðmundur Magnússon, prófessor, annaðist einnig þessa skýrslugerð og áætlun á vegum iðnaðarráðuneytisins, en bækl- ingur hér að lútandi var gef- inn út í maimánuði 1971. Má segja, að með skýrslugerðinni um iðnaðinn, áður en fs- land gekk í EFTA, og með skýrslunni um iðnþróunaráform- in, hafi fengizt grundvöllur, sem hvergi var til áður, til þess að meta aðstöðu iðnaðarins í þjóð- félaginu réttilega og gera áætl- anir um framtíðarþróun. 14. Á síðasta áratug hófst iðn aðurinn handa um það að efna til mjög merkra iðnsýninga og vörumarkaða, sem ekki höfðu áður þekkzt hér á landi. 15. Sett voru ný orkulög, lög um Landsvirkjun, Laxárvirkj- un, virkjun Sigöldu og Hraun- eyjafoss og Lagarfoss. 16. Fyrsta stórvirkjun var framkvæmd í Þjórsá við Búrfell. 17. Stóriðja hélt innreið sína á íslandi. 18. Ný efnaiðja varð til með Kísiliðjunni við Mývatn. 19. Stofnað var sjálfstætt iðn- aðarráðuneyti. 20. Sett voru lög um tekju- skatt og eignaskatt, til þess að skapa iðnfyrirtækjum sambæri- lega aðstöðu við samkeppnisfyr- irtæki í nálægum löndum. 21. Hafin var samvinna við Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna, sem haldið er áfram og hefur reynzt jákvæð, og í henni kunna að felast miklir mögu- leikar. 22. Skinna- og ullariðnaður tók gífurlega miklum framför- um, nýtízkulegar verksmiðjur voru reistar fyrir mikla fjármuni á okkar mælikvarða og merkilegt útflutningsstarf var hafið einmitt á þessu sviði af mikilli elju og dugnaði, en eins og oft vill verða við marg- háttaða byrjunarörðugleika. 23. Sett voru lög um olíu- hreinsunarstöð á íslandi og frek ari þróun efnaiðnaðar könnuð, samanber sjóefnavinnslu, lagt verulegt fé í að rannsaka perlu- steinsnámur hér, keramik og úr- vinnsla á leir athuguð, ásamt fleiri hugsanlegum nýjungum. Það þykir ekki ástæða til, að hafa þessa upptalningu lengri, en hún á að geta borið vitni um öra þróun og mikla fjörkippi á mörgum sviðum varðandi iðn- þróun í landinu. Reynslan hef- ur einnig orðið sú, að á þremur síðustu árum hefur iðnaðurinn tekið stórkostlegum franiförum, framleiðsluverðmæti hafa aukizt stórum á þessu tímabili og fram- leiðslumagnið aukizt allt að því um 15% á ársgrundvelli á síðast- liðnu ári. Hér hefur allt stefnt í fram- faraátt, sem vissulega er mikil- vægt, þvi að í öruggri iðnþró- un í landinu er einmitt fólgið meira atvinnuöryggi en í nokkr um öðrum atvinnugreinum okk- ar fslendinga, því að vaxandi iðnaður er þess umkominn að taka við hinu vaxandi framboði á vinnumarkaðinum með til- komu nýrra kynslóða og mikilli fólksf jölgun i landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.