Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 16
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1972 Utgefari di hf Árvakur, RÁykjawfk Frarrykveamdas-tjóri Harafdw Sv«'ms«on. fUtistjórar Mattfhtas Johanrvessen, EyjóWur KonráO Jónsson. AOstoSarrítstjón Styrrrvk Guonarsson. Ritstjórnorfulttrúi Þforfaijönn Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jóihanns«on Auglýsingastjóri Árrrí Garöar Kristinsscsn Ritstjórn 09 afgreiðsta Aöaistrserti 6, sími 1Ö-100. Augfíýsingar AOabtreati 6, sfmí 22-4-CO Áskr'rftargjai'd 226,00 kr á 'ménuOi innantands I tausasötu 16,00 Ikr eintakið LÆTUR FORSÆTISRÁÐ- HERRA BJÓÐA SÉR ÞETTA? Að leika sér að utanríkisráðherra t'ins og kunnugt er af frétt- ■*-i um, hefur Magnús Kjart- ansson, iðnaðarráðherra, fyr- irskipað lagningu háspennu- línu frá Akureyri til Varma- hlíðar og ákveðið að leysa raforkuþörf Norðurlands vestra með orkuflutningi frá Laxársvæðinu, þótt það sé ekki aflögufært. Á fundi Sambands íslenzkra raf- veitna, sem nýlega var hald- inn á Akureyri, var upplýst, að ríkisstjórnin hefði aldrei heimilað þessa línulagningu, og voru þau orð höfð eftir forsætisráðherranum sjálf- um. í viðtali við Morgunblaðið í gær segir Ólafur Jóhannes- son, forsætisráðherra: „Það geta verið skiptar skoðanir um einstök atriði, og það er ekkert launungarmál, að ég persónulega hefði t.d. kosið aðra lausn á raforku- málum Norðurlands vestra en nú virðist fyrirhuguð.“ Ólafur Jóhannesson er fyrsti þingmaður Norður- lands vestra. Engu að síður fyrirskipar Magnús Kjartans- son framkvæmd í þýðingar- mestu málum þessa kjör- dæmis þvert gegn vilja for- sætisráðherrans. Þetta fram- ferði er slík móðgun við for- sætisráðherra, að erfitt er að skilja, að hann geti látið bjóða sér það. Forsætisráðherra hefur það á valdi sínu að fyrirskipa orkumálaráðherra að hætta við þessa framkvæmd. Ef Magnús Kjartansson þver- skallast við að fara að fyrir- mælum forsætisráðherra, get- ur hann að sjálfsögðu hótað honum að biðjast lausnar fyr- ir hann. Og hvert mannsbarn veit, að Magnús Kjartansson mundi heldur beygja sig en láta af ráðherradómi. Svona einfalt er fyrir Ólaf Jóhann- esson að leysa þetta mál. En ef forsætisráðherra læt- ur bjóða sér þennan ósóma, þá vita kommúnistar, að þeir geta svínbeygt hann í hvaða máli sem er. Þeir hafa þá nið- urlægt hann svo rækilega, að þeir hafa ráð hans í hendi sér. Vonandi rekur forsætis- ráðherra nú af sér slyðruorð- ið og stöðvar framkvæmdirn- ar við línulagninguna frá Ak- ureyri. Það getur hann gert, hvenær sem honum sýnist. Fhnar Ágústsson, utanríkis- *J ráðherra, hélt upp á árs afmæli ríkisstjórnarinnar með viðtali við Þjóðviljann, og þar er hann m.a. látinn segja: „Ég tel það alveg ótvírætt, að við ákvæði stjómarsátt- málans um brottför herliðs- ins verði staðið. Við stefnum að því, að herinn fari úr land- inu og það verði fyrir lok kjörtímabilsins.“ Þar með eru kommúnistar á ný teknir að leika sér að utanríkisráðherra, og hann er til í tuskið eins og fyrri daginn. Einar Ágústsson veit jafn vel og allir aðrir, að enginn þingmeirihluti er fyrir því að reka varnarliðið úr landi eins og nú háttar. Sjálfur hefur hann lýst yfir því, að þetta mál verði lagt fyrir al- þingi, og því er fullljóst, að varnarliðið verður hér áfram, hvað sem í því náplaggi, sem nefnt er málefnasamningur, stendur. Hrakfarir utanríkis- ráðherra í umræðum um varnarmálin á liðnu hausti voru svo hörmulegar, að menn hefðu haldið, að það hefði orðið honum að kenn- ingu og hann hefði nú vit á að segja minna. En svo virð- ist því miður ekki vera; kommúnistar kunna enn á honum lagið. Þegar umræður fóru fram á alþingi um flugbrautarmál- ið, lýsti forsætisráðherra því yfir, að flugbrautarlengingin væri greidd af Bandaríkja- mönnum, vegna þess að hún væri ætluð fyrir varnarliðið og til að treysta öryggi At- lantshafsbandalagsþjóðanna. Þar með gaf hann í raun réttri um það skýlausa yfir- lýsingu, að ekki væri hug- myndin, að varnarliðið hyrfi úr landi á næstu árum. Enda hafa engar slíkar fullyrðing- ar heyrzt frá öðrum en kommúnistum um langt skeið. Það er von Morgunblaðs- ins, að ráðherrar Framsókn- arflokksins láti kommúnista ekki á ný þvæla sér út í ógöngur í varnarmálunum. En ummæli Einars Ágústs- sonar í Þjóðviljanum spá því miður ekki góðu. Þó er þess að gæta, að maðurinn er kunnur að því að segja oftast það, sem viðmælendurnir vilja heyra. Skylt er að geta þess, að í gær sá utanríkisráðherra við kommúnistum, þegar það hneyksli gerðist, að Samtök herstöðvaandstæðinga boð- uðu blaðamannafund í utan- ríkisráðuneytinu! Thomas F. Eagleton varaforsetaefni demókrata „TOM, fx'fta er George Mc Govern. Tom, ég vil fá þig með mér í baráttnna." „Þú hlýtur að vera að gera að gamni þimi.“ Þannig segir Tliomas Frane is Eagleton frá því er honum var boðið að verða varafor- setaefni nemókrataflokksins í kosningiinum í nóvember. Hann sagðist bafa orðið for- viða við þessa símhringing'u. „Ég sagði ,já þegar í stað til að fyrirbyggja að hann skipti um skoðun." Eftir erfiðar fundasetur og ráðabrugg á fimmtudaginn valdi McGovem að lokum Eag leton, og hringdi til hans rétt áður en frestur rann út til að tilkynna nafn frambjóð- andans. PÓLITÍSKIR EINEGGJA TVÍBURAR Með því að velja Eagleton sem varaforsetaefni braut McGovern þá venju að það þyrfti að vera pólitískt og landfræðilegt jafnvægi milli frambjóðendanna tveggja. Eagleton, sem er 42 ára ka- þólskrar trúar og lýst sem glaðlyndum og ágengum manni, er öldungadeildarþing- maður frá St. Louis í Miss- ouri og er því frá miðvestur- ríkjunum eins og McGovern. Auk þess er þeim lýst sem „eineggja tvíburum“ frá hug- myndafræðilegum sjónarhóli, — t.d. i afstöðu sinni til Víet- namstríðsins, og báðir vilja þeir eindreginn niðurskurð á fjárveitingum til varnar- mála. Eagleton komst á þing 1968 með stöðvun loftárása á Norður-Vietnam sem höfuð- baráttumál. Og nú ganga þeir báðir, McGovern og Eegleton, til orrustu með afnám hernað- araðstoðar við Suður-Víetnam sem aðalvopn. Sá munur er hins vegar á þeim, að þar sem komið hef- ur í ljós að höfuðfjandmenn McGoverns eru heildarsam- tök verkalýðsfélaga landsins, þá er Eagleton ágætlega inn- undir hjá þeim. Þetta kann vissulega að koma McGovern vel, en óvíst er þó hvort það nægi til að verkalýðssamtök- in styðji frambjóðendur demókrata fjárhagslega og stjórnmálalega í komandi kosningabaráttu. SK.TÓTIJR FRAMI Thomas Eagleton fæddist 4. september árið 1929 í St. Louis. Hann var í hernum 1948—1949. Tók BA próf með sóma við Amherst College 1950, og lagapróf sömuleiðis við Harvard Law School 1953. Dómsmálaráðherra Missouri varð hann 1960, og aðstoðar- ríkisstjóri 1964. Hann hefur hlotið ógrynni viðurkenninga og verðlauna og gegnt fjölda ábyrgðarstaða (UPI valdi hann t.d. mann ársins 1968 í Missouri), og hann er heið- ursdoktor I lögum við fjóra háskóla. Árið 1956 kvæntist Eagle- ton Barböru Ann Smith frá St. Louis og þau eiga tvö börn, Terence og Christin. STUDDI MUSKIE í UPPHAFI Frank Mankiewics, helzti skipuleggjandi kosningabar- áttu McGoverns, sagði að val- ið hefði verið með tilliti til þess hvort „framboði McGov erns væri akkur og aðstoð í slíkum manni.“ Eagleton segir sjálfur að ungur aldur sinn, kaþólsk trú, tengsl við verkalýðssam- tökin og reynsla í stjórnmála lífinu kunni allt að hafa sitt að segja. „Mér hefur verið lýst sem hægfara frjálslynd- issinna," segir hann. „Þið get ið reynt að skilgreina það.“ Hann segir að eins og Mc Govern vilji hann „fara úr Ví- etnam innan 90 daga.“ Mank- iewics sagði að McGovern hefði einnig valið Eagleton sem „mann sem hann gæti treyst út 1 æsar,“ og sem þjóðin gæti borið traust til sem forseta ef þörf krefði. 1 upphafi var Eagleton einn af fjölda leiðtoga demókrata sem studdu Edmund Muskie, en hann gagnrýndi aldrei Mc- Govern, en þá hafði kosninga barátta Muskies farið út um þúfur. Og hann segir sjálfur um útnefningu sína: „Ég er him- inlifandi. Ákaflega hamingju samur.“ Tbomas Eagleton og kona bans Barbara Ann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.