Morgunblaðið - 21.07.1972, Blaðsíða 2
2
MORGUN’BLA.ÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLt 1972
Þjónadeilan:
Enn ágreiningur
um kauptryggingu
— en samkomulag um önnur
meginatriði
— sáttafundur á morgun
SAMNINGAFUNDI i kjaradeilu
franireiðslumanna og veiting-a-
manna lauk um kiukkan 4 i fyrri
nótt, eftir að hann hafði staðið
í nær 11 stundir. Nýr sáttafund-
ur liefur verið boðaður með sátta
semjara kiukkan 4 á laugardag.
Ef samkomulag tekst ekki á
þeim fundi kemur vaentanlega til
verkfalls þess, sem framreiðslu-
menn liafa boðað frá kltikkan 3
aðfararnótt siinnudags. Munu
um 130 framreiðslumenn eiga að-
ild að verkfallinu ef til kemur,
en þeir starfa ailir á vínveitinga-
húsum. Þar sem engir lærðir
framreiðslumenn starfa á vin-
latisum matsölustöðum hefiir
verkfall engin álirif á rekstur
þeirra.
Veitingamenn og framreiðslu-
menn hafa nú komizt að sam-
komulagi um flest meginatriði
kjarasamnings, en það sem enn
strandar á, er einkum krafa
þjóna um lágmarkskau ptrygg-
ingu.
— Okkar aðalmál er að fá kaup
tryggingu og eins og fram hef-
ur komið fórum við upphaflega
fram á að fá 50 þúsund króna
kauptryggingu á mánuði, miðað
við 40 stunda vinnuviku, sagði
Guðmundur Axelsson, formaður
samninganefndar framreiðslu-
manna í viðtali við Mbl. Það ger-
ir um 288 krónur á timann og
er að okkar dómi ekki ósann-
gjöm krafa þegar tillit er tekið
til þess að 80—90% af vinnu
Fjölmenn útför
Vilhjálms Þór
ÚTFÖR Vithjálms Þórs fyrrver
andi utanríkisráðherra, var gerð
I gær frá Dómkirkjunni, að við-
stöddu miklu fjölmenni. Séra
Jón Auðuns dómprófastur jarð-
söng, Ragnar Bjömsson lék á
orgel, félagar úr Fóstbræðrum
sungu og Þorvaldur Steingrims-
son lék á fiðlu. Frimúrarar stóðu
heiðursvörð í kirkjunni og báru
úr kirkju og í kirkjugarð.
okkar er unnið í nætur- og helgi-
dagavinnu. Nú höfum við enga
kauptryggingu, en fáum 15%
þjónustugjald miðað við „verð
veitinga til almennings" eins og
það er orðað í samningi okkar.
Lítum við svo á að það sé þá
verðið með söluskatti, enda hafa
veitingamenn viðurkennt það í
verðskrá yfir vín, sem samþykkt
hefur verið af báðum aðilum.
Veitingamenn hafa boðið okkur
kringum 22 þúsund króna kaup-
tryggingu og að í stað þess að
gera upp laun okkar að lokinni
vinnu hvern dag skilum við öll-
um peningum inn og fáum síðan
gert upp síðar. Þeir vilja um
leið lækka þjónustugjaldið af öll-
um veitingum um 1,6% en það
svarar til yfir 9% kjararýrnun-
ar. Þá fara þeir fram á að við
greiðum fyrir fæði það, sem við
höfum hingað til fengið fritt og
kemur það til viðbótar fyrr-
nefndri kjararýrnun og skiljan-
lega semur engin starfsstétt upp
á slíkt.
1 samniingaviðræðunuim bind-
um við okkur ekki lengur við 50
þúsund krónumar og höfum í
heild bakkað mikið frá upphafleg
um kröfum okfcar og vonumat
þvi til að ekki þurfi að koma til
verkfalls. En fari svo, þá mun-
um við, eins og í fyrri kjara-
deilum reyna að sjá til þess að
verkfallið fcomi »em mimmst nið-
ur á þjónustu við erlemda ferða-
menn sem tii íslamds koma.
Hafsteinm Baldvinsson lög
fræðingur veitingamamma sagði
í viðtali við Mbl. að í megim-
atriðum hefði nú náðst sam-
komulag um kjarasamning, að
undanskildu því að þjónar gerðu
kröfu til lágmarfcskauptrygging-
ar að upphæð 40 þúsumd krónur
á mánuði og væri sú trygging
óháð vimmutíma. Veitimigamemm
væru tilbúnir að greiða 24.600
króna grunntrygginigu, en húm
væri háð tveimur skilyrðum:
annars vegar að þ.iónar greiddu
fæði sitt eins og anmað starfs-
fótk veitingahúsanna og hins
Framhald á bls. 20
Myndin er tekin þegar vinningu rin var dreginn út. Á myndinni
eru, talið frá vinstri: Tómas Jónsson, lögregluvarðstjóri, Sveinn J.
Sveinsson, fulltrúi sýslumanns og Giiðmundur Jónsson, frjáls-
íþróttamaður á Selfossi.
Miði 4545 f ær
vinninginn
SÍÐASTXTÐINN miðvikudag var
dreginn út annar vinningurinn í
öryggisbeltahappdrætti Umferð-
arráðs. Fór útdrátturinn fram á
skrifstofu sýslumanns Árnes-
sýslu á Selfossi, og kom vinning
urinn, sem er 10 þús. kr. í pen-
imgum, á miða nr. 4545. Guðmund
ur Jónsson frjálsíþróttamaður
dró út vimninigsnúmerið.
Samtals hefir nú verið dreift
um niu þúsund happdrættismdð-
um og um þessa helgi verður
dreift 5 þúsund miðum. Næsti
vinningúr, sem einnig er 10 þús.
kr. í penimgum, verður dreginn
út á Afcureyri 26. júlí. Verður
þá eínnig dregið úr öllum þeim
happdrættismiðum sem dreift
hefir verið, eða 14 þúsund mið-
um. Fyrsti vinningurinffi, sem
fcom upp á miða nr. 3601 er enn
ósóbtur.
Enginn laugar-
dagspóstur
Á MORGUN, laugardag, mun
enginn póstur verða borinn út í
Reykjavík og nágrenni og mun
svo verða á laugardögum fram-
vegis, a.m.k. í náinni framtíð.
Hafa póstmenn og póstfreyjur
þannig fengið málum sínum
framgengt, en sem kunnugt er
stóðu þau fyrir undirskrifta-
söfnun meðal almennings til
stuðnings kröfunni um langar-
dagsfrí. Um 10 þúsund undir-
skriftir fengust og var það nóg
til þess að samgönguráðiineytið
hefur ákveðið að fella niður póst-
burð á laiigardögum.
Póstur hefur verið borinn út 6
daga vikunnar, einu sinni á dag
Hve mikið vitið þér um
heimsmeistara í skák ?
Getraun eftir Frank Brady
FRANK Brady, einn þekkt-
asti skákfræðingur Bandarikj-
anna, hefur útbúið eftirfar-
andi skák-spurningalista fyr-
ir Morgtinblaðið. Ættu gamlir
og nýir skákáhugamenn að
hafa gagn og gaman af því að
spreyta sig á þessum spurn-
ingrum, sem allar varða heims-
meistaratitilinn, en svörin eru
á blaðsíðu 20.
1. Hver var vottur dr. Max
Euwes við heimsmeistara-
keppnina 1935?
2. Hvar hafa hæstu verðlaun
verið í boði í heimsmeist
arabeppni að undanskildu
einvígi Spasskys og
Fischers?
3. Hver er yngsti heimsmeist
arium í skák hingað til?
4. Hvar var fyrsta einvígi
Steinifz og Laskers haid-
iö?
5. Hvaða tveir heimsmeistar-
ar urðu fraegir fyrir að
sigra sem born heitns-
Frank Brady
meistarann sem þá var?
Hverja sigruðu þeir?
6. Hvaða heimsmeistari var
kvæntur prinsessu?
7. Hvaða óopinber heitns
meistari var einnig
fremsti myllu-spilari síns
tíma?
8. Hvaða tveir heimsmeist-
arar hafa fengið útgefin
minninigarfrímerki sér til
heiðurs?
9. í hvaða heimsmeistara-
keppni vann annar skák-
maðurinn aliar skákirnar?
10. Hvaða heimsmeistari var
menntaður sem rabbíi?
11. Hvaða heimsmeistari
sagð: „Ég er bókin!“ („I
am the book“?).
12. Hver varð bæði unglintga-
heimsmeistari og heims-
meistari?
13. Hvaða heimsmeistarar
höfðu aldrei háskólapróf?
14. Hvaða heimsmeistari var
svo skapmikill að glamur
í tebolla í salnum gat ver
ið nóg til að gera hann æf-
ann?
15. Hvaða hehnsmeistari dó
annaðhvort snauður eða í
fjárhaigsörðugleikum?
Svör eru á bls. 20.
nema í miðbænuim, stærsta
verzlunar- og viðskiptahverf-
inu, þar sieim hann hefur verið
borinn út tvisvar. Að söign Rafns
JúMussonar póstmálafulltrúa hef-
ur ekki verið ákveðin nein önn-
ur breyting á þessum póstbuxði,
þótt fyrinsjáanleg sé einhver
breyting á vinnutíma póstmanrua
og póstfreyja, þar sem vinnuvik-
an verður eftir sem áður 40
stundir.
Þótt póstburður falfli niður á
laugardögum verða engar breyt-
ingar á annarri þjónustu póst-
húsa. í Reykjavik verða pósthús
in áfram opin til hádegis á laug-
ardögum og pósthúsið í Umferð-
armiðstöðinni verður opið frá kl.
2—7:30. Pósthólf verða opin sem
fyrr.
EBE-samningur-
inn undirritaður
í fyrramálið
EINAR Ágústsson, utanrikisráð-
herra hélt utan til Bruxelles í
gær, en þar mun hann undirrita
í fyrramálið viðskiptasamninginn
milli Islands og Efnahagsbanda
lags Evrópu. f för með ráðherr-
anum er Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri sem var formað
ur viðræðunefndarinnar við
EBE.
Gjaldeyri
fyrir 50
þús. kr.
stolið
ERLENDUM gjaldeyri, að verð-
mæti nær 50 þús. kr., var stolið
úr einbýlishúsi í Vesturbænum
einlivern tímann á tímanum frá
sunnudegi til miðvikndags í þess
ari viku.
Þarna var utm að ræða 25 doll-
ara (20 og 5 dollara seðla), 21
sterlingspund (fjóra 5 punda og
einn 1 punds seðil), 910 norskar
krónur, 595 sænskar krónur oig
1420 danskar krónur (alit 100
króna seðlar, nema það sem urn-
fraim hun-drað eir). Það eru til-
mæli lögreglunnar til þeirra, sem
hafa orðið eða verða varir við
menn, sem óðelilegt má telja að
hafi yfir mikl'Um gjaldeyri að
ráða, að þeir láti lögregluna vita.
80 erlend
skip
á Íslandsmi5um
ÁTTATÍU eriend veiðiskip voru
á fslandsmiðum s.l. sunnudag,
þegar Landihelgisgæzlan lét telja
þaiu. Brezkir togarar voru þar 1
mifclum meirihluta, eða 51, og
voru 35 þeirra úti af Vestfjörð-
um en hinir flestir fyrir NA-
laindi og SA-landi. Þá voru 19
v-þýzikir togarar á íslandsmiðum
og voru fim'm þeirra úti af Vest-
fjörðum, fjórir úti af Reyfcja-
nesi og hinir úti af SA-landi.
Átta belgískir togarar voru fyr
ir sumnanverðu landinu og 2
færeyskir linu- og handfærahát-
ar voru að veiðum við ísland,
annar norður af Kolbeinsey, en>
hinn úti af ísaf jarðardjúpi.
Geri tillögur
um valkosti í
efnahagsmálum
MorgunblaOinu barst í gssr
eftirfarandi fréttatilfcynning frá
rlkisst jóminni:
„Forsætisráðherra hefur í dag
skipað niefnd til þess að gera til-
lögur um leiðir og valfcosti í
efnahagsmálum með það fyrir
aug’um að halda verðbólgu i svip
uðum skorðum og í nágranna-
löndunum, treysta gruindvöl'l at-
vinnuveganna og tryggja at-
vimmuöryigigi og kaupmátt lauma.
Formaður nefindarinar er Jón
Sigurðsson, hagrannsóknarstjóri
og með honium I nefndimi eru
Jóhannes Nordal, seðlabanfea-
stjóri, Jóhannes Elíasson, banka-
stjóri, Ólafur Bjomsson, prófess-
or, Guðlaugur Þorvaldsson, próif
essor, Þröstur Ólafssom, hag-
fræðingur og Halldór S. Magnús
son, viðskiptafræðingur.
Lagt var fyrir nefndina að
hafa samráð við Alþýðusamtoand
fslands og Vinnuveitendasam-
band fslanids.
Reykj'avifc, 20. júlí 1972.“
Góð laxgengd í
Kollaf j ar ðar stöðina
SAMKVÆMT upplýsingum Sig-
urðar Þórðarsonar, stöðvar-
stjóra í Kollafirði, eru 180 laxar
gengnir úr sjó inn í laxeldisstöð-
ina. Þar af komu 53 í fyrradag
og 49 laxar komu I laxakistuna
í gær.
Eins og áður hefur komið
fram hér í blaðinu er efcki búizt
við rniklum laxagömgum i Kol'lia-
f jörð í sumar, vegna þess að ekki
var slieppt úr stöðinni sjálfri
miklu seiðamaigni í fymavor.
Af þeirn laxi, sem þegar er kom
inn í laxeidisstöðina eru margir
merktir laxar. Veruilegar merk-
ingar á laxi hafa verið fram-
kvæmdar á Kollafjarðarstöðinni
til þess að fá vitneskju um styrk
leika mismiuinandi hópa eldis
seiða gagnvart endurbeimtuim úr
sjó. Með þessiu starfi er verið að
leggja grundvöll að sem beztwm
emdurheimtum á laxi úr sjó og
seiðum, sem sleppt er í ámar. Að
sögn starfsmanna Veiðimáiastofn
unarinnar hafa þe@ar fengizt
mikilvægar niðurstöðiuir af þess-
uim rmerkimgium.