Morgunblaðið - 21.07.1972, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.07.1972, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLA.ÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JOLt 1972 l Löglræðiskrifstola mín verður lokuð til 25. ágúst 1972. HAFSTEINN HAFSTEIIMSSON HDL., Bankastræti 11, Raykjavík. Dregið hefur verið fjórum sinnum í Happdrætti Slysavamafélags Islands 1972. Lokadráttur fór fram 15. júlí sl. Upp hafa komið þessi vinningsnúmer: I 1. drætti komu upp nr: 43257 og 22368 Ferð til Kanaríeyja fyrir tvo. I 2. drætti komu upp nr. 38496 og 19922 Ferð til Kanaríeyja fyrir tvo. I 3. drætti komu upp nr: 25310 og 31077 Ferð til Kanaríeyja fyrir tvo I 4. drætti komu upp nr: 37679 og 37681 Ferð til Kanaríeyja fyrir tvo. Ennfremur komu upp nr: 37680 Range Rover fjallabifreið. Vínninga má vitja á skrifstofu Slysavamafélags Islands, Rvik. STJÓRN HAPPDRÆTTISKMS. l 1 1 Ko'dak Kódak Kódak Kodak 1 KODAK HANS PETERSEN H/f. BANKASTR. 4 SÍMI 20313 GLÆSIBÆ SÍMI 82590 Kodak Kodak Kodak Kodak Hagström er beztur Hagström gítarar H jódfíErahús Reyfíjauihur 9 Laugauegi 96 simi: I 36 36 Mititimg: Guðmundur Jón Guð- mundsson frá Hesteyri 1 dag 21.7. eru um það bil 9 mánuðir frá andláti Guðmundar Jóns Guðmundssonar en hann lézt þann 27. október sl. í Land- spítalanum eftir langa og erf- iða sjúkdómslegu, þá 90 ára að atdri, og hefði því orðið 91 árs í dag. Ég finn hjá mér sterka þörf til að minnast þessa gamla manns, þó að eflaust muni það seint þykja. En þar sem ég taldi að margir myndu verða um það er hann þekktu lengur en ég, lét ég það vera, þar til nú. Guðmundi kynntist ég fyrst sumrin 1953—4 er ég vann eins og títt var um skólaskrakka á þeim árum við sólþurrkun á salt fiski hjá Bæjarútgerð Reykja- víkur en þar vann afi, en svo kölluðum við krakkarnir hann. Um það bil 22 ár eru síðan þau hjónin fiuttust hingað suður og keyptu sér lítið hús að Þrastar- götu 7B í Reykjavík. Guðmund ur var fæddur 21.7. árið 1881 á Hesteyri, foreldrar hans voru þau merkishjón Guðmundur Þor steinsson og Rósa Gísladóttir. Hann mun ungur hafa misst föð ur sinn og þurfti því snemma að taka til hendi, bjó hann hjá móður sinni þar til þann 7.9. ár- ið 1923 gekk að eiga eftirlifandi eiginkonu sína Soffíu Vagnsdótt ur, en þau voru bæði fædd og uppaiin á Hesteyri. Þar bjuggu þau af miklum myndarskap og stundaði Guðmundur sjó með öðrum búskap. Heyrt hef ég eft ir kunnugum að leitun hafi ver- ið á hamingjusamara hjóna- bandi. Enda Guðmundur einstakt ljúfmenni og ekki sakaði heldur að Soffía var og er hin mesta dugnaðarkona við allt sem hún tekur sér fyrir hendur. Ekki varð þeim barna auðið en fóstur börn tóku þau 3. Einnig dvöld- ust 2 önnur börn um langan tíma á heimili þeirra hjóna. Þessi grein mín getur ekki orð ið nein stórbrotin æviskrá held ur aðeins fátækleg þakkarorð fyrir þann stutta tíma er ég og börn mín nutum samvista við hann. Margar voru þær glað- væru samverustundirnar sem þau áttu í litla Hans og Grétu húsinu þeirra Fíu og Gumma afa á holtinu. Alltaf var það sama hlýjan og umhyggjusemin fyr- ir velferð okkar allra sem mætti okkur þar. Fósturbörnum sínum hafa þau reynzt sem væru þau hold af þeirra eigin. Guðmundur var afar hæglátur maður og jafnaðargeð hans einstakt. Aldrei heyrði mað ur hann hallmæla neinum. Leiðir okkar Guðmundar lágu ekki saman aftur fyrr en 1960 er ég tengdist þeim hjónum. Guðmundur var einn af þeim mönnum sem gengu til sinnar vinnu. Og undi glaður við sitt þó ekki byggi í 200 fm stein- steypuhöll. Hann safnaði ekki auði eða gulli en var því ríkari af því sem margan manninn vanhagar um í dag. Mörg voru þau störf sem hann vann óverð- launuð og í kyrrþey. En nú þeg ar við kveðjum þig — Gummi afi minn og þú ferð til þess tit- verusviðs sem er okkar vitund svo fjarlægt þá vitum við að þú munt reynast traustur og sann- ur í hverj u því sem mun bíða þín þar. Blessuð sé minning þín. Gunnar og fjölskylda. — Laxastiga- bygging Framhald af bls. 4 kleitft að ganga upp hann, hólf úr hólfi. Við byggingu laxastiga eins og þess, er nú var getið, eru tveir aðal áfangar, annar að grafa upp úr og sprengja rás fyrir laxastlga og fjarlaagj'a jarðveg og grjót úr rásinni og hinn að steypa millíveggi í rás- ina og ennfremur gera vamar- veggi eftir þörfum. 1 áætlun um byggingu laxa- stiga fram hjá Reykjafossi í Svartá, sem áður var nefnd, er gert ráð fyrir, að kostnaður við fyrri áfanga, þ.e. sprengingar og gröft á rás og fjarlægingu efna úr henni nemi tæplega tveimur þriðju af heildarkostn- aði við verkið, og er þeim áfanga langt til lokið. Eftir er að framkvæma síðari áfanga verksins, þ.e. að steypa upp milliveggi í rásinni og brejtta hen.ni í laxastiga, en kostnaður við það miðað við áðurnefnda áætlun nemur rúmlega þriðj- ungi af heildarbyggingarkostn- aði. Á meðan öðrum áfanga við umræddar framkvæmdir er ólokið er ekki um að ræða laxa stiga fram hjá Reykjafossi 5 Svartá samkvæmt þeim upp- dráttum og áætlunum, sem Veiðí vötn h.f. lögðu fram og sem samþykkt hafa verið og land- búnaðarráðuneytið gaf leyfi til að reisa í bréfi sirau frá í apríi 1970. Leitarstöðvor Krabbaoieins- félags íslands lokaðar til 21. ágúst vegna sumarleyfa. Grunnskólafrumvarp og frumvarp til Iaga um skólakerfi eru í endurskoðun eins og skýrt hefur verið frá. Þau samtök eða einstaklingar, sem kynnu að vilja gera breytingartillögur við frum- vörpin meðan þau eru í endurskoðun, sendi tillögur sínar skriflega til grunnskólanefnd- ar, menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 20. ágúst n.k. Frumvörpiti fást í ráðuneytinu. Grunnskólanefnd, 18. júlí 1972. I Af sérstökum ástæðum höfum við til sölu strax JCB—3D graf- og mokstursvél. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. Globusn VÉLADEILD - LAGMÚLA 5 - REYKJAVfK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.