Morgunblaðið - 21.07.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.07.1972, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1972 Sveiflast gegnum tónlistina líkt og sjónhverfinga- maður af guðs náð Helgi Tómasson fær stórkostlega dóma Helgi Tómasson í dansi ; í síðasta blaði af bandaríska tímaritinu Newsweek er sagt frá Stravinsky hátiðinni miklu í New York 18. til 28. júní, en þar var frumsýning- á 21 af 30 ballettum, sem samdir voru við tónlist Stravinskys. Var svo mikil hrifning og aðsókn að balletsýningum New York City balletsins í Lincoln Center að fólk stóð fyrir utan, veifaði 25 dala seðlum og kallaði livort nokkur ætti aukamiða. I nýjasta Newsweek er talað um snilli dansaranna og þar nefnd- ur meðal fjögurra fyrstu dans- ara Helgi Tómasson, en Helgi hefur fengið gífurlega mikið lirós fyrir dans sinn i þessari sýningu. í næsta Newsweek tíma riti á undan er mynd af honum að dansa „Sinfóníu i þremur töktum“. I>ar er einkum fjallað um nýjan ballet eftir Balanchine við „Baiser de Ia Fée“ eftir Stravinsky og talað um stórkostlega mýkt og krefj- andi snilli, sem dansararnir Pat- ricia McBride og Helgi Tómas- son sýni. ' 1 tilefni af þessum skrifum um Helga Tómasson og öðrum um þessar mundir, svo sem í New York Times og víðar, leit- uðum við frétta af Helga hjá móður hans, Dagmar Helgadótt- ur, og söfnuðum saman nokkr- um nýjum umsögnum um hann, svo landar hans hér mættu fylgj ast með ferli hans. Dagmar sagði, að eftir að Stravinsky-hátiðinni lyki, mundi baUettflokkurinn New York City Ballet fara til Sara- toga til æfinga í mánuð, eins og alltaf er gert á hverju ári. Þá verður farið 8. ágúst í sýning- arferð til Þýzkalands í sam- bandi við Olympíuleikana. En 18. september verður farin 5 vikna danssýningaferð um Rúss land. Helgi, sem er einn aðal- dansari flokksins, mun að sjálf- sögðu fara í þessar sýningar- ferðir. Hann dansaði t.d. í jan- úar í vetur Don Quixote i Þýzkalandi og sögðu blöðin þar, að annað eins hefði ekki sézt þar fyrr. New York City Ballet hefur allan veturinn sýningar í Lin- coln Center í New York og hef- ur Helgi dansað þar í vetur við sívaxandi vinsældir. Hann dansar mikið á móti balletdans- meynni frægu Violet Verdi, en nú hefur hann byrjað að dansa einnig með 18 ára gamalli upp- vaxandi stjömu, Gelsey Kirk- land. Á einstökum sýningum dansar hann á móti öðrum dans- meyjum. Þá fer hann stundum og dansar utan flokksins. 1 vet- ur dönsuðu hann og Patricia McBride t.d. á galakvöldi í New Orleans 16. apríl. Voru þau bæði útnefnd heiðursborgarar New Orleans í veizlu að lokinni sýningu. 1 janúar í vetur var í New York efnt til galakvölds til ágóða fyrir dansdeild bókasafns New York borgar, þar sem frægustu dansarar dönsuðu frítt, þar á meðal Margot Fon- teyn og fleiri. Þarna dansaði Heigi Tómasson í fyrsta skipti í New York hlutverk sitt í Don Quixote, sem hann fær svo mik- ið lof fyrir. Balletgagnrýnandi New York Times skrifar 26. janúar: „Á nýjan hátt dönsuðu Gelsey Kirkland og Helgi Tómasson „Don Quixote, Pas de Deux“ i fyrsta skipti í New York. Þau voru stórkost- leg saman og dönsuðu með fín- legu og minnisstæðu blandi af frjálsræði og nákvæmni." Gagn rýnandi blaðsins Long Island Press skrifaði sama dag: „Per- sónulegur hápunktur sýningar- innar var fyrst og fremst þessi glæsilega og furðulega spenn- andi sýning Helga Tómassonar á „Don Quixote, Pas de Deux“ með Gelsey Kirkland, hinn æsaadi „Mistakavalz" úr „Konsert- inum“ eftir Jerome Robbins og hið tilfinningarika „Óp“ eftir Alvin Ailey, sem Judish Jamis- son dansaði." I febrúar rákumst við á um- mæli um Helga Tómasson í Dance Magazine. Þar er löng grein um dansmeyna Violet Verdi, og rætt um mótdansara hennar. Þar segir: Bæði Violet og Helgi Tómasson eru dansar- ar, sem áhorfendum geðjast að. Maria Tallíchief er ekki ein af þeim, ekki heldur Gelsey Kirk- land, en Margot Fonteyn „get- ur ekki dansað spor“ öðru visi en áhorfendum líki það, segir Kirkstein framkvæmdastjóri N.Y. City Ballet. Hann segir að Helgi Tómasson sé sem dansari fullkomnunin sjálf og spáir þvi að hann verði mikill dansmeist- ari. Gagnstætt Villella og Jac- ques d'Amboise, sem Kir- stein segir að hafi aldrei getað fundið sjálfa sig, þá sé Helgi Tómasson öruggur, og þekki fullkomlega hæfni sína. Hann sé tillitsamur mótdansari og ábyrgur meðlimur dansflokks- ins. Þó hann sé ekki hár í lofti, þá samsvari hanri sér vel og sýnist því vera hár maður. Sjálf hrósar dansmærin Violet Verdy Helga mjög mikið, segir blaða- mönnum að hún hafi þar loks- ins fundið nokkuð við sitt hæfi eftir að hafa lengi verið að þjálfa með nýjum ungum döns- urum. 1 maí í vor finnum við í tveim- ur úrklippum úr New York Times hrós um Helga Tómasson. í blaðinu 18. mai er gagn- rýnandinn að skrifa um sýningu Konunglega brezka ballettsins, þar sem bæði Margot Fonteyn og Nureyev dansa, og hann ber saman sýningu á balletinum „Samkomudans" eftir Jerome Robbins hjá Konunglega ballett- inum annars vegar og New York City Ballet hins vegar og segir: „Rudolf Nureyev ýkir allt of mikið, í samanburði við bæði Edward Villella og Helga Tómasson i City ballettinum." En 16. maí fjallar hann í New York Times um sýningu N.Y. City Ballet á „Samkomudansi" eftir Jerome Robbins, sem hann segir vera dásamlega léttan og lifandi. Og hann segir: „Helgi Tómasson var brúnklæddi mað- urinn, sem opnar ballettinn með því að horfa hugsandi til him- ins og snertir í lokin jörðina af álíka á'kefð. Hreyfliinigarnar eru eintfaldar, en krefjast mi!k- illar einbeitni þar sem þetta er í eina skiptið sem damsararnir sýna að þeir séu sér meðvitandi um það, sem er fyrir utan þeirra eigin einhæfa hring. Helgi Tóanasson var iðuleiga hárná- kvæmjur án nokkurrar sýnilegr- ar fyrirhaifnar og hreinasta un- un að horfa á hann aiHan tám- ann. Gáskafullur leikur hans á móti Amthoiny Blum nýttí hvert tækiifæri tíl slíks, en freistaðist aldrei út í auðveld tei'kbröigð. Nú siðast, á Stravinsky hátíð- inmi í New York í júní virðist Helgi Tómasson enn hafa afiað sér aðdáunar gagnrýnenda stór- blaðanna. Athyigdi þeirra bein- ist þó að sjálfsögðu í skrifum mest að stórmeisturunum, Strav- insky, sem verið er að heiðra á áttræðisafmælinu og bailet- meistaranum mikla Balanchine, sem nú hafði samið fjóra nýja dansa við tónlist Stravinskys tii viðbótar gömfliu ballettunum, sem nú eru orðnir sigildir, og að Jerome Robbins, sem samdi nú fjóra nýja balletta við tónlist Stravinskys fyr/' þessa sýn- ingu. Dansaranna er minna get- ið en háitiðarinnar í heild, en þó er Helgi ávallt nefndur. Mánudaginn 19. maí skriíar Olive Bames í New York Times um sýninigu kvöldið áður, þar sem Stravinsfcy hátíðin hóifst. Hann hrósar mjög tveimur af hinum nýju balflettum Balanch- ines og segir þá dásamlega fall- ega. Síðan segir hann: Miss Le- land, Mamee Morris, Lynda Yourhit, Helgi Tómasson, Ed- ward Villella og Robert Weiss leiddiu „Sinfóniuna" af ynd- istegri braigðvisi. Hinn antihljóð fræðilegi taktur Balanohines fyrir dansarana mieð stöðutgu gríni og samsvarandi áinætgjiu, er ákaflega yndislegt. Og dans- aramir hans leiggja siig alla fram og falla að þessu." 22. júní skrif ar hann um aðra sýningu, þar sem Heltgi dansar. í „Le Baiser de ia Fé“ ettir sama hötfund. Harmar gagnrýnandinn það að aðeins var dansaður hluti af þessum ballet. Hann segir: „For- ustu fyrir dönsurunum höfðu Patfricia McBride og Helgi Tómasson, og voru bæði upp á sirttf musifcaisikasta bezta í dansi. McBride snerist með sinni tign- arlegu ástríðu og HeLgi Tómass'on sveiflaðist og sneri sig gegnum tónfctina eins og sjónhverfinigamaður af guðs náð. Sama dag skrifar anmar gagn rýnandi, Frances Herriige í New York Post um þessa sýninigu og er ákaflega hritfinn af þess'um sama dansi, þar sem hann segir að nútíminn læðist inn í sí'gilda stíla og koreografía Balanohines Sleppi framhjá hreinum klass ískum ba'ltet og fái persónu iega drættfi. „Þetta er faltegt stykki, fagurlega útbúið og dansað af fuilkomnun atf þeim Patricia McBride og Helga Tómassyni. Hátiðadaigslkrá Stravinsfcy há- tíðairinnar hefur vakið igítfurlega athygli um víða veröld. Hefur verið beðið um að New York City baOattinn komi til Þý2ika- Qjamcbs, Pariisar og London en miálið er í aithugun. Lofc má geta þess að beðið hefur verið um að 14 dansarar úr New York bailettinum og þeirra á meðal Helgi Tómasson koimi til Reykjiavífcur á næstfu liistahátíð, árið 1974. En ballett- inn he'fur etoki getað gefið svar við því. Væri sannarílega gaman að sjá Helga dainsa hér í heilum baliet oig með flokki dans- ara. Þessa mynd birtir timaritið Newsweek af Helga Tómassyni að dansa „Sinfóníu í þrernur tökt um“ á Stravinskyhátíðinni. — Opid bréf Framhaíd af bls. 17 maðurinn hefur sagt að hann muni flytja allan liðsafla frá Vietnam, því sem næst án nokkurra skílyrða. En þér hljótið að vita, að munur er á að vera í framboði til forsetaemb- ættisins og sitja á forsetastóli. Jafnvel þótt McGovern hlyti kosn ingu (sem er vægast sagt vafasamt), virðist ólíklegt, að hann gæti boðið betri skilmála en Nixon forseti gerði í ræðu sinni 8. maí. Þegar allt kem- ur til alls fór Nixon aðeíns fram á að bandarí'skum stríðsföngum yrði skilað og vopnahléi undir alþjóðlegu eftirliti komið á. Hann sagði, að fjór- um mánuðum síðar mundi allt banda riskt herlið vera á brott. Hvers óskið þér meira? Afsagnar Thieu forseta? Hann hefur boðizt til að segja af sér mánuði fyrir nýjar kosningar. Auðvitað viljið þér, að Viet Cong taki yfir stjórnina í Sai- gon. Um það er stríðið. En Suður- Vietnamar hafa enga löngun til að verða undir kommúnískri stjóm. Ef þér efizt um það, þá spyrjið þá tugi þúsunda flóttamanna sem flýðu und an hersveitum yðar í stað þess að mæta hinum skipulögðu „aftökum“, sem þér fögnuðuð hinum stutta sigri yðar við Hue og annars staðar með á meðan á Tet-sókninni stóð fyrir f jórum árum. Sem kommúnisti eruð þér þjáifaðir í að horfast í augu við veruleikann. Ef þér gerið það vitið þér, að nú er rétti tíminn til að hætta sófcninni og hefja samningaviðræður í alvöru i París.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.