Morgunblaðið - 18.08.1972, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.08.1972, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1972 MSW' Á lúðuveiðum Arctic Queen við Grænland 1930 Rabbað við Geir Zoega Það tók mig langan tíma að ná samtali við Geir Zoega en ég vissi að hann var full- ur af fróðleik, því við höfð- um stundum rabbað saman. Sérstaikiaga var ég á hnotslkóg eftir veru hans um borð í Airctic Queein og Arc. Prians, en á þeim skipum var hann á lúðuveiðum við Grænland fyrir 42 árum. Loks tókst mér að ná viðtalinu og fór það fram á skrifstofu hans að Vesturgötu 10, en þar var eitt sinn Verzlunarskólinn til húsa, en frá þeim skóla lauk Geir prófi. Þeir, sem lesið hafa sögu Reykjavlkur, kannast ail- ir við nafnið Geir Zoega, þann mikla verzlunar- og út- gerðarmann. Kona hans var Helga Jónsdóttir frá Ármóti í Flóa. Þau hjón bjuggu að Vesturgötu 6 og þar fæddist þeim sonur árið 1896, sem áklrðuir var Gedr Zoega. Hann lauk prófi frá Verzlun arskóla íslands, eins og áður var getið, varð ungur verzl- unarstjóri, en hóf snemma eig in útgerð, en það er önnur saga. Það er um veru hans við Grænland, sem greinin á að fjalla, og læt ég nú Geir Zoega lýsa aðdragandanum og veiðiskapnum. . Árið 1926 réðsit ég sem framkvæmdiastjóri tfil Hielli- ersbræðra sem þá voru að hefja útgerð sína, með 6 tog- urum, frá Hafnarfirði. Þeirri útgerð lauk i nóvember árið 1929, eftir 6 ár, vegna ým- issa enfiðlieika við að gera út eriend fiskiskip héðan. Fyrstu vikuna í janú- ar 1930 símuðu þeir Helliers- bræður til mín og ég beðinn um að koma utan. Ég fór með skipi, og fljótlega eftir að út var komið, var ég boðaður á fund þeirra bræðra. Þeir tjáðu mér, að í þau 4 ár, sem þeiir hefðu gert út Arctic Queen og Arctic Prins á lúðu- veiðar við Grænland, hefðu þeir alltaf verið sjálfir með í ferðumum sem framkvæmda- stjórar, og þar hefði þeirra næsti maður um borð allan ttmann verið mr. Filip, en þar sem þeir ætluðu nú að hætta að fara með sem framkvæmda stjórar yrði mr. Filip fram- tavæmdastjóri útgerðarimnar um borð. Spurðu þeir, hvort ég vildi fara með sem næst- ráðandi og túlkur milli Eng- lendinganna og Norðmann- anna, sem ráðnir yrðu á skip ið. Ég tók boðinu og fór til Hull, þar siem Arctic Queen lá til að kynna mér allt um skipið. Að því loknu fór ég aftur heim til Islands, en eftir tvo daga var símað og mér sagt að koma út í hvelli. Var ástæðan sú, að ég hafði stung ið upp á því við þá bræður, að þeir létu salta fisk um borð í stóra skipinu, sem var Drottningin, því skipið væri svo stórt að framparturinn nægði til að frysta lúðuna i. Ég fór út með fyrstu ferð og var nú aftur hálfan mánuð þar úti og sagði til um flatningsborð, vöskunarkassa og ailt annað, sem þurfti að gera til söltunar. Lýsis- bræðsluna lét ég setja á aft- urdekkið og notaði til þess gamla vatnskassa úr göml- um togurum. Að þessu verki loknu, hélt ég aftur heim, en átti að vera kominn aftur til HuH í byrjun apríl. Þegar líða tók að þvi að ég þurfti að fara út aftur, stóð illa á ferðum, en mér tókst að komast með skipi sem hét „Magnhild" og var í leigu hjá Eimskip i vöruflútningum austur í Vík i Mýrdal og fleiri staða. Ég var þvi ekki kominn til Hull fyrr en 10. apríl og sttieri mér þá strax að starfinu, þvi um allan út- búnað skipsins varð ég að vita og þekkja. Dagurinn áður en við liögð- um af stað var föstudagur- inn langi. Þann dag hitti ég Kristján Skagfjörð, þann ágæta mann, og fórum við sam an í kirkju. Eftir messu var okkur boðið í kjötsúpia til Guðmundar Jörgenssonar. Ég gat ekki að því gert, að þennan dag var í mér hálf- gerður beygur við að hugsa til þess að þurfa að fara svona langt í burtu og hugur minn leitaði heim til konu minnar og ungs sonar, sem heima voru. Þetta allt vairð til þess, að ég vifldii toomast sem fyrst um borð og fóru þessir ágætu menn með mig um borð kl. 6 um kvöldið. Þá voru margir af áhöfninni komnir, þvi fara átti snemma morgun inn eftir. Húsbóndi okkar kom á laugardagsmorguninn fcl. 5 og gaf okkur Filips seinustu fyrirmælin. Við sigldum sið- an út úr dokkinni kl. 7 um morguninn í einhverju þvi versta veðri, sem ég hef lent í, norðan stormi. Um borð vorujm við uim 35. Frá Hull sigldum við til Álasunds og lögðumst þar fyrir akkeri í höfninni. Þeg- ar i stað komu að hlið okk- ar 4 stórir prammar hlaðnir vörum og mönnum. Voru það 200 Norðmenn, sem þarna bættust við áhöfnina. Þarna fengum við beitu tii sumars- ins, timbur til viðgerðar á bátunum og sahkjöt frá Kaup féliaigi Ausituir-SkaftifeOfiiiniga. Áður pn Norðmennimir komu um borð hafði hverjum manni verið úthlutað sitt herbergisnúmer svo engin leið var að rífast um herberg- in. Það var ekki til setunnar boðið en lagt strax af stað um leið og búið var að skipa vörunum um borð. Og menn komu sér fyrir og skipslækn- irinn raðaði meðulunum í apótekinu. Næsta dag kom hver doriu maður með sína 4 menn og fékk úttalið óuppsett veiðar- færi, sem þeir unnu síðan við að setja upp, á lieiðineii til Grænlands. Hver doría var útbúin 12 hestafla Búlender mótor og bar 4% til 5 tonn. Hverri doriu fylgdu 5 menn, 3 voru í hverri doríu en 2 í sjálfu skipinu og sáu um beitinguna og bátana. Fjáruim dögum áður en við fórurn frá Hull, fór á undan okkur lítið skip, sem „Gaul“ hét, og þýðir mark. Var það rannsóknar- og björgunar- skip fyrir okkur. Þetta skip lá yfir doriunum, þegar þær voru að veiðum og við færð- um okkur aldrei á annan veiðistað nerna rannsóknar- skipið gæfi okkur merki um, að þar væri meiri veiði að fá en á þeim stað, sem við vær- um á, enda hafði það kynnt sér það með því að leggja línu. Þegar við nálguðumsit suð urodda Grænlands var á kafabylur. „Gaul“ var búinn að segja okkur, að við yrðum að fara 60 sjómílur frá suður oddanum, sigla síðan 40 sjó- mílur í vestur, en þá væri ökkur óhætt að sigla beint norður sundið. Þann 1. maí kl. 4 um morg- uninn tilkynnti „Gaul“ okk- ur að óhætt væri að fara á smábanka, því þar væri ís- laust. Um svipað leyti stytti upp og fórum við þarna inn og létum akkerið falla, en „Gaul“ hafði sagt að þarna væri fisk að fá. Ég stóð á stjórnborðsvængnum, því mér var forvitni á þvi hvern- ig akkeri væri látið falla, en það hafði ég ekki séð áður. Filip stóð á bakborðsvængn- um, og þegar akkerið er fall- ið kalla ég til Filips og segi. — Komdu hkigað, hér er fullt af lúðu. — Af hverju heldur þú það, spyr hann. — Af því að við drápum eina lúðu þegar akkerið féll. Og Filip varð að viðurkenna það þvi lúðan flaut upp. Áður ein lagzt var, voru doriumennirnir búnir að beita stutta línu, en það var alltaf gert áður en komið var á fyrstu miðin. Fiskiskipstjór- inn ákvað, hvar skyldi lagt. Hann hringdi alltaf bjöllu áð ur, en bjalla var í hverju herbergi. Mættu þá yfirfor- mennirnir í stórt herbergi þar sem sjókort af svæðinu var hengt upp á vegg. Þar til kynnti fiskiskipstjórinn doríuformönnunum, hvar þeir ættu að leggja línuna. Sumir áttu að leggja í NA frá skipinu en aðrir í SV frá þvi. En það var skipt um svæði þeirra daglega svo eng in hætta væri á þvi að gert væri upp á milli bátanna. Doríurnar fóru aldrei lengra frá ofckur en það að vel sæ- Lst til þeirra. Fjarlægðin frá Gelr Zoéga skipinu hefur verið svona 3—5 sjómilur. Næsta morgun er hringt út kl. 5 og allir bátar á flot. Þarna voru þá um 4 vindstig og 5 stiga frost. Mlkill spenn ingur ríkti meðal allra um borð, en allar dorlurnar reru með stutta lánu. Lofcs kom sú fyrsta að, en sú dorla var alltaf fyrst að skipinu allan tímann, en fiskaði líka eftir því. I þetta sinn var hún með um 500 kíló. En sá, siem kom síðastuir að, vair 4—5 tímum lengur að draga en sá fyrsti og var með ágætis afla. Þetta varð ágætur dagur. Við fengum 35 tonn af lúðu og það líka þessari dýrindis lúðu, 12—14 kílóa lúðu. Bát arnir skörtuðu ísrönd þegar þeir komu að og sjór varð krapaður þegar lygndi. Þarna vorum við í 4 daga í ágætis fiskiríi, en þá var ofck ur ráðlagt að fara í hvelli þvi isinn væri að elta okk- ur. Við fórum þá norður á Fyllubanka þar sem við vor- um ekki nerna í tvo daga, en þá var okkur bent á að færa okkur á betri stað þar sem við vorum þar til skipið fór heim ful'lt af lúðu, en það var um 29. júnl. Allan tímann, sem við höfð um verið á „Prinsinum“ við Grænland, hafði verið góð veiði og gott veður. En um 13. mai gerði vitlaust veður með blindbyl og frosti. Við fengum á okkur brotsjó, sem kom inn á bakborðshlið, en gerði ekki annan skaða en að brjóta fiskikassa. Skipið var líka il'la undir þetta búið, þvi það var búið að fiska tölu- vert en brenna lítið af kol- um. Ég minnist Mfca 26. maí. Doríurnar voru nýbúnar að leggja, þegar hvessti. Við urðum að hífa uppp afckerið og skipið ruggaði skemimtilega eftir að það var komið flatt fyrir vind. Doríurnar komu að skipinu um kl. 4—5, eftir að hafa lagt línuna. Þennan dag sátum við að snæðingi, æðstu yfirmennirnir, i þeim borðsal, sem okkur var ætl- aður, en það var siglinga- skipstjórinn, Filips, læknir- inn, fiskiskipstjórinn og ég. Þegar við erum að enda við að borða, kemur loft- skeytamaðurinn með skeyti til mín. Filipus verður forvit- inn og segir. -r- Hvað er nú? Ertu að eignast barn? En hann varð skrýtinn á svip- inn, þegar ég segi. — Nei, þetta skeyti er að tilkynna mér að fjöls'kyldan sé að skemmta sér heima. Og Fil- ips segir. — Hvers konar skemmtun. Og ég segi. — Það er vegna þess að það eru liðin 100 ár síðan pabbi minn fæddist. Og það mátti Filips eiga að hann gerði sér lítið fyrir, hringdi í brytann og eft ir það viðtal fengum við koníjak með kaffinu og wisky á eftir. En þetta var lífca í fyrsta skiptið frá því að við fórum frá Hull, sem við höfðum vín um hönd. Það var fullt af víni um borð, en sama og ekkert notað í ferð- inni. Þarna varð mikill og góður selsfcapur, sem lauk kl. 2 um nóttina. Þá var farið að lygma þótt sjór væri enn töluverður. Það var róið fcl. 7 um morg- uninn og haldið áfram veið- um þar til Drottningin kom 29. júní, en þá var okkar skip orðið svo til fuUí. Við ffluttum okkur um borð í „Drottninguna“ ásamt 200 mönnum. En „Prinsinn" hélt heim til Hull með aflann, einn sj úkling og 35 manna áhöfn. Allir skrifuðum við hefcn með „Prinsinum“ en „Drotitniingiin“ kom með bréf og blöð að heiman. Póst höfð- um við þá ekki fengið í 2% mánuð. Þegar við hófum veiðam- ar á „Drottningunni“ á þonsk og lúðuveiðuim við Grænland með 40 dorium, fannst okkur þær fara of langt í burtu. En það var vegna þesis hvernig dýpiskanturinn lá. Við færð- um okfcur því á sléttan banka, þar seim nóg var pláss ið og nóg af fiski hvar sem við reyndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.