Morgunblaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 12
JL£J
lVium.UrUiNKUAtJi£>, MitiViKUUAUUK 4. OKl’UtSiliK ±V<2
Gunnar Rytgaard skrifar
frá Kaupmannahofn:
Danir hafa látið
í ljós álit sitt
Almenn ánægja með
mikla kosningaþátttöku
I þjóðaratkvæðagreiðslunni
um aðild að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu varð mikill meiri
hluti danskra kjósenda henni
fylgjandi og raunar miklu
meiri en nokkur hafði reiknað
með. Aðeins í bæjarfélagi
Kaupmannahafnar og á Græn
landi voru þeir í meiri hluta,
sem sögðu nei. Niðurstöður
atkvæðagreiðslunnar urðu á
þann veg, að 63% greiddra
atkvæða voru fylgjandi aðild
og 36.5% á móti. Ko&ninga-
þátttakan var 89.79%, sem er
meira en i nokkrum öðrum
kosningum eða þjóðarat-
kvæðagreiðslu, þar með tal-
irtni svokallaðri „þjóðkosn-
ingu“ í stríðinu, en þá var
kosningaþátttakan 89.5%.
Mikil ánægja rikir yfir þess
ari miklu kosningaþátttöku.
Kemur það fram, bæði hjá
stjómmálamönnum og dag-
blöðum, að þessi mikla kosn-
ingaþátttaka og yfirgnæfandi
meiri hluti já-atkvæða eyði
styrr út af niðurstöðum at-
kvæðagreiðslunnar. Nú sé
ekki unnt að halda því fram,
að eftir hafi verið mikill
fjöldi fóiks, sem óvitað sé
um, hvaða skoðanir hafi á
málinu og nú er ekki lengur
unnt að deila um, að þjóðin
hafi ekki látið óvefengjanlega
í ljós afstöðu sína til EBE.
Sjálft kosningakvöldið lét
Morten Lange, þjóðþingsmað-
ur, sem er formaður þing-
flokks eina flokksins (SF),
sem var algjörlega andvigur
aðild, í ljós ánægju yfir því,
að niðurstöður kosninganna
væru ótvíræðar.
Bein afleiðing af ákvörðun
Dana kom þegar fram í morg-
Jens Otto Krag eftir að úrslitin voru kunn á fundi með fréttamönnum.
un. Þjóðbankinn tilkynnti, að
forvextir yrðu lækkaðir úr 8
í 7%. Fyrr á þessu ári höfðu
þeir verið hækkaðir til þess að
treysta gengi dönsku krón-
unnar, er brezka pundið var
látið „fljóta". Einnig á öðr-
um sviðum efnahagslífsins
Framh. á bls. 20
Hrafn Gunnlaugsson skrifar frá Svíþjóö:
Svíar óttast landflótta
atvinnuf y r ir tæk j a
— eftir úrslitin í Danmörku
VIÐBRÖGÐ Svía við úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslunnar í
Danmörku eru nokkuð blanð-
in. Olov Palme forsætisráð-
herra hefur aiia tíð verið
mjög gætinn í orðnm varð-
anði afstöðu sína og Sósíal-
ðemókrataflokksins sænska til
kosninganna, bæði í Dan-
mörku og Noregi.
Seint á mánudagskvöld, þeg-
ar ljóst varð að Danmörk yrði
aðili að EBE, átti sænska sjón
varpið langt viðtal við íorsæt-
isráðherrann. Palme sagðist
óska Krag til hamingju með
sigurinn og dönsku þjóðirani í
heild, sena hefði ákveðið að
stíga örlagaríkt spor í áttina
að sameinaðri Evrópu.
Aðspurður um áhrif úrslit-
anna á norræna samvinnu,
sagðist Palme vona að hún
mætti eflast á sama hátt og
sl. ár. Norðurlöndin hefðu
ekki látið einstök mál og stefn
ur rjúfa það samstarf, er væri
byggt á samnorrænmi menn-
ingu. Palme bætti við, að EBE
væri fyrst og fremst verzlun-
ar- og tollabandalag. Hanm
lagði síðan á það áherzlu, að
Svíþjóð myndi styðja alla við-
leitmi til aukins norræns sam-
starfs og menm yrðu að skilja,
að í heimi, sem tæki jafn ör-
um breytiragum og sá er við
byggjum í, væri samvinnan
fyrir öllu. Að lokum kvaðst
Palme hlakka til að ræða við
Krag flokksfrænda sinn, sem
kæmi í boði Sósialdemókrata-
,flokksins sænska tii Sviþjóðar
í vikunni. Palme sagði, að
Krag myndi líklega tala á
flokksþingi sænskra sósial-
demókrata sem nú stendur yf
i og hófst si. laugardag.
Dagblöðin fjalla öll í leiðara
um úrslitin i Danmörku. Dag-
ens Nyheter segir, að Sviar
megi hrósa happi yfir úrslitun
um í Danmörku. Það hafi
mikla þýðingu fyrir Sviþjóð
og him Norðurlöndin, að rödd
úr þeirra hópi heyrist á þing
um EBE innan tollamúranna.
Blaðið segir, að Danir hafi
látið stjórnast af heilbrigðri
skynsemi, en ekki lýðskrumi
og þjóðernisöfgum eins og
Norðmenn.
Aftonbladet, málgagn sósí-
aldemókrata segir, að dönsku
úrslitin séu áfall fyrir fram-
þróun sósíalismans á Norður
löndum. Ástæðurnar fyrir já-
sigri í Danmörku sé að finna
í þjóðfélagskerfinu. Andstætt
því sem var í Noregi hafi úr-
slit atkvæðagreiðslunmar í
Danmörku snert hag smáborg
aranna og þeir séð sér ágóða
von í danskri aðild að EBE.
Blaðið er biturt í skrifum
Framh. á bls. 20
Jögvan Arge skrifar frá Færeyjum:
„Við verðum að gera
eitthvað í landhelgis-
málinu66
HÉR fara á eftir ummæli sem
Iýsa viðbrögðum færeyskra
ráðamanna við úrslitunum í
Danmörku, en Færeyingar
tóku ekki þátt í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni.
Atli Dam lögmaður sagði:
„Ég held ekki að stjómmálaleg
staða Færeyja þurfi að breyt-
ast þó að Danmörk sé orðin
aðili en Færeyjar fyrir utan.
Þriggja ára biðtímaran, sema
Færeyingar fengu hjá EBE,
ber að túlka se mfæreyskt nei
við þeim skilyrðum, sem EBE
setti fjrrir aðild Færeyja. Við
verðum nú að gera eitthvað í
landhelgismálinu. Ef við bíð-
um eftir hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna getum
við orðið of seinir. Vonandi
gerist eitthvað á næstu þrem-
ur árum áður en biðtímanum
lýkur, sem hefur í för með sér
að við færum út landhelgina,
sem er erfitt sem stendur, eða
að við öðlumst á einhvem hátt
yfirráðarétt yfir miðunum ut-
an 12 mílnanna, þannig að
fiskiskip aranarra þjóða haldi
sig frá þeim.“
Trygvi Samelsen í Sam-
bandsflokknum sagði: „Við
verðum að biða allan biðtím
ann með að taka endanlega af
stöðu til aðildar og nota þann
tíma til að kanna gaumgæfi-
lega hið jákvæða og nei-
kvæða við aðild.
Hilmar Kaas hjá Sjálfsstjórn
arflokknum sagði: „Ég tel
ekki nauðsynlegt að biða til
31. desember 1975 með að taka
afstöðu til aðildar. Það er
nauðsynlegt að taka ákvörð-
un eins fljótt og unnt er. Það
er hugsanlegt að Dönum tak
ist að hafa áhrif á afstöðu
EBE til þeirra larada, sem lifa
einungis af sjávarútvegi og
sem verða að færa fiskveiði-
lögsögu sína út.“
Erlendur Patursson sagði:
„Ég tel yfirlýsingu Krags, um
að Danir muni styðja þær
Norðurlandaþjóðir sem ekki
ganga í EBE, yíirlýsingu um
stuðning við Færeyinga ef
þeir vilja ekki aðild.“ Síðan,
sagði Erlendur að hann vonað
ist eftir nánari samvinnu Fær
eyinga, Norðmanna og Islend
inga einkum í landhelgismál-
um og fisksölumálum.
Hakon Djiirhims, Þjóðar-
flokknum sagði: „Það var rétt
hjá Færeyingum að taka ekki
þátt í atkvæðagreiðslunni nú.“
Kjartan Mohr hjá Fram-
boðsflokknum sagði: „Við
verðum nú að halda okkúr að
íslendingum, Norðmönnum og
að einhverju leyti einnig að
Svíuim."
„Enginn getur sannað að lífsskilyrðin
Henrik Lund skrifar frá Grænlandi:
séu betri í stórum samfélögum“
Júlíanehaab 3. október.
Einkaskeyti til Mbl.
GRÆNLENDINGAR
sögðu ákveðið nei við aðild
að EBE. í atkvæðagreiðsl-
unni í gær greiddu tæp 14
þúsund atkvæði af u.þ.b.
24000, sem á kjörskrá
voru. Þar af sögðu 9686
nei, en 4105 já. Kjörsókn
nam 55,7%.
Þrátt fyrir að flestir Græn-
lendingar hafi sagt nei við að-
ild, er það nú staðreynd að
Grænland er orðið hluti af
EBE. Það verður nú óskapliega
erfitt fyrir okkar litlu þjóð að
komast af í samfélagi við 300
milljóniir marma í háþróuðum
löndum. Það er nægilega erf-
itt fyrir, að standa sig í sam-
keppninni við dönisku sam-
borgarana. Danirnir i Græn-
landi eiga einnig eftir að
lenda í erf'iðleikum í sam-
keppnimni við EBE-borgararaa.
Erfiðaisit fyritr Grænlendiraga
verðuir að horfast í augu við
þá staðreynd að fisikveiðiþjóð-
irnar innan EBE með al'it sitt
fjármagn fara nú að senda sín
fullkommu fiskiskip á miðin
okkar og ausa þair upp fiskin-
Framh. á bls. 20
Danmörk
og EBE