Morgunblaðið - 24.12.1972, Side 16

Morgunblaðið - 24.12.1972, Side 16
16 MORGCTNB.CAÐ'ÍÐ, SUNWÖÐAGLTR 24. DESÐM'BER 1972 Oígefandi M Árvakur, Rey'fcjavfk FroTTrkvætndastjóri HaroMur Svemason. RiftS’tj6rar M.attih!as Johannessen, E/;ótfur Konráð Jónsson Styrmir Gurmarsson. Rftsrtjómarfufftrúi Þ©pb(jör!n Guömundssofi Fréttast’jón Björn Jóhannsaon. Áuglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Rrtstjórn og afgreidsla Aðalstræti 6, sími 10-100. Augilysingar Aðaistræti 6, sifmi 22-4-60 Áskriftargjaí'd 225,00 kr é imtérmði irmaniand® I teusaaöiFu 15,00 Ikr eirvtakið. hungri meðan aðrir eta sig sadda af jólakrásunum. Þessi mynd blasir hvarvetna við. Síðustu daga hafa borizt fréttir af grimmilegri átök- um í Suðaustur-Asíu nokkru sinni fyrr. Fyrir nokkrum vikum voru þó vaktar upp vonir um að áþján fólksins í þessum stríðshrjáða heimshluta myndi linna. VON UM FRIÐ OG FEGURRA LÍF Jólahátíðin gengur nú í garð með hefðbundnum hætti, Ijósadýrð, skrauti, gjöfum og góðum mat. Ýmsum finnst eflaust, að trúarlegt inntak og siðferðilegur bakgrunnur jólahaldsins hafi horfið í skugga fyrir glysi nýs tíma og taumlausri velferð. Hvað sem þessum ' hugrenningum líður, er það víst, að jóla- haldið breytist með breytt- um tímum. Þessi mikla hátíð skamm- degisins er ævaforn; hún er haldin í þann mund, er dag tekur að lengja á nýjan leik og myrkrið víkur fyrir birt- unni. Hátíðin verður því tákn vonar um betri tíð, tákn frið- ar og góðvildar milli manna. Að þessum göfugu hugmynd- um leiða kristnir menn um allan heim hugann á jólum. Sannleikurinn er á hinn bóg- inn sá, að mannlífið er óra- fjarri því takmarki, sem þessi hátíð boðar. Menn og þjóðir berast á banaspjót og ala á hatri og óvild hver í annars garð. Stór hluti heimsins sveltur heilu En nú, skömmu fyrir þessa friðarhátíð, bresta þessar vonir; hatur og tortryggni hafa náð yfirhöndinni. Ann- ars staðar eygja menn von um frið og bætta sambúð manna og þjóða. Þjóðir Evr- ópu hafa í áratugi lifað í stöðugri spennu og ótta; ríki hins frjálsa hluta álfunnar og hins undirokaða hafa alið á tortryggni sín á milli. En að undanförnu hefur dregið úr en spennunni og öldurnar lægt. Þeim árangri geta menn fagn að, hversu langvinnur sem hann kann að reynast. Hinn siðferðilegi og trúar- legi boðskapur jólanna hefur enn ekki fest djúpar rætur í hugum mannfólksins. Það er því í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þótt sumir efist um gildi jóla- haldsins að þessu leyti. Jólin veita mönnum þó enn nokk- urt tóm frá ysi og þysi hins hversdagslega lífs. Jólin flytja enn sinn boðskap til fólksins. Hitt dylst engum, að með aukinni velferð hafa komið margir nýir hlutir, sem glepja fyrir og draga a.thyglina frá undirstöðum hátíðarinnar. Sjálfir búum við íslending- ar við velferð. Við búum við lýðræðislegt stjórnarfar og andlegt frelsi; þekkjum ekki hungur, stríðsáþján eða und- irokun. Við líturn á þetba hlutskipti sem sjálfsagða staðreynd. En á sama tíma er hollt að minnast þess, að fjölmargar þjóðir heyja harða baráttu til þess að öðl- ast þessi frumstæðu mann- réttindi. Auðvitað á þjóðin nú við erfiðleika að etja, sem erfið- ir eru úrlausnar. Það er um leið hart deilt um orsakir og leiðir til úrbóta. Við deilum líka um skipulag þjóðfélags- kerfisins. Engu að síður er- um við ein af fáum þjóðum, sem býr í sátt og samlyndi og hefur borið gæfu til þess að leysa úr ágreiningsefnum eftir lýðræðislegum leiðum. íslendingar halda því öðr- um þjóðum fremur jól frið- ar og góðvildar. En þrátt fyrir þetta má þjóðin ekki gleyma inntaki jólahaldsins. Jólin verða enn sem fvrr að vera hátíð vonarinnar, von- ar um frið, fegurra mannlíf og betri tíð. MORGUNBLAÐIÐ ÓSKAR LANDSMÖNNUM ÖLLUM GLEÐILEGRAR JÓLAHÁTÍÐAR Fimm ár frá því fyrstu íbúarnir fluttust í Foss- vogshverfið í DAG, á Þorláksmessu eru 5 ár liðin frá því er fyrsti ibú- inn í Fossvogshverfi flutti í hús sitt, sem hann hafði þar byggt. Það var Ólafur Jóns- son, bifreiðast.jóri, sem margir þekkja, því að hann hefur í 26 ár ekið straetisvagni hjá Reykjavíkurborg, lengst af eða í 23 ár Njálsgötu-Gunnars braut, leið 1. Ólafur býr ásamt konu sinni, Jónu Björnsdótt- ur og tveimur börnum, Þór- unni og Ragnari, að Huldii- landi 16. — Ég tók fyrstu skóflu- stunguna að húsinu 1. maí 1967 og unnum við saman, sem áttum hér raðhúsin frá 14 til 24 i grunninum. Síðan skiptust leiðir í bygginga- imáluinum og gekk mér eimkar vel að reisa húsið, sem sést af því að ég flutt ist í það á Þorláksmessu það sama ár. Og hér höf- um við búið síðan og kunn tim stöðuigt betur við okk ur. — Það varð mér mikil stoð og stytta að ég var heppinn með meistara. Húsasmíða- meistari var Kristinn Sigur jónsson, múrarameistari Ól- afur Pálsson, rafvirkjameist ari Steinn Guðmundsson og pápuflagningameistari Sig- urður Helgason. Þá var það ekki sízt Benedikt Frimanns- syni, yfirsmið að þakka að svo vel gekk — hann var okk ar stoð og stytta og yfingaf okkur ekki, fyrr en við vor- um flutt í húsið. Hann er nú bóndi vestur í Ðölum og ég r og börnin tvö, Þórtinn 11 ára og Ragnar 10 ára. — Sv. Þorm.) Ólafur Jónsson og frú Jóna Björnsdótti; Fyrstu íbúarnir í Fossvogshverfinu. (Ljósm. Mbl. sendi honum beztu jóla- og ný árskveðjur og vonast til að honum farnist vel í bústörf- unum. Að öðru leyti unnum við öll fjölskyldan mikið I hús inu og var konan mín mér þar mikil stoð. Þurfti ég enga verkamannavinnu að kaupa við bygginguna. Öll þaú ár, sem Ólafur hef ur ekið strætisvagni hefur hann einnig ekið hjá BSR, þar sem hann hef ur verið „við loðandi frá 1941“ eins og hann segir sjálfur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.