Morgunblaðið - 16.01.1973, Side 16

Morgunblaðið - 16.01.1973, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1973 JKfttgMitlWfifefr Otgefandi Kf Árvekuf, Fteyíojavfk Fremfcvaamda&tjóri HaraWur Sveinsaon. R'rtsitíórar Mattihías Johonnessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. RrtslíórrrarfuHrtrúi Korbijöm Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jóhannssan Auglýsingastjóri Árni Gorðar Kristinsson Rítstjórn og afgreiðsia Aöajstrsati 6, sími 1Ö-100. Aug'ýsingar Aðatetreati 6, aímí 22-4-60 Áskriftargjaid 225,00 kr á 'mémiði in-nanlands I íausasöiru 15,00 ikr eintakið að er eðli lýðræðislegs þjóðfélags, að ákvarðan- ir eru teknar víða, á heimil- um, í fyrirtækjum, í sveitar- félögum, í héruðum.“ Þannig kemst Jónas H. Haralz að orði í merku erindi, sem birtist hér í blaðinu sl. laugardag. Og hann heldur áfram: „Það er í raun og veru að- eins hin almenna stefna, sem er mótuð á einum stað, af ríkisvaldinu sjálfu. Á sínum tíma, þegar þjóðríkið mynd- aðist, var það mikill áfangi í lýðræðisátt, vegna þess að þjóðríkið varð til úr stærri heild. Þegar þjóðir urðu sjálf stæðar fluttist valdið frá mið- depli út á við. Þetta hafði mikla þýðingu fyrir allar framfarir, eins og við þekkj- um bezt frá því að við feng- um heimastjórn 1904 og ákvörðunarvaldið fluttist frá Kaupmannahöfn og hingað heim. En þegar nú er stefnt að því að efla vald þjóðrík- is, er í raun og veru verið að stefna í öfuga átt frá þvi sem var, þegar þjóðríkið varð til. Verið er að taka áhrif og völd, sem væru betur komin annars staðar og færa þau ti’ miðdepilsins. Við getum í stuttu máli sagt, að sá viti gjörst hvar skórinn kreppir. sem ber hann á fætinum. Grundvallaratriðið í stjórn efnahagsmála er einmitt að koma ákvörðunum þannig fyrir, að sá taki þær, sem ber skóinn á fætinum. Inntak stjórnvizku er einmitt þetta. Þjóðfélag, þar sem ríkis- valdið eflist fram úr hófi, er illa virkt þjóðfélag, sem verð ur lítið úr því, sem það hef- ur handa á milli, nýtir ekki framleiðsluþætti sína sem skyldi og verður minna úr gæðunum en unnt væri. En það er einnig ógeðfellt þjóð- félag, sem leggur helsi á sköpunar- og athafnamátt manna og spillir þeim, sem völdum safna og völdum beita í jafnmiklum mæli og það þrúgar þegnana." Jónas Haralz ræðir hér um velferðarríkið og þá þróun, sem átt hefur sér stað að undanförnu víða um hinn vestræna heim, að fjármagn og völd hafi í stöðugt ríkari mæli safnazt saman á hend- ur ríkisins. En afleiðingin hefur orðið sú, að umráða- svið einstaklinganna hefur þrengzt og ríkisvaldið er far- ið að „þrúga þegnana". Það er ekki að ófyrisvnju, sem athygli er á þessu vakin ein- mitt nú, því að á valdatíma vinstri stjórnarinnar hefur siglt hraðbyri í þá átt, að umráðasvið einstaklinga, fyrirtækja og stofnana væri þrengt, samhliða því, sem stjórnendur ríkisins hafa sölsað valdið í sínar hendur. Jónas Haralz víkur að hags munaárekstrunum í nútíma þjóðfélögum og þeim kenn- ingum, sem nokkuð hefur bryddað á, að enga nauðsyn bæri til að auka hagvöxtinn jafn ört og raun hefur orðið á að undanförnu. Ef hagvöxt- ur er lítill er ekki unnt að snúa sér að lausn einstakra viðfangsefna og fjármagna þau, án þess að skerða hag einhverra annarra. Þess vegna sé mikill hagvöxtur forsenda þess, að vandamál nútímaþjóðfélags séu leyst. Hann segir: „Við getum sjálf haft áhrif á það efnahagskerfi og það þjóðfélag, sem við. lif- um í. Þetta gerist fyrst og fremst fvrir áhrif stjórnmála legrar baráttu og athafna. Þá er komið að því að spyrja, hvert stjórnmálaflokkur eigi að stefna, sem öðlazt hefur skilning á þeim málum, sem hér uim ræðir og sem vill freista þess að leiða velferð- arríkið af villigötum.“ Meðal þeirra leiða, sem Jónas hendir á, er að endur- skoða fjármálastjórn ríkis- ins og beinlínis stefna að því að koma í veg fvrir frekari vöxt opinberra útgjalda í hlutfalli við þjóðarfram- leiðslu. En samhliða þarf að ná betri tökum á efnahags- málunum en nú á sér stað. Og síðast en ekki sízt er inn- tak þeirrar stefnu, sem hér er boðuð, túlkuð í eftirfar- andi orðum; höfundar: „Að því er leiðirnar snert- ir, kem ég aftur að því, sem ég hef áður sagt, að mestu máli skiptir að finna rétta ákvörðunarstaðinn í hverju máli, að sá taki ákvörðunina, sem finnur hvar skórinn kreppir. Þar á framtakið og ábyrgðin að liggja, og þetta felur í sér, að valdinu sé dreift til heimila, einstakl- inga, fyrirtækja, byggða og sveitarfélaga. Jafnframt ma ekki gleyma því, að sömu lögmál um dreifingu valds og ábyrgðar eiga líka við innan fyrirtækja og stofnana.“ Hér er fjallað um það meg- inmál, sem sköpum skiptir í þjóðfélagsþróuninni. Annars vegar þá stefnu, að skerða einstaklingsfrelsi og fjötra athafnafrelsi með ofstjórn ríkisvalds og hins vegar þá stefnu, sem Sjálfstæðisflokk- urinn boðar, að takmarka eigi valdssvið ríkisins, en auka vald einstaklinga og margháttaðra stofnana i þjóðfélaginu. Hér er því um að ræða stjórnmálabaráttu, þá baráttu, sem sjálfstæðis- menn þurfa mjög að efla til að forða þjóðinni frá hinu þrúgandi ríkisvaldi. VALDINU VERÐUR AÐ DREIFA VESTUR-BERLÍN — DOFNANDI VITI eftir C. L. Sulzberger VESTUR-Berlín — þetta fræga tákn á Vesturl&ndum siðasta aldarfjórðung sem frelsisviti í landfræðilegri miðju þess hluta Evróu, sem kommúnistar ráða, virðist dæmd til þess að færast inn á baksvið sögunnar — og það er senniíega lítið, sem unnt er að gera við því. Þegar bandalag fjórveld- anna, sem sigruðu í síðari heimsstyrjöldinni, leystist upp í Sovétríkin andspænls hinum þremur, varð Vestur- Berlín tákn um samheldni Vesturlanda. Árið 1948 ein- angruðu stjórnvöldin i Moskvu þessa fyrrverandi höfuðborg Þýzkalands, en loft brúin fræga neyddi Stalín til þess að láta undan. Kruzhev varð til þess að aðskilja aust- urhlutann frá vesturhlutan- um, en Kennedy forseti kom á vettvang og tilkynnti í nafni frelsins: — Ich bin ein Berlín- er. Hver svo sem ágreiningur- inn var, sem stundum kom upp í öðrum málum, þá stóðu stjómirnar í Washington, London og París fast saman varðandi Berlín. Þær héldu fast við heimild sína um að fá að hafa her i Vestur-Berlín, óhindraðan aðgang til borg- arhlutans og efnahagslega framtíð hans. Vestrænt setu- lið hefur haldið áfram að vera í borgarhlutanum, 27 ár- um eftir hrun nasista og her- bílar Vesturveldanna fara þar eftirlitsferðir í þvi skyni að halda þar uppi röð og reglu. Þýzka sambandslýð- veldið, sem nú er óaðskiljan- legur hluti af NATO, leg.gur af mörkum geysilega aðstoð. En nú, hægt en óhjákvæmi- lega, breytist staða Vestur- Berlínar með oreyttri Evrópu. Þetta hlýtur að vera óhjá- kvæmileg afleiðing af austur- stefn-u Bonnstjórnarinnar, hvað svo sem annað gerist. Önnur yfirvofandi afleiðing þeirrar stef-nu er stjórnmála- leg viðurkenning á Austur- Þýzkalandi af hálfu nær allra vestrænna ríkja, sem annarra og að sendir verða til Austur- Berlínar sendiherrar frá Bandaríkjuinum og öðrum NATO-löndum. Þannig verð- ur Austur-Berlín allt í einu fullkomin höSuðborg á al- þjóðamælikvarða. Augu .heimsins, sem hingað til hafa beinzt að Vestur- Beriin, munu nú snúast að hinum hlutanum í þessari klofnu borg. Hinum megin við múrinn eiga hundruð sendistarfsmanna eftir að aka um með sendiráðsmerkj-um á bílum sínum, en í vesturhlut- anum bera herbílar banda- manna og opinberar bifreiðar Bandaríkjanna, Bretlands og Frakkiands merki herstjórna sinna. Samt sem áður verður engin herstjórn fyrir hendi. Það er undarleg mótsögn, að Vestur-Berlin skuli verða siðasti hlutinn af „hernáms- svæðinu" frá þvi í síðari heimsstyrjöldinni og að þetta „hsrnám“, sem er algjöriega velvlljað, skuli ekki einungis vera samþykkt, heldur einnig umbeðið af Vestur-Berlínar- búum og Vestur-Þjóðverjum sjálfum. Sökum verndar fámenns setuliðs ba-ndamanna þar hef- ur tekizt að viðhalda þar full komnu frelsi og útvarps- og sjónvarpsstöðvar þar senda út óheftan boðskap til Aust- ur-Evrópu. Vegna einbeitni bandamanna hefur aðflutn- íngsleiðum frá V-Berlín til Sambandslýðveldisins verið haldið opnum. Og með aðstoð Bonnstjórnarinnar ríkir vel- megun í Vestur-Berlin. En hve lengi helzt þetta, eftir að Austur-Berlín verður orðin viðurkennd af öllum sem höf- uðborgin í fullvalda austur- þýzku ríki? Stjórnin í Moskvu þarf ekki að gera neitt óvænt til þess að breyta núverandi ástandi. „Hernámið“ og her- liðið geta haldizt til staðar í hið óendanlega. Aðgangur Vesturveldanna til V-Berlín- ar verður öruig.gleiga áfram fyrir hendi. Og svo lengi sem Bonnstjórnin er fús til þess að legigja fram 2.000 millj'. dollara á ári í fjárveitingum og skattfriðindum, mun vel- m.egunin ríkja áfram í Vest- ur-Berlin, en það mun ekki lýsa af henni framar. Franz Josef Strauss, sem ráðið hefur hvað mestu um florystu stjórnarandistöðu- flokkanna, hefur látið haía eftir sér: „Staða borgarinnar hlýtur að breytast til hins verra. Eftir því sem augu heimsins beinast meira að Austur-Berlin, verður Vest- ur-Berlin smám saman hæli fyrir gajmalt fólk, hnignandi borg, sem reiðir sig á hjálp okkar til þess að geta lifað. Hún verður ekki lengur frels- isviti. Og ekki enu minnstu likur á því, að múrinn verði brotinn niður." Hve lengi mun einbeitni bandamanna og örlæti Vest- ur-Þjóðverja halda áfrjim að styðja þá tímaskekkju, sem Vestur-Berlín verður, þegar hún tekur að glata sínu mik- ilvæga álitsgildi? Hve lengi eiga afkomendur þeirra herja, sem sigruðu Hitler, eft ir að halda áfram að fara eft- irlitsferðir eftir þessum breiðu viðhafnargötum? Þegar til lengdar lætur, tekst landafræðinni venjiu- leg.a að merkja rás atburð- anna sínum óhagganl&gu rök- um. Þeirri spennui, sem. eitt Framliald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.