Morgunblaðið - 16.01.1973, Qupperneq 32
Offsetprentun
tímaritaprentun
lítprentun
Freyjugötu 14' Sínti 17667
THotmtttMafeifr
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANUAR 1973
RUCLVSinCRR
«g.^*2248Q
Morðtilræðið í Breiðholti:
Árásarmaðurinn ber við
ölvun og minnisleysi
- gefur engar skýringar á skotárásinni
— úrskurðaður í allt að 60 daga gæzluvarðhald
og geðrannsókn
STÖÐUGAR yfirheyrslur voru á sunnudag og í gær yfir Haraldi Ólafssyni, 26 ára gömlum
Reykvíkingi, sem um kl. 14 á sunnudag réðst inn í íbúðir í fjölbýlishúsi að Yrsufelli 11 í
Breiðholti og særði þrjár manneskjur með haglaskotum. Hefur Haraldur enga skýringu gef-
ið á þessu atfreli sínu, en ber við minnisleysi varðandi atburðina vegna ölvunar. Hann var í
gær úrskurðaður í allt að 60 daga gæzluvarðhald og gert að sæta geðrannsókn. Þrjár
manneskjur særðust í skotárásinni: Elín Ólafsdóttir, 49 ára gömul, fyrrverandi tengda-
móðir árásarmannsins, hlaut skotsár á kviði og læri; Þórhallur Gunnlaugsson, 15 ára son-
ur hennar, hlaut minni háttar meiðsli á brjósti; og Hafsteinn Jósefsson, 36 ára gamall,
sem á heima á næstu hæð fyrir neðan mæðginin, skaddaðist svo mjög á hné og fótlegg,
að taka varð fótinn af ofan við hné. Þau Elín og Hafsteinn hafa bæði verið flutt af gjör-
gæzludeild Borgarspítalans yfir í aðra deild. Þórhallur fékk hins vegar að fara heim á
sunnudagskvöldið eftir að gert hafði verið að sárum hans.
Lögreglunni barst fyrst til-
kynningin um ferðir árásar-
mannsins, er hjón, sem búa á
efstu hæð fjölbýlishússins,
þeirri sömu og Elín og fjölskylda
hennar, hringdu og sögðu að
maður með byssu væri að reyna
að komast inn í ibúð Elínar.
Voru hjónin nýbúin að koma son
uim sínum af stað í kvikmynda-
hús, er þau heyrðu mikla skruðn
inga á stigaganginum. Fóru þau
Leigubílstjórar:
hækkun
VERÐLAGSNEFND afgreiddi
eitt mál á fundi sinum í gær;
heimifld til leigubilstjóra til að
hækka taxta sína um 20% frá
þvi sem þeir eru núna.
að aðgæta hvort drengirnir hefðu
dottið í stiiganum, en sáu þá
byssumanriánri. Lokuðu þau þá
strax að sér og hringdu í lög-
regluna. Rétt á eftir heyrðust
skothveWir og óp. Skömmu siðar
var bankað á svalahurðina að
ibúð þeirra og var þar kominn
Þórhallur Gunnleugsson og
sagði, að maðurinn væri að
skjóta mömmu sína. Sjálfur var
Þórhallur særður á brjósti, en
hann hafði orðið fyrir flísum, er
byssumaðurinn skaut í gegnum
hurðina að íbúðinná.
Hann hljóp þá út á svalir og
klifraði yfir á næstu svalir og
Framhald á bls. 31.
Hér sést hvernig eldhúshurðin er útlítandi eftir að byssumað-
urinn skaut í gegnum hana og særði Elínu Ólafsdóttur.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
HÓTAÐI AÐ SKJOTA
YFIRLÖGRE GLUÞ JÓNINN
— þegar honum var neitaö um
byssuleyfi. Keypti síðar
riffil norður í landi án leyfis
LÖGREGLAN í Reykjavik hef-
ur á undanförnum mánuðum
þurft að hafa afskipti af Har-
aldi Ólafssyni vegna ofsóknar
hans gegn fyrrverandi eiginkonu
og fjölskyldu hennar. Þessi af-
skipti hafa hvað mest mætt á
Bjarka Elíassyni, yfirlögreglu-
þjóni, en hann hefur einnig þurft
að hafa afskipti af lionuni fyrir
fleira, m.a. neitað Haraldi nm
byssuleyfi og fékk fyrir morð-
hótun.
Haraldur kom til Bjarka fyrir
um það bil einu ári og óskaði
eftir að fá bysisuleyfi. Þar eð
Bjarki þekkti hann af fyrri
reynslu, t.d. fyrir ofsóknirniar
gegn eiginkonu sirnni, kvaðist
hamn ekki geta veitt Haraldi
leyfið. Brást Haraidur mjög reið
uir við þessum svörum, kvaðst
engu að síður mundu fá sér
byssu og skyldi Bjarki verða
fyrsti maðurinn, sem hann skyti,
þegar hann hefði fengið byss-
una.
1 júlimánuði í sumar var svo
Haraidur tekimn öLvaður við
akstur, og fannst þá í bítnum
sjálfvirkur riffiil. Við eftir-
grennslan kom í ljós, að Haraid
ur hafði fengið riffiilin.n keyptan
norður í landi án þes að sýne
byssuleyfi, en með loforði að
hann skyldi senda vot'torð siðar
u>m að hann hefði slíkt leyfi. Riff
illinn var óðar tekinn af Har-
Framhald á bls. 31.
Hafsteinn Jósefsson afvopnaði byssumanninn en fékk skot I
hnéð. Hér sést hann ásamt tveimur sonum sínnm, Sverri Má
og Víkingi Emi.
„Hugrekki Hafsteins
réð úrslitum“
> • «
— segir félagi hans, Olafur Ogmundsson, sem
tókst að afvopna og yfirbuga árásarmanninn
„ÞÓTT ég hafi verið svo hepp
inn að geta náð byssnnni af
árásarmanninum og þannig
getað komið í veg fyrir að
hann skyti á fleiri manneskj-
ur, þá er það fyrst og fremst
Hafsteini áð þakka, því að án
hiks gekk hann á móti árásar-
mnnninum og tók í byssu-
hlaupið og sagði honum að
skjóta ekki. Árásarmaðurinn
skant samt, en síðan kom hik
á hann og það nægði tál þess
að mér tókst að komast að
honum.“ Þannig fórust orð
Óiafi Ögmundssyni, 28 ára
gömlum vélvirkja, er Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær,
en hann náði byssunni af árás
arnianninum eftir skotárásina
í Breiðhoitinu í fyrradag og
tókst síðan að skella mannin-
um í gólfið og halda honum
þar unz lögreglan kom á stað-
inn rétt á eftir.
ÓLafur rekur í samvinnu við
Hafstein Jósefsson bifvéla-
verksitæði og var hann í
stuttri heimsókn á heimili Haf
steins að YrsufeLli 11, er skot-
árásin var gerð á íbúa húss-
ins. „Við Hicjfsteinn höfðum
arilað að fara að vinma á verk
stæðinu þemnan dag,“ sagði
Ólafur í viðtali við Morgum-
blaðið, „og ég hafði fengið vin
mimn til að aka mér á verk-
stæðið, Em þegar þaingað kom
fanm ég að ég hafði gleymí
liykiumium og bað vin mimm því
um að aka mér heim til að
sækja þá. En allt í eimiu beygði
hamin af leið og er ég sputrði
hanm hvers vegma, sagði hanm,
að muin stiyttra væri heim tll
Hafs'teims. Ég lét það gott
heita. Er þamigað komn, ætlaði
ég að fá lyklama, em þá baúð
kon® Hafsfeinis mér upp á
kaffisopa og spurði hvort ég
Framhald á bls. 31.