Morgunblaðið - 11.02.1973, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1973
Sjötugun
Gunnlaugur Briem,
ráðuney tisstj óri
Ég get ekki látið hjá líða að
ssenda bekkjarbróður mín-
um, Gunnlaugi Briem, kveðju af
tilefni sjötugs afmælisins, þótt
síðbúin sé hún af ástæðum, sem
ég réð ekki við. Það er nú kom-
ið drjúgt á 57. árið síðan við hitt
umst fyrst, og varla hægt
að segja að leiðir okkar hafi
skilið siðan, nema rétt um stund
arsakir; að visu svo árum skipti,
meðan ég var við nám erlendis,
en samt sem áður ættum við að
vera farnir að kannast sæmilega
hvor við annan.
Fyrstu kynni okkar hóf-
ust þegar við vorum að búa okk
ur undir innigwngiu í menmtaskól-
ann og Gunnlaugur varð mér
ögleymanlegur við fyrstu sýn.
Hann var svo eðlilega glaður og
frjálsmannlegur, þessi granni og
hávaxni piltur og lífsfjörið og
þrótturinn ólgaði svo í honum,
atð hann bókstaflega réð ekki
við sig. Mér, sveitastráknum, sem
varla hafði komið út fyrir tún-
garðinn áður, fannst inntöku-
prófið í menntaskólann vera sam
felld röð ákaflega alvarlegra og
mikilvægra atburða, og var vist
ekki mjög upprifinn eða upplits
djarfur um þær mundir, en
Gunnlaugur virtist ekki láta
neitt slíkt á sig fá, enda vel und
irbúinn og þurfti því engu að
kvíða. Hann var jafn syngjandi
glaður á hverju sem gekk og
virtist ekki skynja hið minnsta
þá miklu alvöru Iífsins, sem við
stóðum í. Ég öfundaði strax
þennan fullhuga, sem stóð eins
og klettur úr hafinu og var
aldrei ærslafengnari en þegar
mér fannst mesta alvaran standa
fyrir dyrum. Ég get ekki neit-
að því, að mér fannst þessi þrótt
mikla lífsgleði Gunnlaugs ein-
kennilega smitandi. Það var eins
og lif færðist í allar tuskur um
leið og Gunnlaugur birtist, og þá
fór alltaf eitthvað skemmtilegt
og spennandi að gerast. Þvi virt-
ust lítil takmörk sett hverju
hann gat fundið upp á til að
koma af stað gleðskap og ærsl-
um. En áreitni eða að gera á
hliut noikkurs manns var ekki
til í fari hans. Ætli að nokk-
um hafi grunað það í þá daga,
að Gunnlaugur ætti eftir
að verða einn af virtustu emb-
ættismönnum þjóðar sinnar, sem
fylgdi ábyrgðarmiklum störfum
sínum eftir af meiri festu og al-
vöru en flestir aðrir. Það var
síður en svo fjarstæða að
imynda sér slikt. Ætt hans og
uppruni gerðu það fyrst og
fremst líklegt. Og gegnum allt
ólgandi æskufjör Gunnlaugs
mátti greina eitthvað óvenju
traust, djarflegt, drengilegt, gott
og hreinskipfið. Auk þess sem
óhaggað stendur, að oft verður
góður hestur úr göldum fola.
Gunnlaugur Briem var einn með
al allra fjörmestu unglinga, sem
ég hefi kynnzt og hann hefur
verið einn þeirra fáu, hamingju
söimu manna, sem 'alia tíð hafa
haldið sinni þróttmiklu skap
gerð óbreyttri og ósigrandi lífs-
gleði.
Starfsferill Gunn'laugs er orð
inn langur og æði margþættur,
þótt stöðu hans sem ráðuneytis-
stjóra beri hæst, og enginn, sem
fylgzt hefur með starfsferli
Gunnlaugs, mun draga í efa það,
sem sagt hefur verið um hann,
að hann sé einn reyndasti
og virtasti embættismaður þessa
lands. Og það hlýtur að verða
landbúnaðarráðherranum þung
raun að eiga nú í vændum að
fnissa hann sem ráðuneytisstjóra.
Og heppinn má landbúnaðarráð
herra vera í valinu með eftir-
manninn, ef hann á ekki að
finna sárt til þess að
missa Gunnlaug.
En Gunnlaugur hefur auk að-
alstarfs síns, sinnt fjölda mörg-
um trúnaðarmálum fyrir hið op-
inbera, setið í fjölmörgum nefnd
um og ráðum. Senni'lega hefur
sáttasemjarastarfið verið eitt af
þeim viðfangsefnum, sem hvað
mest hefur reynt á hann. 1 þvi
vann hann um árabil með Torfa
Hjartarsyni fv. tollstjóra, sem er
mestur mannasættir á Islandi og
allra manna frægastur fyrir að
setja niður deilur manna á með-
al. Það veit ég, að honum fannst
mikið til um Gunnlaug í því
starfi og sannarlega stóð hann
MAGGI -súpur
gerðar af sérfræöingum
framreiddar af yður
4 6 SERVIN6S ASSIETTEt
Svissneskir kokkar eru frábaerir matreiðslumenn. Þeir einir kunna
uppskriftir af MAGGI-súpum. En þér getið framreitt þessa kostafæðu
með lítilli fyrirhöfn. .
MAGGI sr
MAGGI-súpur
frá SVISS
eru beztar.
• Matseldin tekur aðeins 5 mínútur
• Þér getið valið um 18 Ijúffengar tegundir.
MAGGPs
ekki einn uppi meðan hann hafði
Gunnlaug við hlið sér í hinu
mikla völundarhúsi vinnudeiln-
anna og i öllum þeim vandleystu
og viðkvæmu málum, sem þar
eru jafnan á döfinni. Heyrt hefi
ég sanngirni Gunnlaugs, lang-
lund.argeði oig bugkvæmmi við-
brugðið í þeim skiptum, en þeg-
ar viðsemjendur gerðust á stund
uim sivo þrjózki.r ag ósamvinnu-
þýðir, að ekki þótti lengur sæm-
andi, er sagt að hann hafi átt til
að verða æði aðsóps- og gust-
mikill, og engum heiglum hent
að standa augliti til auglitis við
hann, enda man ég ekki til þess
að hafa heyrt Briemunum brugð
ið um geðleysi.
Hjálpsemi Gunnlaugs og um-
hvggja fyrir okkur bekkjarfé-
lögum hans hefur verið frábær
alia tið. Um leið og eitthvað hef
ur bjátað á, hefur hann fyrst-
ur allra verið boðinn og búinn
til að láta í té allt sitt liðsinni.
Þar hefur hvort tveggja hald-
izt í hendur, að hann hefur ver-
ið hrókur alls fagnaðar á gleði-
fundum okkar, en jafnframt höf
um við ekki síður átt hluttekn-
ingu hans i mótlæti og erfið-
leikum, og holráðari mann en
Gunnlaug Briem hefi ég ekki
fyrir hitit.
Samheldni og vinátta innan
bekkjarins okkar, sem útskrifað
ist úr menntaskólanum 1922, hef
ur löngum verið viðbrugð-
ið. Temgsiliin hafa haldizt mjög
náin gegnum ÖU þessi ár, og sein
ast í vor fundum við að allt var
þetta ófölskvað á 50 ára stúd-
entsaf mæli okkar.
Ég er ekki í neinum vafa um
að enginn hefur átt drýgri þátt
i því að styrkja þessi
nánu tengsl en Gunnlaugur
Briem, án þess að ég sé að gera
neitt lítið úr hlut okkar hinna
og vitanlega byggist öll sam
heldni á þvi að vilji allra sé
fyrir hendi. En einn maður get-
ur þó gert mikið til að skapa
þann vilja og viðhalda honum.
Út úr stúdentsárganginum frá
1922 kristallaðist dálítill hópur,
sem batzt alveg sérstökum
tryggða- og vináttuböndum, og
gerði sér það að reglu að hitt-
ast jafnan, stundum oft á ári,
og svo er enn, þó að fundium hafi
nú fækkað í seinni tíð, vegna
þess hvað stór skörð hafa ver-
ið höggvin í hópinn okkar hin
síðari ár.
Við Gunnlaugur Briem vorum
báðir svo hamingjusamir að
lenda í þessum litla f’lokki.
Afmæli eru eins margvisleg og
mennirnir, sem eiga þau. Sum
eru bráðskemmtileg, önnur þvert
á móti og allt þar á milli. Og
svo eru enn önnur, sem eru
hvorki eitt né neitt, vegna þess
að ekki er haldið upp á þau.
En afmælin hans Gunnlaugs
Briem hafa aldrei bnuigðizt —
þau hafa verið samfelld keðja
skemmtilegra atburða í lífi okk-
ar bekkjarfélaga hans, sem næst
ir honum hafa staðið og við höf-
um verið svo lánsamir að geta
næstum óslitið tekið þátt í þeim,
ásamt fjölskyldu hans og öðrum
vinum og velunnurum, og
nú bættist stóra perlan í röðina
með sjötugs afmælinu. Það er
hreint útilokað, að Gunnlaugur
Briem og kona hans gætu haldið
annað en skemmtilegt af-
mæli, eins og reyndin varð í
þetta skipti: ógleymanlegt kvöld,
þar sem hjónin tóku glöð og reif
móti gesitum sinium af mikiffld
rausn og börnin öll viðstödd.
Guðrún hjúkrunarkona og
Garðar tæknifræðingur, bæði
prýðilega gift og búsett í Reykja
vík. Eggert héraðsl. á Dalvík,
kominn að norðan ásamt konu
j sinni, til að taka þátt í hinum
| mikla heiðursdegi föður síns. Og
ekki skal gleyma mjög ánægju-
legum og efnilegum bamabörn-
j um, sem þarna voru stödd. Öll
: eru börn Gunnlaugs glæsilegt
| fólk og vel gert í alla staði, sem
| sýnir foreidrum sínum frábæra
; ástúð og umhyggju. GæÞisamur
maður Gunnlaugur Bríem og
Þóra kona hans.
Fyrir hönd okkar bekkj-
arsystkinanna og maka okkar,
þakka ég Gunnlaugi og Þóru frá
bæra samfylgd og órofa tryggð
á langri leið.
Bjarni Bjarnason.
UNIVOX
VERÐ:
AÐEINS 790 KR.
Lærið nýtt tungumál fyrir
næstu utanlandsferð.
8 plötur, 33ja snúninga.
2 hefti, erlendur texti,
íslenzk þýðing.
Efni námskeiðanna miðast við helztu þarfir á
ferðalögum erlendis.
Innfæddir kennarar lesta textann.
í>ér hlustið á réttan framburð.
Enska — þýzka — spænska — franska — ítalska
— sænska — norska — finmska — rúsisneska.
Sendum gegn póstkröfu.
Skrifið eða hringið í síma 94-3352 mánud,—föstud.
klukkam 13—17.
SALVAL pósthólf 46, ISAFIRÐI.