Morgunblaðið - 22.03.1973, Qupperneq 21
Þóröur Jónsson, Látrum:
Stórstreymi og eldgos
Árni .Tohnsen frá Vestmanna
eyjum, sem veit flest um eyj-
arnar sínar og heldur sig hjá
þeim í þrengingum þeirra, sló
því fram hér i blaðinu fyrir
nokkru, að menn ræddu um
það þar úti, að eitthvert sam-
band kynni að vera milli hegð-
unar gossins og stórstreymis.
Þegar ég fór að hugsa út í
þetta, fannst mér mjög senni-
legt að svo væri, minnugur sem
bóndi hinna miklu og margvís-
legu áhrifa stórstreymis.
Bændur landsins hafa sjálf-
sagt vitað það frá ómunatíð, að
áhrif tunglsins á jörðina sjálfa
og flest sem á henni er, eru
mikil og margþætt. Þeir vissu
að við stórstreymi þenst eða
tognar á jarðskorpunni það
mikið, að til dæmis torfrista
gat verið ágæt i smástraum.
Torfurnar, sem voru um 6 fet
á lengd og eitt og hálft á
breidd, voru þéttar og meðfæri
legar án þess að detta i sund-
ur, en á sama stað í stórstraum
gat torfið verið ónothæft, gras
rótin gróf og sundurlaus, sem
sagt óhæft til þakgerðar. Á
þessu urðu fyrri menn að vita
skil vegna frumstæðrar húsa-
gerðar úr þeim efnum, sem jörð
in gaf.
í þessu sambandi datt mér í
hug franski eldfjallafræðingur
inn, sem var í Heimaey um stór
straum og taldi eyjuna vera að
tútna út vegna eldsumbrot-
anna. Það er ekki alveg víst,
þó ég vilji ekki vefengja vís-
indamenn, að það hafi verið
vegna þeirra, þar sem þau
voru búin að fá útrás, eins gat
það verið af völdum stór-
straumsins. Áhrif stórstreymis
gæti verið mælanleg með ná-
kvæmum tækjum. Hin miklu
öfl úti í geimnum, sem halda
þessu öllu gangandi, láta ekki
að sér hæða.
Þegar komið er að því að eld
gos verði, af ástæðum sem vís-
indin þekkja, og ef til vill öðr-
um sem óþekkt eru, þá gætu
ytri ástæður vafalítið hjálpað
til að koma gosinu af stað, eins
og til dæmis stó'rstreymi, djúp
lægð yfir staðnum o.fl. sam-
verkandi aðstæður.
Það er ekki ólíklegt, að flest
eldgos hefjist í stórstraum. Ég
hef aldrei séð neitt um þetta
frá innlendum eða erlendum
jarð- eða eldfjallafræðingum,
en það væri gaman að heyra
um það frá sérfræðingum okk-
ar, hvort þeir teldu samband
þarna á milli.
Ég efast um, að það sé tilvilj
un, hversu mörg eldgos hafa
byrjað hér í stórstraum, til
dæmis í Surtsey 1963, í Heima-
ey 1973, í Öskju 1961, og svo
þrjú síðustu Heklugos 1945,
1947 og 1970 svo eitthvað sé tal
ið. Þó hefjast þessi Heklugos
engin nákvæmlega þá daga,
sem stærstur er straumurinn,
en í námunda við stærstan
straum. Þar gætu önnur ytri
áhrif hafa ráðið um, eins og af-
staða tungls til jarðar o.fl.
Það má vel vera, að vísinda-
menn okkar viti flest um áhrif
stórstreymis á eldgos o.fl., þótt
það sé ekki almenningi ljóst.
Að mínu viti og minni ósk er
alltof lítið gert að því, að
kynna þjóðinni ýmsar vísinda-
legar rannsóknir á hinum marg
víslegu sviðum, til sjós, lofts
og lands.
Hannsóknaráð ríkisins ætti
að athuga þetta mál. Ég held
að allur þorri fólks í landinu,
sem ekki er visindafólk, nema
í eðli sínu, mundi taka slík-
um fréttum og fróðleik mjög
fegins hendi.
Sendi svo öllum Vestmanna-
eyingum beztu kveðju og vona
að þeir megi sem fyrst kom-
ast í eyjuna sína og eiga þar
áfram langa og góða framtíð.
Látrum 1.3. 1973.
Einn sá veðraversti
Mykjunesi, 4. marz —
ÉG HELD að febrúarmánuður
sá, sem nýskeð hefur kvatt, sé
einn sá veðraversti febrúarmán-
uður, er hér hefur komið um
langt árabil. Stormar tíðir og
miklar úrkomur, ýmst regn eða
snjór, þó að snjórinn hafi haft
betur og hér er nú allmikill snjór
og klaki í jörð. Allir vegir eru
færir, en á þeim er sums staðar
Waki og hefur hlað'zt upp þegar
bleytt hefur í snjónum. Nú eru
öll þorrablót fyrir nokkru afstað
in eins og gefur að skilja í mið-
góu og er þá litið um samkomur,
enda er nú obbinn af vetrinum
að baki og farið að hilla undir
vorið með hækkandi sól, þó vetr
arlegt sé á yfirborði jarðar'nnar.
í janúar gekk hér mislingasótt
í börnum og var skólanum á
Laugalandi lokað a.m.k. í viku af
þeim sökum. Einnig hefur hettu
sótt stungið sér niður. Að öðru
leyti hefur ekki gengið kvef i vet
ur og heilsufar verið ágætt.
Eins og frá hefur verið skýrt
áður er nokkuð af fólki frá Vest-
mannaeyjum hér á svæði Lauga-
landsskóla og hefur skólastjórinn
tjáð mér að þaðan hafi 11 böm
komið i skólann eftir að gosið
hófst. Og sem betur fór var bæði
pláss í skólanum og hér eru á
gætir kennslukraftar.
Hér fellur öðru hvoru aska frá
gosinu og hefur það farið vax-
andi nú i seinni tíð, t.d. varð
snjórinn mjög dökkur nú fyrir
nokkrum dögum, en þá var mjög
hvöss sumnanátt. Gosdrunurnar
heyrast hér grenilega af og til.
Nokkuð hefur borið á því í vet
ur að sauðfé hafi drepizt úr svo
nefndri Hvanneyrarveiki og hafa
einstaka bændur misst þó nokkr
ar kindur af þeim sökum. Er
helzt kennt um slæmu eða
skemmdu fóðri þó að tilfellin
verið ekki rakin til þeirra orsaka.
Gjafatimi verður að þessu sinni
óvenjulangur því viðast hefur fé
verið gefið síðan í vetumætta-
bylnum seint í október. Og þó
ekki hafi verið miklir snjóar
svona yfirleitt eða frosthörkur
þá hefur oft verið þannig veðra
hamur, að fé hefur haldið sig
við hús. Það hefði verið slæmt að
fá þennan vetur i mestu kalárun
um, en nú eru næg hey til þó þau
séu ekki að sama skapi gott fóð-
ur.
Urn helgina 24.—25. febrúar sl.
var Héraðsþing Skarphéðins
haldið að Laugalandi hér í Holt
um. Voru þar mörg mál til um-
ræðu og margar samþykktir
gerðar. Sambandið nær yfir Ár-
nes- og Rangárvallasýslur og er
starf þess mjög víðtækt og þrótt
mikið svo sem jafnan hefur ver
ið. Formaður sambandsins er Jó
hannes Sigmundsson, Syðra-
Langholti.
Og svo væntum við þess, að
vorsólin fari bráðum að bræða
klakanm af jörðinni.
— M. G.
Ur Austur-Skagafirði
Bæ, Höfðaströnd, 3. marz
HÉR er nú vetur í bæ — frá-
munalega óstillt, þó er varla
hægt að segja fannkyngi. Að
mestu er þó haglaust fyr'.r allan
fénað og er það líklegast um alit
hérað'ð. Eins og sagt var frá í
haust eru næg hey, hrossum er
viða gefið út eða þau höfð á
gjöf.
Bændur eru og hafa að undam
förnu verið við uppgjör framtala
fyrir 1972. Virðist mér afkoma
betri en undanfarin ár, þó allt
sem framkvæmt er hlaupi nú á
stórum upphæðum og rekstur
margra búgreina meiri en marg
ur gerir sér ljóst að óathuguðu
máli.
Þorri er Iðinn og öll þorrablót,
sem honum fylgdu, en nú verður
að hafa eitt til tvö blót í hverj-
um hrepp. Nokkuð eykst að fólk
panti sér þorramat frá veitinga-
húsum og þá helzt frá Sauðár-
króki, Reykjavík og Borgarnesi.
Er þetta tilbreyting sem íólki
þykir gaman að reyna.
Föstudaginn 2. marz hélt Ung
mennafélagið Geisli í Óslands-
hlíð upp á 75 ára afmæli sltt að
viðstaddri stjórn Ungmennasam
bands Skagafjarðar og fjölda
annarra gesta. Félagið Geisli
mun vera eitt það elzta, sem
starfað hefir á þessum grund-
velli, þó fyrstu árin héti það bind
indisfélag. Eftirtektarvert er,
hve glöggar heimildú þar eru í
fundargerðum um störf félagsins
og ýmisskonar fróðleikur er þar
samansafnaður eftir þessi 75
starfsár. Ber þar vott um óvenju
blómlegt félagslíf og samheldni í
þessari sveit.
Töluvert ber á tófuslóðum úr
fjöllum niður til sjávar í leit að
æti, jafnvel sjást slóðir heima á
túnum.
Litið er unn'ð að bygginga-
framkvæmdum í sveitinni á þess
um tíma en i Hofsósi er unnið
að krafti við félagsheimili, sem
á nú að byggjast upp og ljúka í
einum áfanga. Hefir nú á stutt-
um tíma verið greiddar út um 4
milljónir króna, Eru þar 11
menn fastir starfsmenn auk í-
gripamanna. Mikill áhugi ríkir
um að ljúka þessari framkvæmd
enda þarf húsið að vera tilbúið
að einhverju leyti til skólahalds
fyrir næsta haust. Verður húsið
bæði skóli og félagsheimili. Ér
félagsheimilinu mikill styrkur að
þeim tengslum. Búið er að vinna
120 til 130 gjafadagsverk, aðal-
lega frá verkamannafélagi og
ungmennafélögum hreppsins. —
Byrjað var á viðbótarskólabygg
ingu á síðasta ári, en sú vinna
hefir legið niðri í vetur. Ákveðið
er nú að framvegis verði einn
skóli í Hofsósi 'með heiman-
keyrslu úr nærliggjandi hrepp-
um.
Ekkert er nú Ttið til sjávar og
þvi erfitt að fá nýjan fisk til mat
ar. Togskipið öm er nú á loðnu
veiðum og er þegar þetta er
skráð vel í meðallagi með afla.
Gerum við okkur vonir um að
loðnuvertíðin verði útgerðinni
bjargráð.
Heilsufar fénaðar má heita
gott, en í mannfólki hafa kvillar
gengið, þó er þar ekki talinn
neinn faraldur.
— Björn i Bæ.
K YNNIN G ARRIT UM
ÆSKULÝÐSSTARF
Víða þungatakmark-
anir á vegum landsins
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
hefur nú ráðið sérstakan starfs-
kraft til þess að annast kynn-
ingu á æskulýðsstarfi í höfuð-
borginni, bæði starfi Æskulýðs-
ráðs og annarra, sem að æsku-
lýðsstarfi vinna. Þessar upplýs-
ingar komu fram í ræðu Markús-
ar Amar Antonssonar (S) á
fundi borgarstjórnar á fimmt.u-
daginn var.
Sigurjón Pétursson (K); Nú
fer í hönd sá timi, er fjölskyldur
fara að huga að sumarstarfi
bama sinna. Ég held, að fæstir
geri sér grein fyrir þvi mikla
æsikulýðsstarfi sem fram fer á
vegum borgarinnar. En af því má
m.a. nefna, að í Saltvik er reið-
skóli og væntaniegar sumarbúð-
ir. 1 Nauthólsvik er siglinga-
klúbbur og auk þessa er svo
hverfastarf Æskulýðsráðs, skóla-
garðar, íþrótta- og leikjanám-
skeið. Þetta starf tel ég að sé
alls ekki nægilega vel kynnt og
legg ég því tii, áð aliir þeir aðil-
ar, sem þessum málum sinna,
gangi sem fyrst frá samræmdum
áœtiunum og gefi út kyniningar-
bækling um þetta til dreifingar í
skólum.
Kristján 1. Gunnarsson (S):
Ég er fyllilega sammála því, að
æskilegt og nauðsynlegt er að
kynna æskuiýðsstarf borgarinn-
ar sem bezt. Venjulega er þvi
þannig varið, að nýjungar í
starfmu eru kynntar vel og ræki-
lega i gegnum skólana en síðan
aðeins með auglýsingum i blöð-
um um hvert einstakt námskeið.
Tiliaga Sigurjóns er því bæði
þörf og góð og legg ég eindregið
til að hún verði samþykkt.
Markús Örn Antonsson (S):
Ég er eindregið fylgjandi tillögu
Sigurjóns Péturssonar og vona
að hún verði samþykkt. Síðastlið-
ið vor var einmitt rætt um þessi
mál í Æskulýðsráði en ekki
reyndist unnt að láta verða af
fraimkvæmdum, vegna þess að
starfskraft skorti. En nú hefur
verið ráðin böt á því og maður
verið fenginn til þess að undir-
búa kynningu á starfi Æskulýðs-
ráðs og annarra, sem hafa æsku-
lýðsstarf með höndum.
Menn eru aftur á móti ekki á
eitt sáttir um, hvernig haga eigi
þessari kynningu, þ.e. hvort
henni eigi eingöngu að beina til
skólanemenda í gegnum skólana
eða hvort fara eigi aðrar leiðir,
þar eð Æskulýðsráð þarf, eins og
allir vita, að ná til fleiri en þeirra,
sem í skólum eru. Ég tel einmitt,
að hér sé um að ræða kjörið
starfssvið fyrir upplýsingafull-
trúa borgarinnar, en tiliaga mín
um hann mun nú vera til með
ferðar í borgarráði.
Alfreð Þorsteinsson (F) lýsti
einnig yfir ánægju sinni með til-
lögu Sigurjóns Péturssonar og
var hún síðan samþykkt með 15
samhljóða atkvæðum.
Akranesi, 15. marz.
Á FUNDI bæjarstjórnar var
gerð ef tirf arandi samþykkt:
„Bæjarstjóm Akraness mótmæl-
ir harðlega ákvæðum frumvarps
til laga á þingskjali nr. 348, sem
lagt hefur verið fram á alþingi
þess efnis að heimilaðar verði að
nýju veiðar í Faxaflóa með drag
nót og botnvörpu.
Faxaflóinn hefur nú verið
friðaður fyrir notkun þessara
veiðarfæra í hálft annað til tvö
ár. Það er samdóma álit sjó-
— ÁSTAND á vegum er sæmi
lega gott, og snjór er ekki
á vegum, nenia á hæstu fjall-
vegum á Vestfjörðum, sagði
starfsmaður Vegaeftirlitslns i
manna og útvegsmanna á Akra-
nesi að sú ráðstöfun hafi þegar
haft mjög heillavænleg áhrif á
fiskgengd í Flóann. Til dæmis
hefur meðal ýsuafli Akranesbáta
á haustvertíð aukizt frá árinu
1970 úr 0,7 lestum i róðri í 1,7
lestir árið 1972.
Bæjarstjórn Akraness vill þvi
vara alvarlega við afleiðingum
þess að leyfa að nýju notkun
þessara veiðarfæra í Faxaflóa og
beinir þeirri eindregnu áskorun
til alþingis að samþykkja ekki
neinar slíkar heimildir.“ — HJÞ
gærdag, þegar við liöfðum sam-
band við hann.
Annars staðar eru vegir vel
færir og lítið er um frostskemmd
ir. Þó hefur orðið að grípa til
þungatakmarkana t.d. á öllum
vegum Snæfellsnes- og Hnappa
dalsýslna, og á Ólafsvíkurvegi
vestan við Borgarnes.
Þá eru einnig þungatakmark-
anir á Krísuvíkurveginum milll
Vatnsskarðs og Þorlákshafnar,
og á öllum vegum Rangárvalla-
sýslu vestan Rangár, riema á
Suðurlandsvegi og á veginum
austan Rangár.
Á Austurlandi er mikið um
þungatakmarkanir, t.d. á vegin-
um m'-lli Eskifjarðar og Norð-
fjarðar og á Suðurfjarðavegin-
um.
Annars staðar er ekki búið að
grípa til þungatakmarkana, en
það er rétt að minna á, að sums
staðar eru vegir blautir og veg-
brúnir veikar og því ber btt-
reiðastjórum að fara gætilega.
Vilja Faxaflóann
friðaðan áfram