Morgunblaðið - 25.04.1973, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1973
Loönuvertíð lokiö:
Heildaraflinn
440 þús. lestir
— Guðmundur RE aflahæstur
með rúml. 18 þús. lestir
LOKASKÝRSLA Fiskifélag-sins
um loðnuvertíðina í ár ligrgrnr nú
fyrir og segir þar, að þeg-ar end-
aniegar upplýsingar liggi fyrir,
verði heildaraflinn rúmlega 440
þús. lestir, en nú eru komnar til-
kynningar um samtals 430.841
lest. 92 skip fengu einhvern afla
og voru þrjú aflahæstu skipin
Guðmundur RE rneð rúmlega 18
þús. lestir, Eldborg GK með
rúml. 15 þús. lestir og Gísli Árni
RE með rúnil. 12 þús. lestir.
Á vertíðinni 1972 bárust sam-
tals 277.655 lestir á land af 58
skipum, en heildaraflinn næstu
ár á undan var þessi:
1971: 182,900 lestir
yfir
1970: 191,800 lestir
1969 171.000 lestir
1968 78.300 lestir
Listi yfir þau skip, er fengið
hafa 8 þús. lestir eða meir:
1. Guðmundur RE 18.108
2. Eldborg GK 15.276
3. Gísli Árni RE 12.153
4. Óskar Magnússon AK 11.247
5. Loftur Baldvirisson EA 10.840
6. Fífill GK 10.748
7. Súlan EA 10.588
8. Heimir SU 10.361
9. Skírnir AK 10.224
10. Reykjaborg 10.212
11. Rauðsey AK 9.761
12. Pétur Jónsson KÓ 9.298
13. Hilmir SU 9.268
14. Ásberg RE 8.895
15. Jón Garðar GK 8.609
16. Grindvíkingur 8.305
17. Börkur NK 8.290
18. Þórður Jónasson 8.218
19. Héðinn ÞH 8.074
Farmh. á bls. 31
Hætt við
björgun
Kópaness
TILRAUN var gerð til að draga
véibátinn Kópanes á flot af
strandstað við Grindavík á mið-
vikudagiun fyrir páska, en mik-
ill halli kom þá að skipinu og
var hætt við tilraunina, þar sem
hætta var talin á að skipinu
myndi hvolfa og það sökkva, ef
það yrði dregið lengra út.
Að sögn Gunnars Felixsonar
hjá Trygginigamiðstöðinná hf.,
hafði verið unnið að því að þétta
skipið og undirbúa þessa tilraun
um nokkurt sikeið. Það kom hins
vegar í ljós, þegar á reyndi, að
þyndairpunkturinn í skipinu var
ktomitnn á óeðlilegan staðl og
strax og fór að fljóta undir skip-
ið, lagðist það á hllðma. Taldi
Gunnar, að björgunartilraunum
yrði nú hætt og slkipið auglýst
til sölu á sitaðnum.
Sumardagurinn
fyrsti
MIKLUM afla hefur verið land-
að í Þorlákshöfn og Grindavik
páskadagana, og má segja að
sannkölluð páskahrota sé á mið-
unum í grennd við þessar tvær
verstöðvar. JHins vegar hefur
afii verið tregur í flestum ver-
stöðvum öðrum, enda margir
bátar þaðan komnir á fyrrgreind
mið og leggja nú upp í Þorláks-
höfn og Grindavik.
Vigtarmaðurinn í Þorláks-
höfn orðaði það svo, að það
hefði verið talsverður reytingur
undanfarna daga, og á mánu-
dag kom einn bátur að landi
með 58 tonn, en bátarnir þá voru
þó með niður í 6 og % tonn.
Dagsaflinn hjá bátunum, sem
leggja upp í Þorlákshöfn var
á mánudag 1107,5 tonn en dag-
inn áður 1159 tonn, og útlit er
fyrir eitthvert áframhald á þess-
ari hrotu.
Hjá Grindavíkurbátum og öðr-
um bátum sem þar leggja upp
afla, var dagsaflirin á mánudag
1660 tonn. Mikill afli hefur bor-
izt þar á land alla páskadag-
ana, og var t.d. 1520 tónn á laug-
ardag. Mikil vinna er í Grinda-
vík og talsverður skortur á
vinnuafli. Hæsti báturinn á
mánudag var Grímseyingur með
68 tonn, Grindvíkingur var með
61 tonn, Kap II. með 54 tonn,
Aibert með 50 tonn, en 6—7 bát-
ar voru með milli 30—40 tonn.
ARs lönduðu 95 bátar í Grinda-
v4k á mánudag, svo að hrein-
asta örtröð var þar á bryggjum
þégar hvað mest gekk á.
6 mán. f angelsi
fyrir hasssölu
KVEÐINN hefur verið upp
Iijá lögreglustjóraembættinu á
KeflavíkurflugrveUi dómur í
máli tvegg.ju útiendinga, 21 árs
Bandaríkjamanns og 24 ára
Hollendings, sem ákærðir liöfðu
verið fyrir hasssmygl og sölu
hérlendis.
Voru þeir dæmdir i 6 mánaða
varðhaild óskitorðsbundið, auk
þess sem gert var upptsekt það
hass, sieim íaninst í fóruim þeirra,
um 970 gröimim, og samnainilegur
ólögtogur ha@naðiur þeirra af
fíkmiefnasöliunini, 2.046 döllarar
og 37.900 ísl. kr., eða jafnvirði
rúml'ega 230 þús. ísl. kr. Þá var
þeim gert að greiða máliakostn-
að all.am. Gæztovarðhaild þeirra
síðan í desemberbyrjun, er þeir
voru handteknir á Keflavíkur-
MugveMi, alte um 414 mánuður,
kemutr tiil frádráttar fpngelsis-
vistinmi.
Dóm'Uirinn var kveðinn upp á
miðvikudag fyrir páska, og þar
sem mennirnir tveir höfðu þá
þegar afplánað mestan hluta
fangelsisdómsins, var tekin sú
ákvörðun, að vísa þeim strax úr
landi og fór Bandairikjamaðuir-
inn til Bandaríkjanna síðdégis á
miðvikudag, en Hollendinigurinn
var sendiur til sirts heiima á
fimmtudagsmorguin.
Valur —
KR 1-0
VALUR og KR lékú í Reykja-
víkurmótinii í knattspyrhú í gær
kvöldi og lauk leiknum með
naumiun sigri VaN, 1:0. Márkið
var sjálfsmark og kom ,ftéint i
síðari hálfleik, nánár á morgun.
68
Grímseyingur með 68 tonn
Mikill afli berst á land í Porlákshöfn og Grindavík en
tregt í öðrum verstödvum
Annars staðar voru óskemmti-
legri aflafréttir. 1 Sandgerði hef
ur fremur lítill afli borizt á land
undanfarið, og ýmsir Sandgerðis-
bátar hafa flutt sig suður eða
austur á bóginn og leggja jafn-
vel net sín allt suður undir
Eyjum, en landa aflanum í
Grindavík og Þorlákshöfn. Þó
komu stöku bátar með sæmileg-
an afla á mánudag eða upp í
25% tonn af tveggja nátta fiski.
Flestir bátanna voru þó aðeins
með 5—8 tonn.
Sáratregt hefur verið hjá
Keflavíkurbátum undanfarið og
fjöldi þeiirra hefur flutt sig suð-
ur eftir — á miðin við Grinda-
vík og landa þar, Ekkert telj-
andi fiskirt hefur heldur verið
hjá Akranesbátum, sem veiða á
heimamiðum, eða frá 2—4 tonn
eftir daginn. Hins vegar komu
þangað tveir bátar á mánudag
með sæmilegan afla af fjarlæg-
ari miðum — Ólafur Sigurðsson
með 25 tonh og Óskar Magnús-
son með 13 tonn. Sömu sögu
var að segja frá Hellissandi. Þar
hefur verið lítíll afli undanfarið
— bátamir hafa komið inn með
10—18 tonn þegar bezt lætur.
Þannig var dagsaflinn á mánu-
dag um 100 tonn hjá tíu báturn.
Skarðsvíkln er enn hæst Hellis-
sandsbáta og er nú komin yfir
900 tonn.
Hátíðahöldin í Reykjavík á sumardaginn fyrsta voru með nokkuð öðru sniði í ár en nndanfarin
ár, því að daginn bar að þessu sinni upp á skírdag. Barnavinafélagið Sumargjöf gekkst fyrir 7
skrúðgöngum í hverfuni borgar innar og iá leið gangnanna að kirkjum eða skólum, þar seni haldn-
ar voru barnasamkomur á vegum Æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar. Fjölmennt var í göngunum
og á skemmtunnniim. Þá var að venju skátaguösþjónusta í Háskólabíói um morguninn og
gengu skátarnir fylktu liði um götur borgariunar á leið til messunnar. — Tók ljósmyndari Mbl.,
Ólafur K. Magnússon, þessa mynd við það tækifæri.
Framhalds-
fundur
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Blaðamaninafélags Islands verð-
ur haldinn í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20.30. Á dagskrá verða
þá mál, sem ekki tókst að ljúka
á aðalfundi félagsins 15. apríl sl.
Mikil
aurbleyta
SNJÓLAUST er nú orðið víðast
hvar á veguim, nema á fjallveg-
um á Vestfjörðum og Austur-
landi, en færð er þó víðast hvar
slæan vegna mi’killar aurbleytu.
Þunigatakmarkanir hafa verið
settar á allflestum vegum, t. d.
er aðeins 5 lesta hámariksöxul-
þungi á Norðurlandsvegi, og
samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar eru vegirnk' siæmir
yfirferðar fyrir smábíla, enda
þótlt ekki sé hægt að telja þá
ófæra.
Innbrot og
skemmdir
TALSVERT var um innbrots-
þjófnaði og skemmdarverk í
Reykjavík og nágrenni um pásk-
ana.
Meðal helztu málanna má telja
innbrot í matvöruverzlun á Lang
holtsvegi 49, þar sem mikið var
rótað og sikemmvt, en þjófur-
fnn — 16 ára piltur — náðist
skatnimt frá staðoum; brotizt var
inn í barnaheimáiið Skógarborg
viið Bústaðaveg, um 20 rúður
brotnar og útvarpstæki stolið;
brotizt var inn í skrifistofur og í
búnimgsherbergi á Laugardals-
vellinum; glugga skartgripaverzl-
unar í miðborginni, og um 30
rúður voru brotnar í Gagnfræða-
skóla Austuribæjar og tvær í
Austuribæjarbarnaskóla.
Kiwanisklúbburinn á Dalvík:
Gaf stuttbylgjutæki
NÝLEGA afhenti Kiwanis-
klúbburinn Hrólifiur á Dalivík
Dalvíkiu rlæknishéraði að gjöf
stutfibyigj utæki af gerðinnii Ultra
tex 608. Tæki þetta er aða'T.ega
ætlað til l'ækmmga á gigta/r og
bsHktona rs j úkdóm u m. Verðmæti
taakisins er um 240.000,00 kr.
Á meðfyligj'aindi mynd sést, er
tækið var afihemt á fundi í Hrólfi.
Talið frá vinstri; Jóhanmes
Reykjalín, oddviti Árákógs-
hrepps; Eggert Briem, héraðs-
læknir; Baldvin Magnússon,
oddviti Daivikurhrepps; Hjalti
Haraidsson, oddvi'ti Svarfaðar-
dalshrepps; og Arvfcon Angantýs-
son, fiorseti Hrólfs.
Fjár til kiaupa á tækinu hafa
Hrólfsfélagar afilað með ýmsum
hætti, svo sem ffliugeldasöto,
gkommtanahaidi, harðfiskverk-
un, útgáfu auglýsin.gakápu á
símaskrá o. fl. — Kiwainis-
kl'úbburinn Hrólifiuir sendir kveðj-
ur og þakklæti tit aWra, er sbutt
hafá k/lúbbinn tneð ýmsum
hætti.
«