Morgunblaðið - 25.04.1973, Qupperneq 14
14
MQRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRfL 1973
LOKI ÞO I IÐNO:
Nr. 1. Þór í vig'ahug', festir Baldur í net, Hildur og Nanna reka upp harmakvein. Nr. 2. Tröllin horfa á Þór koma á vagn inurn sínum um loftin blá með
höfrunum beitt fyrir. Nr. 3. Þór lentur í Valhöll á vagninum sínum. Ljósmyndir Mbl. Valdis.
Ok myndi lemja
hvert bein í honum66
& ^ w
Óðinn alfaðir gælir við hraf nana sína.
Loki platar Sif og klippir há r hennar, Gerður í hlutverki t veggja hlær líka.
Gamanleikrit nm hrekkjalóminn Loka,
t>ór og aðra úr Valhallarættinni
í Skáldskaparmálum Snorra
Eddu heitir þáttur einn: Af
smiðum ívaldasona ok Sindra
dvergs. Segir þar meðal ann-
ars: „Hví er gull kallat haddr
Sifjar? Loki Laufeyjarson
hafði þat gert til lævísi at
klippa hár allt af Sif. En er
Þórr varð þess varr, tók hann
Loka ok myndi lemja hvert
bein í honum, áðr hann svaraði
þess, at hann skal fá af Svart-
álfum, at þeir skulu gera gulli
Sifju hadd þann, er svá skal
vaxa sem annat hár.“
Þessi stutti kafli verð-
ur Böðvari Guðmundssyni yrk
isefni í leikritinu Loki þó, sem
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi um páskana og það er
Stefán Baldursson sem leikstýr
ir verkinu, sem samið var að
beiðni Leikfélagsins, en þetta er
fyrsta verkið af mörgum sem
Leikfélagið áformar að láta
semja um eða úr goðsögunum
og fornsögunum.
Meginþráður verksins er um
fyrrgreint prakkarastrik
Loka og ferð hans til Svart-
álfanna, en höfundurinn er
líka prakkari og leyfir sér því
ýmsa útúrdúra í ævintýrinu og
að bregða á leik er honum lag-
ið. Hárkollur voru ekki til á
færiböndum þegar Loki var
upp á siitt bezta, en allt er hægt
ef hugur fylgir.
Böðvar fer, hógvært orðað,
dálítið frjálslega með ferð
Loka til Svartálfanna og per-
sónumar eru ef til vill svoiit-
ið breyttar miðað við okkar
gömlu góðu víkinga og æðri
fyrirmyndir. Loki þó er líka
gamanleikur og úr söguspor-
inu og af því gerir Böðvar mik
ið grín.
Æsi og ásynjur gerir hann
mjög mannleg og hann læt-
ur sig ekki muna um að setja
liðið í nútímamynd, ofskapaða
eða vanskapaða á vixl svo
kryddið fái að njóta sín.
Upphaflega átti leikritið að
heita Hár og hafrar, en það
breyttist í Loki þó og vísast
þar með til hrekkja Loka í leik
ritinu. Ljóð og söngvar eru í
ríkum mæli í Loka þó og þó
að Böðvar segist sjálfur aðeins
vera lullandi hagmæltur þá má
álitalaust bæta einhverjum gír-
um við það. I>ess má geta að
höfundurinn er cand. mag. i is-
lenzkum fræðum, en vetur-
langt dvelur hann nú í París.
Jónas Tómasson tónskáld hef
ur gert lög við ljóð Böðvars,
snotur lög eins og Jónas er
þekktur fyrir t.d. af plötunum
með Heimi félaga sínum úr
menntaskóla. Magnús Pálsson
hefur gert mjög litrik leiktjöld
og frumlega búninga, en leik-
urinn fer fram í Valhöll og að
sjálfsögðu er einnig flandrað
um á ferðalaginu með Loka til
Svartálfaheima. Klandrinu lýk
ur þó í Valhöll með herlegri
veizlu, blóðmörskeppum af
stærri sortinni og húllumhæi.
Upphaflega var leikritið
skrifað fyrir böm, en þegar
það mótaðist á sviðinu þótti
það ekki siður vera fyrir full-
orðna og þvi varð úr að ákveð
ið er að sýna það bæði á dag-
inn og kvöldin. Á kvöldin fyr
ir eldri og unglinga og á dag-
inn fyrir þá yngri.
Óðinn alfaðir er að sjálf-
sögðu mættur til leiks og hluti
af hans börnum, Þór og Bald-
ur úr hópi ása, ásynjumar sem
halda hús í Valhöll, Loki Lauf
eyjarson, vitringurinn Kvasir,
Brokkur, tröll og álfar og
hlutir eru persónugerðir eins
og til dæmis smiðjuveggurinn,
fýsibelgurinn og eldurinn. Sögu
maður tengir þættina og spilari
leikur tónlist með söngvum.
Eins og fyrr segir hefur Stefán
Baldursson haft alla þræðina í
sínum höndum, en talsvert hef-
ur verið unnið í hópvinnu þar
sem allir hafa haft tillögurétt.
Kjartan Ragnarsson leik-
ur Þór, Ágúst Guðmundsson
leikur Loka, Kristín Ólafsdótt
ir er sögumaður, Jón Hjairtar-
son er Óðinn alfaðir, sem nær
ist að mestu á miði úr geit-
inni Heiðrúnu, sem endalaust
mjólkar miði, enda er Óðinn
eins og sagt er, rykaður.
Sigurður Karlsson leikur
Baldur, Hjalti Rögnvalds-
son Kvasi, Guðrún Ásmunds-
dóttir Sif, Þórunn Sigurðar-
dóttir Nönnu, Valgerður Dan
Hildi og Soffía Jakobsdóttir óg
Sigríður Eyþórsdóttir leika
Gerði konu Freys, en Gerður
var af jötnaættum og því dug-
ir ekki minna en láta tvær
leika hana. Brokk svart-
álfakóng leikur Margrét Öi-
afsdóttir og spilari er Sigurð-
ur Rúnar Jónsson.
Þó að þær séu ekki störar
dymar á gamla Iðnó, þá er
margt hægt að gera í góðu leik
húsi og þeir fara létt með það
í Iðnó að sýna dyrnar 640 sem
eru í Val’höll. Annars er rétt
að geta þess að lesa má um
söguna af Loka eins og fyrr
getur í Skáldskaparmálum
Snorra Eddu og í Islendinga-
safnaútgáfunni, hefst sagan af
smiíðum Ivaldasona á 43. kafla.
Það tekur stutta stund fyrír
fullorðna að kynna börh-
um sagnirnar um Loka Lauf-
eyjarson og aðra heimamennf í
Valhöll, en þannig ætti fólk að
koma til móts við stórhuga
framkvæmd leikhússins.
-á-j.