Morgunblaðið - 25.04.1973, Síða 23
AUUw- l'U M V«KJ f i 'l'lfiA, j AViUi>4ÍUM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1973
Steinunn Sívert-
sen — Minning
Fædd 24. september 1900.
Dúin 8. apríl 1973.
Hversu oft höfum við
ekki heyrt setninguna, að kona
sé „bara húsmóðir". Þetta rifjað
ist upp fyrir mér þegar Stein-
unn Sívertsen kvaddi þennan
heim þ. 8. apríl sl. Kannski átti
þessi setning einmitt við um
hana. En hvernig rækti hún þá
skyldu, að vera „bara húsmóð-
ir“? Og hvernig eru þær minn-
ingar sem nánustu vandamenn
hennar og vinir eiga innra með
sér nú, þegar lifsferli hennar er
iokið?
Þær minningar eru dýrmætar
og ef við ættum ekki I þjóðfé-
lagi okkar slíkar konur, myndi
margt riða til falls. Skyldu-
rækni, ábyrgðartilfinning, heil-
steypt skapgerð, skilningur og
samúð með þeim sem í erfiðleik-
um áttu, var uppistaðan í lifs-
skoðun hennar og fyrir vini
hennar og vandamenn er þetta
dýrmætur fjársjóður.
Steinunn Sívertsen fæddist að
Hofi í Vopnafirði 24. sept. 1900
og voru foreldrar hennar
Þórdís Helgadóttir, lektors Hálf
dánarsonar og séra Sigurður Sí-
vertsen, sem þar var þá prest-
ur. Móður sina missti hún aðeins
þriggja ára, þ. 28. júlí 1903.
Yngri systkini hennar voru tvö,
Helgi f. 20. nóv. 1901 og Þór-
hildur f. 20. marz 1903. Þetta
t
Útför eiginmanns míns,
PÉTURS GUNNARSSONAR,
forstjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 26. þ.m. ki 2 e.h.
beim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Þóra Magnúsdóttir.
t
Sonur minn og bróðir okkar,
INGVAR KRISTINSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag miðvikudaginn
25. apríl kl. 13.30.
Kristinn Guðjónsson.
Hrafnhildur Kristinsdóttir,
Gunnar B. Kristinsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
NIKULAS MAGNÚSSON,
Langeyrarvegi 2, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 26.
april kl. 2 e.h. Bióm vinsamlega afbeðin, en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á hjartavernd.
Elísabet Eggertsdóttir,
börn, tengdaböm og barnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát, minningarathöfn og útför,
KRISTMANNS JÓHANNSSONAR
frá Stykkishólmi.
Guðrún Kristmannsdóttir, Ásgeir Ágústsson,
Maria Ásgeirsdóttir, Agúst Breiðfjörð,
Guðbjörg Elín Ásgeirsdóttir, Ásgeir Páll Ágústsson.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR S. SIGUROARDÓTTUR,
Bergstaðastræti 28 C.
Hulda Magnúsdóttir,
Sigurður B. Magnússon,
Sesselja Ásgeirsdóttir
og bamaböm.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og
jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, ömmu og systur,
GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Selvogsgötu 2, Hafnarfirði,
Eyjólfur Kristinsson,
Ragnheiður E. Eyjólfsdóttir,
Þórunn Eyjólfsdóttir,
Eyrún Eyjólfsdóttir,
Inga Maria Eyjólfsdóttir,
Ólafur Eyjólfsson,
Jóhannes S. Magnússon,
Guðmundur Andrésson,
Jón Alfonsson,
Sigurður H. Stefánsson,
Guðrún Eyjólfsdóttir,
Þórhildur Ólafsdóttir.
var þung sorg fyrir föður henn-
ar og börnin þrjú.
En séra Sigurður hafði ein-
stakt hjúalán og til hans réðst
ung stúlka Snjólaug Sigurðar-
dóttir, sem annaðist heimilið og
bömin af stakri alúð og um-
hyggju, þar til hún giftist 1910
Þórarni Stefánssyni kennara,
sem síðar stofnaði bú að Teigi
í Vopnafirði. Voru þetta for-
eldrar dr. Sigurðar Þórarinsson
ar jarðfræðings og systkina
hans.
Tíminn leið í áhyggjuleysi og
hver dagur færði Steinunni og
systkinum hennar, Helga og Þór
hildi, ótal yndisstundir og æv-
intýri meðan þau bjuggu að Hofi.
Æðarvarp var þarna mikið og
börnin fengu að njóta þess að
fylgjast með varpinu, hlynna að
hreiðrum og umgangast fuglana
af nærfærni. Þetta var unaðs-
heimur.
Árið 1911 var séra Sigurður
Sívertsen skipaður dósent við
guðfræðideild Háskóla íslands,
sem þá var nýstofnaður. Þarna
urðu snögg umskipti fyrir börn-
in. Allt í einu að flytjast til
Reykjavíkur, og þó Steinunn
væri þá aðeins 10 ára gömul
voru viðbrigðin mikil.
Steinunn óx upp og. varð fljótt
hægri hönd föður síns og ábyrgð
artilfinnmgin á yngri systkin-
unum gerði vart við sig. En
áður en varði syrti að og 26. júní
-1914 lézt Þórhildur systir henn-
ar, eftir skamma sjúkdómslegu.
Þá var Steinunni brugðið, enda
systurmissirinn sár, eins og geta
má nærri.
1 stað hinnar ungu systur bætt
ist nú í heimilið móðir séra Sig-
urðar, amma hennar og nafna,
Steinunn Þorgrímsdóttir, þá há-
öldruð. Skyldustörfin urðu að
sjálfsögðu þyngri, en ekki heyrð
ist æðruorð frá Steinunni. Hún
minntist ömmu sinnar æ síðan af
kærleika og hlýju, en hún and-
aðist á heimilinu árið 1919 þá
níræð.
Þegar ég lít til baka og ber
saman fyrstu æviár okkar, kem-
ur mér í huga orðtakið: Fáir sem
faðir, enginn sem móðir.
Þótt strangleiki væri mikill í
uppeldi þeirra tíma, var ábyrgð-
in ólík sem lögð var okkur á
herðar, en ég missti föður minn
fjögurra ára.
Skyldu- og ábyrgðartilfinn-
ing Steinunnar var alltaf rikur
þáttur i fari hennar, en við sem
áttum móður sluppum bet-
ur.
Steinunn hélt heimili fyrir föð
ur sinn og bróður, og þegar hún
giftist Gústav A. Jónassyni, full
trúa lögreglustjóra 23. nóv. 1929
sagði hún ekki skilið við þá
feðga. Þeir voru áfram á heimil-
inu þangað til Helgi kvæntist ár
ið 1936 Áslaugu Gunnarsdóttur
bónda á Selnesi á Skaga.
Gústav A. Jónasson var frá-
bær gáfumaður, skáld gott,
skemmtilegur og ógleymanlegur
þeim sem honum kynntust. Ár-
ið 1934 var hann settur lög-
reglustjóri i Reykjavík þar til i
september 1936 að hann var skip
aður skrifstofustjóri i dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu og
gegndi hann ráðuneytisstjóra
starfinu til dauðadags 14. júlí
1961.
Á siðari árum ævi sinnar gekk
Gústav ekki heill til skógar, en
segja mátti um Steinunni að hún
efldist við hverja raun.
Faðir Steinunnar prófessor Sig
Framh. á bls. 25
íbúð — Hafnartirði
4ra herbergja endaíbúð á 3ju hæð í blokk við Álfa-
skeið er til sölu. íbúðin er 106 fermetrar og með
bílskúrsrétti.
SKÚLI J. PÁLMASON HRL.,
Sími 12343 og 23338.
Jörð óskast
Jörð óskast til kaups. Þarf að hafa einhverja lax-
eða silungsveiðiaðstöðu. Má vera húsalítil eða
húsalaus.
Tilboð óskast sent Mbl. merkt: „Jörð — 8180'.
Vélritunorskóli
Sigríður Þórðurdóttur
Ný námskeið hefjast næstu daga.
Sími 33292.
Húseigendur - Umráðamenn fasteigna
Við önnumst samkvæmt tilboðum hvers konar ÞÉTTINGAR A
STEINÞÖKUM OG LEKASPRUNGUM í veggjum. Höfum á liðn-
um árum annazt verkefni, m. a. fyrir skólabyggingar, sjúkrahús,
félagsheimili, hótel, ásamt fyrir hundruð einstaklinga um altt
land. Tökum verk hvar sem er á landinu. 10 ára ábyrgðarskír-
teini. Skrifið eða hringið eftir upplýsingum.
VERKTAKAFÉLAGIÐ TINDUR,
sími 40258 — Pósthólf 32 — Kópavogi.
Huns og Grétu uuglýsir
Ódýrar barnasmekkbuxur. — Urval smábarnafatn-
aðar. — Angórapeysur no. 0— -12.
Rýmingarsala á ýmsum eldri vörum.
HANS OG GRÉTA,
Laugavegi 32.
Garðahreppur
Frú Burnuskólu Gurðuhrepps
Fólk, sem flytur í Garðahrepp á þessu ári, er vin-
samlegast beðið um að innrita skólaskyld börn sín,
6—12 ára, nú þegar.
SKÓLASTJÓRI.
Verkamenn óskast
nú þegar við timburrökkun og önnur lagerstörf.
Uppl. hjá verkstjóra.
TIMBURVERZLUHIN
VÖLUNDUR H.F.
Klapparstíg 1. — Sími 18430.
Aðulhindur Stýrimunnu-
félugs íslunds
verður haldinn að Bárugötu 11 n. k. fimmtudag
kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, breyting á
reglum Menningarsjóðs.
STJÓRNIN.