Morgunblaðið - 15.06.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNl 1973
Fa
JJ ní LAi.nt. i\
’ALUR"
22-0*22*
RAUOARÁRSTÍG 31
BILALEIGA
CAR RENTAL
V 21190 21188
/*> 14444
1$ 25555
\emim
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
3L2T traustí
ÞVERHOLT 15ATEL. 25780
AV/5
SIMI 24460
LAUGAVEGI 66
\/p BÍLALEIGAN
%1
51EYSIR
CAR RENTAL
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodo
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
MJÓR ER MIKILS
0SAMVINNUBANKINN
f/M
Bezta auglýsingabiaöiö
• j . &*+
*
»a,
margfaldor
markaö yðar
í fótsporum
Tass og Prövdu
1 gær hófst í Kaupmanna-
höfn fundur utanrikisráð-
herra Atlantshafsbandalagrs-
ríkjanna. Kinna mesta eftir-
tekt við þennan fund hafa
vakið tUraunir Atlantshafs-
bandalagsins og framkvæmda
stjóra þess til þess að verða
við óskum íslendinga um að
fá Breta til þess að fara með
herskip sín út úr íslenzkri
fiskveiðilandhelgi, svo að
samningaviðræður Jiessara
þjóða geti hafizt að nýju.
I.jóst er af fréttum, að Joseph
Luns, framkvæmdastjóri At-
lantshafsbandalagsins, hefur
lagt sijf í framkróka við að
finna lausn á þessari erfiðu
deUu.
Fréttir frá Kaupmannahöfn
hafa einnig greint frá þvi, að
utanríldsráðherra Bandaríkj-
anna munl beita sér fyrlr
lausn málsins á þessum fundi.
I»á hefur einnig komið skýrt
fram, að Danir ogr Norðmenn
munu leggja málstað Islands
liðsinni innan bandalagsins.
Þannig er einsýnt, að tals-
verðum hluta þessa utanríkis-
ráðherrafundar verður varið
til þess að verða við óskum
íslendinga. Það hefur líka öll-
um verið ljóst, að við ættum
hauka í horni meðal banda-
manna okkar í Atlantshafs-
bandalaginu. Það sést bezt á
því, að ríkisstjórnin óskaði
eftir aðstoð bandalagsins
vegna flotainnrásar Breta, en
hefur ekki séð ástæðu tU að
óska eftir aðstoð öryggisráðs
S*»r'ö‘ * ~ '’”V' .
Kommúnistar voru að sjálf-
sögðu ekki áfjáðir í að leita
eftir aðstoð Atlantshafsbanda-
lagsins, þó að þeir hafi á það
fallizt um síðir. Dagblaðið
Þjóðviljinn hefur að sjálf-
sögðu eins og önnur islenzk
blöð fordæmt flotainnrás
Breta í landhelgi íslendinga.
Kn það vakti athygli í gær,
að blaðið sagði ekki eitt
aukatekið orð um tilraunir
Atlantshafsbandalagsins til
þess að verða við óskum Ís-
lendinga. Hér er þó um að
ræða fyrstu markvissu tU-
raunirnar til þess að leysa
þann hnút, sem deila islend-
inga og Breta er nú komin í
eftir flotainnrásina. Þessar
aðgerðir Atlantshafsbanda-
Iagsins hafa því vakið óskipta
athygli blaða og fréttastofa
víða um heim. Kn dagblaðið
Þjóðviljinn þegir; það gera
sennUega lika bæði Fravda
og Tass.
Það þjónar einfaldlega ekki
þeim alþjóðlega málstað, sem
Þióðviljinn er málsvari fyrir,
að greina frá því, að Islend-
ingar njóti aðstoðar vina-
þjóða í Atlantshafsbandalag-
inu, þegar á reynir. Slíkar
fréttir um liðsinni við íslenzk-
an málstað má Þjóðviljinn
ekki færa lesendum sínum;
það væri i ósamræmi við hina
heilögti baráttu fyrir sósial-
ismanum.
Að vísu koma slik vinnu-
brögð Þjóðviljans fæstum á
óvart; trúarsetningin leyfir
ekki annað. Kn hitt hefur
vakið meiri undrun, að dag-
blaðið Tíminn sktili feta í
fótspor Þjóðviljans i þessum
efnum. 1 fréttum Tímans í
gær er ekki getið einu orði
um það, sem nú er að gerast
á utanríkisráðherrafundi At-
lantshafsbandalagsins og
snertir örlagamál þjóðarinn-
ar. Þessi þögn Tímans vekur
e.t.v. enn meiri athygli fyrir
þá sök, að varaformaður
Framsóknarflokksins, Kinar
Ágústsson, utanríkisráðherra,
er i brennidepli þessara at-
burða.
Að öllu jöfnu þarf Tíniin*
ekki eins og Þjóðviljinn að
fara að sömu reglum og Tass
og Pravda. Kn stjórnarsam-
starfið virðist hafa leitt tU
þess, að ráðherrar Framsókn-
arflokksins verða ekki. ein-
ungis að lúta í lægra haldi
fyrir kommúnistiim, heldur
virðist Tíntinn einnig á stund-
um þurfa að ástunda Þjóð-
viljafréttamennsku. 1 stikum
tilvikum þarf hann jafnvel að
þegja um störf ráðherra
Framsóknarflokksins. Kngu
er likara en þessi blöð haldi
sameiginlega ritstjórnarfundi
á Þjóðviljanum.
spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið i síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi tU föstudags og biðjið nm Uesendaþjónustu Morg- unblaðsina.
TAP OG GRÓÐI A
TRVGGINGUM
Nú hefur verið tugmillj-
óna tap á bifreiðatryggingum
undanfarin ár, að þvi
er tryggingafélögin segja.
Hvernig geta þau risið und-
ir þessu tapi? Er svona gíf-
urleg þénusta á einhverjum
öðrum tryggingum?
Samband íslenzkra trygg-
ingafélaga svarar:
Undanfarin ár hefur orð-
ið mikið tap á bifreiðatrygg-
ingum. Hins vegaæ hefur yf-
irleitt ekki verið um að ræða
reksturshalla hjá tryggingafé
lögunum, nema árið 1971, en
þá var nokkur halli hjá
nokkrum félögum. Ástæð-
an er sú, að hagur annarra
greina hefur verið góð-
ur þessi ár, en
nokkrar sveiflur eru milli ára
í afkomu einstakra trygginga
greina. Þessi ár hefur tjóna-
reynsla verið hagstæð í bruna
tryggingum og í fiskiskipa-
tryggingum, að því er varð-
ar altjónstryggingu (þ.e.a.s.
þegar skip farcist og eyðileggj
ast). Erfitt er að spá um
hvort um varanlegan bata í
tjónareynslu í brunatryigging
um er að ræða og óhyggilegt
að gera ráð fyrir sliku mið-
að við svo takmarkaða
reynslu. 1 altjónstrygginigu
fiskiskipa hefur reynslan ver
ið mjög slæm það sem af er
þessu ári, eins og öllum mun
kunnugt, og líkur á því, að
verulegur haMi verði á fiski
skipatryggingum á þessu ári.
Nú síðustu mánuði hatfa orð
ið mjög verulegar hækkanir
á verðlagi tjónakostnaðar i
bifreiðatryggingum og réð
það mestu um þá hækkun, er
bifreiðatryggiingafélögin fóru
fram á nú í vor. Ef verðlag
hefði verið óbreytt frá árinu
1972, hefði hækkuniin ekki
þurft að vera meiri en 10%.
FÓSTRUSKÓLINN
Áslaug Jónsdóttir, Blöndiu
bakka 6, spyr:
Hvað var mörgum umsækj
endum synjað um inngöngu í
Fóstruskólann næsta skóla-
ár? Hve margir fengu
inngöngu ?
Valborg Sigurðarilóttír,
skólastjóri Fóstruskólans
svarar:
37 manns var synjað um
inngöngu í Fóstruskólarm
næsta skólaár, en 60 feugu
inngöngu.
Popp-skýrslan
MOODY BLUES
FORTÍÐ: Upphafið var vin-
sæl plata, „Go Now“, árið
1965. Síðan komu tvö ár í
myrkviðum gleymskunnar, og
hljómsveitin hafði næstum
sundrazt. Söngvarinn Denny
Uaine (nú í Wings) og bassa-
leikarinn Clint Warwick fóru
og andagiftin þornaði upp.
Þeir björguðust með tilkomu
Justin Hayward og John
Uodge og með ákvörðuninni
um að slaka ekki á. Tilraunir
með upptökutæknl gerðu þeim
kleift að hljóðrita „Days of
Future Passed" með Uondon
Festival Orchestra og sú
stóra plata og lagið „Nights
In White Satin“ öfluðu þeim
sterks fylgis. Hinar íburðar-
miklu útsendingar á plötun-
um og veruleg tengsl tónlist-
ar og texta lyftu Moddy Blues
upp á stjörnuhiminínn, sér-
staklega í Bandaríkjunnm,
þar sém þeir vöktu meðal
fylg.jcnila sinna tilhneigingar
til ofstækisfullrar dulspeki.
NÍJTÍÐ: Þótt hljómsveitin
sé nú vinsæl og njóti gífur-
legra tekna, virðist hún hafa
náð tónlistarlegri stöðnun.
Plötur hennar hafa orðió inn-
antómar endurtekningar, og
án nokkurrar andstæðrar
vitneskju er eðlilegt að telja,
að Moody Blues hafi breytzt
í vél.
FRAMTÍÐ: Nema róttækar
breytingar verði á viðhorfum
hljómsveitarinnar, er erfitt
að ímynda sér sannfærandi
framtíðarhorfur hljómsveitar-
innar.
★ Haukur eða
tvífari?
Mynd þessi birtist fyrir
skömmu í brezka blaðinu
Beat Instrumental, sem er
tónlistarblað, einkum skrifað
fyrir hljóðfæraleikara og
hljómlistarmenn. I fljótu
bragði mætti halda að hún
væri af síungu sönghetjunnl
okkar, Hauki Morthens, en
við nánari athugun blaðsim
kemur í ljós, að hún er af
manni að nafni Koki Thakur.
Hann er fæddur i Kalkútta á
Indlandi, en stýrir nú upp-
tökustúdiói i London, sem
S. B. Independent Radio studi-
os nefnist. — Við gerum það
hér með að tillögu okkar, að
ef Haukur hyggur einhvem
tímann á plötuupptöku á
næstunni, þá haldi hann bein-
ustu leið til London og tald
hana upp í stúdíói Koka. Það
hlyti að fara vei á með þeim
— og þeir gætu jafnvei not-
að hvor annan fyrir spegil!
lítL]
Lokað d laugardögum
Verzlanir og vinnustofur meðlima Ursmiðaféiags tslands
verða lokaðar á laugardögum í sumar.
URSMIDflFELflG ÍSLANDS
Nauðungaruppboð
Að fcröfu Úifcvegsbamka Islands, Reykjtavíik, verður bií-
reiðiin R-29370 (Dodge Dart árg. ’69) seki á nauðumgar-
uppiboðd, sem haM'iö verður í dag, tföstudaigmn 15. júmí,
kl. 14 við Vatmsnesveg 33 (bæjarfóigeitaskrtfstofain) í
Keflavik.
Bæjarfógetinn i Keflavik.