Morgunblaðið - 29.09.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.09.1973, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1973 PlirirgMlllíWrilr Útgefandi hf. Árvakur, Reykiavík. Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritsrtjórar Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 360,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 22,00 kr. eintakið. alvarlegum augum og vill leggja sig fra.m um, að ein- hver þau úrræði verði fund- in, sem geti breytt því ófremdarástandi, sem nú er á miðunum. Hann segir að vísu enn, að hann telji, að ís- lenzku varðskipin eigi að láta brezka togara óáreitta, ef brezku herskipin og dráttar- bátarnir hverfa út fyrir 50 mílna mörkin. En hann bæt- ir þvi hins vegar við, að brezka ríkisstjórnin og brezk ur fiskiðnaður samþykki þeir muni ekki áreita brezku togarana á meðan settum reglum sé fylgt og herskipin séu utan 50 mílnanna. Þess- ari hugmynd hefur verið skotið fram við Morgunblað- ið, og er henni hér með kom- ið á framfæri við íslenzk stjórnvöld. En meginatriði málsins er, að næstu daga þarf að nota til að skoða málin niður í kjölinn, og vissulega er von- andi, að hjá stjórnmálaslit- um megi komast, því að ís- lendingar vilja vinsamleg samskipti við allar þjóðir. OFSTOPI ÚTVARPSRÁÐS KÖNNUM MÁLIÐ í viðtali, sem Jóhann Haf- stein, formaður Sjálfstæð- isflokksins, átti við Morgun- blaðið í gær, getur hann þess, að fulltrúar Sjálfstæðisflokks ins í utanríkismálanefnd hafi lagt á það áherzlu, að kann- að væri til hlítar, hvað fæl- ist í orðsendingu brezka for- sætisráðherrans til hins ís- lenzka. í fundarlok gerðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins eftirfarandi bókun: „Út af orðsendingu þeirri, sem borizt hefur á fund utan- ríkismálanefndar frá brezka forsætisráðherranum til for- sætisráðherra íslands, dag- sett í dag, þar sem látinn er í Ijós vilji brezka forsætis- ráðherrans til þess að leysa nú deilumál þjóðanna, telj- um við rétt, að kannað verði til hlítar, hvað fyrir brezka forsætisráðherranum vakir og forsætisráðherra íslands ákveði stuttan frest til þeirr- ar athugunar.“ Eins og fram kemur af um- mælum Bjama Guðnasonar, við Morgunblaðið í gær voru aðrir nefndarmenn í utanrík- ismálanefnd annarrar skoð- unar. Þeir töldu, að þegar í stað ætti að slíta stjórnmála- samskiptum við Breta. Ríkis- stjórnin féllst hins vegar á sjónarmið fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins og ákvað vikufrest til að kanna málin betur, og forsætisráðherra getur þess, að bréf Heaths kunni að hafa haft áhrif á niðurstöður ríkisstjórnarinn- ar. Bréf Edwards Heath er nokkuð óljóst, eins og verða vill í diplómatískum sam- skiptum. Þar er ekki venjan, að menn spili öllu út í einu. Þó er ljóst, að forsætisráð- herra Breta lítur málin mjög sjálfviljug að draga úr sókn á miðin, meðan það ástand varir, sem ætti að geta orðið grundvöllur að bættu and- rúmslofti. Eins og Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, víkur að, er eðlilegt að skoða nánar, hvað fyrir for- sætisráðherranum vakir í þessu efni. Og er þess að vænta, að Ólafur Jóhannes- son, forsætisráðherra, geri það. Annaðhvort með við- tölum við brezka sendiherr- ann eða fyrir milligöngu þriðja aðila. Forsætisráð- herra Breta segir, að Bretar muni sjálfviljugir draga úr sókn á miðin. Þeirri hug- mynd má raunar hreyfa, að íslendingar setji sjálfir regl- ur um það, hvernig hugsan- legum veiðum Breta hér við land verði háttað um stund- arsakir og lýsi því yfir, að /Áfstopi vinstri meirihlutans í útvarpsráði er nú orð- inn með þeim hætti, að allt starfslið fréttastofnana út- varpsins, að einum manni undanteknum, og yfirmenn stofnunarinnar hafa neyðzt til að snúast til varnar til að bja.rga heiðri útvarps og sjón varps. Upphaf málsins er, eins og kunnugt er, opinber gagnrýni vinstri meirihlut- ans í útvarpsráði — með að- stoð Stefáns Júlíussonar, eins hinna dæmigerðu komplex- krata — á störf þriggja frétta manna útvarpsins. Gagnrýni þessi var borin fram algjör- lega að ósekju, og samstarfs- menn fréttamannanna tóku auðvitað upp hanzkann fyrir þá og þar með fyrir stofnun- ina í heild. En vinstri meirihlutinn lét sér ekki segjast, heldur hóf árásir á yfirmenn út- varpsins á fundi í útvarps- ráði sl. fimmtudag með þeim afleiðingum að Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, Guð mundur Jónsson, fram- kvæmdastjóri, og Þorsteinn Hanne sso n, d agskr ár f ull trúi, gengu af fundi. Enda var framkoma vinstri mannanna í útvarpsráði með þeim ólík- indum, að óhugsandi var, að starfsmenn útvarpsins gætu við hana unað. Á undanförnum mánuðum hefur vinstra liðið í hinum ýmsu stofnunum stöðugt ver- ið að færa sig upp á skaftið. Kommúnistum finnst þeir geta farið sínu fram, því að þeir mæti hvergi andstöðu og eru nú meira að segja farnir að tala um, að geð- veikrahælum þurfi að koma upp til þess að vista þar póli- tíska andstæðinga sína. Útvarpsmenn hafa að und- anförnu sætt gagnrýni fyrir það að láta undan sífelldri ásókn kommúnista, en nú eru þeir sýnilega orðnir fullsadd ir á framferði vinstri meiri- hlutans í útvarpsráði, og ætti þá landslýð öllum að vera ljóst, hvaða bolabrögðum er beitt. Jón Gíslason, skólastjórf; GJÖR RÉTT, Þ OL EIÓRÉTT UGGLAUST hefur barátta dr. tned. Bjarna Jónssonar, yfir- læknL:-, fyrir málstað sínum og kynni hans af starfsháttum byggingaryfirvalda Reykjavik- ur vakið athygli alþjóðar. Svo sem vænta mátti, er greinar- gerð dr. Bjarna rökföst og mál- flutningur hans öfgalaus. Kem- ur þar glöggt fram, hve mikl- um vandkvæðum er bundið fyrir einstakling, jafnvel þótt enginn aukvisi sé, að reka rétt- ar síns, þegar opinberar stofn- anir og stjórnvöld eru annars vegar. Óhjákvæmilega hlýtur sú spurning að vakna, hversu fari um rétt lítilmagnans, sem ó- vanur er að bera hönd fyrir höfuð sér, þegar málsmetandi menn og stefnufastir sæta slíku torleiði, eins og ijóst er orð- ið af greinum dr. Bjarna Jóns- sonar. „Sá er eldurimn heitastur, er á sjálfum brennur," segir fornt máltæki. — Svo eiinkenmfflega vili til, að reynsla undirritaðs af starfsháttum byggingaryfir- valda kemur nákvæmiega heim við þá vitneskju, sem fram kemur í greinargerð yfirlækn- isins um það efni. Islenzkur almenmingur er einkennilega tómlátur og áhugalaus um opinbera stjórn- sýsl'U og réttarfar. Sinnuleysi þetta stafar vafalaust að ein- hverju leyti af því, að menn hafa lítimn tíma aflögu frá dag- legum önnum. En hvað, sem því líður, þá eru menm á hin- um Norðurlöndumum a.m.k. miklu ótrauðari dl andmæla, ef á rétt almenmings er haltað. Hlýtur lika öilum að vera fyr- ir beztu, að eigi sé því tekið með þögn og þolinmæði, ef þeir, sem falin hafa verið opinber trúnaðarstörf, gefa öðrum illt fordsemi með því að sniðganga þau lög og þær reglur, sem ber að starfa samkvæmt. Þögn almemnings við slíkri vald- níðslu er uppörvun fyrir óhlut- vanda menn, :cm teija sig hafna yfir lög og rétt. Einungis af því, að undirrit- aður telur mjög virðingarvert, þegar menn, þrátt fyrir allt, hafa dug og áræði til að smú- ast til varnar gegn ofríki, vill hann ekki láta sitt eftir liggja. Skal nú rakin í örstuttu máli reynsla mín af byggingaryfir- völdum Reykjavíkur. 1 ársbyrjun 1951 keypti ég neðri hæð íbúðarhússins að Út- hlíð 5, hér í borg með ti.l'heyr- andi, 32,5% þeirrar fasteignar. Árið 1954 tjáir meðeigand- inn mér, að hamn hyggist ráð- ast 1 bílskúrsbyggingu. Við nánari athugun reyndist þessi svokallaði bílskúir mjög óvenju legur. Líktist hamn, satt að segja, miklu fremur verkstæð- i.sbyggingu en bílskúr. Undir allri þessari byggingu skyldi t.a.m. vera kjallari mikill, sprengdur í klöpp, en þó ekki farið svo djúpt niður, að kjall- arinn væri alluir neðanjarðar. Því skyldi bjargað með því að aka miklu magni af möl og sandi að byggingumni og dul- búa þannig kjallarann. Til að halda öllum þessum kynstrum af ofamíburði í skefjum, skyldi ,Ión Gislason reistur mikill múr úr stein- steypu. Af þessu mikla mamn- virki, sem var hæð og kjallari, ætlaði meðeigandimn mér pláss, sem með engu móti gat talizt lögmæt bifreiðargeynrisla. Eins og gefur að skilja, var ég lítt kunnugur byggimgarmál um borgarimnar. En með því að ég gat ekk, unað þessu, tók ég á mig rögg, fór á fumd þá- verandi byggingarfulltrúa, Sig- urðar heitins Péturssonar, og lýsti fyrir honum þessum bygg imgarfyrirætlunum meðeiganda mims. Sagði hann þá orðrétt: „Þetta hefur aldrei verið leyft og mun aldrei verða leyft.“ — Nokkrum árum síðar gekk ég á fund Tómasar heifcims Jóns- sonar, þáverandí borgarritara. Tók hann í sama streng og Sig- urður. „Þessu verður þú að halda til streitu," sagði borgar- rifcari m.a. Virtist nú ástæðulausit að kvíða ólögmætum byggingar- framkvæmdum. En viti mernn, þrátt fyrir yf- irlýsingar þessara ágætu emb- ættismanma er hafizt hamda um byggimgu þessia furðulega húss á s-ameignarlóð i nýlegu ibúðar- hverfi. Þá geng ég á fund borgar- stjóra og fer þess á leit, að hann geri svo vel að gefa út bréflega staðfestingu á því, hvermig bíl- skúrnum skuli fyrirkomið við húsið nr. 5 við Úthlíð samkvæmt skipulagsuppdrætti borgarimmar. Borgarstjóri varð góðfúslega við þeirri beiðni. Kom þá á dag in.n, að samkvæmt skipulags- uppdrætti borgarininar skyldu við þetta húis vem tveir sam- byggðir bílskúrar. Þá bað ég arkitekt, sem var í þjómustu borgarimnar, að teikma fyri-r m-ig bílageymslumar eins og þær áttu að vera samkvæmt skipulaginu. Sendi ég síðarn byggingarnefnd umsökn um að fá að byggja bíliageymsliu í sam ræmi við teikningu arkitekts- ins. Þessari umsókn miirnni var synjað. Fór ég þó frair. á það eiitt að fá að byg-gja bílageymslu sem var i fyll-s-ta samræmi við síkipulagsuppdrátt borgarinnar. Altt kom fyrir ekki: Umsókn um lögmæta byggimgu var hafn að og bréf borg-aristjóra að engu haft. Himni ólögmætu bygg- imgu var fram haldið. Enn kærði ég málið fyrir borgarstjóra. Voru byggimga-r- framkvæmdir þá stöðvaðar í nokkra daga, — en aðeins i nokfcra daga. Eimhver öfl, sem virtust eiga meira undi-r sér ea kjörnir fultrúar borgarbúa, ýttu bréfum yfirvaldamna glott andi til hliðar og fóru sinu fram. Nú eru liðin tuttugu ár síðan ég hófst ha-nda um að leita rétt ar m-íns i þessu máii. Einn af færustu lögfræðimigum landsins hefur rekið málin min vegna. Hópar dómara og dómkvaddra manina hafa endrum og eims lagt leið sína að húsimu nr. 5 við Úthl'íð. Þeir hafa samið álitsgerðir og kveðið upp úr- skurði. Samt stend ég enn í sömu sporum og við upphaf þessa máls, — nem-a hvað ég er nokkrum tugþúsuindum króna fátækari. Mafcs- menm hafa komið á vett- vang, 'samið matsgerðir og iagt fram tillögur, — en afflit er unnið fyrir gýg. Ég er enn að hrökklast um göfcuna með bíl- Lnm okkar. Sarat er ég enn svo bjarbsýran að halda, að þeir tímar eiigi efóir að renma upp á ættjörð vorri, að mönnum blöskri vankantamir á réttarfari tuttugustu aldar- iinnar. Og lögbrotin eru a. m. k. ekki oll mótuð í steinsteypu. Ég get huggað mig við það, ef huggun skyldi kalla, að þau lög brot, sem hér hefur verið lýst og á mér hafa bitnað, blasa við allra augum og eru auk þess úr svo varanlegu efni gerð, að þau munu lengi verða þögult vitni um öhlutvendrri hins skuggalega valds að tjaldabaiki, er oft virðist meiru ráða en sakleysisleg og hógvær yfirvöld, sem kjörin eru til að stamda vörð um lög og rétt í lýðræðús- ríki, sem svo á að heifca.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.