Morgunblaðið - 13.11.1973, Síða 14

Morgunblaðið - 13.11.1973, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVUMBER 1973 Geir Hallgrímsson: Tryggjum 200 mílur með einhuga þjóð að baki Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar'um heimild til þess að ganga frá samningum við Breta á grundvelli þess bráðabirgðasamkomulags, sem gert hefur verið, kom til umræðu á Alþingi í gær, og í þeim umræðum flutti Geir Hallgrfmsson formaður Sjálfstæðisflokksins ítarlega ræðu, þar sem hann f fyrsta lagi fjallaði um málsmeðferðina og vinnubrögðin innan ríkisstjórnar- innar. f öðru lagi um efnisþætti samkomulagsins og í þriðja lagi gerði Geir Hallgrímsson samanburð á sam- komulaginu frá 1961 og þessum samningum nú og komst að þeirri niðurstöðu, að samningamir frá 1961 hefðu verið mun hagstæðari. f lok ræðu sinnar lagði Geir Hallgrímsson áherzlu á, að meginástæðan fyrir þvf, að nú bæri aðsemja frið við Breta væri sú, að þjóðin yrði að einbeita sér að því framtíðarmarki að tryggja 200 mflna fiskveiðlögsögu. Hér fara á eftir kaflar úr ræðu Geirs Hallgrímssonar. Heimild til að gera óað- gengilegan samning að ástæðulausu! I upphafi ræðu sinnar vakti Geir Hallgrlmsson athygli á, að ábending fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins f utanríkisnefnd þess efnis, að kannað yrði til hlítar, hvað fyrir brezka forsætisráð- herranum hefði vakað með fyrsta bréfi hans til Ölafs Jóhannesson- ar, hefði leitt til þess, að slitum stjdrnmálasambands var frestað með þeim árangri, að bráða- birgðasamkomulag hefði nú náðst. Fulltrúar Alþýðubanda- lagsins í ríkisstjórn hefðu sam- þykkt viðræðurnar í London nauðugir viljugir að sagt, að for- sætisráðherra tslands hitti for- sætisráðherra Bretlands til þess að ræða almennt um málið og leggja grundvöll að formlegum samningaviðræðum, en Ijóst væri, að Ölafur Jóhannesson hefði ein- mitt farið til efnislegra samninga- viðræðna og sá samningur, sem nú lægi fyrir, hefði verið fyrir hendi í London eftir viðræður for- sætisráðherranna. Síðan rakti formaður Sjálf- stæðisflokksins fyrstu viðbrögð þingflokks Alþýðubandalagsins, er taldi samkomulagsgrundvöll- inn „algerlega óaðgengilegan" og sagði: „Ekki er ljóst, hvað olli flýti þeirra Alþýðubanda- lagsmanna, en sennilegt er, að þeir hafi ætlað sér að beita komm- únískri ógnunaraðferð. Þeir töldu víst, að samstarfsflokkamir yrðu smeykir og leiðitamir sem fyrr, en nú brást þeim bogalistin. Mælir- inn var fullur, framsóknarmenn, jafnvel þeir, sem Iengst höfðu fylgt kommúnistum og veitt eigin forsætisráðherra veikan stuðning, tóku nú upp hanzkann fyrir hann. Þingmenn Alþýðubandalagsins létu heldur ekki við það sitja að samþykkja þessa ályktun, heldur birtu þeir aðalefni hennar yfir þvera forsíðu Þjóðviljans næsta dag og brutu þannig trún- að, sem þeir höfðu sjálfir sam- þykkt að halda. Forsætisráðherra átti auðvitað að biðjast lausnar fyrir hönd ráðherra Alþýðu- bandalagsins þá þegar sama dag eftir slíka framkomu, þar sem vonlaust var, að þeir hefðu þá sómatilfinningu að gera það sjálf- ir.“ Síðan sagði Geir Hallgrímsson: „Eftir að þingmenn Alþýðu- bandalagsins hafa verið svo beygðir, sem raun ber vitni, þá fer ekki milli mála, að reiði þeirra og Þjóðviljans hefur beínzt að Ólafi Jóhannessyni forsætisráð- herra og skal ég aðeins nefna tvö dæmi þar um. I forystugrein Þjóðviljans 3. nóvember er rætt um landhelgis- gæzluna og minnt á, að Ólafur Jóhannesson hafi svarað spurn- ingum Þjóðviljans, hvort fyrir- skipaðar hafi verið mildari að- gerðir gegn brezkum landhelgis- brjótum og sagt skýrt og skorinort: „Það er bara bull“. En þessi forystugrein dregur það f efa, að þetta sér rétt, miðað við starfsemi landhelgisgæzlunn- ar og lýkur ummælunum með því að segja: „Er ekki rétt, að það komi í dagsljósið, hver það er sem bullar." Það fer ekki á milli mála, að þetta svokallaða stuðningsblað rfkistjórnarinnar gefur lesendum sínum til kynna, að það sé for- sætisráðherra tslands, sem bullar. Annað dæmi: Þjóðviljinn segir í forystugrein 4. nóvember: „Það er full ástæða til, að menn velti því fyrir sér, hvers vegna Ölafur Jóhannesson gaf þá yfirlýsingu aðeins þremur dögum eftir heimkomuna og án samráðs við samráðherra sfna, að hann gæti fyrir sitt leyti fallizt á brezka tilboðið óbreytt. Tilboð, sem hann hafði tekið að sér að leggja fyrir ríkisstjórn íslands og lýst yfir, að hann væri óbundinn af.“ Ætli kommúnistar megi sem sagt ekki sjálfum sér um kenna. Þjóðviljinn heldur áfram og segir: „hitt liggur svo auðvitað í augum uppi, að eftir yfirlýsingu íslenzka forsætisráðherrans um sitt persónulega samþykki hlaut það að vera æði veik von, að hægt yrði að fá Breta til að fallast á einhverjar lagfæringar enda þótt sjálfsagt væri að reyna þær til þrautar". Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs- ráðherra er heldur ekki myrkur í máli um íorsætisráðherra á flokksráðsfundi Alþýðubanda- lagsins. Hann segir: „Við höfum nokkuð almennt hér í Alþýðu- bandalaginu orðið býsna reiðiryf- ir því, hvernig hér var haldið á málum, við teljum, að við höfum að vissu leyti verið svikin. Vinnu- brögðin hafa ekki verið eðlileg og þar að auki verið leikið niður fyr- ir okkur góðri stöðu f þýðingar- miklu máli.“ Þetta voru orð sjávarútvegsráðherra, sem segja, að forsætisráðherra hafi svikið, ekki viðhaft eðlileg vinnubrögð og leikið niður fyrir okkur góðri stöðu íþýðingarmiklu máli. Það er vandséð, hvernig unnt er að taka upp heilshugar samstarf í ríkisstjórninni eftir slík orða- skipti, eða hvernig forsætisráð- herra getur látið sér þau lynda. En eftir öll stóru orðin þá sam- þykkti flokksráð Alþýðubanda- lagsins að fela miðstjórn að taka fullnaðarafstöðu til málsins og gaf þetta veganesti: „Flokksráð Alþýðubandalags- ins telur það ástæðulaust að hvika frá þessari stefnu, þ.e.a.s. f land- helgismálinu og veita tilslakanir á borð við þær, sem ráð er fyrir gert í fyrirliggjandi drögum að sam- komulagi við Breta. Fyrst er sem sagt samþykkt, að samningurinn sé óaðgengilegur, síðan er sagt, að ástæðulaust sé að gera óaðgengilegan samning og loks er veitt heimild til að gera óaðgengilegan samning að ástæðulausu,. Hér er ný kenning á ferðinni. A Alþingí skal tala á móti málinu, en greiða atkvæði með því. Segir ekki í stjórnarskránni, að þing- menn séu bundnir af sannfær- ingu sinni?“ Gagnrýnisverðirþættir samkomulagsins Geir Hallgrfmsson vék síðan að efnisþætti þess samkomulags við Breta, sem nú liggur fyrir, og gerði fyrst að umtalsefni hámarksaflatöluna og sagði ljóst vera, að miðað væri við, að ársafli brezkra skipa yrði um 130 þús. tonn á hinu umdeilda svæði milli 12 og 50 mílna. Á viðræðufundun- um í vor hefðu allir samninga- nefndarmenn vitað, að Bretar mundu reiðubúnir að fara niður í 130 þús. tonna hámarksafla, ef Islendingar hefðu samþykkt það. 1 tillögum forsætisráðherra í London hefði verið rætt um 130 þús. tonna ársafla, en ákvörðun um hámarksaflatölu sleppt í loka- samkomulagstillögum. Geir Hallgrímsson kvað sjálf- stæðismenn hafa lagt áherzlu á það í utanríkisnefnd, að hámarks- afli yrði tilgreindur, enda væri engum blöðum um það að fletta, að um viðbótartryggingu væri að ræða fyrir okkur Islendinga. En vegna þess, að sjávarútvegsráð- herra hefði lagt lítið upp úr því að hafa ákvörðun um hámarksafla í samningum kom í ljós, að fyrir- staða var á því hjá Bretum. Þess vegna væri ekki ákveðið orðalag á þessu ákvæði. Þá taldi Geir Hallgrimsson miður, að hámarks- aflinn væri eingöngu miðaður við hið umdeilda svæði, en ekki allt svæðið, sem NorðausturAtlants- hafsnefndin nefnir v-a en það er 75% stærra. Bretar mundu að vísu veiða mjög lítinn hluta afla síns utan 50 mílnanna, en eftirlit með hámarksafla væri erfiðara, ef veiðisvæðið væri annað en f venju- og í samningsbundnum skýrslum veiðiskipa og auk þess gæti það haft þýðingu, þegar við færðum fiskveiðilögsöguna út f 200 mílur. Síðan segir Geir Hallgrímsson: „1 1. tölulið orðsendingarinnar er getið um fjölda brezkra togara, sem mega vera að veiðum hér við land, og er þar gengið út frá því, að fylgt verði tillögum forsætis- ráðherra Islands í London. 1 vor var tilboð Islendinga, að engir frystitogarar eða verk- smiðjuskip væru á veiðum á svæð- inu, en auk þess fengju ekki 30 af stærstu togurum Breta að veiða hér við land og var þá miðað við samsetningu togaraf lotans eins og var 1971. v En Bretar voru í vor komnir að því að viðurkenna, að tuttugu brezkir togarar auk frysti og verk- smiðjuskipa yrðu útilokaðir frá veiðum. Hæstvirtur forsætisráðherra, Ölafur Jóhannesson, gerði það að tillögu sinni f London, að fimmtán stærstu og 15 aðrir togarar yrðu útilokaðir auk verksmiðju- og frystiskipa og hafa Bretar gengið að þvf. Þannig að ljóst er, að ekki hefur borið mikið á milli að þessu leyti heldur. 1 öðrum tölulið er rætt um frið- unarsvæðin, sem brezkir togarar munu virða Lúðvfk Jósepsson hefur í viðtali við Þjóðviljann 24. október sagt, að ein af þeim lagfæringum, sem rfkisstjórnin vildi fá á samningn- um væri, að það standi opið fyrir fslenzk stjórnvöld að ákveða frið- unarsvæði og friðunartima. I þessu sambandi er rétt að geta þess, að friðunarsvæðin voru fyrst tvö á Selvogsbanka og fyrir norð-austurlandi og voru þau fyrst ákveðin með reglugerðinni 1. september 1972. Lúðvík Jósepsson, var búinn að vera sjávarútvegsráðherra nokkuð á annað ár, áður en hann gaf út regl. um friðunarsvæði, og þá gerði hann ekki meiri ráðstafanir en að loka Selvogs- bankasvæðinu í einn mánuð og Norðausturlandssvæðinu í tvo mánuði. Það er fyrst nú f sumar, sem þriðja friðunar- svæðið er ákveðið, eftir við- ræðurnar í maf. En Bretar hafa orðalaust, að því er virðist, viður- kennt það svæði einnig. Það er því fyrst og fremst sjávarútvegs- ráðherra sjálfum að kenna að vera ekki búinn fyrir Iöngu að ákveða fleiri friðunarsvæði. En vegna þess látalætis sjávar- útvegsráðherra, að hann hafi áhuga á fleiri friðunarsvæðum, þá er ef til vill rétt að íhuga. Geir Hallgrfmsson hvort Islendingar, þ.á m. Luðvík Jósepsson hafi gert um það kröfu í samningnum í maímánuði. 1 yfirliti yfir kröfur Islendinga í maí kemur ekki fram annað en að virða skyldi þau tvö friðunar- svæði, sem þá voru í gildi og fyrr eru nefnd. Það hefur raunar verið gengið út frá því, að friðunarsvæði, sem Islendingar ákvæðu og tækju eins til þeirra og annarra þjóða, mundu Bretar virða. Ég vil spyrja hæstvirtan for- sætisráðherra, hvort það er ekki réttur skilningur. Hinu skulum við ekki loka aug- unum fyrir, að ætlunin var, að í samkomulaginu yrði nánar greint frá þessu, en Bretar töldu þá nauðsynlegt að tilgreina, að slfk ákvörðun yrði að eiga sér stað á grundvelli vísindalegra rann- sókna og með samþykki samn- ingsaðila. Þótt við íslendingar viður- kennum ekki slíka aðild Breta og eigum að taka einhliða ákvarðanir í þessum efnum, þá verður að treysta því, að ekki leiði til ágreinings að þessu leyti á samningstímabilinu. I þriðja tölulið samningsins er getið um smábátasvæðin fyrir Vestfjörðum og Austfjörðum milli 12 og 20 mflna og fyrir Norðurlandi. Eru þau ákvæði í samræmi við afstöðu tslendinga í mafmánuði s.l. I fjórða tölulið er getið um skiptingu fiskimiðanna við landið i sex veiðisvæði og skal eitt þeirra vera lokað í tvo mánuði í senn. I tilboði Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra í London tekur hann í samræmi við afstöðu Is- lendinga í maímánuði s.l. fram, að tvö svæðin af sex séu lokuð. Af- staða Breta var eins og kunnugt er í maí mánuði s.l„ að þeir vildu annað hvort viðurkenna smábáta- svæðin eða lokun tveggja af sex veiðisvæðum, en ekki hvort tveggja. I lokatilboði Breta i London gengu þeir inn á, að auk smábátasvæða og friðunarsvæða að hafa eitt af sex svæðum lokað. Þegar grein var gerð fyrir þessu við heimkomu forsætisráð- herra, var tekið fram, að ákvörð- un um, hvenær þetta eina svæði ætti að vera lokað, yrði að vera bundin frekari samningum milli aðila. Það kom og fram síðar í fréttum af fundi forsætisráðherra með forsvarsmönnum L.I.U., að hann teldi að tímaákvörðunin yrði í höndum Islendinga og gæti farið að vild þeirra. Hins vegar lagði forsætisráðherra fram á fundi utanríkismálanefndar út- reikning um aflamagn Breta á grundvelli þess samkomulags, sem var niðurstaða Lundúnaum- ræðnanna, gerðan af fiski- málastjóra, Má Elíssyni, sem byggði á ákveðnum forsendum, hvenær hin einstöku svæði væru lokuð, forsendurn sem voru hag- stæðari Bretum en íslendingum, og hafði sú tímaákvörðun verið rædd í London. Hér er því ástæða til að gera athugasemd um máls- meðferð. I ljós hefur komið, að það, sem talið var opið og eigi búið að semja um, var í raun fastmælum bundið og varð ekki breytt. Þótt sagt sé, að með ann- arri tímaákvörðun en þeirri, sem nú er gert ráð fyrir, væri vonlaust fyrir Breta að ná þeim afla, sem samningurinn er byggður á, þá er hér um að ræða ámælisverð vinnubrögð. I sjötta tölulið er rætt um fram- kvæmd samkomulagsins og lög- sögu. Um þetta atriði hafa verið all miklar umræður og sérstak- lega hefur sjávarútvegsráðherra og Alþýðubandalagsmenn gert sér tíðrætt um það. Þannig er þetta eitt af þeim atriðum sem sjávarútvegsráðherra segir í við- tali við Þjóðviljann 24. október s.l., að lagfæra þurfi. Það er því forvitnilegt að kanna, hvernig þessi ráðherra vildi haga þessu í samningavið- ræðunum í maímánuði í vor. Fyrst er sagt: Islenzk yfirvöld verða að hafa rétt og möguleika til að hafa ef tir- lit með framkvæmd samningsins og þetta er síðan skilgreint þannig: Það verður að vera ljóst, að íslenzk varðskip geti í fram- kvæmd stöðvað brezka togara og litið eftir veiðarfærum þeirra, stöðvað veiðar þeirra, ef þeir brjóta f bága við samkomulagið. Annað er ekki sagt af hálfu Luðvíks Jósepssonar í maimán- uði. Sjötti liður samkomulagsins er fremur hagstæðari okkur Is- lendingum en Lúðvík lagði til í maí, þótt æskilegra hefði verið að ákvæðin um lögsöguna sam- kvæmt 6. lið hefðu verið skýrari og m.a. eðlilegra, að brezkur tog- ari, sem staðinn er að veiðum í bága við samkomulagið hefði rétt til þess að kalla á brezkt eftirlits- skip til að sannreyna málsatvik 1 stað þess að leggja þá skyldu á íslenzkt varðskip. Ég tel hins vegar, að þótt ég telji lögsöguákvæðið f sjötta tölu- lið, eins og ég hef þegar greint frá, viðunandi, þá sýnir það best, að um sérreglu er á ræða, að forsætisráðherra hefur gert það fyrir sjávarútvegsráðherra að flytja sérstakt frumvarp um Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.