Morgunblaðið - 13.11.1973, Síða 15

Morgunblaðið - 13.11.1973, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1973 15 Neyðarástand í orku- málum í Bretlandi? 260 þúsund námuverkamenn komnir í yfirvinnubann London, 12. nóvember, AP. ekki verði algert neyðarástand í YFIRVINNUBANN 260 þúsund orkumálum I vetur. kolanámuverkamanna hófst I Bretar eru þegar farnir að Bretlandi I dag og segja sérfræð- finna fyrirolíuskorti vegna átak- ingar, að það geti á nokkrum vik- um haft þær afleiðingar, að kola- framleiðsla Iandsins minnki um helming. Fjölmiðlar telja sumir, að stjórnin neyðist til að grfpa til neyðarráðstafana, m.a. að kveðja hermenn til ýmissa starfa, til að Skylab III: Brottför á Canaveralhöfða, Flórfda, 12. Eldtraustur kokkteill r frá Islaridi Los Angeles, 12. nóv. AP. UM 400 barþjónar frá 27 lönd- um tóku þátt í 22. alþjóðlegu kokkteilkeppninni, sem fram fór f Los Angeles um helgina, þar á meðal einn Islendingur, sem blandaði kokkteil er hann nefndi „Eldtraustan". Ekki er vitað, hvort kokkteillinn fékk verðlaun, en sigurvegari varð Bjarne Eiriksen frá Noregi. anna í Miðausturlöndum, og ýmis olíufélög hafa hvatt til skömmt- unar, þar saH^þau verði annars ekki fær um að afgreiðapantanir. Þau hafa jafnframt látið að þvf liggja, að töluverðar verðhækkan- ir séu yfirvofandi. Þá eru rafmagnsverkfræðingar og aðrir sérfræðingar á því sviði einnig í yfirvinnubanni. Þeir neita að sinna neyðarút- köllum vegna bilana, og viðhald á á ýmsum mikilvægum orku- verum er i lágmarki. Ef verkfall þeirra dregst á lang- inn, getur skapast mjög slæmt ástand í raforkuverunum. Kolanámuverkamennirnir hafa reynst harðskeyttir í fyrri kjara- deilum sínum og hafa verið í verkfalli vikum saman án þess að láta nokkurn bílbug á sér finna. Stjórnin hefur gefið í skyn, að hún telji ekki líklegt, að meiri- hluti þeirra kæri sig um lang- vinnt verkfall, en mikið ber f milli. N-Irland: Viðræður um stjórnarsamstarf nóvember AP. Bandarfsku geimferðayfirvöld- in skýrðu frá þvf f dag, að viðgerð á eldflauginni, sem flytja á undan áætlun, og að hægt yrði að skjóta stöðinni á loft nk. fimmtu- dag. Hefur skottfmin verið ákveð- inn kl. 14,36 að ísl. tfma. Geimskotið var frestað, er upp komst, að 8 jafnvægisbörð á Saturneldflauginni voru gölluð. Skylab geimfararnir Carr, Poyue og Gibson hvflast i einangrunaríbuð sinni í Iohnsongeimstöðinni í Houston og bíða þess að geta haf- ið leiðangurinn, sem á aðstanda í 85 daga, og ef allt gengur að ósk- um, verður það enn eitt nýtt geim- ferðamet fyrir Bandankjamenn. Þeir eiga að fljúga til Canaveral- höfða síðdegis á morgun. Sérfræðingar segja, að ef eld- flauginni hefði verið skotið á loft með gölluðu jafnvægisbörðunum, hefði verið stórhætta á, að hún hefði ekki þolað flugátakið og sprungið í loft upp. Sérfræðingar segja, að gallarnir hafi komið í ljós, er vart varð við salttæringu á börðunum. Belfast, 12. nóvember AP. LEIÐTOGAR þriggja stærstu stjórnmálaflokkanna á N-trlandi hófu f dag á ný viðræður til að finna grundvöll fyrir stjórnar- samstarfi kaþólska minnihlutans og mótmælenda. Heimildir herma, að leiðtogarnir hafi f dag verið vonbetri um að ná árangri f viðræðunum nú en er þær hófust fyrir tveimur mánuðum. Andrúmsloftið f Belfast var þó ekki friðsamlegt, er viðræðurnar hófust, því að f gærkvöldi sprungu sprengjur í fjórum krám f Belfast, og særðust 13 manns, sumir alvarlega. Þá sprakk sprengja á fjölförnum gatna- mótum í morgun, er fólk var á leið til vinnu og slösuðust margir, þó enginn alvarlega. Lögreglu- yfirvöld kenna öfgamönnum um sprengingarnar, en segja ekki, hvort um liafi verið að ræða kaþólska eða mótmælendur. Jakobsen og jafnaðarmenn hafa jafnt fylgi Kaupmannahöfn, 12. nóv. NTB, Skv. skoðanakönnun, sem kunn gerð var í Danmörku í dag í Politiken, nýtur hinn nýi flokkur Erhards Jakobsens, jafnmikils fylgis og Jafnaðarmannaflokkur- inn eða 18%. Flokkur Glistrups hefur hins vegar tapað miklu fylgi, eðaur 17% í 5%. Sluppu yfir múrinn Berlín, 12. nóvember, AP. TVEIM ungum Austur-Þjóð- verjum tókst að flýja yfir múrinn til Vestur-Berlínar á sunnudag, þrátt fyrir skothríð landamæra- varða. Austur-þýzkir landamæra- verðir sáu piltana, þegar þeir voru að læðast yfir „dauðu lín- una“ sem kölluð er og skutu á þá af vélbyssum. Þeim tókst þó að forðast skothríðina og klifra yfir múrinn, þar sem vestur-þýzkir verðir tóku á móti þeim. Piltamir eru 18 og 20 ára að aldri. Tító í Moskvu Moskvu 12. nóvember AP. TlTÓ Júgóslavíuforseti kom í opinbera heimsókn til Moskvu í dag og var vel fagnað af Brezh- nev, aðalritara sovézka kommún- istaflokksins, sem kyssti hann á báðar kinnar. Heimsóknin mun standa í 4 daga, og er talið, að helztu við- ræðuefnin verði ástandið í Mið- austurlöndum. Þetta er þriðji fundur þeirra Brezhnevs og Títós á rúmu ári. Er eyrað af Paul Getty III? Róm, i2. nóvember AP—NTB. MÓÐIR Paul Gettys III, sem hvarf f júlf sl. á Italíu, barst um helgina bréf, sem f var hægra eyra af manni og hárlokkur, sem bréfritari segir, að sé af syni hennar. Er hótað að senda fleiri Ifkamshluta af Getty f bréfi, ef f jölskylda hansgreiðir ekki lausnargjaldið, sem ræn- ingjarnir krefjast, en það er 5 milljónir dollara, eða um 420 milljónir fsl. kr. Móðir Gettys er sögð sann- færð um, að eyrað og lokkurinn séu af syni hennar, og í samtali við Rómarblaðið II Messagero grátbað hún ræningjana um að hlífa honum við frekari pynt- ingum. I viðtalinu biður hún ræningjana um að hafa sima- samband við sig, svo að hún geti fullvissað sig um, að sonur- inn sé á lífi, eða að þeir sendi henni mynd, sem sýni, að hægra eyrað vanti. Skv. dagsetningunni á bréfinu hefur það verið 19 daga á leiðinni, en móðir Gettys, kvikmyndaleikkonan Gail Harris segist hafa rætt við son sinn f sfma 6 dögum eftir að bréfið á að hafa verið póstlagt, 22. október, en hann hafi aðeins fengið að segja örfá orð. I bréf- Paul Getty III, hans hefur nú verið saknað frá þvf f júli sl. inu segir, að verði lausnar- gjaldið ekki greitt innan 10 daga verði vinstra eyrað skorið af drengnum. Afi drengsins milljarðamæringurinn Paul Getty hefur neitað að greiða lausnargjaldið fjrir sonarson sinn. Alþjóðalögreglan Interpool kannar nú, hvort hugsanlegt sé að eyrað hafi komið frá ein- hverju sjúkrahúsi á Ítalíu. Pául Getty III er 17 ára að aldri og lék upphaflega grunur á, að hann hefði sjálfur sett ránið á svið. Brúðkaup aldarinnar? ANNA Bretaprinséssa og Mark Philips höfuðsmaður verða gefin saman í hjónaband á morgun, miðvikudag. 1500 hundruð manns verða í brúðkaupsveizlunni, en gert er ráð fyrir að 500 milljónir fylgist með brúðkaupinu f sjónvarpi, en það eru jafnniargir og fylgdust með því þegar menn stigu fyrst fæti á tunglið. PRAVDA styður Nixon forseta Moskvu, 12. nóvember AP. MOS KVUBLAÐIÐ Pravda, málgagn sovézka kommúnista- flokksins, tekur f dag upp hanskann fyrir Nixon Banda- rfkjaforseta og segir, að þeir, sem vilji, að Nixon segi af sér eða verði sviptur embætti, séu óskammfeilnir, hefnigjarnir, óábyrgir og f miklum minni- hluta. Fréttin er skrifuð af frétta- ritara Pravda f New York, og er talið, að birting hennar sé merki um það, að sovézkir leið- togar ætli sér að styðja ákveðn- ar við bakið á Bandaríkjafor- seta. Fréttin er skrifuð á venju- legan sóvézkan hátt, þ.e.a.s. að birt eru ummæli erlends stjórnmálamanns, og er hér um að ræða ummæli eftir banda- rfska viðskiptaráðherrann Frederic B. Dent, sem gerð eru að stefnu sovézkra ráðamanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.