Morgunblaðið - 13.11.1973, Síða 18

Morgunblaðið - 13.11.1973, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÖVEMBER 1973 Matthías Á. Mathiesen: MATTHlAS Á. Mathiesen, sem er annar fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í utanríkisnefnd, flutti ræðu I umræðunum á Alþingi í gær um landhelgismálið. 1 upphafi ræðu sinnar rifjaði þingmaðurinn upp ummæli Ölafs Jöhannessonar for- sætisráðherra frá umræðum f þinginu 1960 og 1961 og vakti athygli á þeirri gjörbreytingu, sem orðið hefði á viðhorfi for- sætisráðherra i landhelgismálinu frá þeim tíma og til þess., dags. Síðan rakti Matthfas atburði sfð- ustu vikna og benti á, að hefði ekki verið farið að ráðum Sjálf- stæðisflokksins á utanríkis- nefndarfundi 26. september sl. hefðu engar tillögur legið fyrir nú um lausn deilunnar. Hér fer á eftir frásögn af ræðu Matthíasar Á. Mathiesen. „Eikki til að gagnrýna hæstv. for- sætisráðherra fyrir skoðanir hans í dag, heldur miklu frekar til að sýna f ram á það breytta hugarfar, sem er hjá forsætisráðherra, breyttar skoðanir hans, langar r Abending sjálfstæðismanna 26. sept. réð úrslitum mig til að vekja athygli á ummæl- um hans og afstöðu, þegar á Al- þingi 1960 og ’61 þáverandi land- helgisdeila var til umræðu. Þá gagrýndi núverandi hæstv. forsætisráðherra þáverandi ríkis- stjörn fyrir undanlátssemi við Breta, fyrir það að gera samninga við Breta og veita þeim heimildir til þess að veiða innan 12 mflna landhelginnar. Hæstv. forsætis- ráðherra sagði í ræðu á Alþingi 14. nóv. 1960, með leyfi forseta: „Ein þó að ég ámæli ekki ríkis- stj. og áfellist það ekki út af fyrir sig, að hún hefur tekið upp við- ræður við Breta um þetta inál, þá er annað, sem ég tel fulla ástæðu til að átelja í sambandi við þær viðræður, sem ríkisstj. hefur tek- ið upp. Ég tel, að rikisstj. hefði, um leið og hún féllst á að taka upp viðræður við Breta um land- helgismál, átt að lýsa því yfir, að ekki kæmi til mála nein minnkun landhelginnar, nein minnkun fiskveiðilandhelginnar, að það kæmi ekki til mála nein innfærsla á landhelgislínunum, hvorki al- mennt né gagnvart meinni ein- stakri þjóð. Hún átti að lýsa því yfir, að enginn undansláttur frá landhelgislínunni kæmi til greina f samningaviðræðum." Þetta sagði hæstv. forsætisráð- herra, áður en landhelgissamn- ingurinn var lagður fyrir Alþingi, áður en honum var Ijóst, að með samningnum frá 1961 fékkstland- helgin stækkuð um 5.065 ferkm. Þegar svo samningurinn var til umræðu á Alþingi, sagði hæstv. forsætisráðherra 2. marz 1961, með leyfi forseta: „Það hefur til þessa verið stefna íslenzkra stjórnarvalda, að landhelgina ætti að færa út með einhliða ákvörðun Islendinga, en ekki með samningum við aðrar þjóðir nema þá alþjóðasamþykkt. Þess vegna var margendurtekn- um tilmælum frá NATO þjóðum 1 um um að taka upp samninga um landhelgismálið vísað á bug. Slík- ' um tilmælum var einmitt hafnað með orðsendingunni 20. ágúst 1958. Nú eru hins vegar teknir upp samningar við Breta um stærð landhelginnar og um rétt- indi Bretum til handa í fiskveiði- landhelginni. Það eru ný og hættuleg vinnubrögð í þessu lffs- hagsmunamáli þjóðarinnar. Hve- nær hefðu Islendingar getað fært fiskveiðilandhelgina út f 12 sjó- mflur, ef sú útfærsla hefði verið háð samningum við aðrar þjóð- ir?“ Þegar þessi ummæli hæstv. for- sætisráðherra eru borin saman við gjörðir ríkisstjórnar hans nú, verður ekki með sanni sagt, að þar hafi verið farið að hans ráð- um skv. fyrrgreindum ummælum. Nú er öldin önnur hjá Ólafi Jó- hannessyni. Nú veitir hann ríkis stjórn Islands forsæti. Hegðun hans hefur líka verið með allt öðrum og skynsamlegri hætti en hann taldi 1960-’61, að hegðun forsætisráðherra ætti að vera í slíku lífshagsmunamáli, eins og hann þá orðaði það. Nú telur for- sætisráðherra eðlilegt að semja við Breta. Nú telur hann rétt að veita þeim réttindi til veiðainnan landhelginnar meira að segja án þess, að þeir viðurkenni þá land- helgi, sem við höfum tekið okkur, eins og Bretar þó gerðu með samningunum 1961.“ Matthías A. Mathiesen rakti síðan ítarlega gang mála frá þvf að forsætisráðherra kom heim frá Lundúnum og móttökur þær, sem viðleitni hans fékk hjá Alþýðu- bandalaginu. Síðan vék þingmað- urinn að því, hvort eitthvert sam- band væri á milli þeirrar ákvörð- urnar Alþýðubandalagsins að samþykkja samningana og varnarmálanna. Hann sagði, að kommúnistar mundu hafa farið fram á það við forsætisráðherra og utanríkisráðherra að gegn stuðningi við samkomulagið fengju þeir fulltrúa í nefnd til viðræðna um vamarmál- in. Forsætisráðherra neitaði því i sjónvarpsviðtali fyr- ir skömmu, að þessum málum hefði verið blandað sam- an. Engu að sfður vil ég spyrja forsætisráðherra til þess eins að svör hans séu gefin á Alþingi: Voru Alþýðubandalagsmönnum í sambandi við afgreiðslu þessa máls gefnar einhverjaryfirlýsing- ar varðandi öryggis- og vamar- málin? Við sjálfstæðismenn höfum allt- af viljað freista þess að leysa landhelgisdeiluna við Breta. Af- staða fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins f utanrfkisnefnd hefur verið í samræmi við það. Við höfum með skýrum bókunum gert grein fyrir skoðunum okkar og aðvarað ríkis- stjórn og meirihluta utanríkis- nefndar, þegar í óefni hefur stefnt. Ekki er hægt að segja, að meirihluti utanrikisnefndar hafi hagað vinnubrögðum sínum út frá sama sjónarmiði, ef borin er saman afstaða meirihluta utan- ríkisnefndar til þeirrar tillögu sem hér er til umræðu og afstaða saman meirihluta á utanríkisnefd arfundi 26. sept. sl. þegar fyrir lá forsenda þeirrar niðurstöðu sem nú liggur fyrir. Að dómi okkar sjálfstæðismanna eru þau því miður ekki með þeim hætti, sem við hefðum kosið og hægt hefði verið að ná, ef ekki hefðu stjórn- að þessum málum, menn, sem voru sjálfum sér sundurþykkir og hluti þeirra í raun og veru vildi ekki friðsamlega lusn. heldur áfr- am ófrið á miðunum og lakari árangur af útfærslu landhelginn- ar. Síðan rifjaði Matthías A. Mathiesen upp ósk forsætisráð- herra um álit utanríkisnefndar á fyrsta bréfi Heaths og sagði: Hvernig brást utanríkisnefnd við? Hverjar voru skoðanir nefndarmanna? Jú, það vorum við Jóhann Hafstein, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem einir töldum það ómaksins vert að at- huga betur, hvað fyrir forsætis- ráðherra Breta vekti og forsætis- ráðherra Islands ákvæði til þess stuttan frest. Aðrir nefndarmenn töldu ekki ómaksins vert að skoða málið, heldur lögðu til að stjórn- málasambandi við Breta yrði slit- ið þá þegar næstu daga. Það gerðist hins vegar næsta dag, sem sjálfsagt var, að for- sætisráðherra fór ekki að ráð- um meirihluta utanríkisnefndar. heldur að tillögum okkar Jóhanns Hafsteins. Hefði ráðherrann farið að tillögum meirihluta nefndar- innar, hefðu þeir ekki haft neitt tækifæri til að mæla með þessari þingsályktun og tillögurnar væru hér ekki til umræðu. Kaupstaðarrétt- indi handa Sel- tjarnarneshreppi Á fundi neðri deildar sl. fimmtudae var til fvrstu umræðu f neðri deild frumvarp til laga um kaupstaðarréttindi til handa Seltjarnameshreppi. Matthfas A. Mathiesen (S) mælti fyrir frum- varpinu, sem flutt er af öllum þingmönnum Reykjaneskjör- dæmis f neðri deild. Sagði hann, að frumvarpið væri flutt að ein- róma beiðni hreppsnefndar Sel- tjarnarneshrepps. Matthías sagði, að ibúatala hreppsins hefði verið 2393 1. des sl., en búast mætti við, að íbú- amir yrðu orðnir 6—8 þúsund innan fárra ára. Eins og nú væri þyrftu íbúarnir að sækja ýmiss konar opinbera þjónustu til Hafnarfjarðar, og væri það afar óhagkvæmt. Ólafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra beindi þeim tilmælum til þingnefndarinnar, sem fengi málið, að hún leitaði álits hjá dómsmálaráðuneytinu áður en hún afgreiddi frum varpið. Þá tóku einnig til máls Ingvar Gíslason (F) og Matthías A. Mathiesen aftur. Síðan var frum- varpinu vísað til félagsmála- nefndar og 2. umræðu. — Tryggjum 200 mílur Framhald af bls. 14 breytingar á íslenzkum lögum til þess að skýra þetta ákvæði. Hitt er svo annað mál, hvaða þýðingu það frv. hefur gagnvart gagn- aðila. Samningurinn frá 1961 hagstæðari Þá gerði Geir Hallgrímsson samanburð á samkomulaginu nú og samningnum 1961. Hann sagði: En þó blandast mönnum væntanlega ekki hugur um, að samningurinn 1961, var mun betri. Hann hefur, eins og kunnugt er, verið kallaður mesti stjórnmálasigur Islendinga og því getur sá samningur, sem hér er til umræðu, verið viðunandi, þótt hann komist ekki í samjöfnuð við samninginn 1961. Ég vil benda á nokkur atriði máli mínu til sönnunar. I fyrsta lagi þá fékkst með samningnum 1961 full viður- kenning Breta á útfærslu land- helginnarf 12 mílur. Með þeim samningi, sem nú er til umræðu, er beinlínis tekið fram bæði í formála og loka- orðum, að hann hafi ekki áhrif á lagaskoðanir aðila eða réttindi varðandi efnisatriði deilunnar. Elftir tvö ár getur því sama ástand upphafist aftur og verið hefur nú í sumar, með þeim hættum, sem því hafa fylgt. Að vísu erum við sjálfstæðis- menn svo bjartsýnir, að álíta að Hafréttarráðstefnan hafi þáleittí 1 jós, ekki eingöngu ótvíræðan rétt okkar yfir 50 sjómflna landhelgi, heldur og yf ir 200 mílna auðlinda- lögsögu. Við höfum líka að okkar leyti með þingsályktunartillögu okkar á þingi um útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 200 sjómílur fyrir árslok 1974 gert Ijóst, hvert við stefnum. Sömuleiðis er til bóta frumvarp ríkisstjórnarinnar, þar sem kveður svo á um, að land- grunn samkvæmt lögunum frá 1948, sem sjálfstæðismenn áttu frumkvæðið að því að setja, skuli miðast við 200 mílur. Þá er það heldur ekki fjarri lagi að telja töluverða möguleika á því, að Bretar muni á samnings- tímanum snúast jafnvel á sveif með þeim þjóðum, sem styðja 200 mílna fiskveiðilögsögu. Þeir geta haft töluverða hagsmuni af þvf, en hvað sem því líður, þá ætti sigur okkar að vera öruggur. Það, sem úrslitum ræður, er hafréttar- ráðstefnan. I stjórnmálanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur samhljóða verið samþykkt að halda Hafréttarráð- stefnuna í Venezuela á næsta ári, og strax þá er búist við ákveðinni stefnuyfirlýsingu af hennar hálfu. Sá annmarki þessa samnings, að ekki er greint frá, hvað við taki eftir 2 ár, hefur þannig vonandi ekki neikvæðar afleiðingar. I öðru lagi var það alveg ljóst samkvæmt samningnum 1961, að enginn sérregla gilti um lögsögu íslenzkrar landhelgisgæzlu, að því er varðaði framkvæmd samn- ingsiris, eða viðurlög við brotum á honum, eins og óneitanlega er um að ræða samkvæmt þeim samn- ingi, sem nú er hér til umræðu. Leiddi þetta þegar að því, að samningurinn frá 1961 fól í sér fulla viðurkenningu gagnaðila á útfærslu fiskveiðilögsögunnar, sem núgildandi samningur gerir ekki, eins og áður er sagt. I þriðja lagi vil ég benda á það, að samkvæmt samningnum frá 1961 voru grunnlínur leiðréttar okkur í hag, sem jók fiskveiðilög- sögu okkar mjög verulega. Og varð sú aukning í raun og veru mun meira virði heldur en þær takmörkuðu veiðiheimildir, sem gert var ráð fyrir í samningnum og að verður vikið síðar. Samkvæmt þessum samningi er ekki um neina aukningu íslenzkr- ar fiskveiðilögsögu að ræða, og ekki hefur einu sinni verið eftir slíkri aukningu leitað. I f jórða lagi er rétt, að það komi fram, að þær veiðiheimildir, sem veittar voru samkvæmt samn- ingnum 1961, voru hlutfallslega mun takmarkaðri en þær veiði- heimildir, sem nú eru veittar. Þá var hvergi farið inn að gömlu fiskveiðimörkunum, en nú er aðalreglan að fara nær alls staðár inn að 12 mflum. Þá var um mjög miklu tímabundnari veiði- heimildir að ræða en nú, þar sem aðeins eitt svæði er f senn lokað tvo mánuði f einu. I fimmta lagi Skal þess getið, að þá var bein yfirlýsing um það, að við mundum færa út fiskveiðiiög- sögu okkar frekar í framtíðinni. en nú er ekki á það mirinst einu orði í þessum samningi, að til þess skuli koma. Þetta verður þó von- andi ekki, ásteytingarsteinn síðar, vegna þess að við sjálfstæðismenn höfum, eins og áður er sagt, flutt þingsályktunartillögu um út- færslu f 200 mflur og ríkisstjórnin frumvarp um breytingu á land- grunnslögunum, sem hnfgur f svipaða átt. Þess vegna má við- semjendum okkar vera ljóst, að hverju við stefnum, og kann raunar að vera eins og um var getið áðan, að við eigum í þeim efnum samleið í framtiðinni. 1 sjötta lagi var samkvæmt samningnum 1961 ákvæði um, að ef ágreiningur yrði um útfærslu, skyldi þeim ágreiningi vera skotið fyrir Alþjóðadómstólinn. Um þetta ákvæði hefur staðið mikill styrr eins og kunnugt er, og skal ég út af fyrir sig ekki rifja þær deilur upp. En það, sem talið hefur verið þessum samningi til gildis, að ekki væri gért ráð fyrir neinum yfirdómi, eða gerðardómi, þá er rétt að geta þess, að hæstvirtur sjávarútvegsráðherra hefur ekki verið fráhverfur gerðardómi. A Genfarráðstefnunni fyrri 1958, þegar Lúðvfk Jósepsson var sjávarútvegsráðherra var lögð fram tillaga um rétt strandríkis til ráðstafana utan við sjálfa fisk- veiðilögsöguna af hálfu íslenzku ríkisstjórnarinnar. I þeirri tillögu var það eitt meginatriði, að gerðardómur skyldi skera úr, ef ágreiningur yrði. Sú tillaga náði þó ekki samþykki, en var á ný flútt á ráðstefnunni 1960, að til- hlutan viðreisnarstjórnarinnar, með samþykki allra fslenzku full- trúanna þar á meðal Lúðvíks Jósepssonar. Þannig hefur það verið tvívegis gert að beinni tillögu af tslands hálfu á alþjóðavettvangi, að ráð- stafanir utan 12 mflna yrðu ekki gerðar nema ágreiningur út af þeim væri borinn undirdóm. Ég hef aldrei talið það ann- marka á samningnum frá 1961, að skjóta málum okkar fyrir Al- þjóðadómstólinn og vitna í því sambandi til víðfrægra orða hæst- virts forsætisráðherra um það, að við ættum að undirbúa hvert það skref, sem við tækjum í land- helgismálinu, svo vel, að það stæðist fyrir Alþjóðadómstóli. Ég tel, að réttur okkar sé svo ótvf- ræður, að engin hætta sé á ferð, ef við höfum trú á málstað okkar og erum þeir menn að þora að standa fyrir máli okkar á þeim vettvangi, þannig að dómstóllinn kveði upp úrskurð sinn á réttum forsendum. Tryggjum 200 mílur I lok ræðu sinnar lagði Geir Hallgrfmsson áherzlu á, að megin rökin fyrir því, að semja bæri við Breta nú og setja niður deilur við Vestur-Þjóðverja, væru þau, að við þyrftum að einbeita okkur að sigri málstaðar okkar á Hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Okkar færustu menn væru og hefðu verið um of bundnir við þessa deilu í stað þess að geta einbeitt sér með einhuga þjóð að baki að því að ná árangri til þess að tryggja 200 mflurnar. I þvf væru fólgnir yfirgnæfandi hags- munir í bráð og lengd öldnum og óbornum til gæfu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.