Morgunblaðið - 13.11.1973, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1973
19
Skýringar þjóna
— vegna yfirstandandi kjaradeilu
Vegna yfirstandandi kjaradeilu
framreiðslumanna vill Félag
framreiðslumanna vekja athygli á
eftirfarandi:
Undanfarin átta ár hefur þjón-
ustugjald framreiðslumanna
verið reiknað sem 15% af verði
veitinga til almennings að með-
töldum söluskatti. Það hefur þvf
að undanförnu verið bakreiknað
sem 13.05% af heildarverði veit-
inga. Hinn 29. f.m. gekk í Félags-
dómi dómur þess efnis að þjón-
ustugjald skyldi lagt á veitinga-
verðið án söluskatts. I framhaldi
af því lögðu veitingamenn hinn 1.
nóvember s.l. fyrir framreiðslu-
menn að bakreikna þjónustu-
gjaldið með 11,543% af heildar-
verði veitinga, en þetta orsakaði
um það bil 11% kauplækkun hjá
framreiðslumönnum. Fram-
reiðslumenn töldu að með slíkri
launalækkun væru forsendur
brostnar fyrir því að starfa áfram
við óbreytta samninga og þarsem
samningar voru lausir var verk-
fall boðað með lögmæltum fyrir-
vara.
Aður en til verkfalls kom gáfu
framreiðslumenn tvívegis kost á
því að fresta verkfallinu.
Fyrst með því skilyrði að unnið
yrði áfram á óbreyttum launum
unz samningar hefðu tekizt og
veitingamenn féllu frá meintum
endurkröfurétti og sfðar með því
skilyrði að samningur sá sem
tækist með aðilum við lok vinnu-
deilunnar gilti frá 1. nóvember.
Báðum þessum tilboðum höfnuðu
veitingamenn. Þess skal að Iokum
getið að krafa félagsins um 23%
þjónustugjald svarar til 16.67%
af heildarverði veitinga.
Oskar Magnússon.
Islendingur í framkvæmdaráð
Alþjóðasambands áhugaleikhúsa
A SÍÐASTA fundi Alþjóðasam-
bands áhugaleikhúsa, sem haldið
var í Monaco, var Jónas Amason
kosinn í framkvæmdaráð sam-
bandsins.
Norrænu fulltrúarnir á fundin
um stungu sameiginlega upp á
Jónasi, og er hann fyrsti íslend-
ingurinn, sem hlýtur sæti f þessu
ráði. Alþjóðaleikhúsráðið skipu-
leggur samstarf milli áhugaleik-
húsa um heim allan, m.a. með
leiklistarhátíðum og nám-
skeiðum. Mest hefur starfsemi
þessi hingað til verið í Evrópu,
þar sem leikhúsmálasamskipti
hafa eflzt mikið fyrir tilverknað
rfkisins. Nú að undanförnu hefur
starfsemin færzt æ meir yfir í
aðrar heimsálfur og ekki hvað sízt
til hinna ungu þjóðfélaga í Afríku
JSIiér0:MtWaí>í$>
margfaldor
markad yðar
og Asíu. Einn mikilvægasti þátt-
urinn í starfsemi ráðsins er út-
gáfa leikhúsverka, ekki hvað sízt
frá þjóðum, sem af tungumála-
ástæðum (eins og við Islend-
ingar) eiga erfitt með að koma
verkum sínum á framfæri við
aðrar þjóðir.
Bandalag fslenzkra leikfélaga á
sem kunnugt er aðild að Norræna
áhugaleikhúsasambandinu og
hafa af því sprottið marg-
vísleg góð samskipti milli
Islendinga og annarra Norð-
urlandaþjóða. Bandalag ísl.
leikfélaga á hins vegar ekki
aðild að Alþjóðasambandi áhuga-
leikhúsfélaga. íslendingar hafa
þarna ásamt Færeyingum staðið
utan við einir Norðurlandaþjóða.
Nú verður að teljast tímabært,
að bandalagið gangi einnig í
Alþjóðasamband áhugaleikhús-
félaga, þegar norrænu fulltrú-
arnir þar hafa sameinazt um að
koma íslendingi í ráð sambands-
ins. Aðalstöðvar sambandsins eru
í Haag. Næsti fundur sambands-
ráðsins verður í lok janúar n.k.
(Fréttatiikynning).
— Tómarúmið
Framhald af bls. 11
Það sem þjóðin verður að gera
sér grein fyrir er að þessi svo-
nefnda kjarabarátta undir forystu
kommúnista er ekki það sem he-
nni er sagt, heldur þjónusta við
einræðið.
Þorsteinn Stefánsson.
HafnarflðiHTur
Góð húseign við Tjarnarbraut er til sölu. Húsið er
steinhús, tvær hæðir 6—7 herbergi og kjallari með
afgirtri lóð á fallegum stað við Lækinn.
ÁRNI GUNNLAUGSSON, HRL.
Austurgötu 10, HafnarfirSi.
Sími 50764.
Kúpllngs-
dlskar
í flestar gerðir
bifreiða
fyrirliggjandi
STORÐ H. f.
Ármúla 24.
Sími 81430.
Þl LPLÖTU R
Ódýra viðarklæðningin er komin aftur.
Verð aðeins kr. 971.— pr. plötu.
Stærð á plötu 122x244 cm.
J. Þorláksson og Nordmann h.f.
RICOMAC
'imop
El
El
El
E
Œ
E
Kl
Œ
E
m
U)
Nýjasta modelid frá RIOOIVIAO hefur stóran -ftakka,
sem audveldar samlagningu og kemur i veg fyrir villur.
Hljódlát: Slekkur á prentverkinu ef engin vinnsla i 3 sek., ræsir þad
sjálfkrafa er vinnsla hefst ad nýju.
Grandtotal - Merkjaskifti - Minus-margföldun, auk + — X +
IMýtt og glæsilegt útlit.
Verd adeins kr. 36.900-
HRINGIÐ -
KOMIÐ -
SKRIFIÐ -
%
SKRIFSTQFUVELAR H.F.
+
$
Hverfisgötu 33
Simi 20560 - Pósthólf 377