Morgunblaðið - 13.11.1973, Page 22

Morgunblaðið - 13.11.1973, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1973 Minning: Örn Steinar Steingrímsson F. 14. des. 1937 D. 6. nóv. 1973 ÖRN lést að heimili sínu Siglu- vogi 12 hér í borg 6. nóv. Hann er horfinn héðan svo óvænt. Okkur langar að skrifa nokkur kveðju- og þakkarorð til hans fyrir allar skemmtilegar samverustundir, sem við höfum átt með honum. Þótt dauðinn bíði okkar allra, þá eru fæstir viðbúir honum, allra síst, þegar ungt fólk á í hlut. Þótt Nolli, eins og hann var alltaf kallaður, hefði átt við vanheilsu að stríða nú um nokkurt skeið, þá vissu það fáir, þvf hann var dulur um sfna hagi, kvartaði aldrei, en alltaf jafn kátur og glaður, þegar maður hitti hann og sérstaklega orðheppinn, enda greindur vel. Hann hafði unun af lestri góðra bóka, var mjög söngelskur, og hafði fallega rödd. Alltaf var lag- ið tekið, þegar fjölskyldan hittist, enda Nolli alltaf hrókur alls fagn- aðar. Við trúum því ekki enn, að t GUÐBJÖRG EYSTEINSDÓTTIR Hofi, Grindavik. andaðist í Landspitalanum 11. nóv. Sigurður Ólafsson, Margrét Sigurðardóttir. þessi káti og glaði frændi okkar sé horfinn sjónum okkar um sinn. En það er svo margt í þessari veröld, sem við skiljum ekki. Örn Steinar Steingrímsson var fæddur hér i Reykjavík 14. des. 1937, sonur hjónanna Guðrúnar Pétursdóttur og Steingrims Þórð- arsonar byggingameistara. Þau hjón eignuðust fjögur börn Val- gerði, Kolbrúnu, öm og Jóhann. Aðeins 14 ára að aldri, missti hann móður sina, sem vissulega var mikið áfall á því viðkvæma aldursskeiði. Móðurmissirinn tengdi þau systinin í Efstasund- inu óvanalega sterkum böndum. Frá barnæsku dvaldi Nolli á sumrin að Asbjamarstöðum á Vatnsnesi V. Hún., og þar var að heita má hans annað heimili alla tíð síðan. Þar undi hann sér ein- staklega vel, og dvaldi hann þar seinast um tíma s.I. sumar. Hann bar sérstakan hlýhug til heimilis- fólksins þar og var mjög þakklát- ur þessu vinafólki sínu. Ungur kvæntist hann Dagmar Jóhannesdóttur og eignuðust þau tvö börn önnu og öm, og voru þau hans líf og yndi. Þau hjón slitu samvistum. Árið 1971 stofnuðu þau Öm og Hafdfs Ingvarsdóttir heimili hér í Reykjavík, sem var sérlega fallegt og hlýlegt. öm var jarðsettur frá Fossvogs- kapellu mánudaginn 12. þ.m. Við sendum öllum ástvinum hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Svava og Jóhanna Þörðardætur. t Systir okkar, MAGNEA JÓHANNESDÓTTIR NYROP, andaðistá sjúkrahúsi I Kaupmannahöfn, laugardaginn 10. nóvember Fyrir hönd systkina hinnar látnu, Kristín Jóhannesdóttir. t Dóttir mín, RAKEL ÁRNADÓTTIR Laugarnesveg 106. andaðist á Borgarspitalanum fimmtudaginn 8 nóv. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna Sigríður Jakobsdóttir. t Móðir okkar og tengdamóðir KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR frá Skútustöðum andaðist í Landakotsspítala laugardaginn 10. nóvember. Kveðjuathöfn fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 14 þ.m. kl. 10,30 Jarðað verður að Skútustöðum laugardaginn 17. þ.m Jóhanna Hermannsdóttir Hallur Hermannsson Ingibjörg Hermannsdóttir Ingunn Hermannsdóttir Þórhallur Hermannsson Sigurveig Halldórsdóttir William Dinusson Jónas Pálsson Sigríður Pálsdóttir I gær var jarðsettur frá Fossvogs- kirkju öm Steinar Steingrímsson eða Nolli eins og hann var alltaf kallaður. Það er ekki ætlunin að rifja hér upp ævisögu Nolla, heldur aðeins að kveðja góðan vin með nokkrum fátæklegum orðum. Við undirritaðir höfum ásamt Nolla vafstrað í mörgu bæði í leik Og starfi til sjós og lands. Síðustu viku hafa minningarnar hrannast upp í huga okkar; minningar frá fjörugu síldarsumri, minningar frá vetrarvertíð úr Eyjum, minn- ingar frá þeim stundum þegar Nolli stjórnaði glaðværum söng á ferðalögum. Þannig mætti lengi telja en seint verða þær allar upp taldar og aldrei munu þær gleym- ast, og Nolli mun lifa í minningu allra sem honum kynntust, hvort sem þau kynni urðu löng eða skömm, því þannig var Nolli gerð- ur, að hann átti alltaf eitthvað handa öllum. Hann gat glaðst á góðri stund og til hans var gott að leita f raunum. Með þessum orðum kveðjum við vin okkar og vottum öllum hans nánustu okkar dýpstu samúð í hinni þungu sorg, sem að hönd- um hefur borið. Jón Þór og Halli Greips. Þegar ég heyrði, að hann væri dáinn, minn kæri sonur, svona snögglega, en ég hafði talað við hann fyrir tveim dögum, hressi- lega að vanda, dutttu mér í hug orð Hallgríms Peturssonar. Dauðinn má svo með sanni samlfkjast, þykir mér Jóhannes Hinnriks- son — Minningarorð Fæddur 21. janúar 1904 Dáinn 27. október 1973 ÉG VIL með fáum orðum minnast þessa góða vinar míns og sam- starfsmanns um fjölda ára á Skagaströnd, sem svo snögglega var burt kvaddur í fullu fjöri, að maður getur varla trúað því, að hann sé allur. En enginn ræður för. Jóhannes Hinnriksson, svo hét hann fullu nafni, var fæddur að Leysingjastöðum f Þingi. For- eldrar hans voru Hinnrik Magn- ússon og kona hans Helga Jó- hannesdóttir. Jóhannes varð fyrir því mikla áfalli að missa móður sína þriggja ára og naut uppeldis eftir það hjá föður sínum. Hugur Jóhannesar hneigðist að störfum feðra hans og hóf hann því nám á Búnaðarskólanum á Hvanneyri árið 1925 — 1927 og lauk þaðan búfræðingsprófi. Árið 1937 — 15. maf kvæntist Jóhannes eftir- lifandi konu sinni Sigurlaugu Eðvarðsdóttur, heimasætu frá Helgavatni f Vatnsdal. Þau hófu búskap að Hölabaki í Þingi, þar sem þau bjuggu til 1943, er þau fluttust að Háagerði á Skaga- strönd, þar bjuggu þau til 1947, t Systir okkar JÓNA EGGERTSDÓTTIR WAAGE, Litla Kroppi, verður jarðsett frá Fossvogs- kirkju, miðvikudaginn 14. nóvember kl. 1 30 e.h Ingibjörg og Guðmundur Waage. en fluttust þá að Ásholti á Skaga- strönd og hafa búið þar síðan. Börn þeirra hjóna eru: Eðvarð vélstjóri, kvæntur Margréti Sigurgeirsd., Helga, gift Sveini S. Ingólfssyni kennara, Hinnrik skipasmiður, ókvæntur. Vegna mikilla hæfileika, traust- vekjandi framkomu, ljúf- mennsku, hjartahlýju og dugnað- ar hlóðst á Jóhannes margvísleg trúnaðarstörf. Hann starfaði í hreppsnefnd Höfðahrepps frá 1954 til 1966, eða 12 ár. I stjórn Kaupfélags Skagstrendinga frá 1954 til 1968, þar af formaður í 8 ár. I stjórn Kaupfélags Húnvetn- inga 1970 til 1973. I stjórn Búnaðarfélags Skagastrandar frá 1948 til dauðadags og formaður lengst af. I kjörstjórn 12 ár og fjölda mörg ár í stjórn Verkalýðs- félags Skagastrandar, enda mikill samvinnu- og verkalýðssinni. Þegar slíkir menn sem Jóhann- es falla í valinn er mikið skarð fyrir skildi hjá ástvinum og öðr- um samtíðarmönnum hans. Þessar fátæklegu línur mínar til minningar um þennan látna vin minn megna lítið til þess að gera minningu hans þau skil, sem þurft hefði. Ég átti því láni að fagna að starfa meira og minna um 25 ára bil með Jóhannesi að margvíslegum málefnum Skaga- strandar. Er mér Ijúft að minnast þessa, og þrátt fyrir að pólitískar skoðanir okkar féllu ekki saman og af því stormaði stundum á báð- ar hliðar, bárum við fullt trúnaðartraust hvor til annars, svo algjört, að aldrei féll á það nokkur skuggi. Jóhannes var sjálfkjörinn for- ingi samvinnu- og verkamanna, og hélt svo vel á sínu forustuhlut- verki, að hann hafði óskorað traust allra til dauðadags, ena ósérhlffinn og ooóserhlffinn og Móðir mín, t SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, frá Hvítadal, verður jarðsungin frá Kristkirkju, Landakoti miðvikudaginn 14. nóvem- ber kl 2 e.h. Fyrirhönd systkina minna. Anna Stefánsdóttir. t Útför eíginmanns míns og föður okkar, GUÐMUNDAR VILHJÁLMS HJÁLMARSSONAR, kaupfélagsstjóra Ásum, fer fram frá Fossvogskírkju miðvikudaginn 14 nóvember kl. 3.00 Margrét Rögnvaldsdpttir og börn. slyngjum þeim sláttumanni, er slær allt, hvað fyrir er. grösin, og grundir græuar glóandi blómstrið frítt, reyr, stör sem rósir vænar reiknar hann jafnfánýtt. Sem eldri manni finnst mér það jafnvel eðlilegra, fljótt á litið, að gömul kona eða maður, sem eru farin að haltra við staf til þess að komast leiðar sinnar, og þurfa að lokum sömu umönnunar við og lítið barn í vöggu, deyi. Dagsverkinu er lokið. Ungir menn deyja í blóma lífsins, fullir af fjöri æskumannsins og með áhuga á hinum ýmsu þáttum vandamála okkar litla þjóðfélags. Þá ríkir sorg og söknuður hjá ættingjum og vinum, og þjóðfé- lagið hefur misst góðan þegn. Þegar ástvinir manns deyja, vaknar ávallt sú spurning og verð- ur býsna ofarlega í huga okkar. Eigum við ekki eftir að hittast einhverns staðar. Ríkja þar ekki fegurri sjónarmið en við höfum nokkurn tíma þekkt áður? Vertu blessaður og sæll. Pabbi. óþreytandi við að vinna að bætt- um kjörum lftilmagnans, sem hann var svo ótvfrætt alla tfð fyir brjósti. Ahugamaður var Jóhann- es um allar framkvæmdir og hafði þar forustu f byggðarlagi sfnu á fjölda mörgum sviðum, en hafði jafnframt svo mikla dómgreind, að aldrei var farið út fyrir ramma raunhæfrar getu og i hverju máli var stakkur sniðinn eftir vexti. Mikill og góður ræðumaður var Jóhannes, alltaf mjög skemmti- legur á fundum og öðrum sam- komum, og laginn við að koma mönnum í létt skap, þótt rætt væri um leiðinda málefni. Sæti Jóhannesar verður því vand- skipað. Jóhannes var mikill gæfu- smiður í sínu fjölskyldulífi. Eins og áður segir var hann kvæntur mannkosta konu, sem bjó honum fagurt fyrirmyndar heimili og var honum stoð og stytta í Iffsbarátt- unni. Ég minnist Jóhannesar sem góðs vinar og samstarfsmanns. Hann setti mikinn svip á sitt um- hverfi og frá honum geislaði Wýju, góðvild og hjálpsemi til náungans. Að slíkum mönnum er mikil eftirsjá. Blessuð sé minning hans. Ég vil svo senda Sigurlaugu konu hans, börnum og öllu venzlafólki mfnar innilegustu samúðar- kveðjur okkar hjóna, og veit, að minningin um góðan eiginmann og ástríkan föður, yfirstígur sorg og söknuð þeirra, sem um sárast eiga að binda. Þorfinnur Bjarnason. S. Helgason hf. STBINIÐJA llnhokl 4 Slmar 74477 og 14254

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.